Morgunblaðið - 04.05.1994, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
ÚRSLIT
O’Neal úr leik
REGGIE Miller átti mjög góð-
an leik þegar Indiana Pecers
lagði Orlando að velli, 99:86,
í þriðja leik liðanna og er Indi-
ana þar með komið áfram í
Austurdeildinni og leikur í
FOLK
■ DENNIS Rodmari hjá San
Antonio Spurs, var dæmdur í eins
leiks keppnisbann og 710 þús. kr.
sekt fyrir fólskulegar árásir á
Utah-leikmennina Tom Cham-
bers og John Stockton.
■ RODMAN hefur tekið flest
fráköst í NBA-deildinni, eða að
meðaltali 17,3 í leik. í tveimur
fyrstu leikjunum gegn Utah í úr-
slitakeppninni tók hann að meðal-
fcali 14 fráköst.
■ ÞRÍR leikmenn sem tóku þátt
í slagsmálum í leik Atlanta og
Miami voru einnig dæmdir í bann
og sektaðir. Keith Askins hjá
Miami var dæmdur í þriggja leikja
bann og 1,1 millj. kr. í sekt og
félagi hans Grant Long fékk eins
leiks bann og 710 þús. kr. í sekt.
Douglas Edwards hjá Atlanta
fékk tveggja leikja bann og 710
þús. kr. sekt.
■ ÞÁ fengu sex leikmenn Atl-
anta og sex leikmenn Miami 178
þús. kr. sekt hver fyrir að taka
þátt í slagsmálunum.
■ QUINN Buckner var í gær
látinn fara frá Dallas Mavericks
eftir eitt ár sem aðalþjálfari liðs-
ins. Dallas var lakast í deildinni,
sigraði í 13 leikjum og tapaði 69.
■ ÞAR með eru þijár aðalþjálfa-
rastöður lausar í NBA-deildinni.
Magic Johnson hefur tilkynnt að
hann vilji ekki halda áfram með
Los Angeles Lakers og Wes
Unseld hefur sagt starfi sínu
lausu hjá Washington Bullets.
undanúrslitum gegn sigur-
vegaranum í viðureign Atl-
anta og Miami. „Við erum til-
búnir að mæta hverjum sm
er,“ sagði Miller, sem skoraði
31 stig og þar af átta af stig-
um liðsins er það skoraði
þrettán fyrstu stigin, 13:0, í
fjórða leikhluta og lagði þar
með grunninn að sigrinum,
en Orlando var yfir 68:72.
Índiana hefur unnið ellefu leiki í
röð og virðist liðið hreint
óstöðvandi. Rik Smits skoraði
22 stig og Dale Davis 12, en hann
tók 14 fráköst. Shaquille O’Neal
skoraði 23 stig fyrir gestina og
tók 14 fráköst. Leikmenn Orlando
veittu heimamönnum harða keppni
í byrjun. „Þegar við vorum átta
stigum undir, var eins og búið
væri að stinga rýtingi í hjarta
mitt. Ég óskaði því eftir leikhléi
til að ræða við mína menn,“ sagði
Larry Brown, þjálfari Indiana.
„Leikmenn Orlando léku af miklu
öryggi og O’Neal var í ham. Ég
sá að leikurinn yrði erfiður, en
Vern Fleming og Raggie Miller
sáu til þess við héldum okkar
striki, með mjög yfirveguðum og
góðum leik.“
Óvænt hjá Denver
Reggie Williams lék sinn besta
leik á keppnistímabilinu þegar
Denver Nuggets náði að leggja
Seattle SuperSonics á heimavelli,
110:93, í þriðja leik liðanna. Hann
skoraði 31 stig í leiknum. Dikembe
Mutombo skoraði 19 stig og Rodn-
ey Rogers 15 fyrir heimamenn.
Detlef Schrempf skoraði 18 stig
fyrir gestina. Fyrir leikinn var tal-
ið næsta víst að Seattle, sem náði
bestum árangri í vesturdeild NBA,
63 sigurleikjum, myndi vinna ör-
uggan sigur. Leikmenn Denver
voru ekki á sama máli, en þess
má geta að aðeins fögur félög í
sögu NBA-deildarinnar hafa náð
sér á strik eftir töp í fyrstu tveim-
ur leikjunum og unnið 3:2 — síð-
ast Phoenix Suns gegn LA Lakers
í fyrra.
5>
Ráðstefna fyrir knattspyrnubialfara
Fræðslunefnd KSÍ, í samráði við Fræðslunefnd UEFA, gengst fyrir
ráðstefnu fyrir knattspyrnuþjálfara 6.-7. maí nk. Frummælandi
verður hinn þekkti þjálfari Belgíu til margra ára, hr. Guy Thys.
Ráðstefnan fer fram á Hótel Loftleiðum og hefur þátttökugjald
verið ákveðið kr. 5.000. Dagskrá iiggur fyrir og er svohljóðandi:
Föstudagur 6. maí:
Kl. 18-20 FULLTRÚAR DÓMARA GERA GREIN FYRIR
LAGABREYTINGUM OG FYRIRMÆLUM FYRIR
SUMARIÐ 1994.
Kl. 20.00 Hr. Thys Val og skoðun á leikmönnum.
Kl. 21.00 Hópvinna.
Kl. 21.30 Umræður.
Laugardagur 7. maí:
Kl. 10.00 Hr. Thys Leikgreining á andstæðingum. Leikskipulag.
, Kl. 11.00 Hópvinna.
Kl. 11.45 Umræður.
Kl. 12.15 Hádegisverður/hlaðborð.
Kl. 14.00 Hr. Thys Þjálfun/stjórnun í leik. Leikgreining eftir leik.
Kl. 15.00 Hópvinna.
Kl. 15.45 Umræður.
Kl. 16.15 Hr. Thys Situr fyrir svörum.
Skráning fer fram á skrifstofu KSÍ og lýkur 4. maí. Hér með eru
allir þjálfarar hvattir til þess að koma á ráðstefnuna og heyra hvað
þessi einstaki þjálfari til margra ára hefur fram að færa.
Góð þjálfun - betri knattspyrna.
Ráðstefnan, þ.e. erindi hr. Thys, verða flutt á frönsku, en þeir
Þorfinnur Ómarsson og Hákon Gunnarsson munu túlka.
Reggie Miller átti mjög góðan leik með Indiana.
Körfuknattleikur NBA-deildin Austurdeild Indiana - Orlando 99:86
■indiana vann 3:0. Vesturdeild: Denver - Seattle ■Seattle er yfir 2:1. Íshokkí NHL-deildin 110:93
Leikir í undanúrslitum í Vesturdeild:
Toronto - San Jose 2:3
■San Jose er yfir 1:0. Dallas - Vancouver 4:6
■Vancouver er yfir 1:0.
FELGSLIF
Frægur þjálfari í
heimsókn hjá FRÍ
Fræðslunefnd Fijálsíþróttasambands ís-
lands gengst fyrir námskeiði fyrir þjálfara
og fijálsíþróttafólk um næstu helgi, 6. -
8. maf. Leiðbeinandi verður hinn þekkti
Bruce Longden, sem er meðal virtustu þjálf-
ara f heiminum. Hann er einn af landsliðs-
þjálfurum Breta og aðalþjálfari Sally Gunn-
el, sem er heimsmethafi og ólympíumeist-
ari í 400 metra grindahlaupi. Longden var
einnig þjálfari Daley Thompson þegar hann
var fremsti tugþrautarmaður heims.
Longden mun flalla um þjálfun í 400 m
grindahlaupi og í 400 og 800 metra hlaupi.
Námskeiðið hefst í Iþróttamiðstöð ISÍ
föstudaginn 6. maf kl. 20. Þátttökutilkynn-
ingar berist skrifstofu FRl.
KNATTSPYRNA
Kominn var tími á mig
og þetta gekk ekki upp
- sagði Ellert B. Schram, sem náði ekki endurkjöri ístjórn UEFA
ELLERT B. Schram, forseti
íþróttasambands íslands, sem
hefur verið framkvæmda-
stjórnarmaður í Knattspyrnu-
sambandi Evrópu, UEFA, und-
anfarin átta ár, náði ekki endur-
kjöri á aðalfundinum í síðustu
viku. „Ég hafði ákveðið að
hætta og hafði tilkynnt það
bréflega, en fyrir þrábeiðni
ýmissa í stjórninni og annarra
féllst ég á að gefa aftur kost á
mér,“ sagði Ellert við Morgun-
blaðið. Hann fékk 21 atkvæði
og var þremur f rá því að ná
kjöri, en 13 buðu sig fram í sex
stöður.
Ellert fór fyrst inn í fram-
kvæmdastjórnina, þegar hann
var formaður Knattspyrnusam-
bands íslands, og hefur síðan verið
í ýmsum mikilvægum nefndum
UEFA, „verið notaður meira en
góðu hófi gegnir,“ eins og hann
orðaði það.
Hann var í framkvæmdanefnd
Evrópukeppni landsliða, þegar
henni var breytt í eina mestu
Ellert B. Schram
íþróttakeppni heims. Eftir harm-
leikinn á Heysel varð hann formað-
ur öryggis- og eftirlitsnefndar
UEFA, sem tók til hendi á völlum
og áhorfendastæðum. Síðan fór
Ellert í fjölmiðlanefnd, sem vann
m.a. að því að gera samninga um
beinar sjónvarpssendingar. Hann
var varamaður í framkvæmdanefnd
Evrópukeppni félagsliða, sem
breytti m.a. skipulagi meistara-
keppninnar og hefur sú breyting
skapað milljarðahagnað. „Þegar ég
byijaði voru 10 manns í vinnu á
skrifstofunni og ijárhagsáætlun
ársins um 500 milljónir. Nú vinna
60 manns þarna og fjárhagsáætlun-
in er um 15 milljarðar, en KSÍ fékk
um 16 milljónir frá UEFA á síðasta
ári,“ sagði Ellert.
Ellert sagði að starf sitt hjá
UEFA hefði sífellt orðið tímafrek-
ara, kostað mörg ferðalög og mikla
vinnu. „Þetta gekk einfaldlega ekki
upp vegna vinnu minnar, fjölskyldu
og starfa fyrir ÍSÍ auk þess sem
það var kominn tími á mig, en gert
er ráð fyrir að skipt sé á mönnum
innan Norðvestur-Evrópu á fjög-
urra ára fresti. Hugurinn stóð til
að draga mig í hlé og ég er hálf
feginn — þetta fór eins og ég vildi,
en formaður og framkvæmdastjóri
UEFA hafa boðið mér að taka sæti
í nefnd að eigin vali og ég ætla að
skoða það í rólegheitum."
BORÐTENNIS
A-lið Vík-
ings deildar-
meistari
Víkingur, A-lið, varð um helgina
deiidarmeistari í borðtennis
1994. A-liðið, sem skipað var þeim
Guðmundi E. Stephensen, Ingólfi
Ingólfssyni og Kristjánsi Jónssyni,
sigraði B-lið Víkings í spennandi
úrslitaleik 4:3.
Punktastaðan í meistaraflokki
karla er nú þannig:
GuðmundurE. Stephensen, Víkingi.....202
Peter Nilsson,KR....................114
Kristján Jónsson, Vlkingi............74
Ingólfur Ingólfsson, Víkingi.........72
Ólafur Rafnsson, Víkingi.............58
í Eyjum
PEPSI Pœjumótið verður
haldið dagana 9.-12. júní í
Vestmannaeyjum. Mótið er fyrir
2., 3.. 4. og 5. flokk kvenna í
knatfspyrnu. Leikið verður í sjö
manna liðum f öllum flokkum.
AUir leikirnir fara fram á grasi.
Skráningarfrestur
er til 10. mai
í faxi 98 - 1 12 60.
Nánari upplýsingar
eru veittar I
Þórsheimilinu
í síma 98 - 1 20 60.