Morgunblaðið - 14.07.1994, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994
MINIUINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
IVAR ORGLAND
+ Ivar Orgland var fæddur í
Ósló 13. október 1921. Hann
lést í Noregi 16. júní síðastlið-
inn og fór útför hans fram í
kyrrþey.
DOKTOR philos Ivar Orgland skáld
og þýðandi er látinn.
Það er e.t.v. þýðandinn Orgland
sem íslendingar þekkja einna best,
en Orgland hefur kynnt Norðmönn-
um helstu skáld íslendinga á þessari
öld. Orgland var afar afkastamikill
og eftir hann liggur tylft ljóðabóka
auk þýðinga úr margra alda kveð-
skap Islendinga. Segja má að Org-
land hafi verið brautryðjandi að því
leyti að hann mun hafa verið einna
fyrstur manna til að kynna samtíma-
bókmenntir íslendinga fyrir lesend-
um á Norðurlöndum á þeim tímum
er flestir grúskuðu í íslenskum forn-
bókmenntum af þeim sem á annað
borð lögðu ást sína við bókmenntir
þjóðarinnar. Frá því um miðja öldina
hefur Orgland sent frá sér þýðingar
af ljóðum Stefáns frá Hvítadal, Dav-
íðs Stefánssonar frá Fagraskógi,
Steins Steinars, Snorra Hjartarson-
ar, Hannesar Sigfússonar, Jóhannes-
ar úr Kötlum og Jóns úr Vör svo
nokkrir séu nefndir. Og ekki má
gleyma skáldkonunum sem flestar
er að finna í DIKT AVISLANDSKE
KVINNER FRÁ 1700-TALLET TIL
VÁRE DAGER en fyrir þá bók fékk
hann Bastian-verðlaunin.
Markmið Orglands var ekki ein-
ungis að þýða heidur einnig að kynna
íslenskar bókmenntir fyrir almenn-
ingi á Norðurlöndum. í formálum
Sínum gerir hann ætíð rækilega grein
fyrir skáldinu og ferli þess, auk þess
sem hann tengir æfi þess og skáld-
skap við bókmenntasögu landsins.
Oftast nær ræðir hann einnig ýmis
vandamál við þýðingarstarfið sem
kann að skipta sköpum fyrir þýðing-
una eins og hún liggur fyrir.
Orgland var búsettur í Reykjavík
í tíu ár og starfaði þar lengst af sem
lektor í norsku við Háskóla Islands.
Síðan var hann lektor í Lundi í Sví-
þjóð áður en hann settist að í heima-
landi sínu. Hugur Orglands stefndi
í vesturátt-A hvetju sumri dvaldist
hann á Suður-Hörðalandi á vestur-
'strönd Noregs og þegar tækifæri
bauðst hélt hann til Islands. En það
þýðir ekki að hann hafi lokað augun-
um fyrir Suðurlöndum. Orgland var
starfsamur maður og áhugamál hans
voru mörg. Á seinni árum fór hann
að læra ítölsku og varð hann mikill
unnandi söngs og lista ítala. Hann
heillaðist jafnt af La Bohéme Pucein-
is sem af hrynjandi ljóðs. Ef skáld-
skapurinn hefði ekki orðið fyrir val-
inu get ég vel séð Orgland fyrir mér
sem söngvara!
Orgland var einkar snjall að segja
frá þegar vel lá á honum og í fasi
og framkomu allri var hann óvenju
lifandi maður. Hann hafði gaman af
að kynnast fólki og kunni vel að
meta vináttu víðs vegar um lönd.
Margt hefur verið sagt um þýðing-
ar Orglands og þótt hann hafi hlotið
bæði hrós og viðurkenningu þá hefur
gagnrýnin stundum verið hörð. Ljóst
er að jafn afkastamiklum þýðanda
og Orgland hljóta að vera mislagðar
hendur en að baki sér á hann mikið
og samfellt æfistarf sem mönnum
ber að virða. Án hans væru kynni
manna annars staðar á Norðurlönd-
um af íslenskri Ijóðagerð allt önnur.
Orgland hefur gefið þeim sem
áhuga hafa á íslenskum bókmennt-
um ágætt veganesti og víst er að
að sá Norðmaður, sem hefur kynnt
sér þýðingar hans, fer ekki allslaus
til ísiands.
Við vottum fjölskyldu hans og
aðstandendum innilega samúð.
Rolf, Ingrid og
Ingeborg Huus. .
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í formá-
lanum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Smfl auglýsingar
Hvítasunnukirkjan
Völvufell
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir!
Sumarhátíð Húsafelli
Félagar 4x411 Munið sumarhátíð
klúbbsins í Húsafelli um helgina.
Brottför kl. 19.00 frá Mörkinni 6
föstudaginn 15. júlí.
UTIVIST
[HjHveigarstig 1 • simi 614330
Kvöldferðfimmtud. I4.júlí
Kl. 20.00 Skrautsteinaleit í hlíð-
um Esjunnar - skemmtileg og
fróðleg ferð fyrir alla fjölskyld-
una. Brottför frá BSl, bensín-
sölu, stansað við Árbæjarsafn
og í Mosfellsbæ.
Verð kr. 900/1.000, frítt fyrir
börn 15 ára og yngri.
Dagsferðir um helgina:
Laugard. 16. júlíkl. 08.00; Hekla.
Sunnud. 17. júlíkl. 10.30; Þyrill.
Helgarferðir 15.-17. júlí:
1. Básar á Goðalandi.
2. Veiðivötn.
Landmannalaugar - Básar
18.-22. júlí: Örfá sæti laus
vegna forfalla. Gist í skálum á
leiðinni.
Fararstjóri Hörður Haraldsson.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
■» æ*. a / irr:i vqin irr: a p
Löggiltur læknaritari
með margra ára starfsreynslu, óskar eftir
starfi frá 1. nóvember nk.
Áhugasamir vinsamlegast sendi upplýsingar
til auglýsingadeildar Mbl., merktar:
„Vön - 10731“, fyrir 29. júlí nk.
íslenskt f ranskt hf.
Óskum eftir að ráða aðstoðarmann í
framleiðslu á matvælum. Framtíðarstarf.
Upplýsingar á staðnum.
íslenskt franskt,
Dugguvogi 8.
Flugmenn!
Almenn, leynileg atkvæðagreiðsla skv. a-lið
15. gr. laga nr. 80 1938 til ákvörðunar um
að hefja vinnustöðvun hjá Leiguflugi ísleifs
Ottesen hf., Reykjavík, frá og með þriðjudeg-
inum 26. júlí ’94 kl. 08.00, fer fram á skrif-
stofu FÍA, Háaleitisbraut 68, Reykjavík.
Atkvæðagreiðslan hefst laugardaginn 16. júlí
kl. 09.00 og lýkur sunnudaginn 17. júlí
kl. 12.00.
Stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna.
Atvinnuhúsnæði
í miðbænum
Atvinnuhúsnæði óskast á póstsvæði 101
eða 107, 80-120 m2 á jarðhæð, fyrir léttan
iðnað og verslun.
Einnig óskast 2ja-3ja herb. íbúð á sama svæði.
Upplýsingar í síma 887911.
Uppboð
til slita á óskiptri sameign
Byrjun uppboðs á eigninni Strandgata 8 (Sjólyst), Stokkseyrarhr.,
þingl. eig. Ragnheiður Haraldsdóttir og Edda Karen Haraldsdóttir,
verður haldið á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1, Selfossi,
fimmtudaginn 21. júlí 1994 kl. 13.00. Gerðarbeiðand! er Ragnheiður
Haraldsdóttir.
Afgreiðslumenn
Stórt og traust fyrirtæki í borginni óskar að
ráða samviskusama og heiðarlega afgreiðslu-
menn til framtíðarstarfa sem fyrst.
Starfsmenn þurfa að sinna afgreiðslustörf-
um, jafnt innan- sem utandyra. Vaktavinna.
Æskilegur aldur 25-50 ára.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „A - 13220“, fyrir 19. júlí nk.
Heilsugæslustöð
Kópavogs
Staða hjúkrunarfræðings (hlutastarf) er laus
frá og með 1. október 1994.
Umsóknarfrestur er til 5. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 40400.
Framhaldsuppboð
Framhald uppboðs á mb. Drangavík VE-555 (skipaskrárnr. 2048),
sem er þinglýst eign Auðuns hf., eftir kröfu frá íslandsbanka hf, sem
fram átti að fara fimmtudaginn 14. júlí 1994, hefur verið frestað
vegna mistaka í auglýsingu á uppboðinu. Uppboðið mun fara fram
fimmtudaginn 28. júl( 1994, kl. 10.00, á skrifstofu sýslumannsins í
Vestmannaeyjum, Heiðarvegi 15, 2. hæð.
Sýslumaðurínn í Vestmannaeyjum,
12. júll 1994.
——
KIPULAG RÍKISINS
Mat á umhverfisáhrifum
Frumathugun á Hólmavíkurvegi í
vestanverðum Hrútafirði
Samkvæmt lögum nr. 63/1993, um mat á
umhverfisáhrifum, er hér kynnt fyrirhuguð
vegaframkvæmd við Hólmavíkurveg nr. 68 í
vestanverðum Hrútafirði. Um er að ræða 3,5
km langan vegarkafla frá Valdasteinsstöðum
um Borðeyri að Laugarholti.
Tillaga að þessari breytingu liggur frammi
til kynningar frá 14. júlí til 18. ágúst á eftir-
töldum stöðum: Skipulagi ríkisins, Laugavegi
166, Reykjavík, frá kl. 8.00-16.00 alla virka
daga og í biðstofu Sparisjóðs Hrútfirðinga,
Borðeyri, frá kl. 13.00-16.00 alla virka daga
nema miðvikudaga.
Athugasemdum við þessa framkvæmd, ef
einhverjar eru, skal skila skriflega til Skipu-
lags ríkisins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík,
fyrir 18. ágúst nk. Þar fást ennfremur nán-
ari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Framhald uppboðs verður á sumarbústað á lóð nr. 132 í landi
Öndverðarness, Grímsneshr., þingl. eig. Valdimar Þórðarson, eftir
kröfum Islandsbanka hf., Sindra-Stáls hf. og Grímsneshrepps, mánu-
daginn 18. júlí 1994 kl. 11.00 á eigninni sjálfri.
Sýslumaðurínn á Selfossi,
13. júlí 1994.
SAMHANI) UNCKA
S/ÁL / S T/FDISMANNA
Kynning á ESB fyrir konur
Fimmtudaginn 14. júlí, kl. 20.30, verður haldinn fundur um ESB.
Fundurinn er sérstaklega ætlaður konum, en að sjálfsögðu eru allir
velkomnir. Frummælendur verða þau Birna Hreiöarsdóttir og Björn
Bjarnason. Fundurinn verður haldinn í Kornhlöðunni (bak við Lækjar-
brekku).
Ungar sjálfstæðiskonur.
Sumarferð Landsmálafé-
lagsins Varðar f Veiðivötn
Varðarferðin verður á laugardaginn 16. júlí nk. Lagt verður af stað
frá Valhöll v/Háaleitisbraut kl. 8.00 stundvíslega.
Farið verður í Veiðivötn en einnig verður áð í Þjórsárdal og í Galtalæk.
I Veiðivötnum verður ekinn hringur um vatnasvæðið og farið I göngu-
ferðir undir stjórn vanra fararstjóra.
Áætlaður komutími til Reykjavíkur er um kl. 19.00.
Aöalfararstjóri verður Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur.
Miðasala í Valhöll milli kl. 8.00 og 18.00 i dag, fimmtudag, og
föstudag.
Nauðsynlegt er að kaupa miða fyrirfram.
Ferðanefnd Varðar.