Morgunblaðið - 02.06.1994, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTU D AGUR 2. JÚNÍ 1994 37
MINNINGAR
i
I
I
I
1
I
3
i
J
i
I
I
:
I
<
4
4
4
4
4
4
1
<
H.
+ Soffía Árnason
fæddist í Vest-
mannaeyjum 1. júní
1907. Hún lést í
Hafnarbúðum í
Reykjavík 28. maí
1994. Hún var dóttir
hjónanna Gísia J.
Johnsen stórkaup-
manns og konsúls
og Ásdísar Önnu
Gísladóttur. Börn
þeirra hjóna voru
þijú; Sigríður, Soff-
ía og Gísli Friðrik.
Ung að árum giftist
Soffía ísleifi Arna-
syni, f. 20.4.1900,
lögfræðingi, síðar lagaprófessor
og borgardómara, d. 7.8.1962.
Börn þeirra voru: Gísli Guð-
mundur, f. 18.5.1926, hæstarétt-
arlögmaður, _ kvæntur Fjólu
Karlsdóttur; Árni, f. 18.9.1927,
hljómlistarmaður, kvæntur
Kristínu Axelsdóttur; Ásdís, f.
9.12.1928, húsfreyja, maki
Ragnar Alfreðsson verslunar-
maður, látinn 1986, og Hildur
Sólveig, f. 8.7.1934, d.
28.12.1969. Útförin verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag.
„EITT AF því íyrsta, sem ég man
og get tímasett, er þegar íbúðarhús
Gísla J. Johnsens, Breiðablik, var í
smíðum. Það var árið 1908. ... Það
var stórt og veglegt timburhús, með
miklum íburði úti sem inni. ... Allt
í kringum Breiðablik var feiknamik-
ill garður úr steinsteypu, hvergi
lægri en í bijóst á manni, en sum-
staðar hátt í tvær mannhæðir.
Steyptar gangstéttir voru heim að
húsinu og umhverfis það, garðurinn
allur prýddur tijágróðri og blómum
og í norðvesturhorninu, sem vissi
að kaupstaðnum, var gerður hár
hóll kringlóttur og þar reist himinhá
flaggstöng. ... Persnesk teppi voru
þar á gólfum, sem maður sökk í,
þegar stigið var á þau, og hafði ég
aldrei áður augum litið slíka dýrð.
Mér er líka enn vel í minni skraut-
legi meillinn á handriðinu á hinum
breiða stiga, sem lá upp á loftið, og
húsgögnin, málverkin og ljósakrón-
urnar. Allstaðar blasti
við sama dýrðin og dá-
semdimar. Þetta var
líkast himnaríki, eins
og það er í huga barns-
ins.“ (Einar ríki og Þór-
bergur „Fagurt er í eyj-
um“).
Á þessu glæsilega
heimili ólst Soffía upp
til 12 ára aldurs en þá
flutti fjölskyldan til
Reykjavíkur og bjó
fyrst á Hverfisgötu þar
til hinn stórhuga faðir
hennar reisti Túngötu
18, þar sem nú er þýska
sendiráðið. Þar fæddust
elstu þijú börn Soffíu og ísleifs en
síðan fluttu þau að Bergstaðastræti
84 þar sem þau höfðu reist sér ein-
býlishús. I stríðsbyijun seldu þau
húseign sína og fluttu að Skeggja-
götu 2, þar sem þau höfðu keypt
sér íbúð. Þar bjuggu þau í nokkur
ár' en byggðu síðan einbýlishús að
Aragötu 9, en þar iést ísleifur hinn
7. ágúst 1962 eins og áður segir.
Soffia seldi húseign þeirra ári síðar
og keypti sér íbúð að Öldugötu 54,
þar sem hún bjó alla tíð meðan hún
hélt heilsu. Hún veiktist alvarlega
fyrir ijórum árum síðan og fór þá á
Landakotsspítala og síðan þaðan í
Hafnarbúðir þar sem hún dvaldist
þar til hún lést 28. maí 1994.
Soffia var á átjánda ári þegar hún
hitti verðandi mannsefni sitt í fyrsta
sinn, ísleif Ámason búfræðing frá
Geitaskarði í Langadal sem nam þá
Lögfræði við Háskóla íslands. Þetta
var rómantísk ást af beggja hálfu
þar sem skrifað var ákaft og af
mikilli innlifun í „póesí“ bækur.
Þessar bækur geymdi Soffía til
hinstu stundar. En alvara lífsins tók
við og bömunum fjölgaði, unga
heimasætan þurfti að venjast nýjum
lífsháttum og stóð sig býsna vel í
hlutverkinu. Fyrsta barn þeirra sem
þau kölluðu Þröst, enn jafn róman-
tísk, vegna þess að hann hélt vöku
fyrir föður sínum í erfíðum próf-
lestri, fæddist 18. maí 1926 og var
skírður Gísli Guðmundur. Guðmund-
ar nafnið var þannig til komið að
Muggur sem var heimilisvinur og
heimagangur hjá foreldrum Soffíu
vitjaði nafns og hvarflaði ekki annað
að ungu hjónunum en að hlýða. þessu
kalli. Næstur í röðinni er Ámi en
hann fæddist rúmlega ári seinna og
var skírður í höfuðið á afa sínum,
hreppstjóranum og bóndanum á höf-
uðbýlinu Geitaskarði í Langadal, Og
enn rúmlega ári síðar fæddist dóttir-
in Ásdís sem ber nafn ömmu sinnar
Ásdísar Johnsen, og sex árum seinna
fæddist Hildur Sólveig sem skírð var
í höfuð föðurömmu sinnar, húsfreyj-
unnar á Geitaskarði. Við fæðingu
Hildar Sólveigar veiktist Soffía
heiftarlega og var ekki hugað líf,
en af ótrúlegri og meðfæddri seiglu
tókst henni að yfirvinna veikindin,
það tók marga mánuði en hún gafst
aldrei upp, það var ekki í eðli hennar.
Á áram þeirra á Bergstaðastræti
84 leigðu þau ungum námsmönnum
herbergi í húsi sínu og fengu þeir
oft frían morgunmat og kaffi hjá
Soffíu án nokkurs endurgjalds, enda
sýndu þeir henni löngu eftir að þeir
fluttu þaðan mikla ræktarsemi. Oft
var gestkvæmt á heimili þeirra Soff-
íu og ísleifs og þá sérstaklega á
prófessorsáram Isleifs og vora laga-
deildamemar ávallt velkomnir. Þeir
sóttu bæði ráð og hvatningu til læri-
meistara síns því hann var afburða-
kennari og nutu góðs af veitingum
Soffíu sem tók þeim af mikilli gest-
risni.
Og árin liðu, oft mátti sjá þau
hjónin ganga með sjónum við Ægi-
síðuna á fallegum sumar- og haust-
kvöldum til að minnast við náttúr-
una eins og ísleifur sagði og ganga
inn í kvöldsetrið. Og það leið að
kvöldi í hans eigin lífi því að hann
lést aðeins 62 ára gamall í ágúst
1962. Og sjö áram seinna lést Hild-
ur Sólveig snögglega_ í desember
1969 frá ungum syni ísak Harðar-
syni-sem seinna gerði garðinn fræg-
an með ljóðum sínum. En bama-
bömin urðu alls 17 talsins og bama-
bömin enn fleiri.
Við leiðarlok er margs að minn-
ast en læt ég hér staðar numið og
kveð tengdamóður mína og bið
henni Guðs blessunar. Póesí bókin
lifir áfram með allri sinni rómantík
og á hana slær ljósrauðum bjarma
og hún minnir okkur á hjörtun tvö
sem slógu í takt fyrir tæpum sjötíu
áram.
Fjóla Karlsdóttir.
SOFFÍA ÁRNASON
VILTU VERSLA
VALBORG WAAGE
ÓLAFSDÓTTIR
+ Valborg Waage
Ólafsdóttir var
fædd í Reykjavík 11.
nóvember 1914. Hún
lést á Borgarspítal-
anum 17. maí síðast-
liðinn. Valborg var
dóttir hjónanna Þór-
unnar Waage og
Ólafs Teitssonar
skipsljóra. Alsystk-
ini hennar voru Guð-
mundur Ágúst og
Jósefína sem bæði
eru látin og tveir
hálfbræður, þeir
Þórir og Karl. Val-
borg giftist Gísla
Guðmundssyni hinn 16. júní
1951, og eignuðust þau þrjú
börn, synina Ölaf og Véstein sem
báðir létust á barnsaldri, og dótt-
urina Guðrúnu Þórunni. Valborg
átti fyrir soninn Guðmund Ág-
úst. Útför hennar fór fram frá
Fossvogskapellu hinn 26. mai
síðastliðinn.
EIN ER sú fregn sem alltaf kemur
manni á óvart, jafnvel þó hún megi
teljast eðlileg. Orðlaus stund þar sem
hugurinn leitast við að aðlagast
breyttum aðstæðum.
Þannig fór okkur hjónum, er Gísli
bróðir minn hringdi að morgni 17.
maí og tilkynnti okkur lát konu sinn-
ar Valborgar Ólafsdóttur, þá um
morguninn.
Kynni okkar Valborgar hófust er
hún og Gísli, fólk í blóma lífsins,
hófu búskap sinn og hafa leiðir okk-
ar legið saman æ síðan.
Ung hóf hún störf á sjó sem þema
á fragt- og farþegaskipum okkar og
þótti henni ákaflega vænt um þann
tíma lífs síns, en vanheilsa hamlaði
henni frá að stunda það með þeirri
reisn er henni var lagið. Um tíma
vann hún einnig á fiskibátum okkar
og þar bundust tryggðir þeirra hjóna,
sem ekkert hefur rofið síðan. Val-
borg og Gísli bjuggu allan búskap
sinn hér í Reykjavík og Kópavogi,
nú seinast að Ásparfelli 6, fram-
byggjar þar. Nú mega þau systkinin,
Guðrún og Guðmundur, og
íjölskyldur þeirra sakna
góðrar móðúr, ömmu
og langömmu.
Valborg var glaðvær,
hjartahlý kona, sem
alltaf átti þrek til að
styrkja og gleðja aðra
ef á þurfti að halda, þó
hennar byrði væri ærin
af sjúkdómi er að lokum
hefti ferðafrelsi hennar.
Þótt hún gerðist ekij,
víðföral seinustu árin
laðaði góðvild hennar,
glaðværð og hjartahlýja
að sér nágranna og
kunningja og þar var
hún oftar veitandi en
þiggjandi.
Við hjónin þökkum þá gæfu að
hafa átt samleið með Valborgu og
hennar heimili öll þessi ár, deilt með
þeim gleði og sorgum og ávallt farið
ríkari frá því en að.
Megi Guð blessa og styrkja eigin-
manninn Gísla Guðmundsson, bömin
og fjölskyldur þeirra og létta þeim
söknuð þeirra og trega.
Þorsteinn og Fjóla.
•f
Mig langar til að minnast elsku-
legrar móður minnar, sem var mér
mjög hjartfólgin og kær. Alltaf var
hún tilbúin að hlusta og hlúa að
mér, hvemig sem á stóð. Hún var
búin að eiga við vanheilsu að stríða
í mörg ár, en aldrei heyrði ég hana
kvarta, hún var oftast létt í lund.
Ég vil þakka henni fyrir allt sem hún
var mér.
Nú sefur hún svefninum langa,
eflaust fegin hvíldinni. Eftir lifír
minningin um góða konu. Elsku
mamma, hvíl þú í friði. +*'-
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó.
Sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þú njóta skalt.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
(Jóhann Jónsson.)
Guðmundur Hákonarson.
ÓDÝRT?
fé II 'f £ iJb 1 bolur 1.290 2 bolir 1.990 Flasli
% Peysurfrá 1.600 pP jakkarfrá 3.200 1 XogZ
Gallaskyrtur 1.990
Gallabuxur 2.900
Pólobolir 1.290
Herrahúsið
Jakkar, skyrtur,
gallabuxur kr. 1.000
1.000 hr. horníð
Kjólar,
mikið úrval, gott
verð.
Mýí
Drengja stuttbuxur
+ bolur 1.595
Drengjasett skyrtubolur
og smekkbuxur, 1.990
Barnakot
Blússur
2.490
Uiy
ÞÝSKAR BORVÉLAR
Stiglaus rofi, aftur á bak og
áfram, tvö högg.
13 mm 7.990 10 mm 5. 700
STÁLMÓTUN
Tilboð til 17. júní:
Henson gallar 2.990
■ 'PfÚtviðarbuxur 3.390
BHÉh Hitt og þetta
i
Fótboltarfrá 980
Hjólabuxur frá 520
íþróttahomið
Kaffitería og
barnahorn
Íl i.MáMR
Gallabuxur 2.900
Bolir 1.500
Gallabuxnahornið
Ný sending
(♦#/ af skarti
á ótrúlegu verði.
Skart
Opiö mán.-fös. kl. 13-18
Laugard. kl. 11-16
XAFENI 10 1BT 6 8 9 6 0 6