Morgunblaðið - 04.09.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994 17
LISTIR
Þjófótti apinn
KVIKMYNDIR
Laugar ásbíó
APASPIL - „MONKEY
TROUBLE" ★ >/2
Leiksljórí: Franco Amurri. Framleið-
andi: Ridley Scott. Aðalhlutverk:
Harvey Keitel, Mimi Rogers, Thora
Birch og Christofer McDonald. New
Line Cinema. 1994.
BARNA- og fjölskyldumyndin
Apaspil segir af ungri stúlku
(Thora Birch) og litla apanum sem
verður besti vinur hennar. Sá hef-
ur strokið frá eiganda sínum,
leiknum af Harvey Keitel, en hann
hefur þjálfað og notað apann til
að ræna fólk og heimili. Þannig
gefur apinn talsvert í aðra hönd
og Keitel gerir því dauðaleit að
honum enda býður hans stórt
verkefni. Á meðan eru apinn og
stúlkan að kynnast betur og tengj-
ast óijúfanlegum böndum.
Apaspil víkur ekki í neinu frá
dæmigerðri bandarískri fjöl-
skylduskemmtun þar sem hjart-
næmt gæludýr er miðpunkturinn
(bandarískar gæludýramyndir eru
í mikilli uppsveiflu þessa dagana).
Hún er gerð uppúr stöðluðu hand-
riti með hæfílegri blöndu af
væmni, gamansemi, þokkalegri
spennu og niðurstöðu sem sendir
krakkana ánægða heim. Það ætlar
enginn að gera neitt óvenjulegt
eða koma áhorfendum skemmti-
lega á óvart með nýbreytni og
frumleika hér. Formúlan hefur
margsannað ágæti sitt, hugsa
Nýjar bækur
■ NÝLEGA kom út 23. bindi
Skagfirðingabókar, rits Sögufé-
lags Skagfirðinga, en það hóf
göngu sína árið 1966. Áð venju
hefst ritið á ævisögu Skagfírðings,
sem markaði spor í samtíð sína.
Að þessu sini ritar Kristmundur
Bjarnason á Sjávarborg um Skafta
Stefánsson, Skafta frá Nöf, eins
og hann var að jafnaði nefndur.
Hann var umsvifamikill útgerðar-
maður og síldarsaltandi á Siglu-
firði og annaðist auk þess sam-
göngur á sjó milli hafna á Eyja-
firði og Skagafirði. Öld er liðin frá
fæðingu hans.
Meðal annarra greina í ritinu
má nefna Nýbjörgu eftir Gísla
Jónsson fyrrverandi menntaskóla-
kennara. 12 konur hafa borið þetta
nafn á íslandi og mun nú ein á
lífi. Gísli ritar um þær allar og
hvernig þær tengjast.
Björn Jónsson prestur á Akra-
nesi ritar um fyrstu íslensku
sálmabækurnar, birtar eru endur-
minningar Bjargar Hansen á
Sauðá frá árunum 1861-1883 og
dagbókarbrot sonar hennar, Frið-
riks Hansens kennara og vega-
verkstjóra á Sauðárkróki, en þar I
segir hann frá slysi í Drangey.
Að þessu sinni er birt í bókinni
áður óprentað ljóð eftir Bólu
Hjálmar, Fjártal árið 1830. Það
er varðveitt í handriti í eigu Krist-
jáns Runólfssonar á Sauðárkróki
og er eins og nafnið bendir til,
framtal Hjálmars.
Kaupendur Skagfirðingabókar I
eru sjálfkrafa félagsmenn í
Sögufélagi Skagfirðinga. Nýir
áskrifendur geta snúið sér til
Hjalta Pálssonar, Safnahúsinu
Sauðárkróki.
Sjábu
hlutina
í víbara
samhcngi!
- kjarni málsins!
þessir kvikmyndagerðarmenn, svo
það er best að skella sér í hana
aftur.
Einn af aðstandendum Apaspils
er breski leikstjórinn Ridley Scott
og honum hefur tekist að safna
saman prýðilegu leikaraliði í
myndina sem reyndar er langt frá
sínu besta ef frá talinn Harvey
Keitel, er leikur nú í hverri mynd-
inni á fætur annarri og virðist
engu skipta um hvað þær ijalla,
og apinn, sem í hefð gæludýra-
myndanna reynist kannski mann-
legastur allra í myndinni.
Slappur leikurinn helst í hendur
við lítt spennandi hlutverkin. Mimi
Rogers leikur móður stúlkunnar
og ferst það illa úr hendi hvort
sem hún ræður sér ekki fyrir
kæti eða sýnist áhyggjufull. Chri-
stofer McDonald á jafnvel við
ómerkilegri rullu að etja sem stjúp-
faðir dótturinnar og Thora Birch
leikur stúlkuna fyrst sem spillta
dekurrófu er öfundar athyglina
sem litli bróðir hennar fær og síð-
an, af því þetta er þroskasaga,
fyllist hún einkar mikilli ábyrgðar-
kennd og þroska. Ekki tekst henni
þó að hleypa neinu lífí í söguna.
Bestur er Keitel sem gefur frá-
bæra mynd af örvæntingarfullum
hrotta og ómenni og apinn sýnir
að hann er ekki sá með minnstu
leikhæfileikana í Apaspili.
Arnaldur Indriðasson
VIRKA
Námskeið, sem hefjast fljótlega:
Bútasaumur: Rúmteppi + Veggteppi + Baðherbergishlutir +
Eldhúshlutir + Jóladúkar.
Föndur: Boxanámskeið + Jólasveinapar.
Fatasaumur.
Opið mánudaga tii föstudaga frá kl. 9-18,
á laugardögum frá 1. sept. til 1. júní frá kl. 10-14.
VIRKA
MÖRKINNI 3, SÍMI 687477.
Colt 1300 GLi
1.095.000.>
Lancer 1600 GLXi, sjálfskiptur
1.484.000.-
Afmælisafsláttur
á Mitsubishi
r
I tilefni 15 ára afmælis Mitsubishi
á íslandi seljum við á næstunni
takmarkað magn Mitsubishi
bíla á hreint frábæru verði!
Tryggðu þér bíl í tíma.
Allt að 48 mánaða greiðslutími.
Lancer GLXi 4x4, með sítengdu aldrifi.
1.790.000.-
vA O
V Á ^
IHl do a
HEKLA EEBSBŒESIBl MITSUBISHI
1-71-1 17/1 . Círr,i CQ CC (10 MOTORS