Morgunblaðið - 21.09.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 21
AÐSEIMDAR GREINAR
Fræbanki Landgræðslusjóðs
Hvers slags banki er það?
Sigurður Blöndal
í TILEFNI af fimm-
tíu ára afmæli lýðveld-
isins og Landgræðslu-
sjóðs hefur ungt tón-
listarfólk hrundið af
stað hvatningarátaki
um stofnun fræbanka
Landgræðslusjóðs.
Jóhann G. Jóhanns-
son tónlistarmaður
hefur ort hvatningar-
ljóð um að yrkja ísland
að nýju og samið við
það lag, sem sungið er
af tuttugu meðal vin-
sælustu söngvara þjóð-
arinnar, m.a. Kristjáni
Jóhannssyni, Diddú,
Bubba og KK. Þessi söngur er
kominn út á hljómdiski og ágóðinn
af honum og öðrum fjáröflunar-
leiðum, líka myndbandi af söngn-
um, á að renna til að stofna þenn-
an fræbanka.
Hvers slags banki er nú það?
kunna menn að spyija, Fræ-
banki Landgræðslusjóðs er
kannski ekki „banki“ í venjulegum
skilningi, heldur öllu fremur sjóð-
ur, sem á að geta tryggt nægar
birgðir af trjáfræi í landinu. Nauð-
syn þessa er rakin hér á eftir.
Til er svo í vistfræðilegum skiln-
ingi orðið fræbanki, sem þá merk-
fr það magn af fræi, sem til er í
efstu lögum skógaijarðvegs og
getur spírað, þegar náttúran býður
aðstæður til þess, t.d. eftir skógar-
eld. Þessi banki náttúrunnar getur
geymt fræ sumra tegunda mjög
lengi.
Hvers vegna þurfum við
fræsjóð eða fræbanka?
Skógrækt á Islandi er í aðalat-
riðum stunduð með því að gróður-
setja trjáplöntur, sem vaxnar eru
upp af fræi, eða sá fræi beint í
útjörð.
Fræið er sótt í
• íslensk skóglendi af innlendum
og innfluttum tijátegundum, eða
• skóga á norðurslóðum eða í
háíjöllum suðlægari landa.
I þessum skóglendum - á ís-
landi og erlendis - eru „fræár“
ekki reglubundin, heldur líða iðu-
lega mörg ár á milli þeirra, jafn-
vel einn eða fleiri áratugir. Því
þarf að afla birgða fyrir íslenska
skógrækt á einu góðu „fræári"
sem geta enst í mörg ár.
Rannsóknarstöð Skógræktar
ríkisins á Mógilsá sem hefur séð
um öflun tijáfræs getur ekki keypt
miklar birgðir í einu til að liggja
með óseldar. Til þess hefir hún
ekki fjármagn. Hún fær einungis
reglulegar fjárveiting-
ar, sem miðaðar eru
við verkefni og rekstur
eins árs í senn. Oft
hefur stöðin þó orðið
að kaupa meira fræ-
magn af ýmsum tijá-
tegundum en hún hef-
ur raunverulega haft
bolmagn til að hefir þá
átt í erfiðleikum með
greiðslu. Þetta er ákaf-
lega slæm aðstaða,
sem hvenær sem er
getur kostað, að ekki
takist að ná í dýrmætt
fræ. Þar hefur raun-
verulega oft skollið
hurð nærri hælum.
Gróðrarstöðvarnar eiga engan
kost á „afurðalánum“ svo að þær
eru illa í stakk búnar til að kaupa
fræbirgðir til margra ára. Því er
nauðsyn á „fræbanka“, sem hefir
fjármuni til að kaupa mikið fræ-
magn eitt ár, sem íslensk skóg-
rækt þarfnast, þegar það býðst
einhvers staðar, og getur legið
með birgðir.
Arleg frækaup 7 millj. kr.
Skógræktin á íslandi notar um
þessar myndir árlega fræ, sem
kostar um 7 millj. kr. Þannig er
augljóst, að „bankinn“ þarf að
vera öflugur, ef hann á að koma
að góðu gagni, höfuðstóll þyrfti
að vera nokkrir tugir milljóna.
Tuttugu til þijátíu milljónir gætu
verið góð hjálp, svo að tölur séu
nefndar til viðmiðunar. Stofnun
fræbanka Landgræðslusjóðs er
þannig gríðarlegt hagsmunamál
íslenskrar skógræktar.
Hugsanleg tilhögun
Eg varpa hér fram hugmynd
um hugsanlega tilhögun „fræ-
banka“, en um það verður auðvit-
að fjallað af ábyrgum aðiljum í
skógræktinni.
Það má hugsá sér tvenns konar
tilhögun á innkaupum og dreifmgu
tijáfræs til skógræktar á Islandi:
• „Bankinn" sé sjálfstæður með
„bankastjóra" kannski í hálfu
starfi, sem hafi faglega þekkingu
til að annast þetta hvort tveggja,
og hafi þá á bak við sig einhvers
konar fagnefnd til þess einkum
að ákveða, hvar skuli leitað fanga.
• Rannsóknarstöð Skógræktar
ríkisins annist innkaup og dreif-
ingu, en fái nauðsynlegt fjármagn
að láni hjá „bankanum" til inn-
kaupa, en annist síðan dreifingu
fræs, og endurgreiði síðan
bankanum andvirði árlegrar sölu.
Hver þessara leiða, sem væri
Skógræktin notar fræ
fyrir um 7 m.kr. ár
hvert, segir Sigurður
Blöndal, svo augljóst
er að fræbankinn þarf
a,ð vera öflugur.
valin, er það „bankinn“, sem kost-
ar birðgahaldið. Það má líta á hlut-
verk hans sem eins konar „afurðal-
ánabanka“ sem gróðrarstöðvarnar
hafa ekki átt aðgang að hingað til.
Fagleg ábyrgð
Rannsóknarstöðin hlýtur að
vera sá einstaki aðili, sem öðrum
fremur á að bera ábyrgð á því,
hvaða tijáfræ er notað í skógrækt
í stórum stíl á íslandi. Þar er til
staðar þekking og reynsla um tijá-
tegundir og kvæmi, sem notast
geta við íslenskar aðstæður. En
hún hefir að sjálfsögðu samráð við
ýmsa aðilja hjá Skógrækt ríkisins
og einstök skógræktarfélög, hvað
af þessu hentar á hveijum stað.
Þetta útilokar hins vegar ekki, að
einstakir ræktendur geti prófað
ýmislegt í smærri stíl á eigin spýt-
ur, eins og löngum hefir gerst.
íslensk dæmi um þörf
á söfnunarátaki
Á þessu sumri er ákaflega gott
fræár á sitkagreni á Suður- og
Suðvesturlandi. Bara á Tumastöð-
um í Fljótshlíð er áætlað, að kosti
nokkur hundruð þúsund kr. að
safna því sitkagrenifræi, sem þar
fellur í haust. Fræið lítur út fyrir
að vera vel þroskað eftir hið hlýja
og sólríka sumar. Nú þarf að grípa
þessa gæs, áður en hún flýgur,
því að mörg ár munu líða, þar til
annað eins fræár verður hér.
Annað dæmi skal ég nefna:
Fyrir átta árum var svo mikið fræ
á birki í Hallormsstaðarskógi, að
hann var brúnn yfir að líta í októ-
ber eftir lauffall. Þá voru engin
efni til að safna verulegu fræ-
magni. Ef öflugur fræbanki hefði
þá verið til, hefði verið hægt að
safna óhemjumiklu fræi. Með nú-
verandi þekkingu og reynslu hefði
verið hægt að nota það í land-
græðsluskógrækt. Síðan hefír ekki
komið „fræár“ í Hallormsstaðar-
skógi.
Erlend dæmi um hverfulleik
fræfalls
í aldarfjórðung hefur fræ af
rússalerki fengist úr frægörðum á
Norðurlöndum, einkum Finnlandi
og Svíþjóð, nema 50 kg sem tókst
að fá safnað í Arkangelskhéraði í
Rússlandi 1990. Síðan hefirekkert
fræ fengist þaðan. Síðasta áratug
hefur mest af rússalerkifræi feng-
ist úr frægarðinum Imatra í Aust-
ur-Finnlandi. Nú erú birgðir þrotn-
ar þar og ekkert fræfall í vændum
næsta ár. Enginn veit, hvenær það
verður næst. En allt í einu geta
komið góð „fræár“ og þá væri
gott að eiga gildan frækaupasjóð.
Þetta eru tvö lítil dæmi af mörg-
um um hverfulleik fræfalls.
Heiður sé tónlistarfólkinu
og liðsmönnum þess
Hið unga tóniistarfólk, sem boð-
ið hefir Landgræðslusjóði liðveislu
í þessu stórmáli, á heiður skilinn.
Ennfremur Jóhann G. Jóhannsson,
hinir 20 söngvarar, Stöð 2, Bylgj-
an, Skífan o.fl., sem styðja hvatn-
ingarátakið, og loks þeir góðu
stjórnmálamenn og aðrir kunnir
íslendingar, sem mælt hafa hvatn-
ingarorð í sjónvarpsauglýsingu um
að styrkja stofnun „bankans".
Næsti leikur er hjá íslensku
þjóðinni að svara ákalli þessa
fólks.
fíöfundur er fyrrv.
skógræktarstjóri.
Okkarframtíð
Málefnaþing Sambands ungra sjálfstæðismanna í
Menntaskólanum í Kópavogi dagana 24. og 25. september 1994.
-----------Dagþkrá:_________
Laugardngur 24. septcmbcr Sunnudagur 25. septembcr
09:00 10:00
Innritun þingfulltnia Umræður í hátíðarsal Menntaskólans
10:00 Sctning, Guðlaugur Þór Þórðarson í Kópavogi um niðurstöður málefna- nefnda.
formaður SUS setur þingið. 12:00
10:10 Gunnar Birgisson, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi og formaður Hádegisverður í hátíðarsal Mennta- skólans í Kópavogi. Asparssúþaogbrauð
bæjarráðs Kópavogskaupstaðar, 13:00
ávaipar þinggesti. Umiæður um niðurstöður málefnanefnda.
10:20 Ásta Þórarinsdóttir, formaður kjördæmis- 14:00
samtaka ungra sjálfstæðismanna á Ávarp formans Sjálfstasðisflokksins,
Reykjanesi, ávarpar þinggesti. Davíðs Oddssonar forsætísráðherra.
10:30 | 14:15
Innritun þingfulltrúa framhaldið Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sitjafyrirsvörum.
11:00 Málefnanefndir starfa. 15:45 Umiæður í hátíðarsal Menntaskólans
12:30 Hádegisverður í hátíðarsal Menntaskólans í Kópavogi um niðurstöður málefnanefnda.
í Kópavogi. 17:00 Þingslit, Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður
13:30 Sambands ungra sjálfstæðismanna
Málefnanefndirstarfa. 1 slítur þinginu.
16:00 Skoðunarferð
18:30 Léttar veitingar. Ráðslcfnugjald kr. 900 Ráðstefnustjórí: Cunnnr Jóhann Birgisson borgarfulltrúi
20:00 Hátíðarkvöldverður. Heiðursgestur ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra. Vfeislustjóri Ámi Mathiesen.
NYJA BILAHOLUN FUNAHOFÐA I S:
Toyota Corolla XL árg. ‘91,
ek. 36 þús. km., 5 dyra, sjálfsk.,
Verð kr. 840.000 stgr. Bein sala.
BMW 524 Turbo dlesel árg. '84, ek. 260
þús. km., sjálfsk., álfelgur, góöur í leigu-
akstur. Verð kr. 590.000 stgr. Ath, skipti.
Toyota Hiace 2WD árg. ‘92, ek. 120
þús. km., grár. Verö kr. 1.590.000 stgr.
Ath. skipti.
Ford Econoline 250 V6 EFI árg. '88, vín-
rauður, 36" dekk, álfelgur, innréttaöur.
Verð kr. 2.750.000 stgr. Ath. skipti.
BILATORG
FUNAHOFÐA T
Mazda 626 2000 GLX árg. ‘91,
grásans., sjálfsk., álfelgur, ek.
58 þús. km.Verökr. 1.230.000.
blásans., ek. 52 þús. km.
Verö kr. 1.350.000. Skipti á ódýrari.
Nissan Pathfinder XE árg. ‘89,
blásans. og silfur, 31" dekk, sóllúga,
krómfelgur. Verð kr. 1.480.000.
Skipti — skuldabréf.
AMC Cherokee Laredo 4.0 árg. ‘88, ek.
135 þús., dökkblár, álfelgur. Verö kr.
1.490.000 stgr. Ath. skipti.
Nissan Micra LX árg. ‘91, hvítur,
ek. 63 þús. km. Verð kr. 540.000.
Nissan Sunny GTi árg. ‘92, svartur,
sóll úga, álfelgur, ABS, ek. 56 þús. km.
Verökr. 1.250.000.
VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN - GOÐ SALA