Morgunblaðið - 02.06.1994, Side 25

Morgunblaðið - 02.06.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ1994 25 Leikfélag Reykjavíkur Síðustu sýn- ingar á Gleðigjöf- unum ALLRA síðustu sýningar verða á Gleðigjöfunum eftir Neil Simon í Borgarleikhúsinu nk. föstudags- og laugardagskvöld. í kynningu segir: „Gleðigjafarnir er súrsætur gamanleikur um tvo skemmti- krafta, þá Alla og Villa, sem skemmtu saman í u.þ.b. 40 ár, en slitu samstai'finu í fússi og hafa ekki talast við í ellefu ár. Nú er verið að reyna að fá þá til að koma saman einu sinni enn í sjónvarps- þætti, sem fjalla á um gullöld leik- aranna.“ Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason fara með aðalhlutverk- in ásamt með Guðmundi Olafs- syni. I öðrum hlutverkum eru Pétur Einarsson, Steindór Hjör- leifsson, Ellert A. Ingimundarson, Guðrún Ásmundsdóttir og Björk Jakobsdóttir. Leikmynd og bún- inga gerir Steinþór Sigurðsson, en lýsing er í höndum Elfars Bjarnasonar. Leikstjóri er Gísli Rúnar Jónsson og þýddi hann jafn- framt verkið og staðfærði. Sýningar eru að nálgast þrjátíu en þær allra síðustu verða sem áður sagði, nk. föstudags og laug- ardagskvöld. Finnsk glerlist FINNSKI glerlistamaðurinn prófessor Oiva Toikka held- ur fyrirlestur um finnska glerlist í Norræna húsinu föstudaginn 3. júní kl. 17. Oiva Toikka er þekktur fyrir glerskúlptúra sína. Toikka hef- ur starfað sem prófessor í Finn- landi og Svíþjóð. Fyrirlestur prófessors Oiva Toikka er í tengslum við sýn- inguna Ný finnsk glerlist, sem opnuð verður í Ráðhúsi Reykja- víkur laugardaginn 4. júní nk. Sýningin er haldin í tilefni lýð- veldishátíðar. Aðstandendur sýningarinnar eru þjóðhátíðar- nefnd Reykjavíkur, Finnska sendiráðið. á Islandi og Finnska glerlistasafnið í Rihimaki. Fyr- irlesturinn byggir á litskyggn- um og verður fluttur á sænsku. Nýjar bækur ÚT er komin bókin Hlutskipti Færeyja eftir Eðdvarð T. Jóns- son. í bókinni rekur höfundurinn, sem var fréttaritari Ríkisútvarpsins í Færeyjum um árabil og gjörþekkir allar aðstæður, aðdragandann að kreppu færeysku þjóðarinnar og ástæður hennar. Færeyskum stjórnmálum og ýmsum hagsmuna- tengslum eru gerð skil, svo og sam- bandi Færeyinga við Dani. Efna- hagskreppan í Færeyjum undanfar- " in misseri hefur komið eins og reiðarslag, en jafnframt verið ís- lendingum umhugsunarefni á tím- um atvinnuleysis, gjaldþrota og umdeildra fjárfestinga, því margt-í þessari bók á allt eins við hér á landi. Hlutskipti Færeyja er áhuga- verð og holl lesning öllum þeim sem láta sig efnahagslega velverð ein- hveiju varða, jafnt á Islandi sem í Færeyjum. Hlutskipti Færeyja er 132 bls. gef- in út af Máli og menningu, prentuð í Danmörku. Auglýsingastofan Næst bannaði bókarkápu. Verð bókarinnar er 1590 krónur. LISTIR GLEÐIGJAFARNIR Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason. Bestu þakkir til allra, sem sýndu mér hlýjan hug á sjötugsafmœli mínu þann 21. maí. GuÖ blessi ykkur öll. Soffía Jóhannsdóttir frá Skálum. Hjartans þakkir sendum við börnum okkar, vinum og kunningjum fyrir ógleymanlegan dag með gjöfum, blómum, skeytum og heimsókn- um á sjötugsafmœli okkar 21. maí sl. Einnig sendum við slysavarnakonum hjartans þakkir. Guð og gœfa fylgi ykkur. Kristín Pétursdóttir og Þorvaldur Friðriksson, Eskifirði. alain mikli Aðalstræti 9 Alain Mikli í Linsunni Franski gleraugnahönnuðurinn ALAIN MIKLI kynnir nýja hönnun á gleraugnaumgjörðum -MIKLI PAR MIKLI - í Linsunni á föstudag og laugardag. Nú gefst þér einstakt tækifæri til að sjá þessa nýju línu, sem og fjölda sígildra umgjarða frá þessum frábæra hönnuði. Láttu sjá þig í Linsunni á morgun eða laugardag og sjáðu gleraugna- hönnun eins og hún gerist best í heiminum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.