Morgunblaðið - 21.09.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 21.09.1994, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 _________________________________FRÉTTIR__________________ Davíð Oddsson forsætísráðherra á ríkisstjórnarfundi í gær Sjö ára kyrrstöðutíma- bili er væntanlega lokið DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að á næsta ári verði hægt að greiða niður erlendar skuldir þriðja árið í röð, en það hefur ekki gerst áður síðastliðna hálfa öld. Hann segir að nánast allar spár um bata í efnahagslífinu sem áður hefði verið rætt um myndu standast varðandi þau efni sem að stöðugleika lúta, svo sem gengi, verðbólgu og vexti. Forsætisráðherra gerði grein fyrir þessu á ríkisstjómarfundi í gær. Davíð sagði í samtali við Morgunblaðið að þær batahorfur í efnahagslífinu sem menn þóttust sjá fram á í sumar stæðust og gott betur, þann- ig að séð væri fram á mjög jákvæðan uppgang í efnahagslífínu á næstunni. Dregur úr atvinnuleysi „Forsendur fyrir lágum vöxtum munu styrkj- ast þar sem ríkissjóðshallinn verður á næsta ári minni en við höfum áður unnið með, og hagvöxt- ur verður allnokkur bæði á þessu ári og hinu næsta. Þannig að sjö ára kyrrstöðutímabili er þar með væntanlega lokið. Við munum borga niður erlendar skuldir þriðja árið í röð og er það í fyrsta skipti frá lokum seinni heimsstyijaldar sem það gerist þtjú ár í röð, og ekki eru marg- ar þjóðir að gera það um þessar mundir. Ríkis- sjóðshallinn hjá okkur verður mun minni en í langflestum OECD-ríkjum, atvinnuleysi verður minna á þessu ári en spáð var í upphafi árs, og á næsta ári er spáð minna atvinnuleysi en menn spáðu á þessu ári. Þannig að allt stefnir þetta í mjög jákvæða tölu hvað þetta varðar," sagði Davíð. Mikill viðbúnaður vegna stroks þriggja fanga af Litla-Hrauni Náðust fljót- lega í námunda við fangelsið Morgunblaðið/Júlíus LÖGREGLA stöðvaði bifreiðar á mótum Þrengslavegar og Hell- isheiði meðan á leitinni að strokuföngunum þremur stóð. ÞRÍR fangar struku af Litla-Hrauni um kl. 16 í gær. Þeir náðust allir á innan við tveimur stundum og voru fluttir í Síðumúlafangelsið. Líklegt er að þeir dvelji þar í ein- angrun um tíma, en agaviðurlögum af því tagi er beitt við strok. Gústaf Lilliendahl, forstjóri fang- elsisins, sagði að mennimir hefðu verið að fara í útivistartíma þegar þeir tóku á rás í burtu. „Fangaverð- imir sáu strax til þeirra,“ sagði Gústaf. „Einn stefndi austur, en hinir tveir hlupu inn í byggðina á Eyrarbakka. Fangaverðir náðu öðr- um í jaðri bæjarins, en hinn hvarf inn á milli húsa. Það var alltaf ljóst á hvaða svæði hann væri, en það tók fangaverði nokkurn tíma að hafa uppi á honum inni á milli húsa.“ Fanginn sem hljóp í austurátt faldi sig og fannst síðastur stroku- fanganna, þótt hann væri næst fangelsinu. „I hans tilfelli var einn- ig alltaf Ijóst á hvaða svæði hann væri, svo það var bara tímaspurs- mál hvenær hann. næðist," sagði Gústaf. Lögregla lokaði vegum í nágreninnu Lögregla á Selfossi og á höfuð- borgarsvæðinu var látin vita af stroki þremenninganna um hálf- tíma eftir að þeir tóku til fótanna. Þá var öllum vegum í nágrenninu lokað og lögregla leitaði í hverri bifreið. Gústaf var inntur eftir því hvort liðið hefði of langur tími þar til liðsinnis lögreglu var leitað. „Ég tel viðbrögð fangavarðanna hafa verið hárrétt," svaraði hann. Þremenningamir vom fluttir í Síðumúlafangelsið til yfírheyrslu. Þeir em að afplána dóma fyrir þjófnaði og fals, en Gústaf sagði að þeir væm ekki taldir hættulegir. í bígerð að Eintak og Pressan hætti að koma út Útgáfa nýs blaðs undirbúin SAMNINGAVIÐRÆÐUR hóps ijárfesta sem hyggja á stofnun félags um blaðaútgáfu eru komnar á lokastig samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Jóhann Óli Guð- mundsson, forstjóri Securitas og einn þeirra sem að málinu koma, segir allar horfur á að slík útgáfa verði að vemleika en málin muni skýrast á næstu dögum. Jóhann Óli segir hugmyndir hafa verið uppi um að út kæmi eitt blað og horft sé til þess að vikublöðin Pressan og Eintak hverfí af markaðinum. Nýtt blað komi jafnvel út undir nýju heiti. Jóhann Óli segir eignaraðild að slíku útgáfufélagi verða dreifða og meginsjónarmiðin í þeim efnum séu að enginn einn eða tveir aðilar verði afgerandi stærstir í slíku félagi. Fjárhagslegur gmndvöllur blaðsins sé mjög sterkur. Hann segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort einhverjir núver- andi starfsmanna Eintaks og Pressunnar verði ráðnir af nýju félagi, en hann telji þó víst að svo verði. Ritstjórar nýs blaðs myndu hafa með þá þætti að gera. Oddi aðili Þorgeir Baldursson, forstjóri prentsmiðjunnar Odda sem hefur prentað bæði Pressuna og Eintak, staðfesti í samtali við Morgunblað- ið að fyrirtækið myndi koma að slíkri útgáfu en ekki væri tíma- bært að ræða hvort Oddi yrði hlut- hafi í nýju útgáfufélagi. Eigendur Eintaks og Pressunar yrðu minni- hlutaaðilar að nýju fyrirtæki. Stjóm nýs félags myndi ákveða hvort haldið yrði út vikublaði eða dagblaði. íslenskur heílaskurðlæknir lék sjálfan sig í sviðsetníngu alvarlegs slyss ÍSLENSKUR heilaskurðlæknir í Linköping í Svíþjóð, Steen Magnús Friðriksson, lék sjálfan sig í sænska sjónvarpsþættinum SOS sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Kanal 4 í gærkvöldi. í SOS em settir á svið af mikilli nákvæmni raunverulegir atburðir sem þykja dramatískir eða á annan hátt í frásögur færandi, svo sem alvarleg slys eða óhöpp í Svíþjóð er hafa endað vel. Þátturinn í gær fjallaði um slys sem átti sér stað árið 1992, þegar ung kona í litlum bæ skammt frá Linköping sótti fímm ára son sinn í sund og ók yfír lestar- spor á heimleiðinni. Hún tók ekki eftir aðvífandi lest sem skall á bíln- um, dró hann með sér langa leið eftir teinunum og gjöreyðilagði. Á seinustu stundu Drengurinn, Johan, kastaðist út úr bílnum og slasaðist mjög mikið. Steen, sem hefur starfað í Svíþjóð síðan 1990 og öðlaðist nýverið rétt- indi til að verða sérfræðingur í heila- skurðlækningum, segir að um tíma hafí litið út fyrir að drengurinn myndi ekki lifa af. „Röð atvika varð til að bjarga lífí hans; fyrir það fyrsta var einn farþega í lestinni reyndur sjúkraliði sem af tilviljun var með sogflösku á sér. Johan var meðvit- undarlaus með mikla höfuðáverka og bijóstholsáverka og mikið blóð í vitum og var nær hættur að anda þegar farþegamir í lestinni komu að honum. Sjúkraliðanum tókst að sjúga blóðið upp úr vitum hans og koma önduninni af stað. Móðirin var einnig rænulaus en reyndist minna sködduð og náði sér fljótt. Skömmu eftir að sjúkrabíll frá Háskólasjúkrahúsinu í Linköping kom á vettvang hætti Bjargaði lífi fimm ára drengs STEEN Magnús Friðriksson heilaskurðlæknir ásamt dóttur sinni Unu Björgu. hjarta drengsins að slá, og það var ekki fyrr en skömmu áður en hann kom á spítal- ann sem hjartahnoð bar árangur og það fór í gang að nýju. Eg var á vakt á heilaskurðdeild og var kall- aður til niður á bráðamót- töku þegar drengurinn kom í hús. Hann reyndist þá vera með víð og stíf Ijósop á báð- um augum, sem yfírleitt er mjög slæmt merki og þýðir að heilinn sé annaðhvort að því kominn að deyja eða óaft- urkræfur dauði hefur átt sér stað. Mín fyrstu viðbrögð voru að segja starfsfólki bráðamóttöku að þetta væri of seint. Við gætum sent hann í heilasneiðmyndatöku og séð um hvaða skaða væri að ræða, en vonlaust væri að bjarga honum. Nokkrum augnablikum seinna sýndi drengurinn mjög veik viðbrögð og annað ljósopið dróst saman, þannig að ég skipti snögg- lega um skoðun. í stað þess að senda hann í sneiðmyndatöku og gera rannsókn, sem þarf að gera í nánast öllum tilvikum, fórum við beint með hann í aðgerð, með Iátum ef svo má segja. Aðgerð án rannsóknar er gerð í einstaka tilfeilum, þegar mað- ur metur stöðuna svo að aðeins sé um örfáar sekúndur eða mínútur að tefla. Maður er þó ekki viss um hvaða skaða sé að ræða, hvemig blæðingin hagi sér o.s.frv., heldur verður að fara eftir ytri áverkum og að vissu leyti eftir eðlisávísun. Drengurinn reyndist vera með mjög slæmt höfuðkúpubrot og mikla blæðingu undir þykku heila- himnunni, sem klemmdi allt blóðflæði til heilans og setti geysilegan þrýsting á almikil- vægustu stöðvar heilans. Hann þolir ekki slíkan þrýst- ing nema í örstutta stund. En sem betur fer náðum við í tíma, því eftir aðgerðina braggaðist strákurinn furðu fljótt og er í dag eðlilegur að öllu leyti,“ segir Steen. Viðbrögð leikmanna mikilvæg Kanal 4 gróf upp þetta at- vik og ákvað að sviðsetja það í þættinum. „Þetta er hlutur sem tilheyrir okkar daglega lífí á heilaskurðdeild, en sjónvarpið þefar upp tilvik af þessum toga og hefur annað mat á þessum hlutum en við,“ segir Steen Magnús. „Þeir settu á svið áreksturinn og atburða- rásina eins og hún lagði sig og kvik- mynduðu meðal annars á sjúkrahús- inu þar sem hluti af aðgerðinni var endurskapaður. Það var nánast til- viljun að ég lenti í því að leika sjálf- an mig, því ég var í sumarfríi þegar fyrstu upptökur voru gerðar og búið var að fá starfsfélaga minn til að gegna mínu hlutverki. Tökur töfðust hins vegar einhverra hluta vegna þannig að ég var staddur á skurð- stofúnni þegar ujsptökur áttu að hefjast að nýju. Ég heyrði að þeir væru að sviðsetja þennan tiltekna atburð og þannig vildi til að eftir aðgerðina 1992 fór ég í sumarfrí og sá því aldrei strákinn; Ég ætlaði því að heilsa upp á hann, en þá kom í ljós að hann hafði ekki treyst sér til að taka þátt í sviðsetningunni og vinur hans hljóp í skarðið. Þá fréttu sjónvarpsmennirnir að ég væri sá sem hafði gert aðgerðina á sínum tíma og báðu mig um að taka hlut- verkið að mér. Ég tók vel í það, þvi draga má lærdóm af þáttum á borð við SOS, auk þess sem þeir vekja oft almenning til umhugsunar um að nauðsynlegt sé að öðlast grund- vallarþekkingu á slysum, fyrstu hjálp og endurlífgun. Þrátt fyrir alla þá nútímatækni sem sjúkrahús ráða yfir, skipta mjög oft sköpum fyrstu viðbrögð á slysstað og sú meðhöndl- un sem sá slasaði fær þar. Við slík- ar aðstæðar geta vegfarendur og aðrir leikmenn gegnt lykilhtutverki. Þættir eins og SOS gefa almenningi einnig nokkra innsýn í hvernig vinna á sjúkrahúsum fer fram og að í ein- stökum tilfellum geta skyndiákvarð- anir verið mikilvægar og skilið á milli lífs og dauða." Steen kveðst enn ekki hafa hitt Johan .þrátt fyrir að venja sé að læknar fylgist með sjúklingum sín- um. Hann ætli þó að öllum líkindum að hafa samband við drenginn innan tíðar. V i I i I I I I I I fi fi 1 I fi l I I t 1 t t t í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.