Morgunblaðið - 04.09.1994, Síða 25

Morgunblaðið - 04.09.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994 25 ~~ ÖÐRUVÍSI VERSLUN Kertastjaki úr smíðajárni var kveikjan að fyrirtæki Ásu Maríu Bjömsdóttur, Smíð- ar og skart, verslun með handunna listmuni á Suðurlandsbraut 52. Þegar Ása María fór á námskeiðið hjá Stjórnunarfélaginu hafði hún í huga að stofna og reka gistiheimili, en hug- myndin að versluninni fæddist meðan á nám- skeiðinu stóð. Ása María var hótelstjóri á Húsavík en missti vinnuna þegar nýir aðilar tóku við rekstrinum. Hún lærði hótelstjórn í Sviss og markaðsstjórn í Tækniskóla íslands og hafði því hug á að stofna og reka eigið gistiheim- ili. Með þá hugmynd fór hún á námskeiðið hjá Stjórnunarfélaginu. „Flest það sem kennt var á námskeiðinu hafði ég þegar lært þannig að fyrir mig var þetta kannski meiri upprifj- un. En ég viidi að sjálfsögðu bæta við þekk- ingu mína á þessu sviði og fá þann stuðning sem mig vantaði. Það sem mér fannst hvað mikilvægast á þessu námskeiði eftir á að hyggja, var félagsskapur hinna kvennanna og sá styrkur sem þær gáfu mér. Við bárum upp hugmyndir okkar hver við aðra og rædd- um þær í fyllsta trúnaði. Á þessum tíma var ég í viðræðum við nokkra aðila með kaup á gistiheimili í huga. En þar sem mikil skuldabyrði fylgdi flestum þeirra og óöryggi í bókunum, freistaði mín ekkert af þeim. Þegar námskeiðið hófst var þessi hugmynd um gistihús að falla um sig, en hugmyndin að versluninni að fæðast." Eiginmaður Ásu Maríu er véivirki og hafði hann smíðað kertastjaka og gefið henni. „Kveikjan að versiuninni var kertastjakinn. Eg horfði á stjakann, það var eins og kveikt væri á myndvarpa, og ég sá verslunina skýrt fyrir mér. Gjafavöruverslun með handunna listmuni. Hvorki hefðbundna minjagripaversl- un né gallerí. í fyrsta iagi yrði útlit og innréttingar versl- unarinnar að vera öðruvísi en tíðkast. í öðru lagi yrði vöruúrval að vera fjölbreytt og var ég þá sérstaklega með muni handverksmanna og listamanna utan af landi í huga. Á Húsa- vík hafði ég til dæmis séð mikla grósku í handverki. I þriðja lagi yrði verðið að vera viðráðanlegt." Ása María vann með hugmynd sína á nám- skeiðinu og segist auk þess hafa setið tímum saman í tölvuherberginu við undirbúnings- vinnu. Staðsetning verslunarinnar var það fyrsta sem huga þurfti að. Henni var bent á að verslunarsvæðið við Suðurlandsbraut, það er að segja bláu húsin í Fákafeni, væri fram- tíðarsvæði, en þar sem svæðið var nýtt svo og verslunin líka var þetta í raun tvöföld uppbygging. „Það bjargaði mér hversu nísk ég er,“ seg- ir hún. „Eg ákvað að hafa innrétttingar eins ódýrar kostur væri en smekklegar, og fékk eiginmanninn í lið með mér. Hann smíðaði því allar innréttingar. Ég fékk þó aðstoð utan frá til að undirbúa veggi undir málningu, en til dæmis sparaði ég mér það fé sem farið hefði í gólfefni með því að skrapa upp gólf- málningu og lakka steininn með glæru lakki. Ég tók vörur í umboðssölu frá handverks- fólki úr öllum landsfjórðungum og var eina fjárbindingin í innfluttu vörunum, sem eru þó aðeins um 10% af því sem til sölu er. Stofn- kostnaður var því aðeins um ein milljón króna og átti ég méstan hluta af því fé sjálf.“ Tólf dögum eftir að námskeiðinu lauk, eða 21. mars, opnaði Ása María verslun sína. „Ég ákvað að vera ein við afgreiðslu til að byrja með tii að fá tilfinningu fyrir versluninni. Ég gerði líka ráð fyrir því að vinna án tekna fyrsta árið. En þetta hefur gengið betur en ég átti von á og viðtökur hafa verið jákvæðar." Morgunblaðið/Kristinn ÁSA María: Ég ákvað að vera ein við afgreiðslu til að byrja með til að fá tilfinn- ingu fyrir versluninni. Ég gerði líka ráð fyrir því að vinna án tekna fyrsta árið. Smíðar og skart, versl- un Ásu Maríu Björns- dóttur, selur handunna listmuni og eru flestir þeirra eftir íslenska listamenn og hand- verksmenn Of langt mál yrði að telja upp alla þá list- muni sem í versluninni fást, en flestir eru þeir litlir um sig og verðbreidd það mikil að allir ættu að finna eitthvað sem buddan sam- þykkir. „Viðskiptavinir hafa sagt að þeir hafi það á tilfinningunni að þessi verslun sé öðruvísi," segir Ása María. „Til dæmis kom hingað Bandaríkjamaður hvað eftir annað í sumar og keypti listmuni. Hann vildi endilega að ég opnaði útibú í Boston og sagði að munir sem þessir mundu renna út. Enda eru munirnir sem ég er með geysilega vel unnir og vandað- ir og því erum við íslendingar fyllilega sam- keppnisfærir hvað handunna listmuni snertir." Á RÉTTUM TÍMA ^ ^ ^ Morgunblaðið/Kristinn HUGRUN: Ég vil byrja smátt og sjá fyrirtækið vaxa. Á íslandi er eins dauði annars brauð. Eg vil helst ekki vera þessi dauði! Reynsla af störfum sölumanns kom Hug- rúnu Pétursdóttur til góða þegar hún stofnaði heildsölufyrirtæki sitt í mars á þessu ári. Lengi hafði hana langað til að flytja inn lín og var reyndar með ákveðið umboð í huga, en skorti áræðni til að hefja framkvæmdir. Hún sótti því námskeiðið hjá Stjórnunarfélaginu „til að fá það spark“ sem hún þurfti, eins og hún segir. Heildsala Hugrúnar Pétursdóttur flytur nú inn dúka, servítettur, handklæði, sloppa og fleira fyr- ir hótel, veitingahús og sjúkrahús. Hugrún hafði unnið hjá heildsölunni Steinavör í fjögur ár þegar hún hætti þar í október 1992. Steinavör hafði meðal ann- ars flutt inn lín frá fyrirtækinu Tissage Alfred Flamme í Belgíu. Þegar Steinavör hætti rekstri langaði Hugrúnu til að flytja inn vörur belgíska fyrirtækisins, en til að svo mætti verða þurfti hún að stofna fyrir- tæki. „Ég sótti námskeiðið hjá Stjórnunarfélag- inu til að fá þá aðstoð sem ég þurfti til að hrinda hugmynd minni í framkvæmd,“ seg- ir Hugrún. „Það var einstakt að koma inn á námskeiðið, því þar mátti sjá þverskurð af þjóðfélaginu. Þarna voru listakonur, kon- ur í stjórnunarstörfum, heimavinnandi hús- mæður, og margar þessara kvenna höfðu verið að berjast við atvinnuleysið. Þessi hópur þjappaði sér saman og átti Fanný Jónmundsdóttir stærstan þátt í því. Að öðr- um ólöstuðum var hún frábær. En þarna fékk ég það spark sem ég var að bíða eftir. Síðan gerðust hlutirnir hratt fyrir sig. Meðan á námskeiðinu stóð, eða milli jóla og nýárs, skrifaði ég belgíska fyrirtækinu með fyrirspurnir um umboðið, og þeir hringdu í mig um hæl og sgurðu hvort ég væri tilbúin að taka við því. Ég fór því utan strax í janúar og gekk frá samningum við þá. Þetta er rótgróið fjölskyldufyrirtæki og var ég frá upphafi mjög hrifin af vönduðum vörum þeirra.“ Hugrún hafði unnið sem sölumaður í mörg ár áður en hún stofnaði fyrirtæki sitt, fyrst hjá Myllunni og síðar hjá Steinavör. Arið 1988 settist hún aftur á skólabekk í Verslunarskóla Íslands, á ferðamálabraut, og fann að markaðsfræði og auglýsingasál- fræði áttu vel við hana. Auk þess hafði hún sótt fjölda sölunámskeiða bæði hér heima og erlendis og var því enginn nýgræðingur á þessu sviði. „Ég byijaði á því að kynna mér allt sem viðkom stofnun fyrirtækis. Einnig kynnti ég mér markaðsstærðina, eins og til dæmis það hversu mörg hótel og veitingahús á landinu nota dúka, og lá yfir þeirri vinnu dag og nótt. Síðan varð ég mér úti um tölvu, fax og símsvara og setti heildsöluna á stofn, með vörumerkinu HP Lín. Stofn- kostnaður var um 450 þúsund krónur og tók ég mér lán fyrir honum. Ég þekkti markaðinn hér heima ágætlega og skrifaði því dreifíbréf og hafði samband við nokkra aðila. Áður en varði var ég kom- in á kaf í vinnu og mátti varla vera að því að sækja námskeiðið! Fyrirtækin sem ég hafði samband við höfðu áður keypt danskt og belgískt lín. Nokkrir aðilar þekktu vörur TAF og gæði þeirra, og hjá öðrum féll þessi vandaða og fallega framleiðsla í góðan jarðveg. Merki fyrirtækjanna eru og oft ofin í línið. Þjóðhá- tíðin og forsetaveislur voru framundan og hótel og veitingastaðir því tilbúin til að endurnýja dúka og servíettur. Það má því segja að ég hafi verið á réttum tíma. Eg er með allt lín fyrir hótel og veitinga- hús og ber þar hæst dúka og servíettur. En ég vil líka ná til íþróttafélaganna og annarra félagasamtaka með handklæða- framleiðslu í huga. Handklæðin sem ofin eru sérstaklega fyrir HM ’95 á ísiandi eru mjög falleg og er ég einkar stolt af þeim.“ HP Lín, heildsölufyrir- tæki Hugrúnar Péturs- dóttur, flytur meðal annars inn dúka og handklæði fyrir hótel og veitingahús Hugrún segir að reksturinn gangi vel og að hún hafi nú í tvígang greitt sjálfri sér laun síðan hún stofnaði fyrirtækið í mars. yÉg vil byija smátt og sjá fyrirtækið vaxa. I viðskiptum á íslandi er eins dauði annars brauð. Ég vil helst ekki vera þessi dauði! Og ég hef fullan hug á að færa út kvíarnar með tímanum.“ Samkeppnisaðilar eru margir á markað- inum og segir Hugrún að það sé af hinu góða. „Það gerir viðskiptin bara meira spennandi. Ég er lítið gefin fyrir volæði. Þegar ég lióf viðskiptin spurði fólk hvort ég væri ekki með öllum mjalla að stofna fyrirtæki á þessum síðustu og verstu tím- um. En mér líst vel á markaðinn og ég veit að íslandi er ráðstefnuland framtíðar- innar. Við þurfum bara að venja okkur af því að hugsa aðeins um eitt ár í senn, held- ur hugsa mörg ár fram í tímann."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.