Morgunblaðið - 05.06.1994, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Evrópskar flugmálastj ómir við-
urkemia viðhaldsstöð Flugleiða
Hefur skilað félaginu 30 milljóna
króna viðhalds- og leigusamningi
við norskt fiugfélag
VIÐHALDSSTOÐ Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli hefur hlotið
viðurkenningu Evrópusambands
flugmálastjórna, Joint Aviation
Authorities. Björn Bjömsson,
deildarstjóri flugöryggisdeildar ís-
lensku flugmálastjórnarinnar, af-
henti Sigurði Helgasyni, forstjóra
Flugleiða, staðfestingu á þessari
viðurkenningu við athöfn í við-
haldsstöðinni á föstudag. Flugleið-
ir eru fyrsta íslenska fyrirtækið
sem hlýtur vottun af þessu tagi.
Viðurkenning er talinn lykill að
starfsemi á alþjóðaviðhaldsmark-
aði og vegna hennar hefur félaginu
tekist að tryggja fyrstu erlendu
verkefnin fyrir stöðina. Það eru
stórskoðanir á þremur Fokker 50
flugvélum fyrir norska flugfélagið
Norwegian Air Shuttle. Flugleiðir
leigja norska félaginu eina Fokker
50 flugvél á meðan á skoðununum
stendur. Samningurinn skilar
Flugleiðum rúmlega 30 milljóna
króna viðskiptum.
Þessi viðurkenning er félaginu
afar mikilvæg, að því er fram kem-
ur í frétt frá Flugleiðum. Hún veit-
ir Flugleiðum heimild til að fram-
kvæma viðhald í samræmi við nýja
staðla evrópskra flugmálastjórna,
sem eru nefndir JAR 145. Þessir
staðlar opna Flugleiðum í raun
nýjan markað. Flugleiðir hafa unn-
ið að því undanfarið ár að undirbúa
viðhaldsstöðina fyrir starfsemi
stöðvarinnar erlendis. Þegar hafa
greinar um hana birst í nokkrum
viðhaldstímaritum. Þá hefur verið
sett á laggirnar sérstök söludeild
til að koma þjónustu viðhaldsstöðv-
arinnar á framfæri við erlend flug-
félög.
Um 160 manns starfa nú í við-
haldsstöð Flugleiða á KeflaVíkur-
flugvelli. Stöðin er til húsa í nýju
12.500 fermetra húsnæði á vellin-
um. Þar er hægt að taka inn til
skoðunar og viðgerðar allt að 4
þotur af þeirri stærð sem Flugleið-
ir nota í dag, en hægt er að taka
allt að sex 737-400 þotur til
geymslu í skýlinu samtímis.
Stærsta þota sem hægt er að hýsa
í stöðinni er breiðþota af gerðinni
MDll og hægt væri að taka inn
tvær þotur af þeirri gerð samtímis.
Morgunblaðið/Golli
640 í götuboltakeppni
FJÖLMÖRG börn tóku þátt í keppni fyrir börn í götubolta, sem haldin var í blíðskaparveðri
í Laugardalnum í gær. Adidas-umboðið á íslandi stendur fyrir götuboltakeppninni og er þetta
í annað sinn sem hún er haldin. Alls spiluðu 160 lið, fjórir í hverju liði, þannig að gera má ráð
fyrir að 640 börn hafi tekið þátt.
Mál eins sakbornings klofið frá stóra fíkniefnamálinu
Handtekinn í Svíþjóð öðru
sinni og býður framsals
MÁL 34 ára íslendings með sænskt ríkisfang, eins sakbominganna í
stóra fíkniefnamálinu, hefur verið aðskilið frá málinu og verður dæmt
sérstaklega. Héraðsdómur hafði gefið út handtökuskipun á hendur
manninum og handtók sænska lögreglan hann á heimili hans í Stokk-
hólmi i fyrradag.
Skýrsla um atvinmi-
markað lækna
Útlit fyrir
læknaskort
árið 2015
LÍKLEGT er að skortur verði á lækn-
um hér á landi árið 2015 ef fjöldatak-
mörkun í læknadeild Háskóla íslands
verður ekki rýmkuð um aldamót.
Á vegum norrænu læknafélag-
anna er fylgst með atvinnumarkaði
norrænna lækna. í nýlegri skýrslu,
sem birt er í Læknablaðinu, kemur
meðal annars fram að horfur séu á
að um 30 til 50 læknum verði ofauk:
ið á íslandi fram til ársins 2015. Í
fyrri skýrslum hefur því verið spáð
að offramboð leiði til aukins útflutn-
ings og að íslenskum læknum erlend-
is muni fjölga sem því nemi. Jafn-
framt að gera mætti ráð fyrir að
þeim fjölgi enn frekar sem ekki flytja
heim að námi loknu.
Þá segir að fækkun læknanema
úr 36 í 30 árið 1994 hafi ekki merkj-
anleg áhrif á fjölda lækna hér á landi
fyrr en eftir aldamót. Mjög stór hóp-
ur lækna á íslandi sé fæddur á árun-
um 1945 til 1950 og um 2015 fer
hann á eftirlaun. Því er líklegt að
ef takmörkun í læknadeild verði ekki
rýmkuð um aldamót yerði hér lækn-
askortur eftir árið 2015, þar sem 12
til 15 ár tekur að ná sérfræðiréttind-
um. Þó megi reikna með læknum
búsettum erlendis en varasamt sé
að ofætla vilja þeirra til að flytja
heim.
Maðurinn situr nú í gæsluvarð-
haldi í Svíþjóð öðru sinni vegna
þessa máls. Vegna rannsóknar þess
var hann handtekinn síðastliðið
haust og framseldur til íslands, eft-
ir nokkurra vikna gæsluvarðhald.
Eftir gæsluvarðhald hér á landi var
hann látinn laus og fór þá til síns
heima.
7 kg af hassi
og 1,8 af ametamíni
Hann er ákærður fyrir aðild að
innflutningi á 7 kg að hassi og allt
að 1,8 kg af ametamíni í þremur
smyglferðanna nítján sem við sögu
koma í stóra fíkniefnamálinu.
Eftir að ákæra var birt í málinu
lýsti maðurinn því yfir að hann
væri tilbúinn að koma hingað ti!
að vera við dómsmeðferðina er. því
aðeins að íslenska ríkið greiddi
ferðakostnað hans. Við því var ekki
orðið og var gefin út handtökuskip-
un sú sem sænska lögreglan hefur
nú framfylgt.
Þegar til handtökunnar kom var
hins vegar meðferð fíkniefnamáls-
ins svo langt komin að ekki þótti
annað fært en að kljúfa mál manns-
ins frá þætti annarra sakbominga
og hefur ekki verið ákveðið hvenær
hann verður dæmdur eða hvenær
íslensk lögregla verður send út að
flytja manninn heim á kostnað ríkis-
ins.
Logreglumenn sendir utan
Verjandi mannsins hér á landi,
Helgi Jóhannesson, gerði þá kröfu
í héraðsdómi í gær að handtöku-
skipun á hendur manninum yrði
afturkölluð. Því synjaði héraðsdóm-
ur og var málinu þá skotið til
Hæstaréttar.
Lögfræðingar mannsins í Svíþjóð
vinna nú samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins að könnun á því
hvort unnt sé að koma í veg fyrir
að maðurinn verði framseldur hing-
að til lands þar sem óheimilt sé að
sænskum lögum að framselja mann
tvívegis milli landa vegna sama
sakamálsins.
Morgunblaðið/gg.
Þeir fyrstu
úr Þverá
Veiði fór nokkuð vel af stað í
Þverá í Borgarfirði í gærmorg-
un. Laust upp úr klukkan 7 var
Ingvar Vilhjálmsson búinn að
setja í 13 punda hrygnu í Fjár-
húshyl, en hafði nokkru áður
landað 11 punda laxi. Báðir tóku
fluguna „Traffic Warden“.
menn sjö
► Sjaldan hafa orðið heiftarlegri
átök milli andstæðra fylkinga í
íslensku viðskiptalífi en í nýjustu
hallarbyltingunni í fyrstu frjálsu
sjónvarpsstöð landsins./lO
D-Dagur
►Að morgni 6. júní 1944 sigldu
um 370 þúsund hermenn banda-
manna upp að strönd Normandí í
Frakklandi og hófu mestu innrás
sögunnar./12
Mesti auður íslands
►Dr. Pétur M. Jónasson vatnalíf-
fræðingur hefur í 20 ár rannsakað
Þingvallavatn. En vatnasvið þess
er framtíðarforðabúr drykkjar-
vatns á þéttbýlissvæðinu, þar sem
búa tveir þriðju hlutar þjóðarinn-
ar./18
Erró í Prag
► Myndlist er mönnum hugleikin
í Prag, en nýlega var þar opnuð
sýning á verkum myndlistar-
mannsins Erró./20
Kúnnarnireru kóngar
►Páll Bragason forstjóri Fálkans
greinir frá batnandi hag þrátt fyr-
ir þrengingartíma, væntingum í
efnahagsmálum og verulega
breyttum áherslum á starfsemi
fyrirtækisins, á nítugasta afmælis-
ári þess./22
B
► 1 -24
Þriðja kynslóðin
►Bræðurnir Sigurður, Stefán og
Guðbjartur Einarssynir gera út tvo
bátaog reka fiskverkun í Reykja-
vík. í tilefni dagsins ræðum við
við þá bræður./l
í leit að þjóðlegum tóni
►Landsýn Tómsar R. Einarsson-
ar./4
Sjávarborgir á ytri
höfninni
►Árið 1993 komu hingað tæplega
16 þúsund erlendir ferðamenn í
38 ferðum skemmtiferðaskipa og
er það meira en nokkru sinni fyrr
frá því þær ferðir hófust sumarið
1905./8
í höli Dofra konungs
►Hellirinn Víðgelmir í Borgarfirði
er einn af mestu hraunhellum
landsins og þótt víðar væri leitað.
Þar neðra er furðuheimur myrk-
urs, hraun-, ís- og dropasteina-
myndana./12
BÍLAR
► L4
Ekið á lofti
►Nýjasta æði jeppamanna er
loftpúðaíjöðrun. /2
Reynsluakstur
►Chrysler Voyager fjölnotabíll
með minni vél. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Leiðari 26
Helgispjall 26
Reykjavíkurbréf 26
Minningar 30
Myndasögur 38
Brids 38
Stjörnuspá 38
Skák 38
Bréf til blaðsins 38
Velvakandi 40
Fólk í fréttum 42
Bíó/dans 43
Iþróttir 46
Útvarp/sjónvarp 48
Dagbók/veður 51
Mannlífsstr. 6b
Kvikmyndir lOb
Dægurtónlist Ilb
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4