Morgunblaðið - 02.06.1994, Page 60
HEWLETT PACKARD
HP Á ISLANOI HF Höfdabakka 9. fíeykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika lil veruleika
TVÖFALDUR1. vinningur
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mörg hundruð milljóna króna
hlutafjáraukning hjá Samskipum hf.
Jóns Baldvins um sáttaleið
JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, átti fund með Jóhönnu Sigurðardóttur
í fyrradag, þar sem hún tilkynnti honum að hún
myndi bjóða sig fram gegn honum á flokksþingi
í næstu viku. Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins úr forystuliði Alþýðuflokksins, spurði
formaðurinn Jóhönnu hvort það myndi breyta
einhveiju um hennar áform, ef hann drægi sig
-f-iilé, að því tilskildu, og um það skapaðist sam-
staða í flokknum, að styðja annan mann til for-
mennsku. Formaðurinn mun hafa haft Sighvat
Björgvinsson í huga er hann bar upp spurningu
sína. Þessu hafnaði Jóhanna Sigurðardóttir.
Morgunblaðið náði tali af Jóni Baldvin seint
í gærkveldi og spurði hann hvort rétt væri hermt
að hann hefði borið upp slíka fyrirspurn við
Jóhönnu Sigurðardóttur og hverjar hefðu verið
ástæður þess: „Það er að vísu rétt og ætti ekki
að koma á óvart. Það er eitt af skylduverkum
formanns, að setja niður deiiur, að viðhalda og
hlú að samstöðu, firra vandræðum og jafnvel
hugsanlegum klofningi. Eg taldi það einfaldlega
skyldu mína að kanna það, hvort, Jóhanna Sig-
urðardóttir og þeir sem henni standa næst,
gætu sætt sig við einhvern annan mann en mig
og full samstaða gæti náðst um, til þess að
taka við forystu flokksins, þegar framundan er
vandrötuð sigling og mikil geijun í stjórnmálum,
vinstra megin við miðju,“ sagði Jón Baldvin.
Formaður Alþýðuflokksins sagði aðspurður
hvort ljóst væri að stefndi í hörð átök á flokks-
þinginu:„Hversu hörð þau verða veit ég ekki.
En Jóhanna Sigurðardóttir tók af öll tvímæli,
í þessu samtali við mig, um það að hún teldi
þetta uppgjör alveg óumflýjanlegt af sinni
liálfu.“
Meinatæknafélagið
Talning
hefst í dag
BÚIST ER við að atkvæði um ný-
gerða kjarasamninga Meinatækna-
félags Islands verði talin í dag og
úrslit iiggi fyrir síðdegis.
Síðasti dagur atkvæðagreiðsl-
unnar var í gær og er von á atkvæð-
um utan af landi í dag og verður
þá hægt að byija að telja.
HAGKAUP og Samheiji eru meðal þeirra íslensku fyrirtækja sem
íhuga nú þátttöku í hlutafjáraukningu Samskipa hf. Um það mun
vera rætt að mynda um slíkan eignarhlut eignarhaldsfélag, ef af
verður. Landsbanka íslands barst í gær staðfesting frá þýska
skipaflutningafyrirtækinu Bruno Bischoff í Bremen í þá veru að
fyrirtækið leggi fram 86 milljónir króna í hlutafé, við hlutafjáraukn-
ingu Samskipa, jafnframt því sem fyrirtækið heldur því opnu, að
geta aukið hlutaíjárframlag sitt í 280 milljónir króna.
Morgunblaðið/Júlíus
Menn vona að kríurnar fái
á ný áhuga á hólmanum.
Minkur við
Tjörnina
NÆR allt kríuvarp er horfið
úr hólmanum í Þorfinnstjörn
sem er syðsti hluti Tjarnarinn-
ar í Reykjavík. Grunur leikur
á að minkur hafi komist út í
hólmann. í gær fannst dauð
gæs úti í hólmanum, sem talið
er að minkurinn hafi drepið,
og eitt yfirgefið kríuhreiður.
Starfsmenn veiðistjóraemb-
ættisins hafa drepið tvo minka
í Vatnsmýrinni í vor. Vonast
er eftir að annar þeirra sé sá
sem hefur verið að hrella
kríurnar á Tjörninni. I gær
hafði ein kría orpið í hólman-
um, sem bendir til þess að frið-
ur sé kominn á í kríuvarpinu
að nýju.
Undanfarin ár hefur kríu-
varpið á Reykjavíkurtjörn ver-
ið öflugast í hólmanum í Þor-
finnstjörn. í fyrra voru t.d. 40
kríuhreiður í hólmanum. I vor
leit út fyrir að það sama yrði
upp á teningnum, en fyrir um
10 dögum hættu kríurnar að
flögra yfir hólmanum.og færðu
sig yfir á hólmann í Tjörninni.
Þar eru nú allmörg kríuhreið-
ur.
Jóhanna hafnaði tilboði
Morgunblaðið/gg
FENGSÆLIR veiðimenn ásamt mökum með 10 laxa sem veiddust fyrir neðan Laxfoss i Norðurá
á fyrstu þremur klukkustundunum í gærmorgun.
Meirihlutaviðræður í Hafnarfirði
listi og D-listi
ræða samstarf
VIÐRÆÐUR hófust í gærkvöldi milli Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags í Hafnarfirði um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn, en fyrr
um daginn slitnaði upp úr viðræðum Alþýðubandalags og Alþýðu-
flokks. Að sögn Magnúsar Jóns Arnasonar efsta manns á G-lista slitn-
aði m.a. upp úr þeim viðræðum vegna þess að alþýðuflokksmenn höfn-
uðu því alfarið að bæjarstjóri kæmi úr röðum alþýðubandalagsmanna,
sem væru sigurvegarar kosninganna, og jafnframt höfnuðu þeir boði
um að fenginn yrði óháður bæjarstjóri.
Magnús Jón sagði um við-
--*íðumar við Alþýðuflokk-
inn að ljóst hafi verið að
snertifletir gætu verið marg-
ir og líkur á samkomulagi,
en Alþýðuflokkurinn hefði
hins vegar neitað kröfu um
úttekt óháðra aðila á fjár-
hagsstöðu bæjarins.
„Það kom fram hjá Al-
þýðuflokknum að þetta
mætti ekki vera niðurlægj-
andi fyrir bæjarfélagið, og
þá veltir maður því fyrir sér
hvort þeir hafi eitthvað að
fela. Jafnframt kom fram hjá þeim
að þetta ætti að vera vinnuplagg
fyrir meirihlutann og ætti ekkert að
fara til annarra. Við lögðum einnig
•ríka áherslu á endurskoðun á fjár-
málastjórn, en fengum heldur loðin
Magnús Jón Árnason G-lista og Magnús
Gunnarsson D-lista við upphaf fundar.
svör miðað við það sem við viljum
að sé gert. Þá óskuðum við eftir að
ný forysta yrði fyrir fjármálum og
rekstri húsnæðisnefndar Hafnar-
fjarðar, en þeir voru ekki tilbúnir í
það.“
Laxveiðin
fór vel af
stað
VEIÐI gekk með miklum ágæt-
um í Norðurá i Borgarfirði sem
var opnuð fyrst allra stangaveið-
iáa i gærmorgun. Þrátt fyrir að
áin væri vatnsmikil, gruggug og
hitastigið aðeins 4°, veiddust 20
laxar á fyrstu vaktinni og var
mál manna að mikill lax væri
genginn í ána. Laxarnir voru nær
allir 9 til 13 punda og mjög vel
haldnir. Nokkrir laxar veiddust
einnig á Munaðarnesveiðum í
Norðurá, m.a. einn 15 punda sem
var stærsti lax dagsins.
I Eru þeir að fá ’ann?/6
Óskar Magnússon, forstjóri Hag-
kaups, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær: „Ég get staðfest að
við hjá Hagkaup höfum verið að
íhuga þátttöku í hlutafjáraukningu
Samskipa. Við höfum undanfarnar
vikur verið að skoða þann mögu-
leika að koma inn í fyrirtækið, í
félagi við tvo aðra aðila, Samheija
og Fóðurblönduna."
Óskar kvaðst ekki vita hvenær
niðurstaða fengist í þessu máli, en
þess yrði áreiðanlega ekki langt að
bíða. Aðspurður hvort fyrirtækið
íhugaði að leggja fram 40 milljónir
króna í nýju hlutafé, kvaðst Óskar
hvorki geta játað því né neitað.
Þorsteinn Már Vilhelmsson,
framkvæmdastjóri Samheija á Ak-
ureyri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær: „Við höfum verið að
skoða þetta. Við höfum ekki tekið
neina afstöðu til þess hvort við verð-
um með eða ekki. Ef einhver okkar
þriggja, sem höfum verið að ræða
sameiginlega þátttöku í Samskip-
um, fellur út úr hópnum, þá höfum
við ekki hugsað það upp á nýtt
hvað við gerum.“
■ Bruno Bischoff/miðopna
Óveður fyrir austan
Opnun Fjallakaffis frestað
Vaðbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið
SÚ VENJA hefur skapast að opna
Fjallakaffi á Möðrudal á fjöllum
fyrsta júní ár hvert. Nú bregður
hinsvegar svo við að fresta verður
að opna Fjallakaffi vegna veðurs.
Að sögn Vilhjálms Snædals, veit-
ingamanns í Fjallakaffi, átti að
opna eins og venjulega 1. júní.
Ásta Sigurðardóttir, kona Vil-
hjálms, og starfsfólk fór að vísu
uppí Fjallakaffi í dag með kost en
blindbylur var á ijallgörðunum svo
þýðingarlaust var að opna staðinn
eins og til stóð.
Að sögn Vilhjálms verður Fjalla-
kaffi opnað um leið og veður skán-
ar og færð yfir fjöllin verður orðin
góð á nýjan leik.
Hagkaup og
Samherji íhuga
hlutafjárkaup