Morgunblaðið - 05.06.1994, Blaðsíða 40
í\ mntiA-nr or. (...o»--irnmTTr,
40 SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Det Nedvendige Seminarium
I' nntAl^lfl l GETUR ENN TEKIÐ INN 3 ÍSLENSKA
l#aillllVI IVU NEMENDUR ÞANN 1. SEPT. 1994
4ra ára alþjóðlegt, nútíma kennaranám, sem veitir réttindi til kennslu í mörg-
um skólum og uppeldisstofnunum í Evrópu og þriðja heiminum.
Námið er:
• 1 ár með alþjóðlegu námsefni, innifalin er 4ra mánaða námsferð til Asíu.
# 1 ár námsefni innanlands, innifalin er 6 mán. þátttaka í dönsku atvinnulífi.
• 2ja ára fagnám, innifalið er 2x6 mánaða starfsnám í grunnskóla og öðrum
skólum innanlands og utan.
Eftir útskrift tekur við eins árs vinna í skóla í Afríku.
Allir nemendur búa í skólanum. Kynningarfundur um skólann verð-
ur haldinn í Reykjavík í lok júní. Ef þú hefur áhuga, hringdu í síma
90 45 65 91 40 45 eða sendu símbréf 90 45 66 11 50 61.
Det Nedvendige Seminarium, DK - 6990 Ulfborg.
Sólskinsrikið FIÓRÍDA (Orlando)
Glæsileg einbýlishús á eignarlóðum frá 3,5 millj. kr. Einstaklega
falleg svæði, stutt í Disneyland og Seaworld og fleiri stórskemmti-
leg fjölskyldusvæði. Húseigendaþjónusta í sérfíokki alla leið.
Örugg „leigu-innkoma" ef óskað er. Lánskjör allt að 30 ár.
m
a
íbúðir og hús af öllum
stærðum og verðflokkum,
m/eignarlóðum frá
kr. 1,5 millj. Stult frá
yndislegum ströndum.
Ath.: Þessar eignir er á
flestra færi að eignast.
Fasteignir
SPÁNI
Leitið upplýsinga.
Sími 91-44365
lcl. 10-17 daglega.
INTERNATIONAL
UMBOÐiÐ Á ÍSLANDI
Skiptinemadvöl I Ástralíu, S-Ameríku,
Asíu, Evrópu og Bandaríkjunum
Ef þú ert á aldrinum 16-18 ára, átt þú möguleika á að gerast skiptinemi á
vegum AFS. Þú dvelur 11 mánuði í viðkomandi landi, eykur þekkingu þína á
umheiminum, lærir nýtt tungumál og kynnist skóla- og fjölskyldulífi í viðkom-
andi landi.
□ í janúar og febrúar 1995 fara íslenskir skiptinemar til Ástralíu, Costa Rica,
Argentínu og Paraguay. Hugsanlegt er að fleiri lönd í S-Ameríku verði í
boði. Nú er rétti tíminn til að sækja um fyrir þessar brottfarir.
□ í júní, júlí og ágúst 1995 fara íslenskir skiptinemar til Jamaika, Venezuela,
Mexíkó, Guatemala, Ekvador, Brasilíu, Bólivíu, Bandaríkjanna, Portúgals,
Austurríkis, Frakklands, Ítalíu, Þýskalands, Lettlands, Indónesíu, Tæ-
lands og Norðurlandanna. Hugsanlegt er að fleiri lönd verði í boði. Viljir
þú auka líkurnar á að fá það land sem þú sækist eftir er vissara að sækja
um nú í sumar. Sérstök athygli er vakin á því að AFS á íslandi hefur útveg-
að sérstaka styrki til handa þeim, sem fara til Lettlands sumarið 1995.
Nánari upplýsingar um styrkina veitir framkvæmdastjóri AFS á íslandi.
AFS eru ein virtustu samtök heims á sínu sviði og hafa staðið að nemenda-
skiptum í nálægt 50 ár. Samtökin starfa í 55 löndum í öllum heimsálfum.
Markmið samtakanna er að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks
af ólíkum uppruna. Einnig að víkka sjóndeildarhring ungs fólks og bæta mennt-
un þess.
AFS á íslandi eru samtök sem eru ekki rekin 1 hagnaöarskyni. Um 1.700 félag-
ar eru í samtökunum c>g eru þeir flestir fyrrum skiptinemar. Þegar skiptinemar
snúa heim eftir ársdvöl á erlendri grund gefst þeim kostur á að taka þátt í
fjölbreyttu og uppbyggilegu félagsstarfi AFS á íslandi. Á hverju ári fara um
130 íslenskir skiptinemar erlendis á vegum AFS í Islandi og á sama tíma hýsa
samtökin um 40 erlenda skiptinema. AFS á íslandi leggur ríka áherslu á undir-
búning nema og foreldra fyrir brottför.
AFS á íslandi hvetur þá, sem eru að hugleiða skiptinemadvöl, að gera saman-
burð á reynslu, þjónustu og kjörum.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu AFS, Laugavegi 59,
3. hæð, milli kl. 10 og 16 virka daga. Sími 91-25450.
>1FS Á ÍSL4NDI
Alþjóöleg fræösla og samskipti
ÍDAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi athyglisverða staða
kom upp á stórmótinu í
Miinchen í Þýskalandi nú um
mánaðamótin. Boris Gelfand
(2.685), Hvíta-Rússlandi,
hafði hvítt, en Þjóðverjinn
Gerald Hertneck (2.615)
var með svart og átti leik.
Sem sjá má eru léttir menn
svarts afar illa staðsettir og
erfitt að halda valdi á þeim
öllum. Hertneck fann lag-
lega lausn á vandamálinu:
23. - Hb8!, 24. Dxd7 -
Bb3+, 25. Kcl - Df6?
(Uppsker ekki árangur erfið-
isins. Eftir rétta framhaldið
25. — Hd8! má hvítur ekki
víkja drottningunni undan.
Eftir 26. Db5?? - Del+!
mátar svartur. 26. g3 er því
nauðsynlegt, en eftir 26. —
Hxd7, 27. gxh4 — Be3! vinn-
ur svartur manninn til baka
og stendur betur í endatafl-
inu) 26. Bb5! - Bd4, 27.
Hel - Bxb2+, 28. Kbl -
Be5, 29. Bc3? (Nú er það
hvítur sem er of veiðibráður.
Hann átti unnið tafl eftir 29.
Rd5!?, en sterkasti leikurinn
í stöðunni er 29. He4! og
svartur hefur engan veginn
nægar bætur fyrir mann) 29.
— Be6!, 30. Bxe5 — Bxd7,
31. Bxf6 - gxf6, 32. Kcl
— Hxb5 og nú hefur skákin
leystst upp í jafntefli sem
má kalla eftir atvikum sann-
gjöm úrslit. Teflendur
sömdu eftir nokkra leiki til
viðbótar.
VELVAKANDI
svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til Elínar
Pálmadóttur
ELÍN Pálmadóttir skrifar
í pistil sinn „Gárur“ í
Morgunblaðinu 22. maí
1994, grein, sem hún
nefnir „Aldraðir eiga
leik“.
Mig langar að þakka
henni fyrir og tek undir
hvert orð sem hún segir
þar.
Þuríður Sigurðardóttir,
Hjallabraut 3,
Hafnarfirði.
Gæludýr
Finka
KVENFINKA fæst gef-
ins. Upplýsingar í síma
71248.
Kettlingar fást
gefins
TVEIR kassavanir
kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma
46538.
Tapað/fundið
Gullhringur
tapaðist
ÞYKKUR og efnismikill
gullplötuhringur tapaðist
á Laufásveginum, á
svæðinu við bamaheimil-
ið, 26. maí. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 18348.
Með morgunkaffinu
Ást er...
Hægt að finna á ótrúlegustu
stöðum.
TM U.S P«i Otl —»u nghu rmntð
• 1994 Los Angeles 7im*s Synó<cM*
Láttu mig hafa tvö vatns-
glös. Þjófurinn lítur líka
út fyrir að vera þyrstur.
BMDS
Umsjón Guðm. 1* á 11
Arnarson
Landsliðin æfa nú af
kappi fyrir Norðurlanda-
mótið, sem fram fer í Finn-
landi _um næstu mánaða-
mót. Á síðustu æfingu opna
flokksins kom upp athyglis-
vert slemmuspil:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ ÁKDG7G
4 G54
♦ 52
4 Á6
Vestur
♦ 1032
▼ 103
♦ ÁD107
♦ G874
Austur
4 54
▼ D82
♦ G9863
♦ 953
Suður
4 98
T ÁK976
♦ K4
4 KD102
Tvennt ber að varast: Að
spila sex spaða í norður og
sex hjörtu. Besta slemman
er sex grönd í suður og þar
endaði eitt par.
Útspilið var hlutlaus
spaði. Sagnhafi á nú ýmsa
möguleika á tólfta slagnum,
sem byggjast fyrst og
fremst á hjartagosanum og
lauftíunni. Til að byrja með
tekur hann fimm slagi á
spaða og hendir þremur
hjörtum heima. Tekur svo
AK í hjarta. Falli drottning-
in ekki er blindum spilað inn
á laufás, síðasti spaðinn
tekinn og tígli hent heima.
Lokastaðan er þá þessi:
Norður
4 -
▼ G
♦ 52
4 6
Vestur Austur
4 - ♦d
? - 4 Á II ▼g ♦ 95
4 G87 4
Pennavinir
ENSKUR 35 ára karlmaður
vill skrifast á við 22-45 ára
konur. Hefur mikinn áhuga
á knattspymu, tónlist og
ferðalögum:
Gary Findeis,
51 Elizabeth Court,
Queen Street,
Herae Bay,
Kent CT65PD,
England.
FIMMTÁN ára Ghanapiltur
með áhuga á íþróttum:
Forkouh Cosmos,
P.O. Box 25,
Boadua E/R,
Ghana.
Ii'I'm
'if
'I1
i ló
• 'i
i •if»l‘
h n »nt
‘. *i l
a^iíi
i íi i ríi» íti • *
Mwj áQi rh®» i
Núna hefur þú loksins
sannfært mig, séra.
Suður
Þú sérð sjálfur í speglin-
um að þú ert eins og ann-
ar maður í þessum fötum.
4 -
4 -
4 K
4 KDIO
Lauf á kóng og stóra
stundin er runnin upp. Á
að reyna að fella laufgos-
ann eða spila tígulkóngi og
þvinga vestur til að spila
upp í gaffalinn?
Þessi lokaákvörðun verð-
ur varla tekin „ á blaði";
menn þurfa að vera við
borðið til að finna straum-
ana. En reyndar kom aldrei
til þessarar ákvörðunar, því
hjartadrottningin féll önn-
ur. Því miður.
Víkveiji skrifar...
Ferðamennimir era teknir að
streyma til landsins og eru
allar horfur á metfjölda þeirra í
sumar, ef marka má spár helztu
aðila í ferðaþjónustunni. Hún er sí-
fellt að verða mikilvægari þáttur í
efnahagslífínu og margir sjá þar
einn helzta vaxtarbroddinn í gjald-
eyrisöfluninni.
Vaxandi ferðamannastraumur
leiðir hugann að því, hvernig búið
er að móttökunni. Flestir koma
ferðamennirnir til höfuðborgarinnar
og ferðast út frá henni, hvort sem
þeir koma með flugvélum eða
skemmtiferðaskipum. Margir þeirra
stanza aðeins einn dag og þá fyrst
og fremst farþegar skemmtiferða-
skipanna, sem að sjálfsögðu vilja
sjá sem mest af landinu. Oftast fara
þeir í rútum austur að Gullfossi og
Geysi. En þá kemur babb í bátinn.
Ferðalag þangað er óþarflega taf-
samt, bæði vegna mikillar umferðar
á veginum austur yfir Fjall, svo og
malarvega í uppsveitum.
Iþessu sambandi riíjast upp grein,
sem Bergur G. Gíslason, mikill
áhugamaður um bættar samgöngur
í lofti, á láði og legi, ritaði fyrir
allnokkru í Morgunblaðið. Þar legg-
ur Bergur til, að ráðist verði í að
leggja bundið slitlag á áframhald
af Þingvallavegi, yfir Lyngdalsheiði,
austur að Gullfossi og Geysi. Telur
hann þetta forgangsverkefni til að
bæta ferðaþjónustuna. Helztu rök
hans eru þau, að leiðin þykir ein
hin fegursta á Suðurlandi, auk þess
sem hún er 20 km styttri frá Reykja-
vík að Geysi en aðrar, eða um 40
km fram og til baka. Miðað við þá
miklu umferð sem er á þessari leið
þá er augljóslega þjóðhagslega hag-
kvæmt að flýta framkvæmdinni.
Líklega er hún sú hagkvæmasta í
vegagerð, sem við blasir um þessar
mundir.
Þá telur Bergur, að umferðar-
þunginn á Suðurlandsvegi, þjóðvegi
nr. 1, sé þegar orðinn of mikill.
1' Éúndið slitlag 1 vé&Ttini Lýngddls-' '
heiði muni draga verulega úr um-
ferð á Suðurlandsvegi og þar með
slysahættu. Farbegar skemmti-
ferðaskipa sleppi þá við að heftast
í bflalestum. Tímann sem sparast
geti þeir notað til að njóta þess, sem
veitingahús op verzlanir í Reykjavík
hafa upp á að bjóða.
Allir, sem ferðast austur yfir Fjall
á Suðurlandsvegi, þekkja þessar
hvimleiðu bílalestir, sérstaklega um
helgar, og ástæðan er að sjálfsögðu
mikil umferð og þungaflutningar.
Tímabært er því að leita leiða til
að létta umferðarþunga af þessari
leið. Bundið slitlag á veginn um
Lyngdalsheiði eða nýjan veg um það
svæði er rökrétt lausn á vandanum.
Auk þess að létta umferð á Suður-
landsvegi verða samgöngur greiðari
úr uppsveitum Suðurlands til Vest-
ur- og Norðurlands.