Morgunblaðið - 02.06.1994, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994
AÐSENDAR GREIIMAR
MORGUNBLAÐIÐ
Búrtíkurbitasamfélagið
SÁ VAR háttur
heldri húsmæðra í
sveit í gamla daga að
koma sér upp duglegri
búrtík. Til þess var að
jafnaði valinn bita-
gjamasti og grimm-
asti hundurinn á bæn-
um. Honum voru að
jafnaði gefnir bestu
bitamir úr búrinu og
átti þar á móti að
vama því að aðrir
kæmust þar að.
Á einni af ferðum
sínum kom Bólu-
Hjálmar að slíkum
bæ, en var ekki kunn-
ugur húsaskipan og villtist í búrið,
og ekki var að sökum að spyija.
Bútíkin birtist urrandi með upp-
brett trýnið og beit Hjálmar í kálf-
ana. Þá varð Hjálmari að orði:
Ólán vex á illum reit
ei voru leiðir kunnar.
Mig í kálfa báða beit
búrtík húsfreyjunnar.
Húsfreyja heyrði tiltalið og hót-
aði Hjálmari öðm harðara, þó ekki
verði það tíundað hér.
Nú undanfarin ár hefur þessu
gamla kerfi verið beitt við stjórnun
fiskveiða á íslandsmiðum þar sem
fámennum en harðsnúnum hags-
munahópum era afhentir bestu
bitamir úr búri þjóðfélagsins og
síðan sagt að veija þá með kjafti
og klóm, sem best kom fram í
umræðunum í þættinum „Á slag-
inu“ nýlega.
Enginn hefur kom-
ist upp með það að
láta í ljósi gagnrýni á
þetta kerfi án þess að
einhver úr hagsmuna-
hópnum sé rokinn upp
til handa og fóta til
varnar kerfinu og eig-
in hagsmunum með
fullyrðingaflaumi um
að viðkomandi hafi
ekkert vit á því sem
hann sé að segja. Þeir
einir viti allt sem vita
þarf og öðram sé best
að þegja, vilji þeir ekki
hafa verra af. Flestir
láta sér segjast, minn-
ugir þess, sem húsfreyja hótaði
Hjálmari.
Fiskveiðistjórnunarkerfið hefur
gengið svo á fiskistofnana vegna
græðgi þeirra sem veiðileyfin hafa
hlotið og eyðilagt hafa fiskislóðina
með gengdarlausu álagi allan árs-
ins hring svo aldrei verður lát á
frekar en hjá bónda sem tengir
mjaltavélina við beljuna sína að
morgni og lætur hana ganga lotu-
laust allan sólarhringinn í stað
þess að mjólka hana kvölds og
morgna og hvíla hana þess á milli.
Ég geri ekki ráð fyrir því að nein-
um þeirra bænda sem á þingi sitja
þætti það gott búskaparlag. En
flestir ef ekki allir munu þeir hafa
rétt upp hendina með því að þann-
ig skyldi farið með fískislóðina.
Annar þáttur þessa máls er það
algjörlega siðleysi í viðskiptum
sem það hefur leitt af sér. Þar sem
veiðileyfíshafar veltast hver um
annan þveran við að selja og veð-
setja sameiginlegar eignir þjóðar-
innar til að efla eigin skyndigróða,
á kostnað alls almennings í land-
inu.
Nú þessa dagana er gangverð
á óveiddu þorsktonni í sjónum selt
á fimmtíu og sex þúsund krónur.
(Þokkalegur búrtíkurbiti það sem
fenginn var fyrir ekki neitt úr
hendi hagsmunahópanna í stjórn-
arráðinu.)
Kvótlaus bátur er verðlaus bát-
ur, segja útgerðarmenn. En hvað
er kvótalaust sjávarpláss? Hvers
virði era lífkjör og eignir manna
á stöðum eins og á sunnaverðum
Vestfjörðum, þar sem kvótinn hef-
ur ýmist verið seldur burt frá land-
verkafólkinu eða fluttur burt með
flutningi skipa án tillits til neins
annars en hagsmuna kvótahand-
hafans? Hvers virði verða lífskjör
og eignir manna hér við Djúp þeg-
ar stærsti hluti kvótans á svæðinu
hefur verið fluttur út á sjó til
frystitogara eins og útlit er fyrir
í dag? Hvað verður ef kvótinn
verður aukinn aftur, fer aukningin
þá öll til þerra sem mestu hafa
sankað að sér, eða hvaða háttur
verður hafður á úthlutun aukning-
arinnar?
Það er alveg sama frá hvaða
sjónarhóli almennings er litið á
kvótakerfíð, á því er aðeins einn
flötur og hánn er kerfið sé afglöp
og það er ekkei að ófyrirsynju að
almenningur hér á Vestfjörðum
er farinn að tala um afglapahópinn
við_ Austurvöll.
Áður fyrr meðan skipin voru
Sama er frá hvaða hlið
kvótakerfið er skoðað,
segir Pétur Bjarnason,
á því er aðeins einn flöt-
ur, flötur afglapa.
smærri og sóknargetan minni
skipulagði veðráttan sóknarmun-
strið og leiddi af sér svo og svo
langa friðunarkafla vegna ógæfta.
í seinni tíð hafa skipin stækkað
og sóknargeta þeirra aukist svo
að frátök vegna veðurs eru fátíð.
Það er því lotulaust álag á fiski-
slóðinni. Allir sem þekkja til físk-
veiða, sérstaklega með togveiðar-
færum, vita að á svæðum sem
látlaust er togað á önglast allur
fiskur upp og endar með ördeyðu,
en þegar svæðið hefur hvílt um
tíma og fiskur hefur fengið frið
til þess að þétta sig aftur í ætinu
glæðist afli aftur.
Það er því með öllum fiskimönn-
um ljóst að vel skipulagt
banndagakerfi ásamt með svæða-
lokunum er eðlilegasta fyrirkomu-
lagið á verndun fiskistofna og
fiskislóðar og ef aðgangurinn að
auðlindinni er án endurgjalds verð-
ur hann að vera öllum fijáls innan
þeirra marka, sem ákveðið er
hveiju sinni en ekki ætlaður fá-
mennum en frekum hagsmuna-
hópum eins og nú er.
Þá mun útgerð aftur færast til
Pétur Bjarnason
þeirra staða sem best liggja við
og til þeirra útgerðarforma sem
hagkvæmust eru á hveijum stað.
Þá mun krókaleyfíð og kvótabrask
hverfa og má aldeilis missa sig
þó fyrr hefði verið.
Verð á sjófrystum fiski hefur
farið lækkandi að undanförnu en
verð á ferskum fiskbitum í
lofttæmdum umbúðum hefur farið
hækkandi. Það er því margt sem
bendirtil þess að frystihúsin breyt-
ist í fiskréttaverksmiðjur innan
tíðar. En til þeirrar framleiðslu er
ekki hægt að nota 7 til 8 daga
gamlan togarafisk. Sá fiskur verð-
ur að koma að landi daglega sem
til þeirrar vinnslu þarf.
Þar sem megin hluti botnfiskafl-
ans er tekinn innan fimmtíu mílna
markanna kæmi vel til greina að
skipta kvótanum af því svæði ann-
ars vegar til strandveiðiskipa sem
væri ætlað að landa til landvinnslu
og hins vegar til vinnsluskipa.
Báðir flokkarnir lytu sama
banndagakerfi á því svæði, en
hefðu jafnframt aðgang að svæð-
inu utan fimmtíu mílnanna í sam-
ræmi við þær reglur sem þar væru
settar.
Þessa dagana er ástandið á
Vestfjarðamiðum líkt því sem
verða mun við banndagakerfí.
Loðnan flæðir yfir svæðið og fisk-
urinn fær frið til þess að þétta sig
í ætinu uppi í sjó. Þegar hann
hefur étið nægju sína leggst hann
á botninn og verður þá auðtekinn
í net og botntroll. Við slíkar að-
stæður fæst oft mikið meiri afli á
togtíma, heldur en ef alltaf er
skarkað á slóðinni. Línu- og króka-
veiði glæðist aftur þegar fiskur
dreifír sér i ætisleit á nýjan leik.
Höfundur var fiskimaður í 30 ár.
Skapaðu þitt ei
FRUIT
GARDEN
matar- og kaffi-
stellið er sumar-
gjöfin á heimilið
og sumarbústaðinn.
sv
í Habitat er úrval af
nýjum vörum fyrir
heimilið og sumar-
bústaðinn. Glervara
úrendurunnu gleri,
umhverfisvæn húsgögn,
motturog margt fleira.
Habitat - lífstíll að eiginvali!
GALVANO
felliborð og stólar.
Sterk og þægileg húsgögn
á góðu veröi.
ÞÆR ERU KOMNAR AFTUR!
Vinsælu hvítu krukkurnar fyrir
kaffi, sykur, hveiti o.fl. eru
komnar aftur. Missið ekki af þeim
í þetta sinn!
habitat
ÖLL HELSTU GREIÐSLUKJÖR:
ViSA
E)
--- / munX|.ÁN
LAUGAVEGI 13 - SÍIVII (91) 625870
OPIÐ VIRKA DAGA 10.00 - 18.00 OG LAUGARDAGA 10.00 - 14.00
habitat
TILBOÐ!
ROMANO.
Handmálaöar krukkur.
30% afsláttur.
ssí JIF átiík ■ matar- og kaffistellið
Interni
SCRAFFITTO
vekur athygli um allan
heim fyrir frumlega
Habitat hönnun.
Diskamottur, hnífapör,
glervara úr endurunnu
gleri, skálar o.fl.
HABITAT ÍSLAND - ENCLAND - FRAKKLAND - SPÁNN - HOLLAND - SINGAPORE - MARTINIQUE - BELGÍA