Morgunblaðið - 04.09.1994, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Haldið föngnum í Kambódíu
ÞRÍR vestrænir menn hafa verið í haldi Rauðu khmeranna í Kambód-
íu í fjörutíu daga. Samningaviðræður um lausn mannanna hafa reynst
árangurslausar en þeir sjást á þessari mynd, sem tekin var í vik-
unni. Þeir eru fv.: David Wilson frá Ástralíu, Jean-Michel Braquet
frá Frakklandi og Mark Slater frá Bretlandi. Samkomulag náðist
ekki um lausn gíslanna í vikunni sem leið vegna sprengjuárása stjórn-
arhers Kambódiu á stöðvar Rauðu khmeranna. I myndbandi, sem
dreift var til fjölmiðla í Phnom Penh, hvatti Mark Slater sijórnarher-
inn til að hætta árásunum svo gislarnir kæmust til fjölskyldna sinna.
„Verði sprengjuárásunum ekki hætt næst aldrei samkomulag,“ sagði
hann.
Hjálparstofnunin Care í Þýskalandi
Hörð gagnrýni á
starfið 1 Rúanda
Stuttgart. Morgunblaðið.
ÞÝSKA hjálparstofnunin Care, sem nýverið sendi 270 sjálfboðaliða til hjálpar-
starfa í Goma, hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir dæmalaust skipulagsleysi
á flóttamannasvæðinu, auk þess sem því hefur verið haldið fram af fyrrum
starfsmönnum að stofnunin bruðli með söfnunarfé.
Hjálparstofnunin Care, sem fjár-
magnar starfsemi sína með gjöfum
og söfhunarfé, gerði gífurlega mikið
úr „Rúanda-átaki“ sínu í sumar og
notuðu forsvarsmenn hennar hvert
tækifæri til að komast í fjölmiðla,
þar sem ekki voru spöruð stóryrðin.
Læknar, hjúkrunarfræðingar og
„aðrir velviljaðir" voru hvattir til að
gerast sjálfboðaliðar og liðsinna bág-
stöddum í Afríku, en ekki var gerð
krafa um að menn hefðu nokkra
reynslu af hjálparstarfi. Auglýsingar
Care báru tilætlaðan árangur því
gífurlegur flöldi fólks, einkum í yngri
kantinum, lýsti sig þegar reiðubúið
til að takast á við krefjandi verkefni
á fjarlægum slóðum.
Fljótlega eftir komuna til Goma
varð þýsku sjálfboðaliðunum hins
vegar ljóst að þeim höfðu verið gefn-
ar villandi upplýsingar um nánast
allt sem laut að starfsemi Care á
flóttamannasvæðinu. Ekkert skipu-
lag reyndist vera á hjálparstarfinu
og enginn á staðnum sem virtist
vera í forsvari fyrir hópnum. Annað
og mun alvarlegra var þó að læknar
og hjúkrunarfólk áttu í stökustu erf-
iðleikum með að koma sjúkum til
hjálpar, þar sem skortur var á öllum
nauðsynlegustu lyfjum og ekki var
ráðin bót á því af hálfu Care, þrátt
fyrir ítrekaðar óskir sjálfboðaliðanna
þar að lútandi.
Beðist afsökunar
Gagnrýni fólksins í fjölmiðlum og
sú ákvörðun margra að sætta sig
ekki við óviðunandi aðstæður í Goma
og snúa aftur til Þýskalands löngu
fyrr en ætlað var, reyndist vera mik-
ið áfall fyrir forráðamenn Care, sem
fram að þessu höfðu lagt hvað mesta
áherslu á að lofa eigið ágæti. Fyrstu
viðbrögð á þeim bænum voru að
halda því fram, að fólkið hefði gefist
upp þar sem það hefði ekki verið
nægilega undirbúið andlega undir
hörmungar stríðsins og hið mikla
álag sem fylgir slíku hjálparstarfi.
Ummælin vöktu þvílíka reiði að for-
svarsmenn stofunarinnar sáu sér
þann kost vænstan að taka orð sín
aftur og biðja sjálfboðaliðana opin-
berlega afsökunar.
Hjálparstofnunin Care hefur beðið
mikinn álitshnekki vegna máls þessa,
bæði innan Þýskalands og utan.
Aðeins eru um þijár vikur síðan á
þriðja hundrað læknar, hjúkrunar-
fræðingar og aðrir sjálfboðaliðar
voru sendir með hraði tii Goma, til
hjálpar nauðstöddum flóttamönnum
frá Rúanda. Fljótlega fór að bera á
mikilli óánægju meðal fólksins, sem
taldi aðstæður vera óviðunandi með
öllu; ekki aðeins væri skipulag af
hálfu Care fyrir ríeðan allar hellur
heldur skorti bæði lyf og hjálpar-
gögn. í kjölfarið hafa sjálfboðaliðarn-
ir einn af öðrum gefist upp og nú
þegar hafa um 70 snúið aftur til
Þýskalands.
Þögnl
leik-
sýning
Edinborg. Reuter.
NÍUTÍU mínútna leikrit þar
sem ekki er sagt eitt aukatek-
ið orð, hefur vakið geysilega
eftirtekt á Edinborgarhátíð-
inni og er uppselt á frumsýn-
inguna. Alls koma um 40 leik-
arar fram í „Stundinni sem við
vissum ekki af hvort öðru“ og
leika þeir 400 persónur.
Leikstjórinn, Luc Bondy,
segir hvorki um sviðsútgáfu
af þögulli kvikmynd eða list-
dans að ræða. „Listdans er of
óhlutrænn og í þöglum mynd-
um er enginn texti. Þetta er
leikrit. Það byggir á texta. Það
er skrifað þrátt fyrir að engin
orð séu sögð.“
Persónurnar í verkinu eiga
að vera venjulegt fólk, t.d.
skokkarar og uppar, svo og
persónur úr goðafræði og Bibl-
íunni. Leggur leikstjórinn
áherslu á að leikararnir reyni
ekki að gæða persónur sínar
of miklu lífi, þar sem þær séu
of margar og tíminn of stuttur.
SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994 13
Hvað viltu losna
við mörg kíló ?
Átak gegrt umframþyngd, A-tími
Átak gegn umframþyngd. fram.h B-tími
Átak -gegn umframþyngd, A-tími er
árangursríkt 8 vikna námskeið fyrir þá
sem vilja ná af sér aukakílóunum.
Tilvalið fyrir byrjendur. Námskeiðið
hefst 5. sept. Takmarkaður fjöldi í bæði
Átak A og Átak B, framhaldsnámskeið
Skráning er hafin. Lokaður hópur.
Átak gegn umframþyngd, framhald,
B-tími er árangursríkt námskeið fyrir
þá sem þegar hafa lokið Átaki A, og
fyrir þá sem þegar eru komnir í ein-
hverja æfingu.en vilja gott aðhald
Námskeiðið hefst 6. sept. Skráning er
hafin. Lokaður hópur.
Fjölbreyttir tímar í eróbikk
Ókeypis
barnapössun
Heitir pottar
Vatnsgufa
Ijós
föKriN!
FROSTASKJÓll 6 • SÍMI: 12815 OG 12355
Eitt blab
fyrir alla!
JHiorgTmhlaþíþ
- kjarni málsins!