Morgunblaðið - 04.09.1994, Síða 14

Morgunblaðið - 04.09.1994, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ mar MÓTMÆLENDUR OG KAÞÓLIKKAR Á ÍRLANDI Reuter DRENGUR í Belfast horfir á veggmynd sem liðsmenn hermdarverkasamtaka mótmælenda, Frelsisfyikingar Ulsters (UFF), hafa gert. Sinn Fein, stjórnmálaarmur IRA, hefur hvatt UFF til að feta í fótspor írska lýðveldishersins og binda enda á hryðjuverkin. AJkíxf tot-^or g\ot\) ,nov nches, outs- but, Jjov alono. h no ?ood Stríosþreyta og tortrygpni írski lýðveldisherinn, IRA, hefur lýst yfir vopnahléi í 25 ára baráttu sinni gegn bresk- um yfírráðum á Norður-írlandi. Friður er þó ekki tryggður. Gagnkvæm tortryggni á sér langar rætur, ótti mótmælenda við sam- einingu og hlutskipti minnihluta í kaþólsku lýðveldi verður ekki upprættur þegar í stað, segir í grein Kristjáns Jónssonar Ibúar Belfast á Norður-írlandi hafa ekki sameinast um margt síðustu áratugina og sama var upp á teningnum er vopnahlé írska lýðveldishersins (IRA) gekk í gildi. Kaþólikkar fögnuðu víðast hvar en mótmælendur voru flestir þögulir eða beinlínis fjandsamlegir og töldu IRA vera búinn að ná fram markm- iði sínu með ofbeldi. Bretar væru búnir að selja mótmælendur í hendur óvinunum með baktjaldamakki sem síðar kæmi í ljós, ella hefði IRA ekki tekið þessa ákvörðun. Ef hiéið heldur mun 25 ára skæruhernaði gegn breska hernum á Norður- Irlandi Ijúka en við tekur flókið og hættulegt pólitískt spil. Þar mun einkum reyna á það hvort John Major, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogum Sambandssinna, eins og helsti stjórnmálaflokkur n-írskra mótmælenda er kallaður, tekst að nýta tækifærið og koma á endanleg- um friði. Öfgamenn úr röðum mót- mælenda gætu grafið undan þeirri viðleitni með sprengjutilræðum sem IRA gæti goldið í sömu mynt. Deilurnar um Norður-írland eru fuilar af þversögnum. Stjórnmáia- armur IRA, Sinn Fein, berst fyrir róttækum sósíalisma og sameinuðu írlandi. Hann hefur fengið um 10% fylgi á N-írlándi en aðeins 1-2% í írska lýðveldinu; sagt hefur verið að fyrr verði írland múslimaríki en sós- íalískt. Vinstrisinnar í Bretlandi, ekki síst menntamepn, styðja kröfurnar um sameinað írland og hafa gert lengi. Þeir vilja að mótmælendur, meiri- hlutinn á N-írlandi með 300 ára gamlar rætur í landinu, sætti sig við að verða minnihluti í landi sem allt fram á síðustu ár hefur verið kallað helsta afturhaldsbæli og prestaveldi heims að íran einu undanskildu. Löggjöf írska lýðveldisins um fóstur- eyðingar, kvenréttindi og fjölmörg önnur efni er eins og stefnuskrá framsækinna vinstriafla á Vestur- löndum, rituð aftur á bak, enda áhrif kaþólsku kirkjunnar hvergi meiri í allri Evrópu. Ótti mótmælenda á sér að sumu leyti eðlilegar skýringar, þeim finnst skorta á heiðarleika og samkvæmni í rökræðum um framtíð héraðsins. Fullyrt er að ekki verði knúið í gegn að Irland sameinist gegn vilja mót- mælenda, eining sé skilyrðið, en „enginn hópur eða flokkur má hafa neitunarvald" eins og breski Verka- mannaflokkurinn hefur sagt. Hvað merkir þetta? Að mótmælendum verði ekkert mein gert ef þeir sætti sig einfaldlega við að láta undan kröfunum um sameiningu? Breski dálkahöfundurinn Geoffrey Wheatc- roft hefur í The Spectator sagt að þetta sé „tungumál nauðgarans" sem vilji koma fram vilja sínum án þess að fórnarlambið æpi. Hann spyr hvað það sé sem geri kröfuna um sameinað írland svo heilaga að eng- in önnur lausn sé viðunandi, hvort ekki sé þá rétt að taka ávallt undir allar sameiningarkröfur, t.d. ef þýskumælandi þjóðir í Evrópu vildu sameinast í eitt stórríki. Benda má á kröfur Rússa um réttindi minni- hlutahópa Rússa í grannlöndunum, væri hægt að réttlæta hugsanlegar kröfur þeirra um sameiningu t.d. Eistlands við Rússland á sömu for- sendum og gert er_í málefnum kaþó- likka á N-Irlandi? A minnihluti ávallt rétt á að sameinast móðurríkinu? Sameiningarsinnar segja að íbúar alls Irlands, þ.e. N-írlands og Irska lýðveldisins, ættu að ákveða í þjóðar- atkvæðagreiðslu hvort þeir vilji sam- einingu. Bent hefur verið á að sann- girnin í þessari kröfu sé jafn mikil og þegar andstæðingar þjóðfrelsis íra í Bretlandi á síðustu öld sögðu að allir íbúar Stóra-Bretlands ættu að greiða atkvæði um sjálfstæðis- kröfur íra. Ella væri ekki um lýðræð- islega ákvörðun að ræða. Vonbrigði á ný? Verður niðurstaða vopnahlés ÍRA enn ein vonbrigðin? Breyttar að- stæður geta valdið því að langþráður friður náist í þessari atrennu en mörg Ijón eru á veginum. Eftir er að leysa ýmis erfið mál, t.d. kröfur IRA um að fangar úr þeirra röðum verði látnir lausir. Einnig hafa bresk stjórnvöld krafist þess að skæruliða- herinn, sem í eru nokkur hundruð virkir menn, láti af hendi gríðarlegar vopna- og sprengjuefnabirgðir sínar. Olíklegt er að það gerist vafninga- laust en athygli hefur vakið að í yfírlýsingu IRA var ekki sagt að samtökin áskildu sér rétt til að svara með gagnárásum ef hermdarverka- menn mótmælenda réðust á kaþó- likka. Fullyrt er að öfgamenn mótmæl- enda hafi orðið mjög undrandi á þessu en túlki þetta fremur sem slægð en raunhæfan friðarvilja. Landlægri tortryggni stríðandi aðila verður ekki útrýmt í einni svipan. Sinn Fein, hinn pólitíski armur IRA, krefst þess að breski herinn, um 19.000 manns, hverfi frá N-írlandi og komist sæmilegur frið- ur á er ekki útilokað að breska stjórnin gangi að því skilyrði. Stjórn- andi n-írsku lögreglunnar (RUC) hefur heitið því að eftir nokkra mánuði muni verða minna um her- menn á götunum. Hægriarmur breska íhaldsflokksins mun þó beita sér gegn tilslökunum af þessu tagi en hægrimennirnir hafa lengi verið nátengdir Sambandssinnum. Aðstæður eru um margt breyttar frá því á áttunda áratugnum er IRA Fórnarlömbin í blóðugum átök- um öfgahópa ka- þólikka og mót- mælenda hafa ekki síst verið óbreyttir og sak- lausir borgarar. ákvað tvisvar sinnum einhliða vopnahlé sem bæði fóru út um þúf- ur. Nær 25 ára blóðug átök hafa komið niður á mótmælendum jafnt sem kaþólikkum og breskum her- mönnum. Meira en 3.000 manns hafa fallið og skelfileg grimmdar- verk hafa verið unnin. Almenningur þráir frið, þrátt fyrir efasemdir og ótta, og leiðtogar mótmælenda, einnig öfgamenn á borð við Ian Pais- ley, verða að taka ákveðið tillit til þeirra óska. í öðru lagi má nefna að Sam- bandssinnar réðu lögum og lofum á Norður-írlandi í hálfa öld í krafti meirihluta mótmælenda, sem eru nær 60% íbúanna, en frá 1972 hefur héraðinu verið stjórnað frá London. Þeir eru því á vissan hátt einnig undir bresku oki, eins og kaþólikk- arnir segjast vera, pólitísk áhrif mótmælenda á eigin mál héraðsins eru hverfandi. Efnahagur og herlið I þriðja lagi má nefna efnahaginn sem hefur á flestum sviðum hnignað undanfarna tvo áratugi. Hefðbundn- ar atvinnugreinar héraðsins á borð við skipasmíðar og vefnaðariðnað hefðu vafalaust orðið að láta í minni pokann fyrir samkeppni í þriðja heiminum þótt allt hefði verið með friði og spekt en óöldin hefur gert illt verra. Hins ber að gæta að þótt það hljómi eins og þversögn hafa átökin að sumu leyti eflt efnahag- inn, þau hafa beint fé til N-írlands. Vera breska hersins veldur aukn- um hagvexti og hvers kyns öryggis- gæsla önnur, sem nær 20.000 manns annast, er einnig dijúg tekjulind fyrir héraðið, staðreynd sem ekki hefur verið haldið mjög á lofti. Breska stjórnin hefur veitt Norður- írlandi háa byggðastyrki. Héraðið hefur auk þess fengið ótæpilega styrki úr þeim sjóðum Evrópusam- bandsins er aðstoða eiga svæði sem eiga í vök að veijast efnahagslega. Markmið bresku stjórnarinnar með efnahagsaðstoðinni hefur verið að reyna að draga úr viðsjám sem oft stafa af atvinnuleysi og öllu því vonleysi sem því fylgir meðal unga fólksins. Oft er freistandi fyrir unga atvinnuleysingja að drepa tímann með því að erta breska hermenn. Stundum hafa slík strákapör endað með blóðugum átökum en ungu hetj- urnar hafa þá a.m.k. af einhveiju að státa í gráum hversdagsleikanum. Peningar að vestan Bill Clinton Bandaríkjaforseti hringdi í Albert Reynolds, forsætis- ráðherra írlands og Major er tíðind- in bárust um vopnahlé IRA og bauð aðstoð sína. Sagt er að Reynolds vilji að komið verði á leiðtogafundi ríkjana þriggja um írlandsmálin. Clinton hét því í kosningabaráttunni 1992 að gera sitt til að stuðla að friði á N-írlandi og urðu margir Bretar lítt hrifnir, töldu Clinton ekki hafa rétt til að skipta sér af breskum innanríkismálum. Bandaríkjamenn hafa lengi verið áhugasamir um málefni írlands, tugmilljónir Banda- ríkjamanna rekja ættir sínar þang- að. Fyrir nokkrum árum helltu bandarískir stuðningsmenn IRA milljónum dollara í sjóði samtakanna árlega en heimildarmenn segja að mjög hafi dregið úr þeim stuðningi, hann verði vart yfir 200.000 dollur-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.