Morgunblaðið - 05.06.1994, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
125. TBL. 82. ÁRG.
SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Refsiaðgerðir undirbúnar þrátt fyrir hótanir N-Kór eustj órnar
Jeltsín vill nýta sér deil-
una á alþj ó ð avettvangi
Moskvu, Tókýó. The Daily Telegraph, Reuter.
FÁTT virðist geta komið í veg fyrir, að reynt
verði að beita Norður-Kóreustjórn, sem ætlar
ekki að leyfa alþjóðlegt eftirlit með kjarn-
orkuáætlunum sínum, alþjóðlegum refsiað-
gerðum. Bandaríkjastjórn mun ræða það
mál við fulltrúa annarra ríkja í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna á næstu dögum og í
Japan hefur verið undirbúin áætlun um vænt-
anlegar aðgerðir. Að því er einnig unnið í
Suður-Kóreu. Rússar hafa lýst yfír stuðningi
við refsiaðgerðir verði það nauðsynlegt en
talið er, að þeir vilji nýta sér deiluna til að
leggja áherslu á stöðu sína sem stórveldi.
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, hafði
símasamband á föstudag við Kim Young-
sam, forseta Suður-Kóreu, og urðu þeir sam-
mála um að knýja á um refsiaðgerðir gegn
Norður-Kóreustjórn þrátt fyrir hótanir henn-
ar um að á slíkt yrði litið sem stríðsyfirlýs-
ingu. Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna
með kjarnorkuvígbúnaði hefur staðfest, að
Norður-Kóreustjórn ætli ekki að leyfa eftir-
lit í landinu og Bandaríkjastjórn hyggst á
næstu dögum kynna fulltrúum annarra ríkja
í öryggisráðinu áætlun um refsiaðgérðir.
Ýmsir fréttaskýrendur telja, að Rússar
hyggist nýta sér áhyggjurnar af þróun mála
í Norður-Kóreu til að sýna, að þeir séu stór-
veldi, sem ekki verði framhjá gengið. Borís
Jeltsín, forseti Rússlands, hefur að vísu lýst
yfir stuðningi við refsiaðgerðir reynisr þær
óhjákvæmilegar en heldur fast fram hug-
myndinni um alþjóðaráðstefnu um Norður-
Kóreu. Clinton hefur hafnað henni og Chu
Chang jun, sendiherra N-Kóreu í Kína, gerði
það einnig í gær.
Tvö dagblöð í Japan, Asahi Shimbun og
Yomiurí Shimbun, sögðu í gær, að japanska
stjórnin hefði sett saman áætlun í 10 liðum
um refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu og er
þar meðal annars kveðið á um algert við-
skiptabann; bann við ferðum opinberra emb-
ættismanna til landsins; bann við menning-
arsamskiptum og miklar takmarkanir á yfir-
færslu gjaldeyris.
Morgunblaðið/RAX
Ungir fiskimenn
HÁLFDAN Helgi Helgason og Úlfur Reginn Úlfarsson á Eskifirði fengu björgunarvesti í vikunni og nota þau samviskusam-
lega enda fara þeir niður á bryggju nánast á hverjum degi. Þeir höfðu veitt fimm fiska daginn sem Morgunblaðsmenn voru
á ferðinni, þar af einn „risastóran“ þorsk. í dag er sjómannadagurinn og fá þeir allir, ungir sem aldnir, bestu hamingjuóskir.
30 dagar og
1 sek. í júní
SÍÐASTA mínúta sólarhringsins
fimmtudaginn 30. júní verður ekki 60
sekúndur, heldur 61. Alþjóðlega jarð-
snúningsstofnunin i París hefur skipað
tímavörðum um allan heim að færa
atómklukkurnar til samræmis við sólar-
tíma en hann er miðaður við tiltölulega
reikulan snúning jarðarinnar. Um er
að ræða 19. hlaupasekúnduna frá 1972
en atómklukkurnar eru svo nákvæmar,
að þeim skeikar aðeins um eina sekúndu
miðað við stillingu á milljón árum. Af
fornum, kinverskum skrám um sól-
myrkva má ráða, að hægt hefur á snún-
ingi jarðar um sekúndubrot á síðustu
3.200 árum og áætlað er, að hann sé
10% hægari nú en fyrir 350 millj. ára.
Yilja fjörugri
þjóðsöng
ÍBÚAR á Gíbraltar, bresku krúnuný-
lendunni, hafa ekkert á móti því að guð
passi upp á drottninguna en þeir eru
óánægðir með þjóðsönginn, sem þeim
finnst ekki vera nógu fjörugur. Þess
vegna vilja þeir fá sinn eigin söng.
„Skotar og Walesbúar hafa söngva, sem
bragð er að og vekja fólk, og við viljum
fá einn af því tagi,“ segir fulltrúi á
upplýsingaskrifstofu Gíbraltars í Lond-
on. „Það verður efnt til samkeppni og
550.000 kr. heitið fyrir besta sönginn
en ég vara Spánverja við að vera með
einhverja ótímabæra þórðargleði. „Guð
gæti drottningarinnar" verður áfram
sungið þegar það á við.“
Dauði og
léttur dauði
BARÁTTAN gegn reykingum er háð
með ýmsum hætti og ekki síst alls kon-
ar áróðri í fjölmiðlum og annars stað-
ar. Eru auglýsingarnar af ýmsum toga
og misjafnlega beinskeyttar, í sumum
er fólki einfaldlega ráðlagt að hætta
að reykja en aðrar geta verið mjög
frumlegar, til dæmis þær, sem nú má
sjá í breskum blöðum og tímaritum. Þar
auglýsir Upplýsta tóbaksfyrirtækið hf.
framleiðslu sína og hvetur reykinga-
menn til að kaupa hana og taka þannig
virkan þátt í krabbameinsrannsóknum,
bæði á sjálfum sér og vegna þess, að
10% af sölunni renna til þeirra. Er um
að ræða tvær tegundir, annars vegar
Dauða í svörtum pakka og hins vegar
Léttan dauða í hvítum pakka. Einkenn-
ismerkið er hauskúpa og leggir.
Kúnnarnir
eru
kóngar
22
D-DAGURINN
ÞRIÐJA
KYNSLÓDIN
1 ..*