Morgunblaðið - 02.06.1994, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIRKA
AUGLÝSIR
Verslun okkar sem var lokað 1. júní, hefur sameinast
Virku, Mörkinni 3, við Suðurlandsbraut.
Nú er allt á einum stað, tískufataefni, útsöluefni,
bútasaumsefni, saumavörur o.fl. o.fl.
VIRKA
Mörkinni 3.
Sími 687477
Austurstræti 17 Sími 624600
Takmarkað sætamagn
Paris
Beint flug vikulega kr.
19.900
Flug og hótel í viku kr.
29.900
Nýr góður gistivalkostur í París á góðu
2ja stjörnu hóteli.
3ja stjörnu hótel aðeins kr. 34.900
Öll hótel Heimsferða í Paris eru sérvalin.
Vikuleg flug til Parísar
frá 6. júlí til 31. ágúst.
5 Flugvallaskattur og
forfallagjald: Kr. 3.215,-
I DAG
VELVAKANDI
svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
• frá mánudegi til föstudags
LEIÐRETT
Rangl nafn í
undirskrift
Rangt var farið með
nafn í undirskrift undir
eina af minningargrein-
unum um Berglindi Grön-
dal á blaðsíðu 30 í Morg-
unblaðinu í gær. Þar átti
að standa Elín Einars-
dóttir, en ekki Hlín Ein-
arsdóttir eins og stóð und-
ir greininni. Hlutaðeig-
endur eru innilega beðnir
afsökunar á mistökunum.
Misritun í
undirskrift
Eitt af nöfnunum sem
vera áttu undir minning-
argreininni um Guðna
Kristján Sævarsson á
blaðsíðu 33 í Morgunblað-
inu í gær misritaðist.
Höfundar greinarinnar
eru sex systur Guðna
heitins, þær Halldóra,
Jensína, Elísabet, Guð-
munda, Ingibjörg og Sól-
ey Sævarsdætur, en það
var nafn hinar síðast-
nefndu sem varð fyrir
hnjaskinu. Hlutaðeigend-
ur eru innilega beðnir af-
sökunar á mistökunum.
Víxlun á listum
í töfiu
I töflu yfir kosningaúr-
slit á Blönduósi í Morgun-
blaðinu í fyrradag víxlu-
aðust tölur. D-listinn
hlaut 167 atkvæði og 2
menn kjörna, H-listinn
240 atkvæði og 3 menn,
K-listinn 144 og 1 mann
og F-listinn hlaut 94 at-
kvæði og 1 mann. Beðizt
er velvirðingar á mistök-
unum
Þakkir til
Morgnnblaðsins
ÉG er að velta því fyrir
mér hvort ekki megi
þakka Morgunblaðinu
fyrir sigur R-listans í
Reykjavík. Morgunblaðið
er stærsta og
útbreiddasta blað lands-
ins og flutti óspart satt
og logið sem R-listafólk
óskaði eftir, í þessu
málgagni
Sjálfstæðisflokksins. Og
þá er spumingin, hvort
þetta sé metið að
verðleikum, svo er margt
sinnið sem skinnið.
Jón Magnússon,
Álfheimum 34.
Kettlingarnir
of ungir
KRISTÍN Bjarnadóttir
vildi vekja athygli á því
að of snemmt sé að taka
kettlinga frá læðunum
fyrr en þeir séu orðnir
10-12 vikna. Oft má sjá
auglýsingar um 6-8
vikna gamla kettlinga
sem á að gefa.
Gæludýr
Páfagaukur
fannst
PÁFAGAUKUR fannst í
Setbergshverfí í Hafnar-
fírði á þriðjudaginn var.
Páfagaukurinn er grænn
með gult höfuð og er
mjög gæfur. Ef einhver
saknar gauksa þá eru
upplýsingar í síma
653802.
Tapað/fundið
Gleraugu fundust
GLERAUGU í brúnni
umgjörð fundust á bæn-
um Elliðavatni fyrir
nokkru. Eigandi má hafa
samband í síma 814142.
Týnt fjallahjól
SVART fjallahjól, Jazz
Voltage, hvarf frá Boga-
hlíð 24 fyrir nokkru.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 38548.
Hlífðardúkur af
svölum
GRÆNRÖNDÓTTUR
renningur eða hlífð-
ardúkur af svölum fauk
af svölum í Álfheimum
sl. mánudag. Hafi ein-
hver fundið renninginn
er hann vinsamlega beð-
inn um að hringja í síma
36792.
Dömurykfrakki
tapaðist
UÖSDRAPPLITUR
dömurykfrakki tapaðist í
miðbæ Reykjavíkur fyrir
skömmu. Hann var í
poka og hugsanlega
gleymdist hann í ein-
hverri versluninni. Ef
einhver hefur séð frakk-
ann þá vinsamlegast
hringið í síma 12983.
Pennavinir
FJÓRTÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á tónlist
og íþróttum:
Yuuko Nakamura,
486-6 Takathu,
. Yachiyo-Shi,
Chiba,
276 Japan.
FRÁ Ghana skrifar 26 ára
stúlka með áhuga á kvik-
myndum, matargerð, körfu-
bolta og sundi:
Lyly Brown,
Box 1317,
Oguaa C/R,
Ghana.
BRESKUR karlmaður með
mikinn íslandsáhuga, býr á
einhveijum fegursta stað
Bretlands.
Peter Wyles,
29 Siddalis Gardens,
Tiverton,
Devon,
EX16 6DG,
England.
KÍNVERSKUR 38 ára karl-
maður með áhuga á ljós-
myndun, tónlist og íþróttum:
Li Xiaozhu,
P.O. Box 417,
110015 Shenyang,
P.R. China.
FJÓRTÁN ára dönsk stúlka
með áhuga fótbolta, dansi
og tónlist:
Henriette Bundgaard,
Lykkevej 2,
Dall Villaby,
9230 Svenstrup,
ÞÝSKUR sjúkraþjálfari, 33
ára, með áhuga á kajaksigl-
ingum, skíðaíþróttum, úti-
vist og frímerkjasöfnun:
Uwe Wöbking,
Kernerstrasse 135,
75323 Bad-Wildbad,
Germany.
BRIDS
Umsjón Guöm. Páll
Arnarson
Áætlun sagnhafa í sex
laufum snýst í kringum þrjá
kónga varnarinnar.
Suður gefur; allir á
hættu. Norður
♦ 2
V G9632
♦ ÁD42
♦ G105
Suður
4 ÁK
V ÁD
♦ 3
4 ÁD987632
Vestur Norður Austur Suður
- - - 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 3 lauf
Pass 4 spaðar* Pass 4 grönd**
Pass 5 tíglar*** Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
* „splinter“, einspil eda eyða.
** Roman lykilspilaspuming.
*** eitt lykÚspil af fimm.
Útspil: spaðagosi.
Við fyrstu athugun sést
að spilið vinnst ef laufkóng-
urinn lætur sjá sig eða ef
hjartasvíning heppnast. Lík-
umar á því að svína eða
toppa þegar kóngur annar
er úti eru nokkum veginn
jaftiar, en þó er örlítið betra
að leggja niður ásinn (52%
á móti 48%). En það er ekki
þar með sagt að rétt sé að
spila beint af augum: leggja
niður laufás og svína fyrir
hjartakóng. Tígulkóngurinn
skiptir líka máli.
Besta spiiamennskan er
að taka báða spaðaslagina
strax, spila tígli á ás og svo
laufgosa í þeim tilgangi að
láta hann svífa yfir til vest-
urs ef austur fylgir með
smáspilinu. En spila ás og
meira laufí ef austur er
tromplaus:
Norður
♦ 2
♦ G9632
♦ ÁD42
4 G105
Vestur Austur
4 G1098 4 D76543
f K1087 IIIIH f 54
♦ KG9 111111 ♦ 108765
4 K4 4 -
Suður
4 ÁK
r ád
♦ 3
4 ÁD987632
Vestur er þá illa settur er
hann er með alla kóngana.
Hann verður að spila út í
tvöfalda eyðu eða rauðu spili
frá öðrum kóngnum.
Víkverji skrifar...
Víkveiji átti þess kost að sjá
Listahátíðarsýninguna í
Þjóðleikhúsinu á Niflungahringi
Wagners.
Það skal játað, að Víkverji steig
vomurnar fyrir sýninguna. Það
voru einkum lengd hennar og
þungi tónlistar Wagners, sem
fældu frá, en löngunin til að upp-
lifa dró. Víkverji ákvað svo að fara
með það í huga að halda bara
heim aftur, þegar hann hefði feng-
ið nóg, hvemig sem sýningin stæði
á sviði Þjóðleikhússins.
xxx
Svo fór, að Víkvetji sat alla sýn-
inguna og skemmti sér kon-
unglega. Það sem gerði útslagið
var gleðileikur á sviðinu, litrík og
skemmtileg sýning, gott leikhús,
sem lagði hvorki efni né tónlist
Niflungahringsins við hégóma.
Víkverji hefði svo gjaman viljað í
leikslok hylla með öllum þeim
glæsilegu listamönnum, sem fram
komu, þau Þórhildi Þorleifsdóttur,
leikstjóra, Þorstein Gylfason, höf-
und framsögu milli atriða og texta-
þýðanda, og Siguijón Jóhannsson,
höfund leikmyndar og búninga.
Lifandi skírskotun til nútímans
í andrúmi og umhverfi undirstrik-
aði að efni Niflungahringsins er
allra tíma og þá um leið tónlist
Wagners.
Það er ekki fátækt land sem
laðar fram listamenn eins og þá
sem færa okkur Niflungahringinn
með svo skemmtilegum hætti.
xxx
egar greiðslukort, fóm að ryðja
sér til rúms fögnuðu margir
því aukna öryggi sem þau höfðu í
för með sér. En eins og við mátti
búast voru það ekki eingöngu
greiðslukortafyrirtækin sem tóku
aukna tækni í þjónustu sína, því
svikahrappar voru fljótir að til-
einka sér hana. Nú eru því víða
um heim glæpamenn sem einbeita
sér að svikum með kredit- og de-
betkort. Lögreglan þarf að bregð-
ast við þessu og fyrir nokkru var
sagt frá því hér í Morgunblaðinu
að íslenskir rannsóknarlögreglu-
menn ætluðu sér að verða fyrri
til, áður en svik af þessu tagi
næðu fótfestu hér. Félag íslenskra
rannsókrtarlögreglumanna fékk
því hingað til lands góða gesti,
yfirmenn öryggismála Master Card
og Visa International, sem leiddu
Iögreglumennina í allan sannleika
um viðbrögð við svikunum. For-
maður félagsins, Bjamþór Aðal-
steinsson, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að rafræn greiðsluvið-
skipti væru að taka við hinu hefð-
bundna greiðsluformi, peningum
og ávísanum. Bjarnþór sagði að
þetta myndi minnka vinnu rann-
sóknarlögreglumanna vegna ávís-
anamisferlis, en þeir vildu vera
skrefi á undan og vera við öllu
búnir ef svik vegna hins nýja
greiðsluforms kæmu upp hér. Hér
á landi væri misferli með greiðslu-
kort bundið við þjófnað og mis-
notkun á kortunum. „Eriendis eru
dæmi um mun umfangsmeiri svik,
til dæmis þar sem rafröndinni á
korti er stolið með sérstökum bún-
aði og búið til nýtt kort. Þessa
möguleika alla ætlum við að kynna
okkur, svo þeir komi okkur ekki á
óvart síðar,“ sagði formaðurinn.
Víkverji fagnar því að rannsóknar-
lögreglumenn skuli vera svo vel á
verði og vonar að þeim takist að
kæfa svik af þessu tagi í fæðingu.