Morgunblaðið - 20.07.1994, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ Í994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Christopher kynnir Sýrlendingnm
nýjar hugmyndir
Segir viðræð-
urnar um Gól-
anhæðir erfiðar
Damaskus. Reutcr.
WARREN Christopher, utanríkisráðherra Bandarikjanna, gerði Hafez
al-Assad, forseta Sýrlands, í gær grein fyrir nýjum hugmyndum Banda-
ríkjamanna um deilu Sýrlendinga og ísraelsmanna vegna Gólanhæða.
Christopher sagði að loknum viðræðunum að þær væru enn erfiðar.
Christopher flaug frá ísrael til
Damaskus í gær, og sagði við
fréttamenn að fundur hans með
Assad hefði verið gagnlegur. Nýjar
hugmyndir Bandaríkjamanna
hefðu verið ræddar, og lýsti hann
þeim sem „annarri leið til þess að
nálgast gamlar hugmyndir." Engu
að síður væru viðræðumar erfiðar,
málefnin flókin og erfíð viðfangs.
ísraelar ásakaðir
í málgagni sýrlensku stjómar-
innar sagði að stjórnvöld í Dam-
askus og Washington ættu það
markmið sameiginlegt að koma á
víðtækum friði í Austurlöndum
nær. í málgagninu var í löngu
máli greint frá því að ísraelsmenn
hefðu reynt að spilla viðræðunum,
og þótti það ekki benda til þess
að sæi fyrir endann á deilunum
vegna 27 ára hersetu ísraels-
manna á Gólanhæðum.
Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra ísrael sagði í gær að Chri-
stopher flytti engin sérstök skila-
boð frá Israelum. Mikið bæri í
milli, og það myndi taka langan
tíma að komast að samkomulagi.
ísraelsmenn hafa boðist til að
hverfa á brott smám saman á
næstu 8 árum, gegn því að tekin
verði upp eðlileg samskipti milli
landanna. Jórdanir hafa hafnað
því boði og segja að ísraelar verði
að vera famir með öllu áður en
samskipti geti orðið eðlileg.
Deila um orðalag
Samningamenn Jórdaníu og
ísraels luku í gær fyrstu umferð
friðarviðræðna sem hófust á
landamærum ríkjanna í fyrradag.
Báðir aðilar sögðu að viðræðurnar
hefðu verið árangursríkar. Ekkert
varð af því að þeir sendu frá sér
sameiginlega yfirlýsingu í gær,
eins og til hafði staðið, þar sem
samningamennirnir gátu ekki
komið sér saman um hvernig hún
skyldi orðuð.
26 létust í Buenos Aires
AÐ minnsta kosti 26 manns lét-
ust og 127 særðust í sprenging-
unni sem varð í aðalstöðvum
samtaka gyðinga í Buenos Air-
es á mánudag. Hér vinna menn
hörðum höndum að því að
hreinsa til í rústunum. Ráð-
herra heilbrigðismála kannaði
aðstæður í gær, og var haft
eftir honum að langflestir
hinna slösuðu væru alvarlega
sárir. Yitzhak Rabin, forsætis-
ráðherra ísrael, sagði í gær að
Hizbollah-hreyfingin, sem nýt-
ur stuðnings stjórnarinnar í
Iran, stæði að baki sprengjutil-
ræðinu, en íransstjórn vísaði
þeim ásökunum á bug.
Tilskipun um takmörkuð völd dómara veldur deilu innan Ítalíustjórnar
Átti að stöðva
afhjúpanir?
UMBERTO Bossi, leiðtogi Norðursambandsins á ítaliu (t.v), og
Roberto Maroni innanríkisráðherra lögðust báðir gegn um-
deildrí tilskipun sem takmarkaði völd saksóknara.
Ægibjartur
eldhnöttur
á Júpíter
Sydney. Reuter.
STJARNFRÆÐINGAR í Ástralíu
sáu gífurlegan eldhnött og ægi-
bjarma, sem var að minnsta kosti
þrisvar sinnum stærri en jörðin, í
fyrrinótt þegar níunda brotið úr
halastjörnunni Shoemaker-Levý 9
rakst á Júpíter. Áætlað er, að það
hafí verið allt að 10 km í þvermál.
Áreksturinn á fjærhlið
„Við sáum eldhnött, gífurlega
kúíu ofurheitra lofttegunda rísa
upp yfír sjónarröndina,“ sagði
Vieki Meadows, stjarnfræðingur
við Ensk-áströlsku stjörnuskoð-
unarstöðina í Ástralíu. Árekstur-
inn varð á þeirri hlið, sem frá jörðu
snýr, en bjarminn frá honum kom
fljótiega í Ijós og var meiri en
bjarminn frá skærustu stjörnum.
Myndir, sem teknar hafa verið,
sýna gárur út frá árekstursst.aðn-
um líkt og þegar steini er kastað
í tjörn.
-----».+ »-----
Víetnamar í
ASEAN?
Bang'kok. Reuter.
AÐEINS tæknileg atriði standa í
vegi fyrir aðild Víetnams að Sam-
tökum Suðaustur-Asíuríkja, ASE-
AN, og búist er við, að úr þeim
verði greitt fljótlega. Samtökin
v. voru stofnuð 1967 og meðal ann-
ars til að spoma við kommúnism-
anum.
Don Pramudwinai, sem fer með
austur-asísk málefni í tælenska
utanríkisráðuneytinu, sagði, að
aðild Víetnams væri í raun frá-
gengin en í samtökunum eru nú
Tæland, Brunei, Filippseyjar, In-
dónesía, Malasía og Singapore.
STJÓRN Silvios Berlusconis, for-
sætisráðherra Ítalíu, dró í gær til
baka umdeilda tilskipun, sem tak-
markaði rétt saksóknara til að
hneppa grunaða menn í gæsluvarð-
hald og virtist ætla að valda stjórn-
arkreppu á Ítalíu. Tveir af sam-
starfsflokkum Berlusconis voru and-
vígir tilskipuninni og hún mæltist
einnig illa fyrir meðal almennings.
Orðrómur var á kreiki um að mark-
miðið með tilskipuninni væri í raun
að koma í veg fyrir afhjúpanir í
spillingarmálum sem verið er að
rannsaka.
Roberto Maroni innanríkisráð-
herra og varaforsætisráðherra, sem
er í Norðursambandinu, hótaði að
segja af sér vegna tilskipunarinnar
og sakaði samráðherra sína um að
hafa beitt hann blekkingum. Honum
hefði verið sagt, áður en tilskipunin
var gefín út í vikunni sem leið, að
stjórnarandstaðan hefði samþykkt
hana og hún yrði ekki til þess að
spilltir stjórnmála- og fjármálamenn
yrðu leystir úr haldi. Um 1.100
manns voru látnir lausir um helg-
ina, þar af nokkrir þekktir stjórn-
mála- og fjármálamenn sem sakaðir
eru um spillingu.
Ymsir löglærðir menn gagnrýndu
tilskipunina á þeirri forsendu að hún
skipti gæsluvarðhaldsföngum í tvo
flokka, þar sem þeir sem sakaðir
eru um hvítflibbaglæpi fengju að
fara heim en aðrir ekki.
Aðrir sögðu að saksóknarar hefðu
misnotað rétt sinn til að hneppa
menn í gæsluvarðhald til að knýja
fram játningar.
Flokkur Berlusconis
einangrast
Berlusconi sagði ásakanir Mar-
onis rangar og krafðist þess að vara-
forsætisráðherrann drægi þær til
baka án skilyrða eða segði af sér
ella. Framkvæmdastjórn Norð-
ursambandsins hafnaði á sunnudag
tillögu Maronis um að hann segði
af sér ráðherraembættinu. Umberto
Bossi, leiðtogi flokksins, sagði að
Maroni nyti fulls trausts og stuðn-
ings flokksins.
Bossi lagði áherslu á að tilskipun-
in yrði dregin til baka og að deilan
yrði ekki notuð sem afsökun til að
boða til nýrra kosninga eins og
Berlusconi hafði ítrekað hótað.
Hörð afstaða til spillingarmál-
anna hefur verið þungamiðjan í
stefnu Norðursambandsins. Tilslök-
un af hálfu flokksins myndi veikja
stöðu Bossis.
Þjóðarbandalagið, þriðji flokkur-
inn í samsteypustjóm Forza Italia,
flokks Berluseonis, og Norðursam-
bandsins, var andvígt tilskipuninni,
enda leggur bandalagið einnig
áherslu á baráttuna gegn spillingu.
Hópur saksóknara í Mílanó, sem
hefur rannsakað spillingarmálin þar,
sagði af sér vegna tilskipunarinnar
og efnt var til mótmæla gegn henni
í borginni. Þótt stjómarandstöðu-
flokkar hefðu staðið fyrir mótmælun-
um tóku margir stuðningsmenn
Norðursambandsins þátt í þeim.
Almenningur styður
saksóknara
Skoðanakannanir sem gerðar voru
staðfestu að tilskipunin mæltist illa
fyrir meðal almennings. Samkvæmt
könnun á vegum dagblaðsins l’Unita
töldu hartnær þrír afhveijum fjórum
tilskipunina ranga. Aðeins einn af
hveijum sjö var þeirrar skoðunar að
Berlusconi hefði rétt fyrir sér.
Samkvæmt könnun l’Unita
studdu meira en þrír af hveijum
fjórum Antonio Di Pietro, yfirmann
saksóknarahópsins. í könnun á veg-
um dagblaðsins La Repubblica
studdu 85% Di Pietro og aðeins 48%
Berlusconi. Forsætisráðherrann
sakaði saksóknarana um að hugsa
of mikið um eigin vinsældir og stöðu
sína sem fjölmiðlastjörnur.
Berlusconi gaf út yfirlýsingu til
að svara gagnrýninni á tilskipunina
þar sem hann tiltók tólf atriði sem
hann sagði réttlæta hana. Hann
nefndi meðal annars yfírfull fang-
elsi og hæga afgreiðslu dómskerfis-
ins. Hann sagði að gæsluvarðhalds-
úrskurðir ættu að vera undantekn-
ing en ekki regla og ættu aðeins
rétt á sér í alvarlegustu málunum.
Berlusconi bætti við að það væri
skylda forsætisráðherrans að veija
þá sem stæðu höllum fæti og ekki
kæmi til greina að breyta tilskipun-
inni nema takmarka frekar rétt sak-
sóknara til að hneppa grunaða menn
í gæsluvarðhald.
Ætlunin að bjarga Fininvest?
Þeir sem gagnrýndu tilskipunina
sögðu annað liggja að baki henni.
Maroni benti til að mynda á að hún
yrði til þess að teíja rannsókn á
spillingarmálum í Mílanó, en búist
hafði verið við afhjúpunum í þeim
málum á næstunni. Einn af þeim
sem urðu fyrstir til að njóta góðs
af tilskipuninni var Francesco De
Lorenzo, fyrrverandi heilbrigðisráð-
herra, fyrmm flokksbróðir Alfredos
Biondis dómsmálaráðherra sem gaf
tilskipunina út.
Ennfremur hefur verið orðrómur
á kreiki um að afhjúpana hafi verið
að vænta í rannsókn á Fininvest,
fyrirtæki Berlusconis sem bróðir
hans stjórnar nú. Þá hefur tilskip-
unin áhrif á framsalskröfu vegna
Bettinos Craxis, fyrrverandi forsæt-
isráðherra og leiðtoga Sósíalista-
flokksins, sem dvelst nú í Túnis og
kveðst ekki geta snúið aftur til ítal-
íu sökum veikinda. Milli Craxis og
Berlusconis hefur lengi verið kunn-
ingsskapur.
Heimild: Financial Times.