Morgunblaðið - 21.09.1994, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 13
VIÐSKIPTI
Swissair
færaukna
samkeppni
ZUrich. Reuter.
SVISSNESKA flugfélagið Swissa-
ir kann að lenda í aukinni sam-
keppni á heimamarkaði ef stjórn-
völd láta verða af því að auka frelsi
í flugsamgöngum innanlands. Er
nú til athugunar í samgönguráðu-
neytinu hvort flugfélaginu TEA
basel verður heimilað leiguflug
milli Genfar og Zúrich.
Verði leyfið veitt táknar það
upphafið að endalokum þeirrar
einokunar, sem Swissair hefur
haft á svissneska heimamarkaðin-
um, og er um leið orðsending til
Evrópusambandsins um að aflétt
verði markaðshömlum í Sviss.
Raunar hafa Iítil flugfélög áður
fengið leyfi til leiguflugs en þetta
er í fyrsta sinn, sem sótt er um
það á mikilvægri flugieið.
Forráðamenn Swissair ætla að
taka aukná samkeppni mjög alvar-
lega og hafa skipað vinnuhóp til
að ræða nýtt dótturfélag, sem á
bjóða upp á ódýrar en lúxuslausar
ferðir milli Genfar og Zúrich. Sum-
ir telja þó líklegar, að brugðist
verði við með ferjuflugi á vegum
Crossair, dótturfélagi Swissair í
héraðinu, en það býður nú þegar
upp á ódýrar ferðir.
-----» ♦■■■4---
Færri
Finnar án
atvinnu
Helsinki. Reuter.
FÆRRI voru atvinnulausir í Finn-
landi í ágúst en í sama mánuði í
fyrra og slík fækkun hefur ekki
átt sér stað í fjögur ár.
í ágúst voru 483,731 atvinnu-
lausir miðað við 490,804 i sama
mánuði 1993.
Atvinnulausum fækkaði í 19.1
í ágúst miðað við 20.1% í júlí.
Dregið hefur úr atvinnuleysi, þar
sem ungt fólk snýr sér aftur að
námi að loknu sumarleyfi og upp-
sögnum hefur fækkar.
I lok síðasta áratugar var innan
við 4% atvinnuleysi í Finnlandi.
Atvinnuleysi jókst 1991, þar sem
Finnar misstu markaði sína í
Sovétríkjunum fyrrverandi og lítill
markaður var fyrir fyrir timbur og
vélar á Vesturlöndum.
SEIKOSHA
SpeedJET20Q
Bleksprautu-
prentari
25,900
SKIPHOLTI 17 • 105 REVKJAVlK _______,____
SlMI: 91-627333 • FAX: 91-628622 Cll_.1__J
Morgunblaðið/Silli
BANKARÁÐ og forystumenn bankans í heimsókn sinni til Húsavíkur.
Seðlabankafund-
ur á Húsavík
Húsavík - Seðlabanki íslands hefur undan-
farin ár haldið einhvern funda sinna úti á
landsbyggðinni til að kynna sér betur at-
vinnuhætti og ástand hinna ýmsu staða.
Þetta árið hélt bankaráð fund sinn á Húsa-
vík með bankastjórum og frammámönnum
bankans, enda er formaður bankaráðs nú,
Þröstur Ólafsson, fæddur og uppalinn á
Húsavík.
Eftir venjulega fundarsetu heimsóttu
gestirnir nokkur stærstu fyrirtækin á Húsa-
vík og Safnahúsið en því færðu þeir gjöf,
eitt eintak allra seðla sem út hafa verið
gefnir af Seðlabanka íslands.
Áður en þeir kvöddu héraðið heimsóttu
þeir Mývatnssveit og fyrirtæki þar og óku
um héraðið í hinu fegursta haustveðri.
Námskeið um fjármál
heimilisins
„Eftir jjármálanámskeiðiðgengur mér miklu betur með heimilis-
bókhaldið og ég veit nákvamlega í hvaðpeningarnir fara!“
Helga Birgisdóttir húsmóðir og Ijósmóðir
Hvert námskeið er tvö kvöld og fer kennslan fram í Búnaðar-
bankanum Austurstræti (gengið inn Hafnarstrætismegin) frá
kl. 19:30 til 22:30.
Námskeiðið kostar 2.500 kr. en félagar í Heimilislínunni
greiða 1.900 kr.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er vegleg handbók um fjármál
heimilanna, bókhaldsmappa og veitingar.
Upplýsingar og skráning er í síma (91) 603 203 (markaðsdeild).
Hvað kostar að eiga bíl?
Hvað kostar að reykja?
Hvernig má spara?
Hvar fást hagstæðustu lánin?
Hvaða ávöxtunarleiðir eru bestar?
Lánamöguleikar
Áætlanagerð
Heimilisbókhald
Heimilisrekstur
Bætur vegna húsnæðiskaupa
Borga ég ofmikið í skatta?
HEIMILISLINAN
Tryggingabætur o.fl. _ Einfaldar ftármálin
Námskeið fyrir
12 til 15 ára unglinga
Námskeiðin hefjast kl. 15:30 og standa yfir í tvo tíma.
Þau fara fram í Búnaðarbankanum Austurstræti 5
(aðalbanka), 3. hæð. Innritun og nánari upplýsingar fást í
síma 603267 (fræðsludeild).
Hægt er að panta
tíma fyrir nemendahópa.
Þátttakendur fá fjármála-
handbók og viðurkenn-
ingarskjal.
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA
UNGLINGA
Boðið er upp
á veitingar
og bankinn
skoðaður.
Námskeiðin eru
ókeypis og opin
öllum unglingum
á aldrinum 12-15 ára.
Næstu námskeið
Fjármál heimilisins: i
# Mánud. 26. september og miðvikud. 28. september
# Mánud. 10. október og miðvikud. 12. október
Námskeið fyrir unglinga 12-15 ára: I
I # Þriðjud. 27. september
# Miðvikud. 28. september |
j • Miðvikud. 5. október I
1 Námskeið utan Reykjavíkur verða auglýst síðar. \
BIJNAÐARBANKINN
- Tmustur banki
HVÍTA HLJSIO / SÍA