Morgunblaðið - 02.06.1994, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
Árnað heilla
afmæli. Á
Í/U morgun, 3. júní,
verður níræður Jón Guð-
mann Jónsson, Dalbraut
27, Reykjavík. Hann tekur
á móti gestum á Hótel Borg
milli kl. 14.30-17 á morg-
un, afmælisdaginn.
pT ára afmæli. í dag
| fj 2. júní er sjötíu og
fimm ára Pétur Sigurgeirs-
son, biskup. Hann var sókn-
arprestur á Akureyri
1948-81, vígslubiskup Hins
forna Hólabiskupsdæmis
1969-81 og biskup yfír ís-
landi 1981-89. Hann hefur
hlotið stórkross íslenzku
fálkaorðunnar og stórkross
finnsku Ljónsorðunnar. Pét-
ur biskup og kona hans, frú
Sólveig Árnadóttir, eru stödd
erlendis.
Hlutavelta
Þær styrktu Rauða kross íslands
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu nýlega og
varð ágóðinn 1.741 króna. Þær heita Sylvía
Björg og Arnfríður Olga.
Með morgunkaffinu
Farsi
„KasinslcL erþett&.eJdcisvogott
rncxle-fn.L-"
SKAK
U m s j ó n M a r É e i r
Pctursson
Þetta endatafl kom upp á
minningarmótinu um Max
Euwe, fyrram heimsmeist-
ara, sem haldið var í Amster-
dam í vor. Vassilí ívantsjúk
(2.710), Úkraínu, hafði hvítt
og átti leik, en svart hafði
Englendingurinn Nigel
Short (2.665 — áætluð stig,
en Short hefur verið strikaður
út af FIDE-listanum, rétt eins
og Kasparov).
Það liggur í augum uppi
að hvítur stendur öllu betur
í þessu endatafli. Hann hefur
betri peðastöðu, meira lými
og yfirráð yfir f-línunni. Það
er þó hægara sagt en gert
að bijóta varnir svarts á bak
aftur. ívantsjúk fann laglega
leið til þess að koma hróknum
inn fyrir svarta varnarm-
úrinn: 34. Rd5! - Rxd5, 35.
exd5+ - Kxd5, 36. Hf7 -
1>6 (Eftir 36. - Kd6, 37. Kf3
— b6, 38. axb6 — cxb6, 39.
Ke4 — a5, 40. c4 lendir svart-
ur ( leikþröng) 37. Hxc7 —
bxa5, 38. Kf3 - Hf8+, 39.
Ke3 — li6, 40. Hxg7 — hxg5,
41. Hxg5 - Hf4, 42. c4+ -
Kc6, 43. Hg6+ - Kb7, 44.
b3 - Ilh4, 45. h6 - e4
(Reynir að ná mótspili með
því að mynda sér frípeð) 46.
dxe4 - Hh3+, 47. Kf4 -
Hxb3, 48. Ilg3! og Short
gafst upp því eftir 48. — Hbl,
49. Hh3 er hvíti hrókurinn
kominn í óskastöðu fyrir aftan
frípeðið.
Slappaðu af!
Þótt þú komir of seint
á flugvöllinn, munar
það ekki nenia nokkrum
mínútum.
HÖGNIHREKKVÍSI
„AMMA Bfe að LESA/jóoAMÓrr-upPSKzier"
PYfSlF?’HAWN. “
STJÖRNUSPÁ
eftir l'ranccs llrakc
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert fagurkeri og býrð yfir
góðri sköpnnargáfu. Við-
skipti eiga einnig vel við
þ'g-______________________
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eitthvað óvænt gerist í vinn-
unni í dag. Þú þarft að kanna
betur fyrirhugaða fjárfest-
ingu áður en þú tekur ákvörð-
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinur gæti leitað eftir fjár-
hagslegri aðstoð frá þér í
dag. Taktu ekki mark á gróu-
sögum sem þú heyrir í kvöld.
Tvíburar
(21.maí-20.jún!) 4»
Þér gengur vel í vinnunni í
dag þótt þú verðir fyrir ein-
hvatjum töfum síðdegis.
Reyndu að komast hjá deilum
við vin.
Krabbi
(21. júní — 22. júlf)
Láttu ekki smá ágreining
koma þér úr jafnvægi í vinn-
unni í dag. Einhvetjar breyt-
ingar geta orðið á ferðaá-
formum þínum.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Nú er rétti tíminn til að koma
hugmyndum þínum í fram-
kvæmd í vinnunni. Sumir
verða fyrir óvæntum útgjöld-
um í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú tekur á þig aukna ábyrgð
í vinnunni í dag. Fyrirhuguð
helgarferð lofar góðu, en smá
agreiningur getur kotnið upp.
ng
(23. sept. - 22. október) jjftS
Þér miðar vel áfram í vinn-
unni árdegis, en þú getur
orðið fyrir töfum þegar á
daginn líður. Sýndu öðrum
þolinmæði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Barnauppeldi veldur sumum
auka útgjöldum í dag.
Fylgstu vel með smáatriðum
í vinnunni. Þér berst óvænt
boð í samkvæmi.
Bogmadur
(22. nóv. -21. desember)
Þú gerir óvenjuleg innkaup í
dag. Eldri vinur eða ættingi
þarf á áðstoð þinni að halda.
Reyndu að halda ró þinni í
kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það þarf ekki að vera ills viti
ef fréttir berast seint frá fjar-
stöddum vini. Þú hefðir gam-
an af að heimsækja góða vini
í kvöid.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar)
Þótt horfur séu góðar í vinn-
unni er óþarfi að eyða pening-
um í óþarfa. Þú þarft að sýna
starfsfélaga þolinmæði í dag.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) —^
Gættu þess að taka tillit til
tilfinninga ástvinar í dag. Það
er mikið um að vera í sam-
kvæmislífinu um þessar
mundir.
Stjörnuspdna d aó lesa sem
dœgradvöl. Spdr af þessu tagi
byggjast ckki d traustum
grunni visindalegra stad-
reynda.
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ1994 49
I
sportveiði-vörulistinn 1994 frá
Abu Garcia er kominn!
OPIÐ I SUMAR:
Mánudaga
til fimmtudaga kl. 9 - 18
Föstudaga kl. 9 - 19
Laugardaga kl. 9 - 17
Sunnudaga kl.ll - 17
Garcia
HAFNARSTRÆTl 5 • REYKIAVIK
SIMAR 91-16760 & 91-14800
Afmælisdagar í Borgarkringlunni...
og við bjóðum upp á kynningu á Earth Science snyrtivörunum
í dag og á morgun frá kl. 14 -18.30.
10% kynningarafsláttur af þessum frábæru, náttúrulegu
snyrtivömm, unnum úr lífrænum jurtum.
Einnig 10% kynningarafsláttur af vítamínum í fljótandi formi
frá Earth Science, en þau eru 3-5 sinnum auðnýtanlegri fyrir
líkamann er vítamín í töfluformi.
Ný sending af enskum
bókum, m.a.:
MARY’S MESSAGE TO THE WORLD, sem fjallar
um framtíðarspádóma Maríu meyjar og
leiðbeiningar hennar til allra um bænir, kærleika
og fjölskylduna.
„Þetta er bók sem allir ættu að lesa.” Úlfur
Ragnarsson, læknir.
MARYS
MESSAGE
to rta-
WQRLB
n
ON EARTH ASSIGNMENT miðluð af AKNIÉ KlRKVí'ÖOC
Tuella. Fjallar um það af hverju við vorum valin til að endurfæðast á
Jörðinni og hjálpa þeim, sem enn eru óuppljómaðir, að komast í
gegnum andlega og efnislega umbreytingu jarðarinnar, sem senn
lyftist á æðra meðvitundarsvið.
INTERIOR DESING WITH FENG SHUI - fjallar um margra
alda hefð Kínverja sem miðast við að skapa jafnvægi í orkuflæði húsa
og umhverfis með uppröðun og staðsetningu hluta. Getur breytt
j orkuflæðinu í lífi þínu.
THE PATH OF TRANSFORMATION eftir Shakti Gawain.
Fjallar um það, hvernig við getum heilað okkur sjálf og þannig breytt
heiminum. Shakti Gawain er þekktur metsöluhöfundur í
Bandaríkjunum.
FACING LOVE ADDICTION - frábær bók fyrir alla þá, sem eru
virkilega tilbúnir til að takast á við tilfmningaleg vandamál sín og vilja
„leysa“ þau á varanlegan máta.
Ný sending af
enskum bókum,
m.a.:
MARY’S MESSAGE TO THE
WORLD, sem fjallar um
beuRjfti
Borgarkringlan,
KRINGLUNNl 4 - sími 311380