Morgunblaðið - 05.06.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.06.1994, Blaðsíða 27
26 SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1994 27 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SlMAR: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir 691122. SlMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. I lausasölu 125 kr. eintakið. SJOMANNADAGUR Asjómannadegi að' þessu sinni geta sjómenn og raunar landsmenn allir fagnað tveimur merkilegum áföngum í öryggismálum sjómanna. Hinn fyrri er sá, að ríkisstjórnin hef- ur tekið ákvörðun um kaup á stærri þyrlu fyrir Landhelg- isgæzluna, sem skiptir sköpum í björgunarstarfi hennar. Fyrir nokkrum mánuðum kom skýrt í ljós, þegar sjóslys varð við Austurland, hvílík þörf er á stórri og öflugri björgunar- þyrlu. Nú er það mál í höfn og markar tímamót í öryggismál- um íslenzkra sjómanna. Hinn markverði áfanginn í öryggismálum sjómanna, sem ástæða er til að fagna á þessum sjómannadegi er sjálfvirka til- kynningakerfið, sem þróað hef- ur verið af íslenzkum vísinda- mönnum og unnið verður skipu- lega í að koma fyrir í íslenzkum skipum á næstu árum. Þetta kerfi mun marka þáttaskil í öryggismálum sjómanna um leið og það á að geta orðið arð- vænleg útflutningsvara. Þótt sjómannadagurinn sé fyrst og fremst hátíðisdagur íslenzkra sjómanna er óhætt að fullyrða, að þjóðin öll lítur á sjómannadaginn sem sinn há- tíðisdag. Þótt margt hafi breytzt í íslenzku samfélagi á undanförnum árum og áratug- um hafa landsmenn, ef nokkuð er, ríkari skilning á því nú en um nokkurt skeið áður, að af- koma okkar byggist að lang- mestu leyti á sjósókn og þeim afurðum, sem sjómenn flytja að landi. Undanfarin ár hafa verið erf- ið í íslenzkum sjávarútvegi og sjómenn hafa ekki síður en aðr- ir landsmenn orðið áþreifanlega varir við það. Afkoma þeirra byggist á þeim afla, sem á land berzt og þeir finna fyrstir manna fyrir þeirri kjaraskerð- ingu, sem verður við niðurskurð aflakvóta ár eftir ár. En jafn- framt hafa þeir átt sinn stóra hlut í því að aðlaga sjávarútveg- inn breyttum aðstæðum og leita á ný mið til þess að bæta upp aflamissi á hefðbundnum fiski- miðum landsmanna. í skjóli kvótakerfisins hafa sjómenn verið beittir órétti af hálfu sumra útgerðarmanna, sem leiddi m.a. til harðra átaka í upphafi þessa árs. Það á eftir að koma í ljós, hvort þær að- gerðir, sem ríkisstjórn og Al- þingi hafa gripið til duga til að koma í veg fyrir, að sú misbeit- ing aðstöðu gagnvart sjómönn- um haldi áfram í einhverri mynd. Morgunblaðið lýsti full- um stuðningi við gagnrýni sjó- manna vegna þessa misréttis meðan á þeim átökum stóð. Kvótakerfið er andstætt hagsmunum sjómanna ekki síð- ur en hagsmunum þorra lands- manna. Ef taka á þá röksemd alvarlega, að útgerðarmenn hafi átt rétt á ókeypis kvóta vegna þess, að þeir hafi stundað útgerð áratugum saman, hlýtur sú röksemd einnig að ná til sjó- manna. Þeir hefðu þá átt að fá sinn hlut af hinum ókeypis kvóta, sem þeir fengu ekki. Talsmenn útgerðar og sjávarút- vegsráðherra hafa haldið því fram, að með lagabreytingum á Alþingi í vor hafi kvótakerfið endanlega verið fest í sessi. Það er mikill misskilningur. Gjörn- ingur, sem felst í því að af- henda fámennum hópi lands- manna þjóðareignina getur aldrei orðið endanlegur. Þess vegna heldur baráttan gegn kvótakerfinu áfram og vonandi taka sjómenn sjálfir vaxandi þátt í þeirri baráttu. Á hátíðisdegi sjómanna send- ir Morgunblaðið íslenzkum sjó- mönnum árnaðaróskir, fagnar með þeim vegna merkra áfanga á undanförnum mánuðum í ör- yggismálum þeirra og heitir á þá til þátttöku í baráttu blaðs- ins gegn ósanngjörnu og órétt- látu kerfi við fiskveiðistjórnun. Af* ÍSLAND ER j:v«ekki endilega fallegasta land heims en það er öðruvísi fal- legt en önnur lönd og þö einkum sérstakt og engu líkt. Þess vegna er það eftirminnilegt og ómótstæði- legt í sinni hrikalegu fegurð. Þann- ig er einnig oft sá skáldskapur sem verður endingarbeztur, þótt enginn geti sýnt framá eða sannað að hann sé betri en annar skáldskapur, hvaðþá beztur. En hann er einfald- lega öðruvísi. AT7 JÁ, ÍSLAND GETUR I »komið við sögu í erlendum bókum með sérkennilegum hætti. Þannig talar sögumaðurinn í The Lucheon eftir Jeffrey Archer (A Quiver full of Arrows) um það að hann sé harla blankur og lýsir því raunar í eftirminnilegu hádegis- verðarboði með eftirsóttri glitkonu en hann geti þá lagað fjárhaginn þegar hann sé búinn að selja út- gáfuréttinn á sögum sínum til ís- lands. Hann er semsagt rithöfundur og Island er síðasta vonin! /JO MELVILLEMINNISTOFT TcO»á ísland einsog Thoreau í Cape Cod. Hann nefnir Heklu og ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjama Pálssonar, talar um nýlendu íslendinga á Grænlandi, íslenzka sjómenn og kuldann hérlendis. Hann hefur augsýnilega lesið sér til um þetta fjarlæga land og það er honum ofarlega f huga þegar hann þarf að lýsa einhveiju köldu og hráslagalegu og fjarlægu. yJQ SÆNSKUR LEKTOR *J »spurði mig eitt sinn hvort íslendingar væru enn örlagatrúar. Ég sagðist halda það. Honum þótti það undur og. stórmerki. Ert þú kýrfhkkLÚítíá "'örlagatrúar? spurði HELGI spjall hann. Ég er ekki frá því, sagði ég, svona í aðra röndina! En trúa íslendingar enn á orð- ið einsog þeir gerðu til forna? spurði hann. Hvað áttu við? sagði ég. Hrafnkell hafði enga löngun til að drepa Einar smalamann, sagði hann. Én samt vinnur hann verkið vegna þess hann trúði á orðið. Orð skyldu standa. í sögunni segist hann drepa hvem þann sem ríði Freyfaxa. Hvort þessi dýrkun á orðinu væri enn einkennandi fyrir íslendinga? Ég sagðist ekki vita það og raunar hefði ég ekki hugmynd um á hvað íslendingar tryðu. Ég héldi þeir væru eitthvað blendnir í trúnni, af skoðanakönnunum að dæma. Með sjálfum mér hugsaði ég, Ef við íslendingar tryðum enn á orðið, þá færum við betur með það(!) Hvað sem því líður, þá drepur enginn annan á Islandi orðsins vegna. Sá tími er liðinn. Það kemur sér líklega vel á þessari yfíriýs- ingaglöðu blaðuröld. En það væri kannski blaðrað minna ef menn stæðu í sporum Hrafnkels og þyrftu að standa við orð sín. Ég tala nú ekki um ef það gæti kostað mehn lífíð að fara á bak Pegasusi! Þá væru færri aðsendar dellugreinar í dagblöðum nú um stundir. (P.s. I dag, föstudag 3. júní, bárust mér í hendur Berlingatíðindi með grein um Island sem heitir Frihed. Hún er eftir ungan danskan blaða- mann sem kemur vel fyrir og hefur tilfínningu fyrir húmor, en hefur því miður misskilið það í samtali okkar, að ég hafi ekki áhuga á að vera á Þingvöllum 17. júní nk., heldur hafí ég kosið að vera í Nor- egi. Hið rétta er að norska bókafor- lagið Cappelen hefur sýnt mér þá góðvild að gefa út eftir mig í Nor- egi nýja og áður óútkomna ljóðabók í tilefni 50 ára lýðveldisafmælisins og hefur Knut Ödegárd þýtt bók- ina. Af þessum sökum hef ég þekkzt boð um að lesa úr bókinni í Akers- hus-kastala við hátíðahöld í Ósló 17. júní nk. Sem formaður þjóðhá- tíðarnefndar 1974 hefði ég auðvitað viljað vera á Þingvöllum á hálfrar aldar afmæli lýðveldisins. En mér er ekki fært frekar en öðrum dauð- legum mönnum að vera á tveimur stöðum í einu, þótt það_ kunni að standa til bóta! Um hátíðina 1974 orti ég m.a. svofelld erindi í Dagur ei meir: Á þjóðhátíð órri á Kngvelli kému fommenn ok fylktu liði með hrosshár í taumi ok héldu þing, því brá öld þeira við óra tíma. Skipuðu sér í ferning ok fluttu mál sitt undir bláum himni ok hamrar at baki en á svartri gjábrún þar sem glymr fossinn stóð hjúpaðr sólgeislum Hvítikristr. Heyrði hann i lyngmó land vaxa ok himin horfði hann yfír veili ok vatnaaugu. Fæðisk ein alda ok önnur deyr. Hvarf sjá sýnin sjónhverfing er timinn. Þannig urðu ellefu aldir einn dagr, ei meir - og vænti ég þess að íslenzka þjóð- in eigi jafnógleymanlega stund á hinum helga stað 17. júní nk.) M (meira næsta sunnudag) SÍÐASTLIÐINN FIMMTU- dag var frá því skýrt hér f Morgunblaðinu, að Efna- hags- og framfarastofnun- in, OECD, hefði lagt fram nýja skýrslu, þar sem sett- ar eru fram mjög róttækar tillögur um ráðstafanir í efnahags- og atvinnumálum til þess að draga úr atvinnuleysi. í skýrslu þessari er lagt til, að heimilt verði að greiða lægri lágmarkslaun en nú tíðkast, að atvinnu- leysisbætur verði lækkaðar í ríkjum, þar sem þær eru svo háar að þær letja fólk en hvetja ekki til að leita sér vinnu, að vinnutími verði sveigjanlegri, að skrif- finnska í kringum atvinnurekstur verði minnkuð, að fyrirtækjum verði gert auð- veldara að fækka og fjölga starfsfólki o.fl. í skýrslu OECD er því haldið fram, að ósveigjanlegar reglur um þetta efni séu ein af ástæðum þess, að 35 milljónir manna hafi ekki atvinnu í OECD-ríkjunum. Hér er hreyft mikilsverðu máli, sem töluverðar umræður hafa verið um á Vest- urlöndum á undanfömum misserum, þ.e. að þær reglur, sem búnar hafa verið til í kringum vinnumarkaðinn, með ýmsum hætti, löggjöf, samningum milli vinnuveit- enda og verkalýðsfélaga o.s.frv. eigi veru- legan þátt í því hve atvinnuleysi er mikið. í því sambandi hefur það vakið sérstaka athygli, að Bandaríkjamönnum gengur miklu betur að draga úr atvinnuleysi en Evrópubúum en í Bandaríkjunum ríkir meira fijálsræði á vinnumarkaði en í Evr- ópulöndum. í þessu samhengi ber að skoða ályktun, sem aðalfundur Vinnuveitendasambands íslands gerði sl, þriðjudag, þar sem hvatt var til þess að gerðir yrðu nýir kjarasamn- ingar til tveggja ára með það höfuðmark- mið að auka atvinnu. í því sambandi telur VSÍ nauðsynlegt að endurskoða samn- ingsákvæði um vinnutíma til þess að bæta nýtingu framleiðslutækjanna og einnig þurfi að endurskoða vinnulöggjöfína til þess að draga úr möguleikum smáhópa til að valda stórtjóni með verkföllum. í ræðu, sem Magnús Gunnarsson, for- maður VSÍ, flutti á aðalfundinum sagði hann m.a.: „Þá er tímabært að endurskoða ýmislegt í samningum einstakra atvinnu- greina til að auka sveigjanleika. Ég horfí hér sérstaklega á ósveigjanleg ákvæði um vinnutíma og skort á samningsákvæðum um vaktavinnu með eðlilegu álagi fyrir afbrigðilegan vinnutíma. Ég fullyrði, að mörg fyrirtæki gætu fjölgað starfsmönn- um og lengt daglegan nýtingartíma fast- eigná og tækja, ef heimildir til vaktavinnu væru tiltækar með eðlilegu endurgjaldi. Framleiðslan gæti borið 20-30, jafnvel 40% hærri launakostnað á yiðbótarvinnu- tíma en ekki 80% eins og greiða þarf í yfírvinnu. Hér er úrbóta þörf til að opna fyrir ný störf.“ Hér er hreyft stórmáli. Það er áreiðan- lega rétt hjá Magnúsi Gunnarssyni, að breytt samningsákvæði um vaktavinnu mundu leiða til ýmist fjölgunar starfs- manna hjá fyrirtækjum eða koma í veg fyrir frekari fækkun þeirra. í flestum at- vinnugreinum er mikil fjárfesting í húsum og tækjabúnaði, sem ekki er nýtt nema að takmörkuðu leyti vegna núverandi samningsákvæða um álag vegna yfirvinnu. í sjávarútveginum einum geta breytt samningsákvæði ráðið úrslitum um af- komu fyrirtækja og þar með starfsmanna. Hvers vegna er sjálfsagt að vinna nánast allan sólarhringinn í fískverkunarstöð, sem rekin er um borð í frystitogara úti á sjó, en ekki í fiskverkunarstöð í landi? Hvaða hag sjá verkalýðsfélögin í því að reka físk- vinnsluna á haf út og hafa vinnu af félags- mönnum sínum í landi? í gær, föstudag, var frá því skýrt hér í Morgunblaðinu, að eitt framsæknasta sjávarútvegsfyrirtæki Iandsins, Vinnslu- stöðin í Vestmannaeyjum, hefði auglýst eftir starfsfólki á kvöldvakt. Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, sagði, að með þessu væri verið að kanna hvort lengja mætti vinnudaginn og fá nýtt fólk til vinnu á þessum viðbótar- tíma á degi hveijum. Fyrirtækið stefndi að því að vinna meira hráefni og kaupa það af brezkum og rússneskum skipum. í þessu sambandi hefur Vinnslustöðin farið fram á viðræður við verkalýðsfélögin um að koma á fót vaktavinnu með 35-50% vaktaálagi. Hér er skýrt dæmi um það, að vilji er til þess í fyrirtækjum að auka vinnu og bæta við fólki. Hvort er betra fyrir fólk að hafa atvinnu, þótt álag á vinnutíma utan dagvinnutíma sé lægra en þótt hefur eðlilegt fram að þessu eða hafa enga vinnu? Ætla verkalýðsfélögin í alvöru að halda því fram, að það sé betri kostur fyrir fólk að hafa enga vinnu? Bæði OECD og Vinnuveitendasamband íslands eru hér að fjalla um málefni, sem getur ráðið úrslitum um endurskipulagn- ingu atvinnulífs í Evrópu og víðar þ. á m. á Islandi á næstu árum. Við íslendingar verðum eins og aðrar þjóðir að laga okkur að breyttum aðstæðum. Við verðum að gera okkur ljóst, að bæði í sjávarútvegi og í öðrum atvinnugreinum er bundin gífurleg fjárfesting, sem ekki er hagnýtt nema að hluta til vegna þess, að vinnuveitendur og verkalýðshreyfíng hafa gert með sér samn- inga, sem hamla framþróun á þessu sviði. Vinnuveitendur geta ekki skotið sér undan ábyrgð í þessum efnum. Þeir hafa skrifað undir þessa samninga, sem vel má vera, að hafí verið réttlætanlegir á sínum tíma. En við búum við gjörbreyttar aðstæður og harðnandi samkeppni við aðrar þjóðir m.a. í Suðaustur-Asíu og raunar einnig nú um stundir í ríkjum Austur-Evrópu og fyrrverandi lýðveldum Sovétríkjanna. Ann- aðhvort lögum við okkur að breyttum að- stæðum eða horfum á eftir vinnunni fær- ast til þeirra ríkja, sem eru samkeppnis- hæfari en við og aðrar Evrópuþjóðir. Það er enginn munur á bílaverksmiðju og frystihúsi í þessum efnum. Bílaverk- smiðjurnar þurfa að nýta fjárfestingu sína til hins ýtrasta til þess að ná hámarksár- angri og lægri framleiðslukostnaði og til þess að geta selt bílana á hagstæðu verði. Við verðum að nýta ijárfestingu í fískiskip- um og fiskverkunarhúsum eins og kostur er til þess að ná hámarksárangri. Það er hægt að gera annars vegar með fækkun skipa og hins vegar með fækkun húsa og betri nýtingu þeirra húsa, sem eftir verða í framleiðslu. Viðbrögð verkalýðs- hreyfingar- innar VIÐBRÖGÐ verkalýðshreyfing- arinnar vegna þess- ara hugmynda VSÍ, sem eru í raun sama eðlis og tillög- ur OECD, valda vonbrigðum. Þegar Morgunblaðið bar samþykkt aðalfundar VS| undir Benedikt Davíðsson, forseta ASÍ, sagði hann m.a.: „Þetta er aðeins einn hluti af kröfunni um að lækka laun- in. Það eru ákvæði í okkar kjarasamning- um um vaktavinnu. Því er þarna væntan- lega verið að biðja um að hægt sé að grípa til vaktavinnu nánast hvenær sem er, án þess að hafa á því fyrirvara eins og nú er og lækka launakostnaðinn. Ég sé því út af fyrir sig ekkert nýtt í þessu umfram það sem menn hafa verið að segja að undanförnu.“ I Morgunblaðinu í gær, föstudag, var fjallað frekar um þetta mál. Þar kom fram, að núgildandi samningar um vaktavinnu í frystihúsum fela það í sér að heimilt sé að semja um slíkt, ef vinna stendur ekki skemur en 10 vikur í einu og er 4 vikna uppsagnarfrestur á vaktavinnunni. Sam- kvæmt þessum samningum er 35% vakta- álag á vinnutíma utan dagvinnu á tvískipt- um vöktum og 53% ef einnig er unnið um helgar. Menn þurfa ekki að hafa mikla þekkingu á sjávarútvegi til þess að sjá, að þessi samningsákvæði um lágmarks- tíma vaktavinnu og uppsagnarfrest hljóta að koma í veg fyrir, að fyrirtæki nýti sér þetta að nokkru marki. Samkvæmt frásögn Morgunblaðsins í gær, föstudag, voru sjónarmið talsmanns REYKJAVIKURBRÉF Laugardagur 4. júní Skipveiji á Svalbaki EA-2 skreytir skipið í tilefni sjómannadagsins. Morgunblaðið/Golli verkalýðshreyfingarinnar þessi: „Snær Karlsson, framkvæmdastjóri fiskvinnslu- deildar Verkamannasambandsins, segir hins vegar, að vinnuveitendur vilji almennt ekki taka á sig þá ábyrgð, sem felst í vaktavinnusamningunum með því að standa við þá vinnuframkvæmd að tryggja fólki stöðuga vinnu á vinnustað. Fisk- vinnslan eigi yfír 80% af fiskveiðiflotanum og ef hún sé ekki fær um að skipuleggja veiðar og vinnslu þannig að það veiti at- vinnuöryggi verði auðvitað að leita að öðr- um mönnum til að reka fiskvinnsluna. Snær segir, að í hugmyndum vinnuveit- enda um sveigjanlegri vinnutíma felist í raun, að atvinnurekendur vilji geta ráðið því hvenær starfsfólk er kallað til vinnu. Þeir séu nánast að tala um að taka upp gömlu aðferðina að flagga, þegar þeir vilja fá fólk í vinnu. „Málið virðist orðið snúast um það, hvort hægt sé að fá fólk til að vinna fyrir ekki neitt og ef það gengur ekki, þá fyrir það smánarkaup, sem þeir greiða hvaða tíma sólarhrings sem er.““ Þessi viðbrögð forystumanna verkalýðs- féiaganna eru afar óhyggileg svo að ekki sé meira sagt. Yfirleitt hafa forystumenn félaganna verið opnir fyrir nýjungum í atvinnulífí og verið tilbúnir til að laga kjarasamninga að breyttum aðstæðum. Við íslendingar höfum ekki lent í sömu vandamálum og fjölmargar aðrar þjóðir hafa lent í af þessum sökum. Annars stað- ar hafa menn verið að stríða við vanda- mál vegna þess, að verkalýðsfélög hafa ekki verið reiðubúin til að taka tæknifram- förum opnum örmum og gert kröfu um óbreytt vinnubrögð, þrátt fyrir nýja tækni, sem hefur kostað atvinnulífið í öðrum lönd- um gífurlega fjármuni og fyrst og fremst komið niður á launþegum sjálfum í verri lífskjörum. Hér hafa launþegafélögin verið opnari fyrir breytingum og tekið þátt í að koma þeim á. Muninn á launþegafélögum hér og í nálægum löndum þekkja þeir ekki sízt sem standa að útgáfu dagblaða. )li:ni;ó'!.i:v>l[: :;í| (Vim ííinL | ■ í þessum efnum hefur því íslenzk verka- lýðshreyfíng um margt verið til fyrirmynd- ar. Þess vegna m.a. koma viðbrögð Bene- dikts Davíðssonar og Snæs Karlssonar nú á óvart. Það er alveg ljóst, að eitt helzta verkefni í atvinnumálum okkar á næstu árum verður að auka atvinnu. Þegar menn benda á leiðir til þess, eins og Vinnslustöð- in í Vestmannaeyjum er að gera, mega verkalýðsforingjamir ekki bregðast við á þann hátt, að nú eigi að níðast á launþeg- um. Það skal ekki dregið í efa, að það hafi verið gert áður fyrr. En það er löngu liðin tíð, nema ef vera skyldi í þeirri „svörtu“ vinnu, sem er að skjóta upp kollin- um bæði hér og annars staðar og verka- lýðshreyfíngin sjálf ræður ekki við að óbreyttum aðstæðum. Það er hægt að færa sterk rök fyrir því, að það sé meðlimum verkalýðsfélag- anna til mikilla hagsbóta, að stokka upp spilin í kjarasamningum, bæði varðandi vinnutíma og margt af því, sem OECD bendir á. Það er alkunna, að svonefnd verktakastarfsemi er að breiðast út hér á landi og annars staðar. Hvers vegna? Vegna þess, að launatengd gjöld eru orðin svo há, að það er betri kostur fyrir atvinnu- fyrirtækin að ráða fólk á verktakagrund- velli en S föst störf. Er þetta launþegum til hagsbóta? Er ekki skynsamlegra að draga úr gífurlegri sjóðamyndun verka- lýðsfélaganna með því að draga úr launa- tengdum gjöldum en auka atvinnuöryggi fólks í þess stað? Auðvitað. Vonandi endurskoða forystumenn verkalýðsfélaganna afstöðu sína til þeirra hugmynda, sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni. Margt bendir til, að þrátt fyrir þá ládeyðu, sem hér ríkir nú, verði hægt á næstu árum að byggja hér upp kröftugt og blómlegt atvinnulíf. En við megum ekki bregða fæti fyrir þá þróun sjálf með úreltum samningsákvæðum á vinnumark- aðnum. Tími breyt- inga A UNDANFÖRN- um áratugum hefur oft verið rætt um nauðsyn þess að breyta vinnulög- gjöf. Fram að þessu hefur enginn almenn- ur hljómgrunnur verið fýrir því. En þjóðfé- lagið hefur breytzt og nú er alveg ljóst, að tími er kominn til margvíslegra breyt- inga á vinnumarkaðnum. Það er fráleitt, að fámennir hópar í stór- um fyrirtækjum, t.d. flugmenn eða flug- virkjar hjá Flugleiðum, geti ýmist stöðvað rekstur slíks fyrirtækis með verkföllum eða knúið fram kjarabætur umfram aðra með hótun um slík verkföll. Þetta fyrir- komulag er ekki bara andstætt hagsmun- um fyrirtækisins og hluthafanna heldur og annarra starfsmanna þess. Það erfráleitt, að fámennir hópar starfs- manna á stórum vinnustöðum geti lamað starfsemi þeirra að verulegu leyti eins og meinatæknar gerðu á dögunum. Það er fráleitt, að vinnuveitendur og verkalýðsfélög semji um það sín í milli, að einstaklingur geti ekki fengið vinnu í ákveðinni atvinnugrein nema vera í ákveðnu launþegafélagi eða greiða gjöld til þess. Það er líka fráleitt, að vinnuveit- andinn innheimti þau gjöld af launum starfsmanna. Það er fráleitt, að vinnuveitendur og verkalýðsfélög geti samið um það sín í milli í hvaða lífeyrissjóðum launþegar eru. Það á ekki að koma þessum aðilum við. Launþeginn á að geta ákveðið það sjálfur. Það telst til sjálfsagðra mannréttinda, að hann ákveði sjálfur, hvar hann telur hags- munum sínum bezt borgið í þessum efnum sem öðrum. Það er tímabært að taka alla þessa þætti upp til endurskoðunar. Verkalýðsfé- lögin eiga ekki og mega ekki falla í þá gryfju að leggjast í vörn fyrir gamalt og úrelt kerfí. „Hér er hreyft stórmáli. Það er áreiðanlega rétt hjá Magnúsi Gunnarssyni, að breytt samnings- ákvæði um vakta- vinnu mundu leiðatilýmist fjölgnnar starfs- manna hjá fyrir- tækjum eða koma í veg fyrir frekari fækkun þeirra. í flestum atvinnu- greinum er mikil fjárfesting í hús- um og tækjabún- aði, sem ekki er nýtt nema að tak- mörkuðu leyti vegna núverandi samningsákvæða um álag vegna yfirvinnu. I sjáv- arútveginum ein- umgetabreytt samningsákvæði ráðið úrslitum um afkomu fyrir- tækjaogþarmeð starfsmanna.“ •» 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.