Morgunblaðið - 02.06.1994, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Samkomulag milli framsóknar og krata um myndun meirihluta í bæjarstjóm
Vona að fólk taki
eftir breytingum
„ÉG VONA að fólk taki fljótt eftir
því að nýr meirihluti er að taka
við,“ sagði Gísli Bragi Hjartarson,
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins, en
skrifað hefur verið undir samkomu-
lag um myndun nýs meirihluta í
bæjarstjórn Akureyrar næsta kjör-
tímabil milli Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks. Fulltrúar fyrrnefnda
flokksins eru fimm talsins en Al-
þýðuflokkurinn fékk einn mann
kjörinn í bæjarstjóm í kosningunum
síðasta laugardag.
Málefnasamningur
ófrágenginn
í samkomulagi flokkanna felst að
Jakob Björnsson verður bæjarstjóri
en hann skipaði fyrsta sæti á lista
Framsóknarflokksins. Málefna-
samningur fiokkanna byggist á
stefnuskrám þeirra en Gísli Bragi
sagði að enn ætti eftir að vinna
betur að ýmsum málum og yrði
samningurinn því kynntur síðar en
vonast er til að hægt verði að bera
hann upp á félagsfundi í flokkunum
fljótlega.
Nýi meirihlutinn tekur við völdum
í bæjarstjórn á fundi 14. júní næst-
komandi og þá mun Halldór Jóns-
son, sem verið hefur bæjarstjóri síð-
asta kjörtímabil, láta af því starfí
en hann tekur síðar í sumar við
fyrra starfi sínu sem framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
og Alþýðubandaiags, sem mynduðu
meirihluta á síðasta kjörtímabili,
verða í minnihluta á því næsta.
„Mér líst ágætlega á þetta sam-
starf,“ sagði Gísli Bragi og kvaðst
ekki óttast að verða undir einn á
móti fimm þungavigtarmönnum í
Framsóknarflokknum. „Ég tel að
ég megi ágætlega við minn hlut
una.“ Hann sagði að í fyrsta lagi
fengi flokkurinn nú menn í nefndir
og ráð bæjarins sem væru umskipti
frá því sem var „við erum komin í
þá stöðu að geta haft áhrif og það
er Ijóst að staðan er sterkari þegar
flokkurinn á einn mann í meirihluta
en minnihluta og við eigum þar af
leiðandi þátt í að taka ákvarðanir".
Gísli Bragi taldi að með því að
ráða pólitískan bæjarstjóra væri
stigið skref sem ekki yrði stigið til
baka aftur. „Með þessu er pólitíkin
komin á aðra braut en verið hefur
og það er mín hjartans sannfæring
að svona eigi þetta að vera. Fólk
veit þá fyrirfram hver það er sem
mun stýra.“
Ýmislegt hægt að gera
Gísli Bragi sagði að íjárhags-
áætlun þessa árs væri bundin,
þannig að nýjar áherslur kæmu
betur í ljós við gerð þeirrar næstu.
Þá benti hann á að um 70% af tekj-
um bæjarins væru bundnar í rekstri
og einnig þyrfti nýr meirihluti að
standa áfram við samninga sem
gerðir hefðu verið í tengslum við
þriggja ára áætlun um rekstur og
framkvæmdir bæjarins. „En það er
ýmislegt hægt að gera og ég vona
að bæjarbúar taki eftir að nýr meiri-
hluti sest brátt í stólana."
Trygga
læknis-
þjónustu á
úthafinu
„SKIPSTJÓRA- og stýrimannafélag
Norðlendinga skorar á sjávarútvegs-
ráðherra að beita sér fyrir því að
íslenska úthafsveiðiflotanum verði
tryggð læknisþjónusta á miðunum á
þeim tímum sem úthafsvertíðin
stendur," segir í áskorun frá félaginu
sem samþykkt var fyrir skömmu, en
einnig lýsir stjórn félagsins því yfir
að hún sé reiðubúin til viðræðna við
stjórnvöld varðandi útfærslu þessa
mikilvæga öryggsmáls sjómanna.
Fram kemur í áskoruninni að á
úthafskarfamiðunum suður af land-
inu séu á tímabilinu mars til ágúst
um 12-15 íslensk skip á veiðum í
einu og fari þeim ljölgandi ár frá
ári með aukinni sókn og megi því
áætla að um 400 íslenskir sjómenn
séu stöðugt á þessum slóðum.
Hættuleg störf
„Taka verður tillit til þess að þar
eru að störfum sjómenn við erfið og
hættuleg- störf þannig að ætla má
að þörf fyrir læknisþjónustu sé mun
meiri en fyrir samsvarandi hóp að
störfum í landi,“ segir í áskorun fé-
lagins til sjávarútvegsráðherra og
einnig er þar tekið fram að sömu
sjónarmið eigi við um svokallaðar
smuguveiðar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hráslagalegt
fyrsta veiðidaginn
HELDIJR var hráslagalegt um
að litast þegar fyrstu veiðimenn-
irnir mættu við opnun efsta
svæðis í Laxá í gærmorgun og
hitinn ekki nema rétt um 2 stig.
Hinir áköfu veiðimenn létu sig
það ekki miklu skipta. Jón Ey-
fjörð frá Akureyri var mættur í
Geirastaðaskurð við Mývatn í
býtið í gærmorgun og var búinn
að fá einn urriða þegar ljósmynd-
ari heimsótti hann við ána.
fluqfélaq
noróurlancfs Iif
SÍMAR 96-12100 «g 02-11353
Sextíu ár frá Dalvíkurskjálftanum
Sýning í máli og
myndum í sumar
SEXTÍU ár eru í dag, 2. júní, frá því mikill jarðskjálfti reið yfir Norður-
land en áhrif hans voru mest á Dalvík og skjálftinn gjarnan kenndur við
bæinn. Skjálftinn byijaði kl. 12.43 og á þeim tíma verður opnuð sýningin
Dalvíkurskjálftinn 1934 í Ráðhúsi Dalvíkur.
Jarðskjálftans varð víða vart en
áhrifin urðu mest við utanverðan
Eyjafjörð og þá sýnu mesti á Dalvík
og í Svarfaðardal enda upptökin tal-
in vera milli Dalvíkur og Hríseyjar.
Á Dalvík og á Upsaströnd varð 51
íbúðarhús óíbúðarhæft eftir skjálft-
ann, þar af urðu 18 gjörsamlega
ónýt.
Ekki var byijað að mæla styrk
skjálfta á Richter-kvarða á þessum
tíma en talið er að hann hafi verið
um sex og kvart á Richter. Ekki
urðu teljandi slys á fólki í þessum
hamförum á Dalvík en flestir voru
heima við um hádegisbilið er skjálft-
inn varð.
Húsnæðislaust fólk lét fyrirberast
í tjöldum. Brátt tóku gjafir og hjálp-
argögn að berast hvaðanæva af
landinu og öflugt hjálparstarf hófst
strax eftir skjálftann undir stjórn
svokallaðrar jarðskjálftánefndar.
Sýning í sumar
í tilefni af því að 60 ár eru liðin
frá þessum atburði verður í dag,
fimmtudaginn 2. júní kl. 12.43, opnuð
sýningin Dalvíkurskjálftinn 1934.
Sýningin sem er í máli og myndum
verður opnuð á efstu hæð Ráðhúss-
ins. í kvöld kl. 20.30 hefst síðan
hátíðardagskrá á sama stað, en þar
flytja ávörp Sigurveig Sigurðardóttir,
Hjörtur Þráinsson og Bjarki Elísson.
Sýningin verður opin í sumar eða
fram til 4. ágúst næstkomandi og
er opin daglega frá kl. 13.00 til 17.00.
Heilsu-
hlaup á
laugardag
HEILSUHLAUP Krabbameins-
félags Akureyrar og nágrennis
verður næsta laugardag, 4. júní.
Á Akureyri hefst hlaupið kl. 12.
00 á hádegi við Dynheima og
lýkur þar einnig, en skráning
er frá kl. 10.30 til 11.45. Lúðra-
sveit Akureyrar leikur áður en
lagt er af stað undir stjórn Atla
Guðlaugssonar. Hlaupið verður
frá Dynheimum, suður Hafnar-
stræti og Aðalstræti austur
Duggufjöru og norður Drottn-
ingarbraut að Dynheimum.
í Ólafsfirði hefst hlaupið á
sama tíma og er skráning frá
kl. 11.00 til 11.45. Hlaupið verð-
ur frá gagnfræðaskóla, vestur
Bylgjubyggð, norður Ægisgötu
og yfir í Kleifarhorn til baka að
gagnfræðaskóla.
A Grenivík hefst hlaupið við
Kaupfélagsplanið kl. 14.00 og
lýkur þar einnig, en hlaupið.
verður frá planinu svokallaðan
stóra hring. Skráning fer fram
frá kl. 13.00 til 13.55.
Allur ferðamáti er leyfilegur.
Heilsuhlaup verða í Grímsey og
á Dalvík síðar í sumar.
Forða vélum
frá tjóni
SAMTÖK búvélasafnara við
Eyjaljörð eru að taka á leigu
loðdýrahús sem. þau ætla að
nota til að vernda tæki fyrir
veðurskemmdum, en fyrirhugað
er að félagsmenn fari um í sum-
ar og komi helstu og verðmæt-
ustu tækjunum undir þak í sum-
ar eða haust.
Treglega hefur gengið að út-
vega íjármagn til þessara að-
gerða en þó hefur Menningar-
sjóður KEÁ og Búnaðarsamband
Eyjaijarðar veitt samtökunum
flárhagslegan stuðning.
Samtökin voru stofnuð í febr-
úar í fyrra og er tilgangurinn
að safna, gera við og varðveita
hvers konar gamlar búvélar og
tæki og stuðla að samstarfi fé-
lagsmanna um viðgerðir og
varðveislu þeirra, en félagsmenn
vilja einnig vinna að almennri
umræðu um gildi þess að verk-
þekking feðra okkar og forfeðra
glatist ekki.
Börnum at-
vinnulausra
boðið í sum-
arbúðir
LIONSKLÚBBURINN Hæng-
ur ætlar í sumar að veita styrki
til 20 barna sem áhuga hafa á
vikudvöl í sumarbúðum KFUM
og KFUK að Hólavatni í Eyja-
firði. Styrkirnir eru ætlaðir
börnum foreldra eða forráða-
manna sem misst hafa atvinnu
á Akureyri á síðastliðnum miss-
erum.
Sumarbúðirnar eru ætlaðar
drengjum og stúlkum átta ára
og eldri, en þær eru í innanverð-
um Eyjafirði og hefur vatnið
upp á marga kosti að bjóða en
þá stendur börnunum iíka til
boða að heimsækja bóndabæ
og kynnast störfum þar.
Þeir sem áhuga hafa á að
nýta sér styrki Hængsmanna
eru beðnir að senda séra Þór-
halli Höskuldssyni sóknarpresti
í Akureyrarkirkju umsókn þess
efnis.