Morgunblaðið - 14.07.1994, Page 48
m
HEWLETT
PACKARD
HP Á ISLANDI H F
Höföabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguloika til veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Afleiðingar sumarhita og sólfars
Þönmgagróður litar
sjóinn út af Gróttu
TALSVERT mikið hefur verið um þörungablóma út af Gróttu undanfarna
daga. Ljós slikja hefur verið á haffletinum og eins ljósir dílar. Sýni voru
tekin í gær og er verið að rannsaka þau hjá Hafrannsóknastofnun.
Þórunn Þórðardóttir, sérfræð-
ingur í þörungum á stofnuninni,
sagðist giska á að hér væru á ferð-
inni svokallaðir kalksvifþörungar.
Hún sagði fátítt að svona mikill
vöxtur hlaupi í þá eins og þarna
virðist hafa gerst. Hún sagði að
kalksvifþörungar væru hlýsjávar-
þörungar en of snemmt væri að
svara því hvað valdi vexti þeirra.
Kalkþörungarnir
ekki eitraðir
Þórunn sagði að kalksvifþör-
ungar væru ekki eitraðir og spilltu
ekki lífríkinu á neinn hátt. Þeir
gætu t.d. haft þau áhrif að halda
niðri vexti annarra og óæskilegra
þörunga.
|ggg3|||i
Morgunblaðið/Golli
Háþrýstiþvottur
ÞAÐ ERU mörg handtök við viðhald skipa og botnhreinsun er eitt af því sem nauðsynlegt er að
framkvæma reglulega. Hér er verið að háþrýstiþvo skip í slipp í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Kári
Hluthafafundur haldinn í Islenska útvarpsfélaginu hf.
Allt krökkt
af mýi
BITMÝ hefur verið óvenju
mikið á ferðinni að undan-
förnu og segir Gísli Már
Gíslason vatnalíffræðingur
hjá Líffræðistofnun Há-
skóla Islands að veðurfar
kunni að ráða miklu þar
um. Segir Gísli mest um
mýið 10-15 kílómetra frá
ám sem renna úr stöðuvötn-
um og i annan stað þurfi
að vera hægur vindur og
tiltölulega hlýtt. Mýflugan
klekst úr ám fyrri hluta
sumars og ræðst stærð
stofnsins af veðurfari sum-
arið áður og þörungagróðri
í vötnum. Síðasta vika var
hægviðrasöm og hlý og seg-
ir Gísli að sennilega sé flug-
an búin að verpa. Þá léttist
hún verulega og hugsan-
lega megi skýra aðgangs-
hörku hennar með því að
hún þurfi á að halda „blóð-
máltíð“ til þess að geta
þroskað ný egg. Flugan
sækir í spendýr, einkum í
hross, nautgripi, sauðfé og
menn að sögn Gisla. Hennar
verði einnig meira vart í
góðviðri því hún fljúgi ekki
í rigningu og ekki ef vindur
fer yfir þrjá metra á sek-
úndu. „Þetta hefur gert
vart við sig um allt land og
á Mývatni var varla vært
úti við þegar ég kom þang-
að um daginn." A mynd-
inni, sem er frá undirbún-
ingi Landsmótsins á Laug-
arvatni sem hefst í dag,
sjást starfsmenn leggja
þökur með net fyrir andlit-
unum. En Gísli segir að
fyrst flugan hafi verið
svona aðgangshörð upp á
síðkastið geti verið að
gangan sé farin yfir. Senni-
lega deyi níu af hverjum tíu
flugum milli þess sem þær
verpa. Loks séu til fæliefni
í apótekum sem fólk geti
gripið til.
Dómsmál höfð-
að gegn hluthöf-
um í Stöð tvö
Morgunblaðið/Sverrir
FYRIR hluthafafundinn gerðu fylkingarnar í íslenska útvarpsfé-
laginu hf. lokatilraun til að ná sáttum. Sú tilraun mistókst. Hér
ræðast við Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður, Jón Ólafs-
son og Óskar Magnússon, framkvæmdasljóri Hagkaups.
HLUTHAFAFUNDUR í Islenska
útvarpsfélaginu hf. samþykkti í gær
að höfða mál á hendur stjórnar-
mönnum í fyrrverandi meirihluta í
félaginu. Krafist er riftunar á
starfslokasamningi sem gerður var
við Pál Magnússon, fyrrverandi út-
varpsstjóra, ógildingar á sölu á
hlutabréfum í Sýn og skaðabóta frá
fyrrum stjórnarmönnum í félaginu.
Eftir að tillögurnar höfðu verið
samþykktar lagði Einar Hálfdánar-
son, lögfræðingur og fulltrúi minni-
hlutans í íslenska útvarpsfélaginu
hf., fram tillögu um að lögfræðingi
og löggiltum endurskoðanda verði
falið að rannsaka viðskipti félagsins
við tilgreinda hluthafa. Um er að
ræða meint fjármunabrot Jóns Ól-
afssonar m.a. fyrir að láta fella nið-
ur viðskiptakröfur félagsins á hend-
ur sér svo sem með því að greiða
þær með skilyrtum afslætti sem
ekki telst venjulegur greiðslueyrir,
láta fella niður vexti af viðskipta-
skuldinni, reikna sér leigu af tækja-
búnaði og fleiri brot á árunum
1990-1994, eins og komist er að
orði í tillögunni. Tillagan gerir einn-
ig ráð fyrir að meint brot Jóhanns
J. Ólafssonar á bókhaldslögum
verði rannsökuð, en þar er um að
ræða notkun á ýmsum fylgiskjölum
sem vafi þykir leika á hvort stand-
ist lög eða reglugerð um bókhald.
Þá gerir tillagan ráð fyrir að rann-
sakað verði meint brot Fjórmenn-
inga sf., þeirra Jóns, Jóhanns J. og
Guðjóns Oddssonar, fyrir að hafa
látið íslenska útvarpsfélagið hf.
greiða ýmsan kostnað félagsins og
fyrir að hafa krafið félagið um
ábyrgðaþóknun af lánum sem fé-
Iagið tók eftir að hagnaður var orð-
inn af starfsemi þess. Tillaga um
að taka þessa tillögu á dagskrá var
felld.
Einar sagði að minnihlutinn
myndi krefjast nýs hluthafafundar
þar sem formleg afstaða yrði tekin
til tillögu minnihlutans um rann-
sókn á þessum viðskiptum. Hann
sagði að ákvæði hlutafjárlaga leiði
til þess að þeir hluthafar, sem tillag-
an beinist gegn, megi ekki greiða
atkvæði á fundinum og því verði
núverandi minnihluti þar með í
meirihluta. Sigurður G. Guðjónsson
hefur sagt að þetta sé ekki rétt.
Einar sagði alveg ljóst að þessi
rannsókn muni fara fram. Ef hún
leiði til þess að rökstuddar ástæður
séu til að ætla að framið hafi verið
lögbrot verði höfðað dómsmál.
„Það var niðurstaða meirihlutans
að hefja þessi málaferli gagnvart
ákveðnum hluthöfum. Við óttumst
ekki úrslit þeirra málaferla," sagði
Einar Hálfdánarson. Sigurður G.
Guðjónsson vildi ekkert tjá sig við
Morgunblaðið eftir fundinn.
í dag verður haldinn hluthafa-
fundur í sjónvarpsstöðinni Sýn.
Fyrir fundinum liggur tillaga um
aðskilnað á milli íslenska útvarpsfé-
lagsins hf. og Sýnar hf.
Þorsteinn Pálsson um nýbyggingu Hæstaréttar á lóðinni við Lindargötu
Ekkert réttlætir frestun
BYGGING nýs Hæstaréttarhúss hefst á næstunni
á lóðinni við Lindargötu 2, samkvæmt ákvörðun
dómsmálaráðuneytisins. Kemur ákvörðunin í kjöl-
far þess að byggingarnefnd hússins komst að
þeirri niðurstöðu eftir endurskoðun á staðsetning-
arhugmyndum fyrir húsið, að lóðin við Lindar-
götu væri besti kosturinn. Þorsteinn Pálsson,
dómsmálaráðherra, segir að ekkert réttlæti frek-
ari frestun framkvæmda. Skúli Norðdahl, arkitekt
og forsvarsmaður þeirra sem mótmæltu fyrirhug-
aðri staðsetningu með blaðaauglýsingum fyrr á
þessu ári, segir að hópurinn álíti að faglegt mat
á byggingunni þurfi að vera í höndum annarra
en þeirra sem vilja bygginguna á lóðinni.
I febrúar tilkynnti dómsmálaráðuneytið borgar-
ráði Reykjavíkur að í ljósi þeirrar umræðu sem
spunnist hefði um fyrirhugaða byggingu, teldi
ráðuneytið rétt að kanna á ný þá staðsetningar-
kosti sem til greina kæmu og var þess óskað að
borgarráð leiðbeinti ráðuneytinu um þá kosti sem
fyrir væru.
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, sagði í
samtali við Morgunblaðið að engar ábendingar
hefðu borist sem réttlættu frekari frestun. „Nú
er einfaldlega komið að því að hrökkva eða
stökkva,1' segir hann. „Þessi lóð er besti kostur-
inn og lausn arkitektanna sem hlutu fyrstu verð-
laun er hreint listaverk. Það væri mikið tjón ef
það yrði ekki að veruleika."
ÖII leyfi fyrir hendi
í greinargerð byggingarnefndar hússins segir
að öll tilskilin leyfi fyrir byggingunni væru fyrir
hendi og lögboðin kynning hefði farið fram á
húsinu án þess að athugasemdir kæmu fram.
Engin mótmæli hafi komið fram fyrr en samn-
ingaumleitanir um jarðvinnu hafi verið að hefjast.
Þá hafi verið efnt til sýningar á tillögunum sem
um 1.200 manns hafi sótt. Stjórn Arkitektafélags
Islands hafi lýst yfir stuðningi sem og 71 hæsta-
réttarlögmaður.
Kostnaður við bygginguna er þegar kominn í
um 60 millj. og segir nefndin að ef staðsetningu
yrði breytt þá væri fjármununum kastað á glæ.
500 manns mótmæltu
„Þessi vinnubrögð eru út í hött,“ segir Skúli.
„Ráðherra er nýbúinn að fá bréf frá borgarstjóra.
um skipun nefndar," en Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri, skipaði nýlega nefnd til við-
ræðna við ráðuneytið um staðsetningu hússins.
Skúli segir að meira en 500 manns hafi mót-
mælt byggingunni í vetur og ákvörðunin nú sé
bæði dónaskapur við borgarstjóra og borgarbúa.