Morgunblaðið - 05.06.1994, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
r— cpa £ r voffA 1 VOFFM
.... [y/i/zjp í 1 Í/'mhcícura iM
7 hy% —|/,if—-—“ ^ " ^ P’AVt& 5-IH |gf-
Tommi og Jenni
Ferdinand
A5 5I5TER ANP BKOTMER, WE‘RE ALM05T UKE A TEAM.. |‘M THE MANAéER, ANP YOU'RE TME UIOR.THLE55 PLAYER U)H0 15 GOOD F0R N0THIN6 /iT'S 601N6 TO BE ] \^A L0N6 5EA50N J
y EXCEPT 5ITTING 0NTHE5ENCH! jj
« m C* » jjV/íl o ! u. o ? ZJ
1 @
Sem systir og bróðir erum við Eg er framkvæmdastjóri og Þetta verður langt leiktíma-
næstum eins og lið. þú ert einskis verður ieikmað- bil.
ur sem er ekki til neins nýtur
nema tii að sitja á varamanna-
bekknum!
PmpnitlaM)
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Ekki er öll
vitleysan eins!
Frá Kristínu Halldórsdóttur:
MEÐ tilkomu debetkortanna, „hag-
ræðingu allra tíma“, á að slá tvær
flugur í einu höggi, hagnast á auk-
inni hagræðingu og settum þjón-
ustugjöldum.
Ég vil mótmæla harðlega hinum
nýju þjónustugjöldum banka og
sparisjóða, sem leggjast á núna 1.
júní. Þó svo að sum gjaldanna séu
kannski sanngjörn, tel ég að ekki
hafi verið upplýst nægjanlega hver
þau eru og þá sérstaklega ekki
hvar og hvenær þau leggjast á.
T.d. finnst mér alveg hreint fárán-
legt að þurfa að borga fyrir að „fá“
að taka peningana mína út úr
banka! Þær upplýsingar fengust í
Landsbankanum, að það kostaði
krónur 9,50, að taka út af reikn-
ingi sínum! Þ.e.a.s. ef maður er svo
skynsamur að hafa látið þvinga sig
til að fá sér debetkort, vegna þess,
að um helmingi dýrara er að taka
út á annan hátt, t.d. með gömlu
úttektarnótunni! Næsta skref bank-
anna hlýtur að sjálfsögðu að vera
sérstakt innlagningar-gjald, því
færslan er nefnilega sú sama, hvort
sem maður leggur inn á reikning
eða tekur út af honum! Ekki er öll
vitleysan eins! Hér með er auglýst
eftir sjálfstæðri og óháðri peninga-
stofnun, sem ekki tekur gjald fyrir
þá sjálfsögðu og óhjákvæmilegu
þjónustu, sem heitir úttekt! Eitt er
vert að hafa í huga: ef engar væru
innlagnirnar, væru heldur engar
úttektir, ergo: enginn banki!
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Guðrúnargötu 10,
Reykjavík.
GREINARHÖFUNDUR auglýsir eftir óháðri peningastofnun, sem
ekki tekur gjald af fólki fyrir það að ætla að taka út peningana sína.
Nauðgun erglæpur
Frá Ronald M. Kristjánssyni:
LINKIND dómara í kynferðisaf-
brotamálum er orðin afar þreyt-
andi. Ekki ber maður nú mikla virð-
ingu fyrir hinni æðri akademísku
menntun, sem dómarar hafa hlotið,
þegar þeir stuðla að því, að gera
lögin að einhveijum ómerkum bók-
staf, afbrotamönnum í vil, og gera
þau þar af leiðandi andfélagsleg.
Nú er kominn tími til að endur-
skoða dómskerfið alvarlega.
Hvers vegna þora dómarar ekki,
að dæma hart í kynferðisafbrota-
málum, og vernda þannig saklaus
fórnarlömb, í stað þess að veita
sakborningi ómerk aflátsbréf, eins
og vægan dóm eða sýknunardóm?
Skilja þeir ekki, að nauðgun er
glæpur? Glæpur gegn mannkyni og
dæma á eftir því! Hið þögla morð
hefur verið framið og fórnarlambið
jafnvel skaðað fyrir lífstíð. Svöðusár
hefur myndast i sálarlífi einstakl-
ings, sem ekki einu sinni tíminn
megnar að græða. Hvaða eiginleik-
um þarf dómari að vera gæddur,
þégar hann dæmir í slíkum málum,
að hann skynji að hér er um lifandi
sál að ræða, en ekki veraldleg gæði?
Hvað þarf til að dómarinn skynji,
að þolandinn er fórnarlamb andfé-
lagslegrar hegðunar, sem á ekki
að þekkjast í íslensku samfélagi?
Dómarar ættu því að vita, af
fenginni reynslu, að næstum óger-
legt er að vemda samfélagið fyrir
slíkum misindismönnum, t.d. með
því að loka þá inni. Því ekki búum
við yfir þeirri þekkingu að lækna
þá. Ekki bætir samfélagið þá og
því síður stutt fangelsisvist. Mann-
skepna verður ekki mannvera, né
illgresi að blómi. Þess vegna verðum
við að hreinsa til í garðinum okkar
og reyta arfann.
Koma þarf á fót stofnun sem
hýsir kynferðisafbrotamenn til
Iangframa, svo að saklausir borgar-
ar geti notið einstaklingsfrelsisins,
sem kveðið er á um í stjórnar-
skránni.
RONALD M. KRISTJÁNSSON,
Reynimel 47,
Reykjavík.