Morgunblaðið - 14.07.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ1994 37
FRÉTTIR
SKÁK OG BRIDS
Sumarhátíð
varnarliðsmanna
VARNARLIÐSMENN halda árlega
fjölskylduhátíð sína með „karnival“-
sniði laugardaginn 16. júlí nk. og eru
allir velkomnir.
Hátíðin fer fram í stóra flugskýl-
inu, næst vatnstanki vallarins og
gefst gestum kostur á að njóta þar
íjölbreyttrar skemmtunar fyrir alla
fjölskylduna frá kl. 11 til 17. Þátt-
taka í þrautum og leikjum og hress-
ing af ýmsu tagi verður á boðstólum.
Milli atriða gefst gestum kostur á
að skoða flugvélar og annan búnað
varnarliðsins sem verður til sýnis á
svæðinu.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir. Umferð er um Grænáshlið,
ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsam-
lega beðnir um að hafa ekki með sér
hunda.
■ FÉLAGIÐ Fjölskylduvernd
heldur fund í Langholtskirkju í
dag, fimmtudaginn 14. júlí kl. 20
um málefni barna og foreldra, um-
gengnismál og forsjármál. Allir eru
velkomnir.
I BJÖRN G. Jónsson, umhverf-
isfræðingur, talar fimmtudaginn
14. júlí kl. 20 um umhverfismál á
íslandi á íslandskvöldi í Norræna
húsinu. Fyrirlesturinn nefnist
„Aktuella miljöfrágor pá Island“.
Fyrirlesturinn er tvískiptur og er
fyn'i hluti hans um auðlindir hafsins,
fiskveiðar sem umhverfisþátt. Síðan
mun hann taka fyrir gróðurmál á
Islandi. Að loknum fyrirléstri og
kaffihléi verðui' sýnd kvikmynd um
Island. Bókasafn og kaffistofa eru
opin til kl. 22 á fimmtudagskvöldum
í sumar. Fimmtudaginn 21. júlí mun
Árni Waag Hjálmarsson halda fyr-
irlestur um íslenska fugla. Aðgangur
er ókeypis.
■ MICHAEL O’Donnell, trérenni-
smiður og kennari frá Bretlandi er
á íslandi þessa dagana og heldur hér
5 tveggja daga námskeið í trérenni-
smíði. Þegar er fullbókað á nám-
skeiðin enda er nemendafjöldinn tak-
markaður við 5 nemendur á hvert
námskeið. Að þeim loknum mun
Michael O’donnell halda námstefnur.
Námstefnan verður haldin í húsa-
kynnum Smíðadeildar Kennarahá-
skóla íslands, Skipholti 37, 2. hæð,
í Reykjavík dagana 15. og 18. júlí
frá kl. 9-12 eða 14-17. Þeir sem
áhuga á að sækja eina þessara nám-
stefna skrái sig sem allra fyrst. Þátt-
tökugjald er 800 kr.
SKEMMTANIR
UHLJÓMSVEITIN PÉTUR heldur fyrstu
tónleika sína á Tveimur vinum í kvöld,
fimmtudagskvöld. Hljómsveitina skipa Val-
ur Gunnarsson söngvari,
Jón Gunnar Þórarinsson
gítarleikari, Sigurður
Hjartarson bassaleikari og
Magnús Þór Magnússon
trommuleikari. Hljómsveit-
'n hyggst leika frumsamið
efni á þessum jómfrútón-
leikum sínum og hefur leik-
inn uppúr kl. 23.00. Að-
gangur er ókeypis.
Mhreða vatnsskáli
Hljómsveitin Hunang frá
Akureyri sem leikið hefur
við góðar undirtektir víðs
vegar um land í sumar leik-
ur í Hreðarvatnsskála
næstkomandí laugardags-
kvöld. Dansleikir í Hreðar-
vatnsskála eru löngu lands-
kunnir fyrir sérstaka
stemmningu og náttúru-
lega gleði, enda komast.
iðulega færri að en vilja. Á
dögunum sendi Hunang frá
sér lagið Glimmer á safn-
plötunni „Heyrðu 4“ og mun það án efa
hljóma ásamt öðru úrvalsefni þegar Hun-
angsdrengirnir leika í Borgarfirðinum um
helgina.
UPÁLL ÓSKAR og MILLJÓNAMÆR-
INGARNIR leika föstudagskvöld í Gjánni,
Selfossi, en á laugardagskvöldið leika þeir
á veitingahúsinu Ommu Lú.
Lovers o.fl. Alvaran leikur svo þriðjudags-
og miðvikudagskvöld.
HLJÓMSVEITIN Pétur kemur fram í fyrsta
sinn á veitingahúsinu Tveimur vinum í kvöld,
fimmtudagskvöld.
USSSÓL leikur á föstudagskvöld i Víkur-
röst á Dalvík þar sem gleðipinnar Ólafs-
fjarðar, Dalvíkur, Siglufjarðar og Akureyrar
hittast. Á laugardagskvöldinu leika Sólar-
menn í Miðgarði, Skagafirði. SSSól -fer
nú brátt f hljóðver og dvelja liðsmenn hljóm-
sveitarinnar nú undir feldi við samningu á
breiðskífu sem mun hljóta nafnið Víva.
UPLÁHNETAN heldur áfram yfirreið sína
yfir landið og á föstudagskvöldð leikur sveit-
in á ungmennafélagsbaili í Borg í Gríms-
nesi og á laugardaginn verður hún í Sjallan-
um, ísafirði.
UÞÚSUND ANDLIT leika í Þotunni,
Keflavík, á ÍBK-dansleik. Á laugardags-
kvöldinur leikur hljómsveitin í Borg í
Grímsnesi á ungmennafélagsdansleik.
■ ALVARAiV leikur fyrir fagnandi eða
syrgjandi Akurnesinga og alla aðra á Lang-
asandi föstudagskvöld að loknum bikarleik
IA manna og KR-inga.
BiVJ+ Sigríður Beinteinsdóttir og hljóm-
sveit hennar halda hörkudansleik á Ing-
hóli, Selfossi föstudagskvöldið 15. júlí.
Hljómsveitin mun að venju halda uppi fjöri
ásamt því að leika nýju lögin sín C ég þig
og Frelsi.
U TVEIR VINIR Frá fimmtudegi tii sunnu-
dags verða haldin karaoke böll e_n hægt
er að velja um tæplega 3.000 lög. Á föstu-
dagskvöldinu verður auk karaoke, diskótek
í umsjón Jóa Richards.
UDOS PILAS leikur í kvöld, fimmtudags-
kvöid, í Rosenbergkjaliaranum en þar
verður haldið svokallað Mótorkvöld í boði
verslunarinnar Mótor. Á föstudag leika Dos
Pilas-félagar á Hótel Mælifelli, Sauðár-
króki.
UGAUKUR Á STÖNG t kvöld, fimmtu-
dagskvöld leikur hljómsveitin Good
Fellows. Hljómsveitin Galileó leikur föstu-
dags- og laugardagskvöld en á sunnudags-
og mánudagskvöld verður Þjóðhátíðin í
Eyjum kynnt þar sem fram koma SSSól,
Vinir vors og blóma, Upplyfting Lipstick
UHÓTEL ÍSLAND Á Hótel íslandi í júlí
verður sveitaballastemmning á laugardög-
um. Hljómsveitin Fánar ásamt gestahljóm-
sveitinni Brimkló með Björgvini Halldórs-
syni i fararbroddi munu næstu laugardags-
kvöld endurtaka þá einmuna stemmningu
sem hún hefur náð síðastliðin tvö laugar-
dagsksvöld. Húsið verður opnað kl. 22.
Miðaverð er 500 kr.
UTUNGLIÐ Á föstudagskvöldið verður
Funkyhiphopjamm þar sem Þossi og
Robbi verða í diskótekinu og i salnum verða
þeir Davíð á gítar, Raggi á kontrabassa,
Tóti á trommur, allir úr Bubbleflies, Svala
Björgvins og Danni úr Nýdönsk með
míkrafóna og Óskar á sax.
UHÁRIfí 4. sýn. verður í kvöld, fimmtu-
dagskvöld kl. 20 og eru örfá sæti laus, 5.
sýn. föstudagskvöld, 6. sýn. laugardags-
kvöld og 7. sýn. er á sunnudaginn og hefj-
ast allar sýningarnar kl. 20. Ósóttar pantan-
ir qru seldar þremur dögum fyrir sýningu.
Hálið er sýnt í íslensku óperunni.
USNIGLABANDIÐ og BORGARDÆT-
UR leika á ÚJtihátið SÁÁ í Galtalæk á
föstudags- og laugardagskvöld.
UCAFÉ ROYALE Fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld verður haldin
bjórhátíð. Á fimmtudagskvöld kemur fram
Guðmundur Rúnar og Steinn Ármann
Magnússon lítur inn og segir nokkra Hafn-
arfjarðarbrandara. Á föstudags- og laugar-
dagskvöld verður matar- og vínkynning,
jóðlmeistari Hafnarfjarðar verður uppgþt-
vaður og er kynnir kvöldsins Steinn Ár-
mann. Guðmundur Rúnar leikur svo fyrir
gesti.
Verður Gata Kamsky
næsti heimsmeistari?
SKAK
Kamsky sigrar í
Las Palmas
Burstar „krónprinsinn“
Kramnik í einvígi
ÓVÆNTUSTU úrslitin í áskorenda-
einvígum PCA keppnínnar í New
York um daginn var áreiðanlega
yfirburðasigur' 19 ára gamla Banda-
ríkjamannsins Gatas Kamskys yfir
18 ára gamla Rússanum Vladímir
Kramnik. Kamsky vann tvær fyrstu
skákimar, næstu þremur lauk með
jafntefli og örvæntingarfullar til-
raunir Kramniks í sjöttu skákimii
enduðu með því að hann tapaði
henni líka. Niðurstaðan varð þvi
á'á-lVi Kamsky í vil, yfirburðir
sem enginn bjóst við fyrirfram.
KAMSKY kom beint til einvígisins
frá Las Palmas á Kanaríeyjum þar
sem hann sigraði á stórmóti, hálfum
vinningi á undan Anatólí Karpov,
FIDE heimsmeistara, sem varð í
öðru sæti. Hann hafði litla ástæðu
til bjartsýni gegn Kramnik, sem er
stigahærri og af Gary Kasparov,
PCA heimsmeistara, talinn líklegast-
ur til að taka við tigninni. Hann er
því oft nefndur „krónprinsinn".
Sigurinn yfir Kramnik var því
gífurlega þýðingarmikill. Tapið er
mikið áfall fyrir Kramnik, sem fram
að þessu hefur átt síst minni vel-
gengni að fagna en þeir Karpov og
Kasparov á sama aldursskeiði. Þeir
töpuðu aldrei einvígjum í heims-
meistarakeppninni, hvað þá heldur
þurftu þeir að þola slíkt burst.
Gata Kamsky er Tartari frá Sov-
étríkjunum fyrrverandi og vakti
mikla athygli á opna mótinu í New
York 1989 þegar hann bað um
hæli sem pólitískur flóttamaður í
Bandaríkjunum ásamt föður sínum.
Þeir feðgar urðu síðan fljótt vand-
ræðabörn í bandarísku skáklífi og
var það ekki síst föðurnum Rustam
Kamsky að kenna. Hann var hnefa-
leikakappi eystra og lét ófriðlega
ef hann taldi keppinauta sonarins
vera að svindla á honum, en það
var ósjaldan. Þá fór það orð af
Rustam að hann berði soninn til
bókar og þegar hann tapaði ætti
hann von á ráðningu.
En það var aðeins fyrstu tvö árin
sem hæfileikar Kamskys voru um-
deildir. Eftir það náði hann að sanna
sig sem sterkasti skákmaður
Bandaríkjanna og stöðugt stefnt
upp á við. Það kemst fátt annað
að hjá honum en skákin. Hann legg-
ur gífurlega vinnu í að rannsaka
byijanir og bæta sig á þeim sviðum
þar sem hann tekur þekkingu sinni
áfátt. Nú nýlega hefur hann t.d.
lagt áherslu á hvassar stöður en
áður fyrr var stöðuskilningurinn
hans aðalsmerki. Byijanaundirbún-
ingur og nákvæmir útreikningar á
afar flóknum stöðum var einmitt
það sem lagði hornsteininn að sigr-
inum yfir Kramnik.
Þótt margir telji Kramnik hafa
meiri hæfileika þá virðist hann ekki
leggja eins mikið á sig og Kamsky
og nýtir sér vel ýmis tækifæri sem
frægð og frami hafa fært honum
upp í hendurnar. Hann er í tygjum
við glæsilega tékkneska skákkonu
sem er nokkru eldri en hann sjálf-
ur. Jan Timman hefur einnig hrósað
honum fyrir að vera ekki eins leiðin-
legur og hinir Rússarnir. Hann fær
sér í glas og skemmtir sér eins og
við hinir segir Timman.
Næsta verkefni Kamskys er ein-
vígi við Anand í fjórðungsúrslitum
heimsmeistarakeppni FIDE nú í
sumar. I haust mætir hann síðan
Nigel Short í undanúrslitum PCA
keppninnar. En lítum á tvær fyrstu
skákirnar við Kramnik:
í þeirri fyrstu reynist byrjana-
undirbúningur Rússans gersamlega
ófullnægjandi:
Hvítt: Gata Kamsky
Svart: Vladímir Kramnik
Slavnesk vörn
I. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rc3 -
Rf6 4. Rf3 - e6 5. Bg5 - dxc4
6. e4 - b5 7. e5 - h6 8. Bh4 - g5
9. Rxg5 - hxg5 10. Bxg5 - Rbd7
II. exf6 - Bb7 12. g3 - c5 13.
d5 - Db6 14. Bg2 - 0-0-0 15. 0-0
- b4 16. Ra4 - Db5 17. a3 - Re5
18. axb4 - cxb4 19. Dd4 - Rc6
20. dxc6! - Hxd4 21. cxb7+ -
Kc7 22. Be3 - e5 23. Rc3! - bxc3
24. bxc3 - Bc5
Endurbót Kramniks á skákinni
Salov-Illescas, Madrid 1993 sem
tefldist þannig: 24. - Hd6 25. Habl
- a6 26. Hxb5 - axb5 27. Hal -
Hd8 28. Be4 - Bh6 29. Bc5 - Bf8
30. Ba7 - Bh6 31. Ha6 - Hb8 32.
Hb6 og Illescas gafst upp.
25. cxd4 - Bxd4 26. Hfbl - Dc5
27. Ha6 - Hb8
Eftir 27. - Bxe3 28. Hc6+ - Dxc6
29. Bxc6 - Bb6 30. Bd5 hefur
hvítur augljóslega betra endatafl.
En í rannsóknum sínum á þessu
flókna afbrigði hefur Kramnik lík-
lega ekki tekið næsta leik hvíts með
í reikninginn:
SJÁ STÖÐUMYND
28. Bcli! - c3
28. - Bxf2+ 29. Khl - Bxg3
30. Ba3 var engu betra.
29. Ba3 - Dc4 30. Bd6+ - Kd7
31. Bc6+ - Ke6 32. Bb5 - Bxf2+
33. Kxf2 - Dd4+ 34. Kfl - De4
35. Hel - Dhl+ 36. Kf2 - Dxh2+
37. Kf3 - Hxb7 38. Bxe5+ - Hb6
39. Bc4+ - Kd7 40. Hxa7+ - Kc8
41. Hc7+ og Kramnik gafst upp.
Hann fórnaði peði fyrir sókn í
næstu skák, en í flækjunum reynd-
ist það vera Kamsky sem reiknaði
lengra:
Hvítt: Vladímir Kramnik
Svart: Gata Kamsky
Enski leikurinn
1. Rf3 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Bb4 4. g3 - 0-0 5. Bg2 - c5 6.
0-0 - Rc6 7. d4 - cxd4 8. Rxd4
- De7 9. Rc2 - Bxc3 10. bxc3 -
Hd8 11. Ba3 - d6 12. Hbl - Dc7
13. Rd4 - Rxd4 14. cxd4 - Dxc4
15. Dd2 - Da6 16. Hb3 - Hb8
17. e4 - Bd7 18. Hf3 - Ba4 19.
Hel - Hbc8
Kramnik hefur fórnað peði fyrir
sóknarfæri en Kamsky er vandan-
um vaxinn.
20. Bfl - Bb5 21. Bh3 - Da4 22.
d5 - Hc2 23. De3 - exd5 24. e5
Ekki 24. Hxf6 - gxf6 25. Dh6
- Dd4. Nú vonast hvítur eftir 25.
- dxe5 26. Be7, en Kamsky finnur
þvingaða vinningsleið:
24. - d4! 25. Dg5
25. - He2!
Nú verður Kramnik að fórna hrók
til að halda sókninni gangandi, en
allt kemur fyrir ekki.
26. exf6 - Hxel+ 27. Bfl -
Hxfl+ 28. Kg2 - Hgl+ 29. Kh3
- Bd7+ 30. Kh4 - g6 31. Dh6 -
d3+ 32. Hf4 - Dxf4+ 33. Dxf4 -
Hhl 34. g4 - h6 35. Kh3 - g5
36. Dd4 - Hgl 37. f3 - d2! 38.
Dxd2 - Bb5 og Kramnik gafst upp.
Margeir Pétursson
__________Brids______________
U m s j ó n A r n ó r (i.
Ragnarsson
Guðlaug og Aðal-
steinn unnu silfur-
stigamótið
Laugardaginn 9. júlí var haldið silf-
urstigamót í Sigtúni 9. Það var fá-
mennt en góðmennt vegna einmuna
veðurblíðu. 15 pör spiluðu og urðu
úrslit þessi:
Guðlaug Jónsdóttir - Aðalsteinn Jörgensen 320
Óli Bjöm Gunnarsson - Valdimar Elíasson 287
JacquiMcGreal-DanHansson 272
Næsta silfurstigamót verður haldið
laugardaginn 23. júlí og hefst spila-
mennska kl. 12 og lýkur milii 18 og 19.
Keppnisgjald er kr 1.500 á mann og fer
helmingur keppnisgjalda í verðlaun.
Eins dags bridsnámskeið
Laugardaginn 16. júlí verður nám-
skeið í brids í Sigtúni 9. Þetta er ann-
að námskeiðið í röð eins dags nám-
skeiða sem Bridssamband íslands
stendur fyrir í sumar. Leiðbeinandi er
Guðmundur Páll Arnarson.
Fyrsta námskeiðið, sem var laugar-
daginn 4. júní, var um vörnina en nú
ætlar hann að fara í mistakagrein-
ingu. Efni sem allir bridsspilarar geta
lært eitthvað á. Brids er mistakaíþrótt
og alls enginn spilar villulaust. Lykill-
inn að því að sigra er ekki að spila
feilfrítt heldur gera færri mistök en
andstæðingurinn.
Hvernig fer spilari að því að fækka
mistökunum? Það er spurningin sem
Guðmundur Páll ætlar að fara í laug-
ardaginn 16. júlí nk. Spiluð verða fyr-
irfram gefin spil og farið yfir þau jafn-
óðum.
Námskeiðið er opið öllum keppnis-
spiiurum og ekki er nauðsynlegt að
mæta í pörum. Námsskeiðsgjaldið er
kr 1.000 á mann og það hefst kl. 13.
Það er hægt að láta skrá sig á skrif-
stofu Bridssambands íslands í síma
91-619360 f. hádegi en einnig er
hægt að mæta á staðinnjétt fyrir kl.
13 laugardaginn 16. júlí nk.
Sumarbrids
Með fækkandi knattleikjum í sjón-
varpi, má búast við að keppendum
fjölgi nokkuð á næstunni í sum-
arbrids. Þátttaka hefur þó verið jöfn
og góð frá upphafi.
Urslit síðasta föstudag urðu:
N/S:
Halldör Már Sverrisson - Páll Þ. Bergsson 345
María Ásmundsdóttir - Steindór Ingimundarson305
Guðiaugur Sveinsson - Lárus Hermannsson 292
A/V:
Sveinn R. Eiríksson - Rúnar Einarsson 317
Auðunn Guðmundsson - Ásmundur Omólfsson 306
Erla Ellertsdóttir - Kristin Jónsdóttir 304
Á sunnudag var aðeins spilað í ein-
um riðli. Úrslit urðu:
Murat Serdar - Þórður Björnsson 191
Gunnþómnn Erlingsdóttir - Sigrún Pétursdóttir 184
Þórarinn Árnason - Þorleifur Þórarinsson 181
Kristinn Kristinsson - Halldór Svanbergsson 171
Á mánudag mættu 32 pör til leiks.
Úrslit urðu:
N/S:
Hjálmtýr Baldursson - Baldvin Valdimarsson 518
Hrólfur Hjaltason - Sverrir Ármannsson 495
Axel Lárusson - Guðjón Jónsson . 460
A/V:
SævinBjamason-ÞórirLeifsspn 495
Óli Þór Kjartansson - Kjartan Ólason 493
Alfreð Kristjánsson - Eggert Bergsson 482
Og nú er Bridssambandið búið að
kaupa nýtt húsnæði, að Þönglabakka
í Mjódd. Er ástæða til að óska Brids-
sambandinu og félagsmönnum þess
til hamingju með þennan merka
áfanga. Og minna á að aiiur hagnaður
af rekstri sumarbrids rennur til húsa-
kaupanna. Bridsfólk, samtaka nú og
fjölmennum í sumarbrids.
Spilað er alla daga kl. 19 (nema
laugardaga) og að auki kl. 14 á sunnu-
dögum og kl. 17 á fimmtudögum (ef
þátttaka næst).