Morgunblaðið - 21.09.1994, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Uppselt er á allar sýningar Þjóðleikhússins á Valdi örlaganna
Kristján hlað-
inn verkefnum
næstu vikur
Uppselt er á allar átta sýningar á óperu
Verdis, Valdi örlaganna, í Þjóðleikhúsinu.
Kristján Jóhannsson syngur aðrar átta sýn-
ingar á tímabilinu frá 25. nóvember til 10.
desember. Hann hverfur af landi brott í
millitíðinni og verður hlaðinn verkefnum
næstu tvo mánuði.
^ Morgunblaðið/Kristinn
Á fullri ferð
KRISTJÁN Jóhannsson í hlutverki sínu í Valdi örlaganna í Þjóð-
leikhúsinu en uppselt er nú á allar átta sýningar á óperunni og
verður Krislján önnum kafinn áður enn hann kemur aftur.
„ÞAÐ verður mikið heimshorna-
flakk á mér en mér þykir ljúft að
vera önnum kafinn og er ánægðast-
ur þannig,“ segir Kristján. Hann
segist vera afar hamingjusamur
með viðtökur á Valdi örlaganna
hér, „ekki síst þar sem ég verð að
að játa að hafa verið ögn óttasleg-
inn eftir allt sem undan er gengið,
en sá ótti hefur ekki reynst á rökum
reistur,“ segir Kristján.
Nýr stjórnandi mun taka við
Barbacini á sýningunum í vetur,
ítalinn Rico Saccani, sem eins og
Barbacini er góðvinur Kristjáns og
aðalgestastjómandi við Sinfóníu-
hljómsveitina í Búdapest, en þess
má geta að þegar Saccani þreytti
frumraun sína í Bandaríkjunum
stýrði hann Pavarotti í La Boheme.
Saccani stýrði viðhafnartónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands um
seinustu helgi. Einnig mun Gunn-
steinn Óiafsson stýra nokkrum sýn-
ingum og kveðst Kristján búast við
góðu af honum, enda hafi Gunn-
steini gengið afar vel með kórstjórn
sína í Valdi örlaganna. „Ég hugsa
að við höfum aldrei átt betri óperu-
kór hérlendis, hvorki fyrr né síðar,
bæði hvað varðar söng, leik og all-
ar sviðshreyfingar," segir Kristján.
Aríur í járnnámu
Vinnulota Kristjáns eftir að hann
fer af landi brott hefst á gerð sjón-
varpsþáttar á vegum þýska sjón-
varpsins fyrir Evrópumarkað. Þátt-
urinn er alfarið helgaður tónlist og
verður hún hljóðrituð í Múnchen
en tökustaðir eru m.a. i Köln,
Dússeldorf og í Tannháuser Halle
í Aachen og öðrum þekktum stöð-
um í Þýskalandi. Tónlistin verður
bæði gefin út á mynd- og geisla-
plötu af Sony Classics. „Þýska sjón-
varpið vill færa óperutónlist nær
hinum almenna borgara og setur
því þáttinn í nútímalegt form undir
yfírskriftinni lifandi tónlist. Ég veit
t.d. að ég syng sumar aríurnar í
gamalli járnnámu í Aachen með
tilheyrandi reykjarmekki og eldg-
læringum bak við mig. Nessun
Ðorma úr Turandot syng ég í gam-
alli lestarstöð í Ðsseldorf um há-
nótt. í frjálslegri þýðingu merkir
Nessun Dorma Mér er ekki svefn-
samt, og það er óskaplega einkenn-
andi fyrir stemmninguna á lestar-
stöðvum að sitja þar aleinn á óguð-
legum tíma og vera ekki svefn-
samt. Tilgangurinn er auðvitað að
búa til nokkurs konar heillandi
stemmningu sem höfðar til fólks,
ekki ósvipað og í tónlistarmynd-
böndum, og gæti orðið mjög
skemmtilegt. Ég vænti mikils af
þættinum og útgáfunni á geisla-
plötunni, því þá er fyrsta skrefið
stigið að komast inn á þennan
mikla markað og ekki er verra að
vera í för með risanum Sony,“ seg-
ir Kristján. í október heldur Krist-
ján síðan til upptöku á Aidu eftir
Verdi í heild sinni fyrir Naxos-
geislaplötuútgáfuna, sem er ein
stærsta útgáfa sígildrar tónlistar í
heiminum og hefur farið nýjar leið-
ir við upptöku og gerð hljóðritana
sinna sem hefur skilað fyrirtækinu
ótal verðlaunaplötum og margvís-
legum viðurkenningum öðrum.
Einsöngskaflar Aidu verða hljóðrit-
aðir í Lundúnum en kórsöngur með
einsöngsköflum í Dyflinni og telur
kórinn 1.500 manns. Einnig verður
tekið upp og sett á markað mynd-
band af flutningi söngvaranna á
Aidu.
Syngur á dönsku
Plötuupptökum Kristjáns linnir
ekki við þetta, því á næsta ári hljóð-
ritar hann fyrir þýska stórfyrirtæk-
ið Decca. Geislaplatan er gefin út
í tilefni af því að Kaupmannahöfn
er mennningarborg Evrópu 1996.
„Blessaðir Danirnir hafa alltaf ver-
ið í vandræðum með tenóra og leit-
að til íslenskra tenóra eins og Stef-
áns íslandi, Magnúsar frænda míns
Jónssonar og Einars Kristjánsson-
ar. Þeir ætla nú að heiðra Carl
Nilsen, eitt helsta tónskáld þeirra,
með upptöku á óperunni Masqu-
erade. Við munum auk þess troða
upp í Tívolígarðinum 1996 og
syngja óperuna í heild sinni, ásamt
því að fara í tónleikaferð með óper-
una til Vínar, Lundúna, Brussel og
víðar. Ég verð að syngja „pá dansk“
þannig að það er tímabært að finna
kartöflu í næsta garði og tálga
hana til,“ segir Kristján og hlær
dátt.
Kristján mun ennfremur syngja
fimm sýningar á Cavaleria Rustic-
ana í Metropolitan-óperunni í New
York áður en hann kemur aftur til
íslands í nóvember. Eftir sýningar
hér syngur hann síðan í Aidu á
jóladag og fram að þriðja í jólum
í Múnchen en þá kemst hann í lang-
þráð jólafrí „sem ég tek líklega í
snjónum í Ölpunum," segir Krist-
ján.
Mjólkurkaup verslunarinnar Hagkaups af Mj ólkursamlagi Borgfirðinga
INDRIÐI Albertsson, mjólkurbús-
stjóri Mjólkursamlags Borgfírðinga,
segir að mjólkursamlagið sé ekki til-
búið til að flytja mjólk að mörkum
dreifingarsvæðis mjólkursamlagsins
fyrir Hagkaup. Samlagið er heldur
ekki tilbúið til að lækka verð mjólkur-
innar sem nemur dreifingarkostnað-
inum, sem innifalinn er í verði henn-
ar. Fyrir þessari afstöðu segir Indr-
iði liggja margvíslegar ástæður.
„Við getum ekki bara horft á þetta
með tilliti til Hagkaups heldur hvað
gæti gerst ef við tækjum þessi skref
gagnvart öllum öðrum. Smásöluaðil-
ar í Reykjavík skipta hundruðum og
við erum hræddir við afleiðingamar
ef einhver fjöldi fer að fara fram á
að við afhendum við kant á þjónustu-
svæði. Það er á þessum forsendum
sem við fögnum þessum viðskiptum
í rauninni ekki því við erum ekki í
aðstöðu til að þjóna nema broti af
Reykjavíkurmarkaðnum og við látum
okkar heimamarkað ganga fyrir,“
segir Indriði.
Pakkarnir krónu ódýrari
Indriði segir einfalda ástæðu fyrir
því hvers vegna umbúðir á lands-
byggðinni séu ekki eins og á höfuð-
borgarsvæðinu. Mjólkursamsalan í
Reykjavík hafi skipt yfir í pakkana
vegna þess að þær umbúðir séu
krónu ódýrari en fernurnar. Það hafí
þótt nægur rökstuðningur eitt og
sér. Vélamar séu þó aðeins gerðar
fyrir eina stærð af pökkum. Vegna
stærðar markaðarins geti MS verið
með vélasamstæðu fyrir hveija
stærð. Litlu samlögin séu hins vegar
„Er ekki í að-
stöðu til að fagna
viðskiptunum“
STARFSMAÐUR Hagkaups með mjólkurfernu úr Borgarnesi.
með fernurnar vegna þess að áfyll-
ingarvéiamar geti fyllt á allar stærð-
ir, 0,25 lítra umbúðir, 0,5 lítra og 1
lítra. Þau myndu ekki hafa bolmagn
til að vera með margar samstæður.
Indriði segir að mjólkursamlögin
í landinu hafi tekið á sig allar hækk-
anir á umbúðum, verðlagshækkanir,
gengisfellingar og annað í fjögur ár
án þess að fá eyri í aukinn vinnslu-
og dreifingarkostnað. „Það getum
við bara með því að vera svona leiðin-
legir. Mönnum finnst merkilegt að
við skulum vera svona geðvondir en
við viljum einfaldlega sjá hvaða af-
leiðingar hlutimir hafa. Okkur er
ekki illa við Hagkaup og við vildum
gjaman gera öllum til hæfis en það
kostar peninga og við getum ekki
velt kostnaðinum út í mjólkurverðið."
Tekur tíma að útvega umbúðir
Hagkaup leitaði til Mjólkurbús
Flóamanna á Selfossi eftir kaupum
á mjólk í femum. Þar þurftu Hag-
kaupsmenn að snúa við vegna þess
að ekki voru til kassar til að afhenda
mjólkina í. í Borgarnesi var vanda-
málið leyst þannig að mjólkinni var
pakkað í plast og hún afhent á brett-
um. Að sögn Guðmundar Geirs
Gunnarssonar, framleiðslustjóra
MBF, á mjólkurbúið kassa og hjóla-
vagna fyrir sinn heimamarkað og
ekkert umfram það. Það sem Hag-
kaup hafi farið fram á að kaupa sé
svo mikið magn miðað við þær ein-
ingar sem MBF selji á heimamarkaði
að það hefði þurft góðan tíma til að
kaupa umbúðir erlendis frá.
STUTT
Trillum
skýlt í
stórviðri
Ólafsvík. Morgunblaðið.
UPP úr hádegi í gær rauk upp
með sunnan stórviðri á Ólafs-
vj'k og þegar leið á daginn tók
sjórinn á víkinni að ijúka eins
og mjöll.
Nokkrir litlir bátar fóru á
sjó í gærmorgun og fengu
hann grimman. Síðdegis mátti
svo sjá Friðrik Bergmann SH,
Ingibjörgu og fleiri báta skýla
trillunum á bak við sig heim
víkina og inn í hafnarmynnið.
Sannaðist þá sem oftar að ber
er hver að baki nema sér bróð-
ur eigi.
Bensínaf-
greiðsla við
Gylfaflöt
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að úthluta byggingar-
rétti fyrir söluturn og bensín-
afgreiðslu og skilda starfsemi
á 2.500 fermetra lóð nr. 1 við
Gylfaflöt. Úthlutunin er til
sama aðila og hafði árið 1992
fengið úthlutað byggingarrétti
fyrir starfsemina á lóð við
Gagnveg, en borgarráð féll á
sínum tíma frá þeirri sam-
þykkt vegna mótmæla sem
bárust frá íbúum í nágrenninu.
Úthlutun lóðarinnar við
Gylfaflöt er með fyrirvara um
að skipulagsstjórn ríkisins fall-
ist á staðsetningu bensín-
afgreiðslu á lóðinni. Ennfrem-
ur er fyrirvari um að sam-
komulag verði um uppgjör við
lóðarhafa á kostnaði við hönn-
un söluturns, þ.e. gerð bygg-
ingamefndarteikninga, á lóð-
inni við Gagnveg.
Svalbarðasam-
komulagið
Fiskifélagið
vill fund
FISKIFÉLAG íslands hefur
beint þeirri áskorun til stjórn-
valda að komið verði á fundi
aðildarríkja Svalbarðasamn-
ingsins.
Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra segir að bréf með
áskorun Fiskifélagsins hafi
verið kynnt á ríkisstjórnar-
fundi í gær, en hins vegar
hefði ekki verið tekin nein
efnisleg afstaða til þess á
þessu stigi.
Grunnskólaskák
Island varði
titilinn
SKÁKSVEIT Æfíngaskóla
Kennaraháskólans varði
Norðurlandatitil sinn í grunn-
skólaskák í Gausdal í Noregi
um helgina.
íslenska sveitin vann ör-
uggan sigur á mótinu. í sveit-
inni, sem var óbreytt frá, því
í fyrra, voru Arnar E. Gunn-
arsson, Bragi Þorfinnsson,
Björn Þorfinnsson, Oddur
Ingimarsson og Davíð Ó. Ingi-
marsson. Fararstjóri og fyrir-
liði var Ólafur H. Ólafsson.