Morgunblaðið - 20.07.1994, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
INGÓLFUR SIGURZ
fulltrúi,
Búlandi 31,
Reykjavík,
sem andaðist í Borgarspítalanum þann
13. júlí sl., verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju mánudaginn 25. júlí
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásta Hauksdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HAUKUR KRISTJÁNSSON,
Víðilundi 1,
Akureyri,
sem lést 15. júlí, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 22. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarfélög.
Anna Steindórsdóttir,
Úlfar Hauksson, Hólmfríður Andersdóttir,
Selma Hauksdóttir, Þengill Ásgrímsson,
og barnabörn.
t
Bálför
GUÐMUNDAR BJARNASONAR
frá Klúku í Bjarnafirði,
siöast til heimilis á
vistheimilinu Seljahlíð
í Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. þ.m. kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Blindrafélagið f
Reykjavík.
Ingunn Gunnlaugsdóttir,
Ómar Þór Guðmundsson, AðalheiðurS. Eysteinsdóttir,
Björt Óskarsdóttir, Guðmundur R. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
KONRÁÐ SIGURÐSSON,
Sólvöllum,
Árskógsströnd,
sem andaðist 15. júlí sl., verður jarð-
sunginn frá Stærri-Árskógskirkju föstu-
daginn 22. júlí kl. 13.30.
Soffia Sigurðardóttir,
Alfreð Konráðsson, Valdís Þorsteinsdóttir,
Sigurður Konráðsson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Gunnlaugur Konráðsson, Valborg Stefánsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐMUNDA ÓLAFSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 1,
áður Hverfisgötu 52,
Hafnarfirði,
sem lést í Borgarspítalanum að kveldi
17. júlí sl., verður jarðsungin frá Hafn-
arfjarðarkirkju föstudaginn 22. júlí
kl. 13.30.
Eirikur Skarphéðinsson, Sigríður Óskarsdóttir,
Sigurrós Skarphéðinsdóttir, Hrafn G. Johnsen,
Eiður Skarphéðinsson, Eygló Ragnarsdóttir,
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, Lárus Jón Guðmundsson,
Jóhannes Skarphéðinsson, Unnur Runólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
]E(gíin(gigúnxs leysir vandann
Reflectix er 5/16" þykk endurgeislandi einangrun írúllum.
Alttaf tll á lager
7 lög en 2 ytri alúminíum-lög endurgeisla hitann.
Breiddir: 2' & 4'. Rúllulengdir: 50', 125' og 250'.
háaloft, bak við ofna, í fjós, hesthús, á rör, á veggi,
tjaldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl.
Skæri, heftibyssa og Hmband einu verkfærin.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
P. P0R6RIM8S0N 6 CO
Ármúla 29, sími 38640
VIKTOR ÞORKELSSON
+ Viktor Þorkels-
son var fæddur
í Siglufirði 25.
mars 1923. Hann
lést á Borgarspítal-
anum í Reykjavík
13. júlí síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Jóhanna
Evertsdóttir frá
Minna Hofi, Höfða-
strönd, f. 21. apríl
1888, d. 21. mars
1958, og Þorkell
Friðriksson, f. 3.
nóvember 1884, d.
7. febrúar 1974,
frá Minna Gryndli, Fljótum.
Viktor átti tvo bræður; Jens,
sem dó 17 ára að aldri, og
Evert, f. 1918, verslunarmaður
á Sauðárkróki. Evert er kvænt-
ur Sigrúnu Snorradóttur og
eiga þau sex börn. Viktor
kvæntist eftirjifandi eiginkonu
sinni, Ólöfu Önnu Ólafsdóttur
frá ísafirði, 30. júní 1948. Vikt-
or og Ólöf eignuðust fjögur
börn; Ólaf Guðlaug, f. 9. janúar
1949, kvæntur Guðnýju
Tryggvadóttur og eiga þau
tvær dætur; Þorkel
Steinar, f. 30. mars
1952, kvæntur Jór-
unni Andreasdóttur
og eiga þau tvo syni;
Bergljótu, f. 5. nóv-
ember 1957, gift Ey-
steini Yngvasyni og
eiga þau þijá syni;
Hafstein, f. 13. janúar
1965. Útför Viktors
fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag.
ENDA ÞÓTT mágur
minn, Viktor Þorkels-
son, hefði átt við langa vanheilsu
að stríða, kom fráfall hans á óvart.
Viktor var fæddur og uppalinn í
Siglufirði. Að lokinni skólagöngu
hóf hann störf hjá Aage Schiöth
lyfsala í Apóteki Siglufjarðar. Hann
var lipur og þægilegur afgreiðslu-
maður í apótekinu, og jafnframt
má segja að hann hafi gegnt starfi
lyfjafræðings, því að hann tók mik-
inn þátt í lyfjagerð og efnagerð sem
Schiöth stundaði á þessum árum.
Schiöth vann m.a. að merkilegu
brautryðjendastarfí í gosdrykkja-
gerð og perlugerð úr síldarhreistri.
Má nærri geta að oft var annasamt
í apótekinu, þegar síldarævintýrið
blómstraði á Siglufirði og var
skemmtilegt að heyra Viktor rifja
upp þau ár. Viktor var músíkalskur
maður og lærði snemma að spila á
trommur og spilaði hann í hljóm-
sveit í Siglufirði á yngri árum. Þá
var hann félagslyndur að upplagi,
tók m.a. mikinn þátt í starfi Lions-
klúbbs Siglufjarðar og í Sjálfstæðis-
félaginu á staðnum.
Eftir að Aage Schiöth hætti
rekstri apóteksins starfaði Viktor
hjá Snæbirni Kaldalóns lyfsala í
nokkur ár, eða allt þar til þau hjón-
in fluttu búferlum frá Siglufirði til
Reykjavíkur á árinu 1960. Eftir
komuna til Reykjavíkur starfaði
hann m.a. í Holts Apóteki í nokkur
ár, uns hann söðlaði um og fór til
starfa hjá Timburverslun Árna
Jónssonar. Eftir að það fyrírtæki
hætti starfsemi hóf hann störf hjá
Afurðasölu SÍS og starfaði þar á
meðan heilsan leyfði.
Viktor var einstakt snyrtimenni
og ljúfmenni í viðkynningu, prúður,
en þó fastur fyrir. Hann var hlýr í
viðmóti og þægilegur í allri um-
gengni. Hann var nákvæmur og
samviskusamur, hjálpfús og barn-
góður með afbrigðum. Naut sá, sem
þetta ritar, þessara kosta hans á
yngri árum, því að í apótekinu
fékkst ýmislegt góðgæti, sem smá-
fólkið kunni vel að meta.
Á síðar árum átti Viktor við van-
heilsu að stríða, sem kom í veg
fyrir að hann gæti sinnt vinnu og
var hann stundum langdvölum á
sjúkrastofnunum af þessum sökum.
Ekki þarf að fara í grafgötur með,
að þessi veikindi hafa verið heimil-
inu þungbær, en Ólöf eiginkona
hans studdi hann dyggilega á þess-
ari löngu þrautagöngu hans, með
einstaklega fórnfúsum hætti. Við
sem kynntumst Vidda á hans
blómaskeiði eigum margar góðar
minningar um glaðværan og rausn-
arlegan heiðursmann. Hans verður
ávallt minnst, þegar góðs drengs
er getið. Við Sigga minnumst hans
með þakklæti, hlýhug og virðingu
og sendum Lóló og börnum þeirra
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Júlíus Sæberg Ólafsson.
t
GUÐJÓN JÓNSSON,
Kleppsvegi 40,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda vináttu og samúð.
Edda Óskarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug vegna andláts eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SVÖVU EYVINDSDÓTTUR,
Suðurengi 28,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Landspítalans fyrir
hlýja og góða umönnun í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Böðvar Stefánsson,
Stefán M. Böðvarsson,
Reynir E. Böðvarsson,
Guðmundur S. Böðvarsson,
tengdadætur og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GESTS K. JÓNSSONAR,
Ægisfðu 107,
Reykjavík.
Guðrún Sigurjónsdóttir,
Sigurjón H. Gestsson, Inga Gunnlaugsdóttir,
Trausti H. Gestsson,
Almar Gestsson, Elín Jónsdóttir,
Baldvin Gestsson, Lotte Gestsson,
Guðmundur R. Gestsson, Ásta D. Björnsdóttir,
Kristinn Gestsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRÖNNU
SIGURÐARDÓTTUR,
Berugötu 5,
Borgarnesi.
Sérfræðingar
í bUmiasLrrylinguni
við öll (ækirsiM'i
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sínii 19090
Erfidrykkjur
Glæsileg kiiiíi-
hlaðborð íalle<íir
siilir og mjög
i»ýH> þjonusla.
I pplýsiiuíar
í síma 2 23 22
□I blómaverkstæði
WNNAsfc
Emil Ámundason,
Hans Gunnar Emilsson, Guðrún Helga Andrésdóttir,
Sigurður Arilíus Emilsson, Sigriður Leifsdóttir,
Valgerður Ásta Emilsdóttir, Gilbert Elísson,
barnabörn og barnabarnabörn.
FLUGLEIDIR
HÍTEL LOFTLEUIK