Morgunblaðið - 02.06.1994, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
122. TBL. 82. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Á flótta
með son
og sveðju
TALSMAÐUR Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) í Rúanda sagðist í
gær vonast til að SÞ hæfu fljót-
lega að flytja flóttamenn frá
landinu að nýju en aðgerðum
var hætt á þriðjudagskvöld eft-
ir að friðargæsluliði féll í
sprengjuárás uppreisnar-
manna. SÞ hittu fulltrúa upp-
reisnarmanna, sem flestir eru
af tútsí-ættbálki, í gær og neit-
uðu þeir að hafa skotið viljandi
á friðargæsluliðana. Sagði tals-
maðurinn að um leið og að ör-
yggi gæslusveitanna hefði verið
tryggt enn frekar hæfu her-
menn SÞ störf að nýju og bjóst
hann jafnvel við því að það yrði
í dag. Þá lagði hann mikla
áherslu að fjölgað yrði í sveit-
um SÞ í landinu. Kanadamenn
ákváðu í gær að senda 300 frið-
argæsluliða til Rúanda til við-
bótar þeim 470 sem eru þar.
Mikill straumur flóttamanna af
hútú-ættbálki er nú frá Kigali,
höfuðborg Rúanda, og voru
þessir fegðar þeirra á meðal.
Stjórnarherinn, sem að mestu
er skipaður hútúum, verst
sunnan við Kigali og sögðu full-
trúar SÞ að uppreisnarmenn
sæktu mjög á í bardögum við
stjórnarherinn.
Reuter
Róttæk OECD-skýrsla um atvinnuleysi
Auka þarf frelsi
á vinnumarkaði
Verkamannaflokkurinn í Bretlandi
Fullvíst talið að
Blair verði næsti
flokksformaður
London. Reuter.
HELSTI keppinautur Tonys Blairs um leiðtogaembætti Verka-
mannaflokksins, Gordon Brown, lýsti því yfir í gær að hann hygð-
ist draga sig út úr baráttunni. Þar með þykir fullvíst að Blair, sem
er 44 ára og fyrrverandi lögmaður, verði formaður flokksins.
Jemen
Orrustan
um Aden
harðnar
Aden. Reuter.
HERINN í Suður-Jemen vann að
því í gær að styrkja varnirnar
umhverfis Adenborg en búist er
við, að hersveitir stjórnarinnar í
Norður-Jemen geri brátt úrslitatil-
raun til að ná henni á sitt vald.
Voru harðir bardagar á öllum víg-
stöðvum við borgina.
Flugherir beggja jemensku ríkj-
anna létu mjög til sín taka í átök-
unum í gær og norðanmenn skutu
þremur flugskeytum á Aden. Lenti
eitt þeirra á flugvellinum í borg-
inni en olli engum skemmdum að
sögn sunnanmanna. Svöruðu þeir
fyrir sig með því að skjóta flug-
skeytum á liðsafnað norðan-
manna.
SÞ hvetja til vopnahlés
Öi-yggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær ályktun þar
sem hvatt er til tafarlauss vopna-
hlés í stríðinu í Jemen og skorað
á fulltrúa landshlutanna að semja
um frið.
Kvaðst Brown,
sem er talsmaður
Verkamanna-
flokksins í fjár-
málum, styðja
Blair í formanns-
kosningunum,
sem verða í júní
en formaður
flokksins, John
Smith, lést úr
hjartaáfalli 12.
maí sl.
Með þessu
dregur Brown
mjög úr frama-
vonum sínum
innan flokksins
og færir pólitíska
fórn sem verður
líklega. til þess
að koma í veg
n • i Blair
fynr langa og rown
hatramma bar-
áttu um formannsembættið. í yfir-
lýsingu sinni sagði Brown að hann
hvetti Blair til að bjóða sig fram og
að hann hefði stuðning sinn til að
verða formaður og forsætisráðherra
landsins. Blair og Brown eru gamlir
vinir og með þessu er talið að kom-
ið sé í veg fyrir að aðrir frambjóðend-
ur geti skákað Blair í kapphlaupinu
um embættið. Framboðsfrestur til
formannsembættisins er til 10. júní.
Auk Blairs þykir líklegt að John
Prescott, talsmaður flokksins í at-
vinnumálum, Robin Cook, talsmaður
hans í iðnaðarmáium, og Jack Cunn-
ingham, talsmaður hans í utanríkis-
málum, hyggi á framboð. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum njóta þeir
umtalsvert minna fylgis en Blair og
Brown.
Talið nauðsynlegt að lækka lág-
markslaun og atvimluleysisbætur
LÆGRI lágmarkslaun og lægri atvinnuleysísbætur eru meðal þeirra ráða,
sem ríku iðnþjóðirnar eru hvattar til að grípa til í baráttunni gegn atvinnu-
leysinu. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu frá OECD, Efnahags- og fram-
farastofnunmni, þar sem lagðar eru ti
atvinnu- og þjóðfélagsmálum en áður
í skýrslunni, sem International
Herald Tribune greindi frá í gær,
er lögð áhersla á nauðsyn þess að
viðhalda velferðarkerfinu og skýrt
tekið fram, að tillögurnar eigi ekki
jafnt við um öll aðildarríki OECD,
25 að tölu. Almennt er þó lagt til,
að fijálsræði á vinnumarkaði verði
aukið og fyrirtækjum gert auðveld-
ara að fækka og fjölga starfsfólki.
Er því haldið fram, að ósveigjanleg-
ar reglur um þessi efni séu ein af
ástæðum þess, að 35 milijónir manna
hafi ekki atvinnu í OECD-ríkjunum.
Paye-skýrslan, kennd við Jean-
Claude Paye, framkvæmdastjóra
OECD, hefur verið tvö ár í vinnslu
en verður lögð fram á ársfundi stofn-
róttækan raðstafamr í efnahags-,
hafa komið fram.
unarinnar í París í næstu viku. Fylg-
ir henni sérskýrsla um efnahagsmál
þar sem sagt er, að svigrúm sé til
enn meiri vaxtalækkana í Evrópu.
Lagt er til, að heimiit verði að
greiða lægri lágmarkslaun en nú er,
þar sem núgildandi lög um þau komi
víða í veg fyrir að ungt fólk sé ráð-
ið til starfa og hvatt er til endurskoð-
unar á atvinnuleysisbótakerfinu.
Lækka verði bætur í ríkjum þar sem
þær eru svo háar, að þær letja fólk
en hvetja ekki til að leita sér vinnu.
Að auki er lagt til, að vinnutíminn
verði sveigjanlegri; skriffinnska í
kringum atvinnurekstur minnkuð og
áhersla á menntunar- og starfsþjálf-
unarnámskeið aukin.
Hátíðahöldin
undirbúin
UNDIRBÚNINGUR er langt á veg kominn fyrir
hátíðahöld í Frakklandi í tilefni þess að á mánu-
dag verður hálf öld liðin frá D-deginum svokall-
aða, innrás bandamanna í Normandí í Frakklandi.
Þjóðhöfðingjar Bandaríkjanna, Bretlands og
Frakklands, hermenn sem tóku þátt í innrásinni
auk fjölda gesta munu sækja Normandí heim. Þá
verður þúsundum gamalla farartækja úr heijum
bandamanna ekið um götur bæja og borga í ná-
grenninu en meðal þeirra er þessi herjeppi í eigu
Bandaríkjamannanna fjögurra á myndinni. Ekki
eru þó allir á eitt sáttir um framkvæmd hátíðahald-
anna og hafa bæði Rússar og Danir mótmælt því
að þeiin hafi ekki verið boðið að vera viðstaddir
þau. Hyggjast danskir uppgjafarhermenn standa
fyrir eigin minningarathöfn á þeim hluta strandar-
innar í Normandí sem bandamenn nefndu Utah,
en um 800 danskir sjómenn, flestir í breska sjó-
Iiernum, tóku þátt. i innrásinni.