Morgunblaðið - 04.09.1994, Síða 42
I
42 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
Smáfólk
OKAV, LITTLE BROTHEK, RUN
OUTTOTHE KITCHEN.AND GET
ME A GLA55 OF WATER..
Jæja, litli bróðir, hlauptu fram í
eldhús og sæktu mér glas af
vatni...
BROTHK harassmentí;
Hví skyldi ég gera það? Svo þú
komist hjá því að verða Iaminn
í hausinn!
BROÐURAREITNI!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Hvers eiga nýbú-
ar að gjalda?
Frá Ásmundi Una Guðmundssyni:
í JÚLÍ í ár las undirritaður pistil í
Morgunblaðinu sem bar jrfirskriftina
„Burt með kynþáttahatara“. Að
þeim skrifum stóðu 14 þýskir nemar
í íslensku við háskóla í Bonn. Und-
anfari þeirra skrifa voru greinilega
pistlar eftir Magnús Þorsteinsson,
Vatnsnesi, þar sem hann ræðst all-
harkalega og af óbilgirni að fólki
sem flust hefur hingað til lands og
kallast nýbúar.
Nú 26. ágúst sl. áréttaði Magnús
fyrri skrif sín. Er þar aftur höggvið
í sama knérunn. Býsnast hann yfir
því að norræni kynstofninn sé að
hverfa í úreldingu vegna annarra
kynstofna sem komið hafa á íslenska
grund og blandast blóðböndum við
okkur íslendinga. Sem bóndi ætti
hann að vita að skyldleiki í skepnum
kallar fram allskonar krankleika og
vesöld er fram í sækir ef ekkert er
gert til úrbóta. Svipað á við um
mannfólkið. Líka ætti hann að vita
að í íslendingasögunum úir og grúir
af frásögnum um herferðir víkinga
fyrr á öldum til herfanga á þrælum,
aðallega konum. Til hvers! Jú, svo
skyldleikinn heima fyrir yrði ekki
of mikill. Því má ætla að slík öfga-
skrif séu hugarburður einstaks
manns, ekki fjöldans eins og Magnús
vill vera láta.
Að öllu athuguðu erum við íslend-
ingar blandaður kynstofn langt aftur
í aldir. Eitt enn, eigum við þá að
útskúfa ástandsbörnunum, nú mið-
aldra fólki, sem varð til á og eftir
hernámsárin líkt og Magnús vill
gera við nýbúana. Mitt svar er stutt:
Nei.
ÁSMUNDUR UNI
GUÐMUNDSSON,
Suðurgötu 124,
Akranesi.
Raunvísindaleg
skýring
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
„ÞAÐ er ekki á öllum tímum, að
menn verða fyrir lækningum, sem
verða ekki skýrðar með raunvísinda-
legum hætti ...“ segir séra Geir
Waage um slík fyrirbæri almennt,
eftir komu kraftaverkamannsins
Hinns frá Ameríku hingað til lands
(DV 23. ágúst). Ég vek athygli á
setningunni um, að slíkar lækningar
„verði ekki skýrðar með raunvísinda-
legum hætti“.
Þarna virðist mér séra Geir vera
á hálum ís, fullyrða meira en hægt
er að standa við. Og staða hans er
jafnvel veikari en margra annarra,
því að fyrir 4-5 árum hefði hann
ekki þurft að ganga nema tvo kíló-
metra í austurátt, til manns, sem
þar bjó, og hefði sá maður getað
frætt hann um rétta raunvísindalega
skýringu.
Skýringin á því, að maðurinn Hinn
gat látið menn detta aftur fyrir sig
með því einu að beina fingri (án
dáleiðslu) er sú, að kraftur verkar
milli hans og sjjúklingsins og ber
að líta á þetta sem náttúrufyrirbæri
(lífaflfræðilegt) en ekki guðfræðiat-
riði. Benni Hinn var stillir (determin-
ant) að orkunni sem streymdi í hvern
þann sjúkling, sem varð hennar var,
og var því ekki veitandi lækningar
á annan hátt en með fyrirbæninni,
sem er stilliáhrif. Það er mjög lofs-
vert, að Morgunblaðið skyldi segja
í fyrirsögn að „kosmiskir kraftar"
séu þarna að verki, en ekki finn ég
þau orð í texta fréttarinnar. Hvort
fyrir liggja staðfest læknisfræðileg
dæmi urti bata er nokkuð annað
mál, íjöldi slíkra dæmi er til úr ólík-
ustu áttum og má af því draga álykt-
anir.
Séra Geir er fróður maður og
skemmtilegur og veiti ég jafnan at-
hygli því sem frá honum kemur.
Treysti ég því, að hann veiti nú at-
hygli því, sem hér er á minnst og
taki það til greina. Fyrir mitt leyti
er ég ekki í vafa um, að slík afstaða
hans gæti orðið íslensku kirkjunni
til meiri blessunar en jafnvel nokkuð
annað sem hún aðhefst.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
PníðmannlegTir leikur
Frá Páli Jóhannessyni:
Sunnudaginn 21. ágúst horfði
undirritaður á leik Þórs og Fylkis
í 4. flokki karla á Akureyri. Leikur-
inn, sem var mjög mikilvægur fyrir
bæði liðin, var bæði skemmtilegur
og prúðmannlega leikinn af báðum
liðum. En skugga bar þó á þegar
markmaður Fylkis meiddist og var
fluttur á brott í sjúkrabíl. Atvik
þetta var óhapp sem engum verður
kennt um. Þess vegna var ég alveg
steinhissa þegar ég svo las grein í
Morgunblaðinu 24. ágúst þar sem
þjálfari Fylkis hafði stór orð um
hve grófir og ruddalegir leikmenn
Þórs hefðu verið og taldi ástæðu
til að kvarta undan Þórsurum til
KSI. Nú gæti maður spurt, var
þessi maður ekki staddur á vellin-
um? Varla, en ég veit þó betur því
hegðun mannsins og röflið í honum
á og við hliðarlínu vallarins er hon-
um ekki til framdráttar. Honum
væri nær að líta í eigin barm áður
en hann ræðst á aðra.
Þeir þjálfarar Þórs sem að 4.
flokki standa, Jónas Róbertsson,
Gísli Bjarnason ásamt Siguijóni
Magnússyni, hafa hingað til þótt
mjög góðir þjálfarar og ávallt hefur
verið talað um hve prúðir og agað-
ir strákarnir eru sem þeir hafa þjálf-
að, og gat ég ekki séð að neitt skorti
á í áðurnefndum leik. Fylkir vann
Þór í þessum leik og óska ég þeim
til hamingju með sigurinn en mínir
menn eru úr leik og vona ég að
Fylkir fari alla þá leið sem ég vildi
að Þórsarar hefðu farið. Markmanni
Fylkis óska ég góðs bata.
PÁLL JÓHANNESSON,
Bröttuhlíð 8,
Akureyri.