Morgunblaðið - 02.06.1994, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ1994 45
FRÉTTIR
MND-félag-
ið stofnar
styrktar-
hópa
MND-FÉLA.G íslands gengst á
laugardaginn, 4. júní, fyrir stofnun
styrktarhópa fyrir sjúklinga og að-
standendur.
Haldnir verða tveir fundir í MS-hús-
inu, Álandi 13, Reykjavík. Klukkan
11 verður fundur fyrir sjúklinga og
klukkan 14 fundur fyrir aðstand-
endur. Á þessa fundi kemur læknir
til skrafs og ráðagerða og félagar
í IJákvæða hópnum" segja frá því,
hvernig þeir haga starfi sínu með
aðstandendum og sjúklingum.
MND-félag Íslands var stofnað í
febrúar í fyrra. Félagar eru nú rösk-
lega 70 talsins og formaður félags-
ins er Rafn Jónsson.
LEIÐSÖGUSKÓLI íslands útskrifaði nýlega tuttugu og sjö leiðsögumenn eftir eins árs nám.
27 nýir leið-
sögumenn
LEIÐSÖGUSKÓLI íslands út-
skrifaði 27 nýja leiðsögumenn
19. maí sl. Leiðsögunámið, sem
er á háskólastigi, stendur yfir
frá september fram í maí. Eftir
að prófum lýkur í maí fara nem-
endur í hringferð um landið og
skoða þá staði sem þeir hafa
lært um yfir veturinn. Munnleg
próf í skólanum eru tekin á er-
lendum tungumáium og sá hóp-
ur sem nú útskrifast getur boð-
ið fram 10 erlend tungumál.
Þar sem útlit er fyrir að fleiri
erlendir ferðamenn komi til
landsins á þessu sumri en
nokkru sinni fyrr má búast við
að nýju leiðsögumennirnir muni
hafa nóg að gera í sumar. Um-
sjón með leiðsögunáminu hefur
Birna G. Bjarnleifsdóttir.
LANDSLIÐSMENNIRNIR í handflökun. Fremri röð: Kristmund-
ur Skarphéðinsson, Reykjavík, og Ámundi Tómasson, Reykja-
vík. Aftari röð: Þorvaldur Rúnarsson, Hafnarfirði, Þórður
Tómasson, Reykjavík, og Gissur Pétursson, Starfsfræðslunefnd
fiskvinnslunnar, sem er fararstjóri.
Landslið í flökun á HM
LANDSLIÐIÐ í handflökun hélt
í gær til keppni á heimsmeistara-
mótinu í handflökun sem fer
fram um næstu helgi í Belling-
ham í Washington-fylki í Banda-
rikjunum. Keppendurnir voru
* valdir á íslandsmeistaramótinu í
( handflökun sem fór fram 23.
I apríl sl. í Fiskvinnsluskólanum í
Hafnarfirði en þar voru 25 þátt-
takendur. Heimsmeistaramótið
er liðakeppni fjögurra manna
liða og sigrar það lið sem nær
hæstum stigum samanlagt. Flak-
aður verður karfi og dæmt eftir
hraða, nýtingu oggæðum á sama
hátt og gert var á Islandsmótinu.
Fimmtán lið keppa á heimsmeist-
aramótinu, flest frá Bandaríkj-
unum og Kanada.
<
I
<
<
<
<
<
<
1
SPOEX
Samtök
psoriasis og
exemsjukHnga
Psoriasis sjúklingar
Ákveðnar eru tvær ferðir fyrir psoriasis sjúklinga
14. september og 5. október nk. til eyjarinnar
LANZAROTE á heilsugæslustöðina
APARTA NETOS, LANZAROTE.
Þeir, sem hafa þörf fyrir slíka ferð, snúi sér til
húðsjúkdómalækna og fái vottorð hjá þeim.
Sendið vottorðin, merkt nafni, heimilisfangi og síma,
til Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114,3. hæð.
Umsóknir verða að hafa borist fyrir 5. júlí 1994
TRYGGINGASTOFNUN
Kto RÍKISINS
Námskeið hjá HÍ um
umhverfisáhrif bygginga
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands stendur 9. júní fyrir
námskeiði um áhrif byggingarefna
°g byggingarhluta á umhverfí, holl-
ustu og líðan fólks. Fyrirlesarar eru
verkfræðingar og arkitektar sem
komu hingað frá Bandaríkjunum,
Kanada og Svíþjóð. Ætla má að efni
námskeiðsins höfði til hönnuða og
einnig til þeirra aðila hjá ríkisstofnun-
um, bæjar- og sveitarfélögum sem
taka stefnumarkandi ákvarðanir
varðandi hönnun, byggingar og með-
ferð úrgangsefna.
Fjallað verður um val á bygging-
arefnum og gerð byggingarhluta með
tilliti til umhverfisþátta og umhverf-
iskostnaðar, endurvinnslu og förgun
byggingarefna, byggingarefni úr end-
urunnum úrgangi, endingartíma og
ferli byggingarefna frá framleiðslu til
niðurrifs og förgunar. Þá verður fjall-
að um byggingarefni og mismunandi
húskerfi út frá orkunotkun og orku-
sparnaðarsjónarmiðum.
Fyrirlesarar verða Douglas
Balcomb, verkfræðingur hjá National
Renewable Energy Laboratory í Col-
orado í Bandaríkjunu, Stephen Car-
penter, verkfræðingur hjá Enermodai
Engineering í Ontario í Kanada, Carl
Michael Johannesson, arktitekt, sér-
fræðingur við Tækniháskólann í
Stokkhólmi, og Guðni A. Jóhannes-
son, verkfræðingur, prófessor við
Tækniháskólann í Stokkhólmi.
Til Sölu eru nýjar, fullkláraðar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í Grafarvogi.
íbúðirnar eru í litlum sambýlishúsum og allar með sérinngangi.
Og verðiö? kr. 6.480.000 - 6. 980.000 og þú flytur inn.
Allar nánari upplýsingar fást á
skrifstofu okkar Funahöfða 19
í síma 813599
Armannsfell hf. qp