Morgunblaðið - 04.09.1994, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994 41
FRÉTTIR
NÝBAKAÐIR íslandsmeistarar í sjóstangaveiði.
Islandsmeistarar
í sjóstangaveiði
Akureyri. Morgnnbladid.
ÓLAVÍA Þorvaldsdóttir, Siglufirði
og Árni Halldórsson, Akureyri, urðu
íslandsmeistarar í sjóstangaveiði
árið 1994 og fengu þau verðlaunin
afhent að loknu sjóstangaveiðimóti
á Akureyri á dögunum en mótið
var nú haldið í þrítugasta sinn.
Alls voru þátttakendur í þessu af-
mælismóti 105 talsins og var róið
á 25 bátum. Samanlagt vó aflinn
rúm 6.330 kíló.
Bræðurnir, Lárus, Stefán, Jó-
hann og Einar Einarssynir skipuðu
sveit aflahæstu karla en þeir veiddu
363,3 kíló. Lárus er búsettur á
Snæfellsnesi en hinir á Akureyri.
Aflahæsta sveit kvenna kom frá
Snæfellsnesi en þær Margrét Jónas-
dóttir, Guðrún Gísladóttir og Hjör-
dís og Guðmunda Oliversdætur
veiddu samanlagt 323,5 kíló.
Siglfirðingurinn Skarphéðinn
Ásbjörnsson veiddi stærsta fisk
mótsins, 7,42 kg þorsk. Fiðringur
fór um salinn þegar kom að því að
afhenda lúðuverðlaunin, en þau
féllu að þessu sinni Gunnari Rún-
arssyni í skaut.
Aflahæsta kona mótsins var
Guðmunda Oliversdóttir, Snæfells-
nesi sem veiddi 128,7 kg en Pétur
Sigurðsson, Akureyri sem veiddi
144,2 kíló varð aflahæsti karl
mótsins.
Ungir skákmenn á ólympíumóti
ÓLYMPÍUSKÁKMÓT landsliða
16 ára og yngri hófst á Möltu
2. september og lýkur 9. septem-
ber. Um 40 þjóðir, þar af allar
sterkustu skákþjóðir heims, taka
þátt í mótinu en tefldar verða 7
umferðir eftir Monrad-fyrir-
komulagi. Keppt er í 4 manna
sveitum auk varamanns. Islensku
sveitina skipa Arnar E. Gunnars-
son, Bragi Þorfinnsson, Jón V.
Gunnarsson, Matthías Kjeld og
Björn Þorfinnsson. Fararstjóri
er Haraldur Baldursson.
VANTAR ÞIG FATASKÁP?
ÞAÐ ERU TILBOÐSDAGAR HJÁ OKKUR
Á ÖLLUM FATASKÁPUM MEÐ RENNI-
HURÐUM.
NÚ GEFST EINSTAKT TÆKIFÆRITIL AÐ
FJÁRFESTA í RÚMGÓÐUM FATASKÁP
MEÐ 15% AFSLÆTTI.
ALLIR SKÁPAR ERU FRAMLEIDDIR EFTIR
MÁLI. í BOÐIER ÝMISSKONAR ÚTLIT M.A.
SPEGLAR OG ÝMSAR VIÐAR TEGUNDIR.
15% AFSLÁTTUR
Nýbýlavegi 12 200-Kópavogur Island
Sími 44011. Pósthólf 167.
Jazz - ftmk
BYRJENDUR
12-lSÁRA
DfiNS DflNS DflNS
Nýjasta nýtt úr
dansheiminum í dag
KENNARI:
KRISTÍN
HAFSTEINS-
DÓTTIR
FRAMHALD
16ARA
OG ELDRI
SÝNINGAR-
HOPUR
í Kaupmannahöfn
FÆST
í ÐLAÐASÖLUNNI
STÖÐINNI,
OG ÁRÁÐHÚSTORGr
„ þuistxrri sent bejian er...Áe/m /nun, stdtrró ueréar ■Pt'skurinn.