Morgunblaðið - 21.09.1994, Síða 1
64 SÍÐUR B/C/D
214.TBL.82.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Geislaeft-
Mannfall er óeirðalögregla ræðst á stuðningsmenn Aristides
irlit við
N-Noreg
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKIR tollverðir hafa með
aðstoð hersins kannað hvort
rússnesk skip undan ströndum
Finnmerkur eru með geislavirk-
an farm um borð. í þessum
leynilegu aðgerðum var notast
við geigerteljara sem mælir
geislavirkni.
Yfirmenn tollgæslunnar
segja ástæðu leitarinnar ekki
þá að ábendingar hafí borist
um geislavirk efni um borð í
skipunum, heldur vilji menn
komast að raun um hversu við-
tækt smygl kunni að vera.
Bandaríkjaher óttast að
dragast ínn í átök á Haítí
New York, Port-au-Prince. Reuter.
EINN óbreyttur borgari féll og fjölmargir særðust er haítísk óeirðalög-
regla, hliðholl herforingjastjórn landsins, réðst með bareflum á stuðn-
ingsmenn Jean-Bertrands Aristides, útlægs forseta landsins, sem safn-
ast höfðu saman til að fagna bandarískum hermönnum. Samkvæmt
samkomulagi Bandaríkjastjórnar við herforingjastjórnina sjá'innlendar
sveitir áfram um löggæslu og höfðu bandarísku hermennirnir því
ekki leyfi til að hafa afskipti af aðgerðum lögreglunnar. Eru ráðamenn
í bandaríska hernum farnir að óttast að Bandaríkjaher muni dragast
inn í innbyrðis átök íbúa á Haítí, ef fram fer sem horfir.
Reuter
EINN féll er lögregla, hliðholl herforingjastjórninni, réðst að stuðningsmönnum Aristides.
Aristide gaf loks í gær út stutta
yfirlýsingu um Haítí en hún vakti
einkum athygli sakir þess að þar
minntist hann ekki á samkomulag
sem gert var við herforingjastjórn-
ina í Port-au-Prince á sunnudags-
kvöld.
Bill Clinton forseti vék sér hjá
því að svara spurningum um af-
stöðu Aristide er hann hitti blaða-
menn skömmu eftir að yfirlýsingin
birtist. Þúsundir bandarískra her-
manna gengu á land víða meðfram
strönd Haítí í gær og tóku sam-
göngumannvirki á sitt vald.
Cedras áfram á Haítí?
Aristide hafði ekkert látið frá sér
fara frá í síðustu viku og var af-
stöðu hans beðið með eftirvænt-
ingu. Þykir yfírlýsingin til marks
um óánægju hans með samkomu-
lagið sem Jimmy Carter, fyrrum
Bandaríkjaforseti, náði á sunnu-
dagskvöld við ráðamenn á Haítí.
Gerir það ráð fyrir að herforingja-
stjórnin fari frá 15. október, Ar-
istide komi þá aftur til valda og
lýðræðislegum stjórnarháttum
verði komið á.
Raoul Cedras hverfur ekki frá
Haítí þegar herforingjastjórnin hef-
ur sagt af sér, að sögn Charles
Davids, utanríkisráðherra landsins.
Gaf hann jafnvel til kynna að Cedr-
as hefði pólitísku hlutverki að gegna
og ástæðulaust yrði því fyrir hann
að fara úr landi. David sagði að
ríkisstjórnin færi ekki frá nema
þingið samþykkti áður iög er
tryggði henni sakaruppgjöf.
Óljóst samkomulag
Alain Juppé, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði i gær að skýringa
væri þörf á ýmsum ákvæðum sam-
komulagsins sökum þess hve óljós
þau. væru. Þar væri t.a.m. engin
ákveðin dagsetning tilgreind um
heimkomu og valdatöku Aristide.
Sömuleiðis vissu menn ekki hvað
átt væri við með því að herforingjar
færu á „eftirlaun með fullum
heiðri“, án þess að fara úr landi,
eins og ráð hefði verið fyrir gert.
John Shalikashvili, forseti herfor-
ingjaráðsins, sagði í gær að gera
yrði ráð fyrir að bandarískar her-
sveitir yrðu frekar mánuði en vikur
á Haítí. Sagði hann að þrátt fyrir
góðar viðtökur í fyrstu yrðu sveit-
irnar að vera varar um sig og rifj-
aði í því sambandi upp góðar mót-
tökur sem bandarískar sveitir fengu
er þær voru sendar til Sómalíu.
Dante Caputo, sérlegur fulltrúi
Sameinuðu þjóðanna á Haítí, sagði
í gær af sér en hann hefur undan-
farin tvö ár reynt að semja um að
herforingjastjórnin hverfi frá völd-
um. í bréfi til framkvæmdastjóra
SÞ kvartaði hann yfir því að ekkert
samráð hefði verið haft við hann
af hálfu Bandaríkjastjórnar.
■ Flugvélar/16
Reuter
JOHN Major og Nelson Mandela rita nöfn sín á krikket-kylfu
með nöfnum leikmanna í landsliðum beggja ríkjanna.
Fyrsta heimsókn í
rúma þrjá áratugi
Höfðaborg. Reuter.
Gengið til kosninga í Danmörku
Kjósendur telja
niðurstödiuia
engubreyta
Kaupmannahöfn. Reuter.
Azerbajdzhan
Samið um
olíuvinnslu
Moskvu. Tho Daily Telegraph.
HÓPUR vestrænna fyrirtækja,
undir forystu British Petroleum og
Statoil, undirritaði í gær samkomu-
lag -yið stjórnvöld í Azerbajdzhan
um olíuvinnslu í Kaspíahafi. Er
þetta í fyrsta skipti sem vestræn
olíufyrirtæki ná aftur fótfestu í
fyrrum Sovétríkjunum frá því
1917.
Rússnesk stjórnvöld gagnrýndu
samninginn þegar í stað og sagði
í yfirlýsingu frá rússneska utanrík-
isráðuneytinu að hann yrði ekki
virtur.
Gaidar Alejev, forseti Azerbajdz-
han, sem er fyrrverandi herforingi
í KGB og sat í æðstaráði sovéska
kommúnistaflokksins í tíð Brez-
hnevs, sagðist ekki hafa miklar
áhyggjur af athugasemdum Rússa
og tók fram að rússneska olíufyrir-
tækið Lukoil ætti 10% aðild að fyrir-
tækjahópnum. Þá hefðu rússnesk
stjórnvöld fullvissað hann um það
á síðasta ári að Azerar hefðu óskor-
að vald yfír olíulindum á Kaspíahafi.
Talið er nauðsynlegt að ná sam-
komulagi við Rússa þar sem líklega
mun reynast nauðsynlegt að flytja
olíuna um Rússland til Vesturlanda.
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, hét því í gær í Höfðaborg að
Bretar myndu styðja Suður-Afríku
með sem svarar um tíu milljörðum
króna næstu þtjú árin. Breskur for-
sætisráðherra hefur ekki heimsótt
Suður-Afríku frá því að Harold
Macmillan ávarpaði þing hvíta minni-
hlutans, árið 1960 og sagði „vinda
breytinga" blása um Afríku.
Skömmu eftir heimsókn Macmill-
ans sögðu Suður-Afríkumenn skilið
við breska samveldið og stofnuðu
lýðveldi. Major sagði að pólitíska
óveðrinu sem vindar breytinganna
hefðu komið af stað væri að slota
og nú væru löndin á ný tengd í sam-
veldinu. „Ég er hingað kominn til
að lífga við gamla vináttu, rétta nýrri
Suður-Afríku höndina, hefja nýtt
skeið, leggja áherslu á ný tengsl
milli landsins ykkar og míns.“
POUL Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hvatti kjós-
endur í gær til þess að gera íjög-
urra flokka stjóm jafnaðarmanna
og miðjuflokka kleift að halda áfram
góðu starfi sínu.
Gengið er til kosninga í dag, mið-
vikudag, og er jafnaðarmönnum og
vinstriflokkum spáð sigri en tveimur
siórnarflokkum fylgistapi.
Niels Helveg Petersen, utanríkis-
ráðherra Radikale varaði í gær við
því að ynnu borgaraflokkarnir kosn-
ingarnar og tækju upp samstarf við
Framfaraflokkinn, sem lengst er til
hægri í dönskum stjórnmálum, gæti
það stefnt 'stefnu Danmerkur í Evr-
ópumálum í hættu. Sagði hann að
koma yrði í veg fyrir vandamál á
borð við þau sem upp komu er Dan-
ir felldu Maastricht-sáttmálann árið
1992.
„Nú gengur allt betur í Dan-
mörku. Við höfum unnið vel í efna-
hagsmálunum. Leyfið okkur að
ljúka þessu starfi,“ sagði Nyrup
Rasmussen í sjónvarpskappræðum
í fyrrakvöld. Uffe Ellemann-Jensen,
leiðtogi Venstre, sagði stjórnina
hins vegar hafa hafið mikla neysiu-
hátíð en reikningurinn myndi hins
vegar ekki berast fyrr en síðar.
Fylgi stjórnarflokkanna og
tveggja vinstriflokkdr hefur verið
svipað í skoðanakönnunum síðustu
daga, í könnun sem birt var í Berl-
ingske Tidende í gær, var fylgi
stjórnarinnar 41,3% en vinstriflokk-
anna 11,9, samtals 53,2%, en fylgi
íhaldsflokksins 13,4%, Venstre
24,5% og Framfaraflokksins 6,2%,
samanlagt 44,2%.
■ Reikulir/29