Morgunblaðið - 02.06.1994, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 2. JÚNf 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýjar bækur
Einar Bene-
diktsson.
ÚT ER komið Kvæðasafn Einars
Benediktssonar í einni stórbók
og er hér um að ræða endurprent-
un á útgáfu Braga hf frá árinu
1964 á öllum ljóðabókum Einars,
nema hér er sleppt þýðingu hans
á Pétri Gaut. Fremst er prentuð
ritgerð dr. Sigurð-
ar Nordals um
skáldskap Einars,
ævi og störf, en
aftan við kvæðin
er að finna skýr-
ingar sem Pétur
Sigurðsson há-
skólaritari gerði á
sínum tíma.
Einar Benediktsson fæddist árið
1864 en dó árið 1940. Hann kom
víða við á langri ævi, var um hríð
einn umsvifamesti einstaklingur
hér á landi og laðaði að erlend
stórfyrirtæki til samstarfs um
miklar framkvæmdir á íslandi þótt
lítið yrði úr þeim áður en yfír lauk.
En eins og Sigurður Nordal segir
í formála sínum þá leit hann fyrst
og fremst á sig sem skáld: „Ekk-
ert var honum jafndýrmætt sem
skáldskapurinn, ekkert viðkvæm-
ara.“
Mál og menning gefur bókina út
og er hún 683 bis. Bókin er unnin
í G. Ben. Prentstofu hf. og kostar
2450 krónur.
AHRIF
MYNDLISI
P c r I a n
MÁLVERK
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson. Opið
daglega 14-19 til 5. júní. Aðgangur
ókeypis.
ÞAÐ eru ekki margir listamenn,
sérstaklega af yngri kynslóðinni,
sem geta helgað sig listinni alfarið,
en segja má að þeir standi henni
næst sem vinna á skyldum sviðum.
Þannig er málum háttað hjá Vil-
hjálmi G. Vilhjálmssyni, en eftir
að hann útskrifaðist frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1977 sótti
hann nám í Skolen for Brugskunst
í Kaupmannahöfn um tveggja ára
skeið. Hann hefur starfað sem aug-
lýsingateiknari frá 1980 og er fé-
lagi í FÍT sem hefur m.a. sett ár-
lega upp skemmtilegar sýningar á
teikningum un nokkurra ára skeið.
Vilhjálmur hefur tekið þátt í
ýmsum samsýningum og haldið
nokkrar einkasýningar, m.a. í
Listasafni ASÍ og síðast í Perlunni
fyrir tveimur árum. Sýningu sína
að þessii sinni nefnir hann einfald-
lega „Áhrif“, og vísar þannig til
þeirra sjónhrifa sem hann hefur
orðið fyrir af umhverfinu sem er
aðalviðfangsefni hans, hvort sem
það er í sveit eða borg, á íslandi
eða í Danmörku.
Á sýningunni getur að líta tíu
olíumálverk og á fimmta tug pa-
stelmynda, en öll verkin eru unnin
á undanfömum þremur árum. Olíu-
myndimar eru unnar með afbrigði
þeirrar blettatækni sem George
Seurat var frumkvöðull að fyrir
rúmlega öld; Vilhjálmur ber litina
á með þykkum, láréttum pensilför-
um, þannig að ímynd flatarins kem-
ur best fram í ákveðinni fjarlægð.
Breiðar, lóðréttar lita- eða ljóssúlur
skerast síðan lóðrétt inn í myndflöt-
inn og leysa hann upp að nokkm,
en þessi sama aðferð til að ijúfa
flötinn kemur einnig fram í pastel-
myndunum.
Gallinn við blettatæknina hér
felst í sýningarrýminu, en á þessum
stað komast áhorfendur ekki í
hæfilega fjarlægð frá verkunum til
að þau fái notið sín til fullnustu,
VILHJÁLMUR G. Vilhjálmsson: Vestmannaeyjar. 1994.
þ.e. ekki án þess að vökna í fæt-
uma. Hins vegar er beiting litanna
skemmtileg og myndbyggingin
tekst vel, t.d. í „Vestmannaeyjar“
(nr. 6) og „Við Austurbrún" (nr. 9).
í pastelmyndunum eru myndefni
víða af landinu og frá Danmörku,
en myndir úr Reykjavík og ná-
grenni eru mest áberandi. Líkt og
í olíumyndunum er fjörleg mynd-
bygging sterkasti þáttur verkanna,
og má benda á myndir eins og
„Korpúlfsstaðir" (nr. 30) og „Út-
sýnikvöld" (nr. 44) sem dæmi um
það. Hér eru ekki stórvirki á ferð,
heldur ánægjuleg verk sem túlka
ágætlega þau áhrif sem listamað-
urinn hefur orðið fyrir af landinu.
Það er erfítt að sýna á þessum
stað þannig að myndverk nái að
njóta sín og því miður hefur ekki
tekist sem skyldi að þessu sinni.
Olíuverkin þyiftu meira rými til að
vinnubrögð listamannsins fengju
notið sín að fullu og pastelmyndirn-
ar eru helst til margar þannig að
upphengingin verður mjög þétt.
Þetta er til baga, því í þeim má
greina gott auga fyrir myndefninu
og faglega útfærslu þess í við-
kvæmum miðli pastellitanna.
Eiríkur Þo.rláksson
SIEMENS
Blíð náttúrusýn
LLi
NY ÞVOTTAVEL A NYJU VERÐI!
• 11 kerfisinnstillingar fyrir suðuþvott,
mislitan þvott, straufrítt og ull
• Vinduhraði 500 - 800 sn./mín.
• Tekur mest 4,5 kg
• Sparnaðarhnappur (1/2)
• Hagkvæmnihnappur (e)
• Skolstöðvunarhnappur
• Sérstakt ullarkerfi
• [slenskir leiðarvísar
Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnes:
Glrtnir
Borgarfjöröur
Rafstofan Hvítárskála
Hellissandur:
Blómsturvellir
Grundarfjöröur:
Guöni Hallgrimsson
Stykkishólmur
Skipavík
Búðardalur:
Ásubúö
ísafjöröur:
Póllinn
Hvammstangi:
Skjanni
Blönduós:
Hjörleifur Júlíusson
Sauðárkrókur
Rafsjá
Siglufjöröur
Torgio
Akureyri:
Ljósgjafinn v
Húsavík:
Öryggi
Þórshöfn:
Noröurraf
MYNDLIST
Listhúsiö Laugardal
MÁLVERK
Hans Christiansen. Til 5. júní. Að-
gangur ókeypis.
LU
Neskaupstaður:
Rafalda
leyðarfjöröur.
latvélaver
Og verðið er ótrúlega gott.
Siemens þvottavél á aðeins
kr. 59.431
O stgr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
Rafvélaverkst. Árna E.
Egilsstaöir
Sveinn Guömundsson
Breiödalsvík:
Stefán N. Stefánsson
Höfn í Hornafirði:
Kristall
Q Vestmannaeyjar
Tréverk
Hvolsvöllur
CJ Kaupfélag Rangæinga
Selfoss:
Árvirkinn
Garöur.
Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavík:
Ljósboginn
Hafnarfjöröur:
Rafbúö Skúla,
Álfaskeiöi
QQ
VHjir þú endingu og gæði>
í ÓLGU breytinga tímans er
mikil þörf fyrir að hafa viðmiðun
sem lítt haggast og gefur þannig
góðan samanburð við það sem er
nýtt nánast hvem dag, á stöðugum
þeytingi eftir nýjabrumi sem síðan
reynist oft haldlítið þegar að
kreppir. En þá er næsta bylgja
venjulega þegar hafín, svo ekki
þarf að hafa áhyggjur af því sem
ekki gekk.
í myndlist felst þessi viðmiðun
ekki síst í starfí þeirra listamanna
sem hafa fyrir löngu markað sinn
akur og haldið áfram að yrkja
hann um langa hríð, lítt shortnir
af síðari straumum og stefnum.
Margir þessara listamanna hér á
landi hafa einbeitt sér að landslag-
inu í gegnum tíðina, hinni blíðu
náttúrusýn sem fyllir hugi lands-
manna jafnt á löngum vorkvöldum
sem fögrum og litríkum haustdög-
um.
Hans Christiansen er einn þess-
ara hæglátu listamanna og hefur
verið lengi að. Á sýningunni að
þessu sinni sýnir hann rúmlega
Ijöratíu vatnslitamyndir sem eru
ýmist málaðar á sléttan eða hamr-
aðan pappír og notar pennateikn-
ingu á stöku stað til að skerpa
♦ ♦ ♦
fr^i ip
w mjT&
& M f* ’ ' ■
stendur í blóma
Limgerðisplöntur, skógarplöntur, tré, sumarblóm,
áburður, trjákurl, verkfæri og margt fleira.
Nýtt: Lífmold, ljúf til ræktunar.
Opið 8-19 - um helgar 9-17
SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVÍKUR
Fossvogsbletti 1, fyrirneðan Borgarspítalann, sími 641770. Beinn sími söludeildar 641777
ímyndina.
Myndimar skiptast í náttúru-
og landslagsmyndir annars vegar
og stemmur frá höfnum,
fjörukömbum og götum gamla
bæjarins hins vegar. Þessi mynd-
efni eru unnin á afar hefðbundinn
hátt; myndbygging er oftast ein-
föld og litimir fá að njóta sín.
Af þessum myndum má ráða,
að vinnubrögð listamannsins njóta
sín best í litaspili náttúmmynd-
anna, eins og t.d. sést í „Blábeija-
lyng“ (nr. 31) og „í Svínahrauni“
(nr. 3); þar reynir minna á teikn-
ingu en í húsamyndunum sem
sumar hveija eru nokkuð stirðar.
í hugum margra era einfaldar
náttúrastemmur sem þessi kjöl-
festan í myndlistinni sem annað
byggir á. Þessi rómantíska skoðun
markast af stöðugum vinsældum
landslagsmynda genginna lista-
manna, eins og kom berlega í ljós
á yfírlitssýningu um íslenskt
landslag á síðasta ári, þegar marg-
ar perlur á þessu sviði komu aftur
fyrir augu listunnenda. Ýmsir
yngri listamenn hafa snúið sér í
auknu mæli að landinu og hafa
þá beitt nýjum vinnuaðferðum við
að túlka eigin upplifun, en hefð
hinnar blíðu náttúrasýnar er enn
sterk á þessu sviði, eins og sést á
sýningunni hér.
Eiríkur Þorláksson
I SKÍFAN heínr gefið út geisla-
plötu er nefnist íslandslög 2. Á
plötunni er að fínna 11 dægurlög
frá síðustu áratugum. Yfiramsjón
með gerð plötunnar hafði Björg-
vin Halldórsson og útsetti hann
einnig lögin ásamt Jon Kjell
Seljeseth. Söngvarar á plötunni
auk Björgvins era þau Bubbi
Morthens, Egill Óiafsson, Guðrún
Gunnarsdóttir; Ólafur Þórarinsson
ojg Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú).
Á íslandslögum 2 era eftirtalin
lög: Caprí Catarina, Stína Ó Stína,
Þú eina hjartans yndið mitt, Ást-
ardúett, I grænum mó, Undir Stó-
rasteini, Undir bláhimni, Bréfið
hennar Stfnu, Erla, íslandslag og
Dagný.