Morgunblaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1994 13
Lúðrasveitir á landsmóti
Stykkishólmi - Landsmót og jafn-
framt aðalfundur Sambands ís-
lenskra lúðrasveita var haldinn í
Stykkishólmi dagana 24.-26. júní.
Fjölmörg málefni lúðrasveitanna
voru rædd og kjörin ný stjórn en
hana skipa: Ásdís Þórðardóttir,
Reykjavík, form., Ásgeir Sigurðs-
son, Selfossi, varaform., Kristófer
Ásmundsson, Ólafur Þ. Snorrason,
Vestmannaeyjum, og Kolbrún
Björk Grétarsdóttir, Selfossi.
Um kvöldið lék léttsveit Lúðra-
sveitar Akureyrar létt lög á Hótel
Stykkishólmi en um miðnættið var
svo efnt til Jónsmessuvarðelds og
brekkusöngs við íþróttavöllinn og
varð úr því konungleg skemmtun.
Laugardaginn 25. júní var eftir
hádegið skrúðganga lúðrasveitanna
frá þrem stöðum í bænum að
íþróttahúsi, vel skipulögð og tókst
með afbrigðum vel. Þar var svo kl.
15 sett landsmót Sambands ís-
lenskra lúðrasveita og léku þar allar
lúðrasveitir sína dagskrá hver. Mjög
fjölbreytta, bæði innlend og íslensk
lög og í lokin lék Lúðrasveit íslands
(allar lúðrasveitirnar samanj 5 lög.
Byrjuðu á þjóðsöngnum, Ö, Guð
vors lands, spiluðu síðan Land míns
föður eftir Þórarin Guðmundsson,
Hver á sér fegra föðurland eftir
Emil Thoroddsen, Við Hólminn eft-
ir Hinrik Finnsson, einn af fyrstu
félögum Lúðrasveitar Stykkis-
hólms, og í lokin Öxar við ána eft-
ir Helga Helgason, sem er sjálfkjör-
inn lúðrasveitarsöngur, kraftmikill
og áhrifaríkur og einnig aukalög.
Þessi dagskrá stóð yfir í þijár
stundir.
300 þátttakendur
Daði Þór Einarsson, sem var for-
maður mótttökunefndar og aðal-
driffjöður þess að þetta mót var
haldið hér, lét þau orð falla að
mótið hefði verið sérstaklega vel
heppnað og allar áætlanir staðist
og tóku menn vel undir það.
11 lúðrasveitir hvaðanæva af
landinu tóku þátt í mótinu og munu
um 300 manns eða fleiri hafa skip-
að þær. Það má segja að þessi helgi
hafí sett virðulegan og góðan blæ
á Stykkishólm og menn notið henn-
ar vel og sjaldan verið fleiri að-
komumenn samankomnir hér. Því
auk lúðrasveitarmanna voru margir
ferðamenn hér sem notuðu sér það
sem í boði er og meðal annars voru
eyjaferðir um Breiðafjörð.
Allir með
reiðhjólahjálma
Borgarnesi - Það er orðinn fast-
ur viðburður hjá Lionsklúbbi
Borgarness að gefa börnum í
2. bekk Grunnskóla Borgarness
r eiðþj ólahj álma.
Það voru ánægðir krakkar
sem nýverið tóku viðreiðhjóla-
hjálmum sem að Lionsfélagarn-
ir, Ingi Ingimundarson og Bald-
ur Bjarnason, afhentu þeim fyr-
ir hönd Lionsklúbbs Borgar-
ness. Eftir að stúlkurnar höfðu
fengið bleika hjálma og strák-
arnir bláa fór hópurinn í gegn-
um reiðhjólaþraut. Fengu öll
hjólin skoðunarmiða en sumir
fengu nokkrar athugasemdir
um nauðsynlegar lagfæringar.
Morgunblaðið/Theodór
ALLIR röðuðu sér upp eftir að hafa fengið hjálmana fyrir reið-
hjólaskoðunina hjá lögreglunni.
Állar Yírnr á lárðalep láp yerði!
GeMapKftur, kassettur, myndbðnd,
eeiir,
plakðt ofl. ófi. &il
Kassettustandur
fyrir 52 kassettur
99 kr.
ATi
Myndbandastandur
fyrir 9 myndbönd
Tilboö
Agúrkur
krAg
Borgarness pi;
kr.
269‘
4 slk. hamborgarar
m/brauði
i m
ísstaur (7 stk.)
heimilispakki
Yes Ultra Plus
uppþvottalögur
Úrval af kexi á tilboði
Nýjar íslenskar rófur
Allt þetta og
5% staðgreiðsluafsláttur
föstudag, laugardag og sunnudag
Grensásvegi
Rofabæ
Eddufelli
Þverbrekku
Álfaskeiði
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 23