Morgunblaðið - 21.09.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 7
I
I
I
)
í
>
>
>
I
I
:>
I
I
V
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
BISKUP og sendiráðsprestur takast í hendur eftir að sá fyrr-
nefndi'hafði verið settur í embætti í norsku sjómannakirkjunni
í Gautaborg. Fjölmenni var við messuna.
Jón Dalbú í embætti
sendiráðsprests
HR. Ólafur Skúlason, biskup ís-
lands, setti séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson í embætti sendiráðsprests
í Ósló og Gautaborg á sunnudag.
Jón Dalbú sinnir barna- og ung-
lingastarfi, almennum^ guðsþjón-
ustum og þjónustu við íslendinga í
borgunum tveimur og nágrenni
þeirra. Jafnframt sinnir hann ís-
lenskum sjúklingum á Sahlgrenska-
sjúkrahúsinu í Gautaborg.
Biskup hélt utan fyrir helgi og
messaði í Ósló áður en hann setti
Jón Dalbú í embætti í norsku sjó-
mannakirkjunni í Gautaborg. Mikil
kirkjusókn var á báðum stöðum og
lásu sendiherrarnir, Eiður Guðna-
son í Ósló og Sigríður Snævarr í
Gautaborg, ritningargreinar. Fylgdi
biskup hinum nýja sendiráðspresti
í barnaguðþjónustu og í heimsókn
til Ásdísar Stefánsdóttur, lungna-
og hjartaþega, á Sahlgrenska-
sjúkrahúsinu. Biskup sagði að hún
væri að ná sér og eiginmaður henn-
ar dveldi hjá henni öllum stundum.
Séra Jón Dalbú er þriðji prestur-
inn til að gegna embætti sendiráðs-
prests. Hinir eru í Kaupmannahöfn
og London.
Stöðvum unglingadrykkju
Askorun um aðgerðir
send til sveitarfélaga
ÁTAKIÐ Stöðvum unglingadrykkju
hefur sent öllum sýslumönnum og
sveitarstjórnum landsins áskorun
um aðgerðir vegna útivistartíma
barna 16 ára og yngri.
í lögum um vernd barna og ung-
linga segir að börn 12 ára og yngri
megi ekki vera á almannafæri eftir
klukkan 20 nema í fylgd með full-
orðnum. Börn sem eru á aldrinum
13-16 ára skulu að sama skapi ekki
vera á almannafæri eftir klukkan
22 enda séu þau ekki á heimferð
frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða
æskulýðssamkomu. Þetta gildir um
timann frá 1. september til 1. maí.
Á sumrin lengist útivistartíminn um
tvær klukkustundir.
Átakið Stöðvum unglingadrykkju
varar eindregið við því að reynt
verði að rýmka þessar reglur með
undanþágum fyrir suma aldurshópa.
Tilraunir til slíkra frávika hafi
reynst illa og drykkja meðal ungl-
inga hafi verið talsverð þar sem þau
hafa safnast saman á götum úti
eftir að útvistartíma lýkur, sérstak-
lega um helgar.
Andlát
GISSUR Pálsson ljósa-
meistari lést í Borgar-
spítalanum sl. laugar-
dag á 85. aldursári.
Gissur fæddist í
Þykkvabæ í Landbroti
í Vestur-Skaftafells-
sýslu 13. desember
1909, sonur hjónanna
Páls Sigurðssonar og
Margrétar Elíasdóttur.
Hann fluttist til Reykja-
víkur árið 1927 og hóf
rafvirkjanám hjá Eiríki
Ormssyni. Hann lauk
sveinsprófi í rafvéla-
virkjun árið 1932, fyrst-
ur Islendinga, og hóf eigin atvinnu-
rekstur 1933 í samvinnu við tvo fé-
laga sína. Fyrirtækið var umsvifam-
ikið í rafvæðingu landsins og annað-
ist rafvæðingu heilu þorpanna.
Gissur gekk ungur í góðtemplara-
regluna og starfaði þar einkum að
barna- og unglingamálum. Starf
hans að bindindis- og
félagsmálum var mikið
og var hann þeirra
vegna heiðursfélagi
Umdæmisstúkunnar,
Stórstúkunnar og
Bindindisfélags öku-
manna. Fyrir störf sín
að félagsmálum var
Gissur sæmdur ridd-
arakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu.
Gissur varð ljósam-
eistari hjá Leikfélagi
Reykjavíkur 1949 og
hafði þann starfa í 40
ár. Hann var heiðursfé-
lagi Leikfélagsins.
Gissur var kvæntur Sigþrúði Pét-
ursdóttur, sem lést árið 1977. Þau
áttu tvær dætur, Bryndísi, sem dó
ung, og Sigrúnu, gifta Sigurði Jörg-
enssyni. Hann ól einnig upp tvö
stjúpbörn og systurdóttur sína, sem
ung missti foreldra sína.
GISSUR PALSSON
NISSAN MlCRA
Stóri smábíllinn
Nissan Micra
fimm dyra
Inní harðri
skelinni
þarf öllum
að líða vel og
örugglega
• Hiti í sætum
• Vökva- og veltistýri
• Nissan Micra er mjög
rúmgóð og björt
• Stálöryggisbitar eru í
öllum kurðum
• Sérstök styrking í þaki
og hliðarbitum
• Diskabremsur að framan
• Skálabremsur að aftan
• Tvívirkur hleðsluskynjari
( Load sensing Value )
tryggir jafna bremsun
Micra er hönnuð með
öryggispakka sem
nser til flestra hluta og
setur um leið ný
viðmiðunarmörk í
bílum af þessum
stærðarflokki.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sfmi 91-674000
f þau sem lesa smá letrið, hafa vaðið fyrir neðan sig og eru alltaf örugglega spennt....» bilum.