Morgunblaðið - 20.07.1994, Síða 41

Morgunblaðið - 20.07.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994 41 ÍÞRÓTTIR IÞROTTAMANNVIRKI Borgarráð leggur fram 270 milliónir Háð því að HSÍ tryggi samsvarandi framlag frá öðrum BORGARRÁÐ hefur samþykkt að verja allt að 270 milljónum króna til byggingar fjölnota tþróttahúss fyrir HM’95 að því tilskyldu að Handknattleiks- samband íslands geti tryggt þátttöku ríkisvaldsins og ann- arra aðila í kostnaðinum. Itillögu borgarstjóra sem sam- þykkt var segir að borgarráð lýsi sig reiðubúið til að veija allt að 270 millj. til byggingar fjölnota íþróttahúss austan Laugardalshall- ar, sem tilbúið verði fyrir heims- meistarakeppni 5 handknattleik 1995 og áætlað er að fullbúið muni kosta 520 til 540 milljónir. Framlag borgarinnar er háð því að Hand- knattleikssamband íslands geti tryggt þátttöku ríkisvaldsins og annarra aðila vegna byggingarinn- ar með samsvarandi fjárframlagi. HSÍ fagnar ákvörðuninni Ólafur B. Schram, formaður HSI, sagði að ákvörðun borgarráðs væri fagnaðarefni og HSI styddi byggingu fjölnota íþróttahúss. Ef 1. áfangi þess með rými fyrir allt að 7.000 áhorfendur yrði tilbúinn fyrir HM væri hægt að bjóða upp á glæsilegra mót, en annars væri Laugardalshöll til staðar fýrir keppnina. Hins vegar gæti HSÍ ekki haft forgöngu um byggingu fjölnota húss, en borgarráð hefði gefíð grænt ljós á framkvæmdir og næsta skref hlyti að beinast að því að fínna húsnæði, sem væri innan ramma þess fjármagns, sem í boði væri. Sérkennilegt að senda boltann á einhvevja aðra - segir Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra um ályktun borgarráðs FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir ályktun borgarráðs f gær um byggingu fjölnota fþróttahúss vera kattarþvott af málinu af hálfu borgaryfirvalda og það sé með henni að reyna að koma sér hjá því að byggja húsið. í ályktuninni lýsir borgar- ráð sig reiðubúið að leggja fram helminginn af áætluðum kostn- aði við húsið gegn þvf að HSÍ tryggi samsvarandi framlag frá ríkisvaldinu eða öðrum aðilum. Friðrik segir að þetta mál hafi verið útrætt fyrir tæpum þremur árum síðan, en umræðan vaknað i kjölfar loforða f kosningabaráttunni fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í vor. Það sé því sérkennilegt, þegar menn vilji herma þau loforð upp á núverandi meirihluta, að boltinn sé sendur á einhverja aðra. Friðrik Sophusson fjármálaráð- anum í Reykjavík er vel kunnugt herra átti f gærmorgun fund um það,“ sagði Friðrik. með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- Friðrik sagði að ekkert erindi ur borgarstjóra þar sem farið var hefði borist frá HSf um þetta mál. yfír þetta mál. „Þar lýsti ég því „Borgarráð er búið að vísa málinu nákvæmlega að fyrir þremur árum til HSÍ, sem stendur uppi með tæpum var málið klárað af hálfu ályktun sem er erfitt fyrir sam- ríkisvaldsins, HSÍ og Kópavogs- bandið að nota, því HSÍ hefur þeg- kaupstaðar. HSÍ skuldbatt sig þá ar gert bindandi samning við ríkið. skriflega að gera ekki kröfur á Mér sýnist þetta vera kattarþvottur hendur ríkisvaldinu til bygginar hjá borgarráði." húss vegna framkvæmdar mótsins. Aðspurður sagðist Friðrik ekkert Forsenda mótshaldsins 1995 bygg- geta sagt um það hvernig mögu- ist á því að notaður sé sá húsakost- iegu erindi frá HSÍ yrði tekið. ur sem fyrir hendi er. Þetta mál, „Borgarráð vísar HSÍ á ríkið og sem er dálítið vandræðaiegt, komst aðra ótilgreinda aðila, og því veit á hreyfingu þegar frambjóðendurn- ég ekki hvort slíkt erindi kemur og ir í Reykjavík, þar á meðal Ingi- 5 hvaða formi það verður." björg Sólrún Gísladóttir, lýstu því Er mögulegt að ríkið kom inn yfír fyrir kosningar að þeir væru sem hluthafi ef stofhað verður tilbúnir til að reisa hús yfir íþrótta- hlutafélag um byggingu og rekstur starfsemina í borginni,_í tengslum slíks húss? við Laugardalshöllina. í framhaldi „Ég minni á það að þegar HSÍ af því þá fór HSl fram á það að á sínum tíma gerði samning við slílrt hús yrði byggt í tengslum við ríkið var ráð fyrir því gert að HSÍ HM ’95. Með þessari samþykkt sem myndi vinna að stofnun félags um gerð er í dag þá sýnist mér að framkvæmdina og það hlýtur enn borgarráð hljóti að vera að koma að vera inni í myndinni. Um þátt- sér hjá því að byggja þetta hús töku ríkisins í því félagi verður að með því að setja skilyrði um þátt- fara eftir því hvaða tillögur eru töku ríksins, því HSI hefur skuld- gerðar um það. Það verður bara bundið sig til að leita ekki eftir að sjást þegar erindi kemur og til- slíkum stuðningi og borgarstjór- laga liggur fyrir.“ FRJALSAR Bættu 38 ára mel Sveit UMSK setti á dögunum íslandsmet í 4x200 m boðhlaupi karla, á miðnæturmóti ÍR. Kjalnesingar runnu skeiðið á 1.28,43 mín. Hörð- ur Gunnarsson, Egill Eiðsson, Kristján Friðjónsson og Ingi Hauksson voru í sveitinni. Metið — sem var 1.30,2 mín. — hafði staðið í hvorki meira né minna en 38 ár, og var næst elsta íslandsmetið í frjálsíþróttum. Það var sveit Ármanns sem setti það met árið 1956 en sveit félagsins þá skipuðu Dagbjartur Stígsson, Guðmundur Lárusson, Hilmar Þorbjömsson og Þórir Þorsteinsson. FOLK ■ ALEXI Lalas, varnarmaður í landsliði Bandaríkjanna í knatt- spyrnu, er að íhuga tilboð frá Coventry, sem hefur boðið honum 500.000 punda samning (um 53 millj. kr.). ■ TONY Cascarino, miðherji írska landsliðsins, gerði árs samn- ing við Marseille í gær, en samn- ingur hans við Chelsea rann út fyrir HM í Bandaríkjunum. MBERTI Vogts, þjálfari þýska landsliðsins í knattspyrnu lýsti því yfír í blaðaviðtali í vikunni að framtíðarvöm þýska landsliðsins séu þeir Matthias Sammer sem aftasti maður, og Jiirgen Kohler og Thomas Helmer sem bakverðir. Flestir þjálfarar í deildinni eru hins vegar á því að byggja eigi liðið upp í kringum Hássler, Mattháus, Kohler og Klinsmann. Jón Halldór Garðarsson skrifar frá Þýskalandi Vogts ÞórAur ■ KIM Joo-Sung landsliðsmað- ur Suður-Kóreu í knattspyrnu var látinn fara heim á mánudaginn frá þýska úrvalsdeildarliðinu Boc- hum. Kim var sóknarmaður líkt og Þórður Guðjónsson sem leikur með félaginu. ■ ÞÓRÐUR plumar sig hins vegar vel í sókninni hjá Boclium og skoraði tvö mörk í æfmgaleik um helgina, í sex marka sigri á neðrideildarliði. I ALDREI hafa verið seldir fleíri ársmiðar í þýsku úrvalsdeild- inni og nú. Dortmund hefur hætt sölu á ársmiðum en um 20 þúsund eru nú farnir. Kaiserslautern hefur einnig selt yfír 20.000 miða í fyrsta skipti í sögu félagsins. ■ SÓKNA RPARIÐ þýska Jiirg- en Klinsmann og Rudi Völler er vinsælt. Þijú lið vilja fá þá báða, Genúa á ítaliu, Benfica í Portúg- al og Atletico Madrid. Reuter Batten sprettharðari en Gunnell Kim Batten frá Bandaríkjunum, sem er hér á myndinni, sigraði í 400 metra grindahlaupi á alþjóðlegu stigamóti sem haldið var í Nice í Frakklandi á mánudaginn. Hún náði besta tíma ársins, 53,72 sek. og lagði að velli Ólympíumeistarann Sajly Gunnell frá Bretlandi, sem kom önnur í mark á 53,91 sek. „Ég vlssi á átt- undu grindinni að ég ætti nóg eftir," sagði Batten. „Það var eitt af mínum meginmarkmiðum að vinna Sally. Ég vissi að ég myndi vinna hana, spurningin var bara hvenær." KNATTSPYRNA Dregið í Evrópukeppnum í dag Skagamenn eiga góða möguleika Idag klukkan tíu áð íslenskum tíma verður dregið í Evrópu- keppnum félagsliða í Sviss. Öll ís- lensku liðin, ÍA, FH og ÍBK, leika í forkeppni sem fram fer 9.-11. ágúst og 23.-24. ágúst. Skagamenn og FH-ingar leika í Evrópukeppni félagsliða. Fyrir- komulagi Evrópukeppni meistara- liða var breytt á síðasta ári og var fjöldi liða takmarkaður, og því leik- ur ÍA í Evrópukeppni félagsliða. Liðunum í Evrópukeppni félagsliða var skipt í hópa og því ljóst hvaða liðum IA og FH geta mætt. Mögu- leikar Skagamanna á að komast áfram virðast góðir en FH-ingar eiga von á mun harðari andstæð- ingum. Mögulegir andstæðingar Skagamanna í forkeppninni eru fímm; FC Jazz frá Finnlandi, Bang- or City frá Wales, Portadown frá Norður-írlandi, Cork City frá ír- landi og Havnar Boltfelag frá Fær- eyjum. FH-ingar mæta hins vegar einhveiju af eftirtöldum fímm lið- um; Aberdeen frá Skotlandi, AIK Solna frá Svíþjóð, GKS Katowice frá Póllandi, Rosenborg frá Noregi og Linfield frá Norður-írlandi. ÍBK leikur í forkeppni í Evrópu- keppni bikarahafa. I forkeppninni leika 24 lið, meðal annars Norrköp- ing frá Svíþjóð, HJK Helsinki frá Finnlandi, Maccabi Tel-Aviv frá ísrael og Bodö-Glimt frá Noregi þar sem Kristján Jónsson og Anth- ony Karl Gregory leika. 41í bann Aganefnd KSÍ kom saman til fundar í gærkvöldi og úrskurð- aði 41 leikmann í bann og er það með mesta móti í sumar. Fjórir leik- menn úr 1. deild karla fengu eins leiks bann vegna fjögurra áminn- inga. Þetta eru þeir Olafur Þórðar- son, ÍA, Heimir Guðjónsson, KR og Eyjamennirnir Bjarnólfur Lárusson og Dragan Manojlovic. Leikbönnin taka gildi á hádegi á föstudag, sem þýðir að Heimir tekur út leikbannið í bikarleiknum gegn Breiðabliki á mánudagskvöld og Bjamólfur og Dragan í bikarleiknum gegn Grinda- vík. Ólafur Þórðarson tekur út leik- bannið í deildarleiknum gegn Fram á Akranesi 28. júlí. Fimm leikmenn úr 2. deild voru úrskurðaðir í leikbann. Grindvíking- arnir Ingi Sigurðsson og Guðjón Ásmundsson verða báðir í leikbanni gegn Fylki á föstudagskvöld og geta því verið með í bikarleiknum gegn IBV á mánudagskvöld. Grétar Þórs- son og Ingólfur Jónsson frá Selfossi taka út leikbann gegn KA á föstudag og þá verður Bjarki Bragason; KA- maður, í leikbanni. Loks fékk Ólafur Stígsson úr Fylki tveggja leikja bann fyrir að íjúka á dómarann í leik Fylkis og Þróttar á mánudagskvöld. Aðrir sem fengu bann voru úr neðri deildum og yngri flokkum. Leiðréttingar Páll Guðmundsson gerði tvö marka Leifturs gegn Grindavík í 2. deild karla á mánudagskvöld og Gunnar Már Másson gerði eitt. í frétt blaðsins í gær var sagt að Gunnar Már hafí gert tvö mörk og leiðréttist það hér með. Nafn Áma Sveins Pálssonar, sem tryggði Þrótti sigur gegn Fylki í 1. deild karla, misritaðist í texta um leik- inn. Nóatúnsmót Aftureldingar verður ekki um helgina eins og sagði í blað- inu í gær heldur 20. til 21. ágúst. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Staðan í 4. deild C var ekki rétt í blaðinu í gær og er hún því birt aftur leiðrétt hér fyrir neðan. 4. deild C HSÞ-b- KS........................0:6 Fj. leikja U J r Mörk Stig MAGNI 10 8 0 2 27: 12 24 KS 9 7 1 1 46: 9 22 SM 9 5 1 3 16: 11 16 HVÖT 9 5 1 3 17: 15 16 NEISTI 9 3 1 5 16: 21 10 KORMÁKUR 9 3 0 6 12: 24 9 HSÞ-b 9 2 0 7 14: 30 6 ÞRYMUR 10 2 0 8 11: 37 6 4. deild D Einherji - Huginn....................2:2 Bjöm Agúst Bjömsson, Siguijón Ingibjöms- son - Davíð Vilhjálmsson, Vilhelm Adolfsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.