Morgunblaðið - 21.09.1994, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.09.1994, Qupperneq 25
24 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Áryakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. ÓVISSA, EKKIÖRYGGI SÆNSKI Jafnaðarmannaflokkurinn er óumdeilanlegur sigur- vegari þingkosninganna í Svíþjóð á sunnudag. Flokkurinn fékk rúm 45 prósent atkvæða og bætti þar með við sig um sjö prósentustigum miðað við síðustu kosningar. Þetta er áþekk fylgisaukning hjá jafnaðarmönnum og haustið 1982 er stjórn borgaralegu flokkanna, sem verið hafði við völd í Sví- þjóð frá 1976, missti meirihluta sinn í kosningum. Það ber þó að hafa hugfast að í síðustu kosningum fyrir þrem- ur árum biðu jafnaðarmenn einhvern mesta kosningaósigur sinn í sögunni. Var það í fyrsta skipti frá árinu 1928 að flokkurinn náði ekki 40% atkvæða Lkosningum. Það sem hefur gerst nú er að jafnaðarmenn hafa endurheimt fyrra fylgi sitt en á árunum 1970-1988 voru þeir jafnan með 42,7-45,6% atkvæða. Tveir aðrir vinstriflokkar, Græningjar og Vinstriflokkurinn, bættu einnig við sig nokkru fylgi. Allir borgaralegu flokkarnir, að Hægriflokknum undanskildum, tapa hins vegar fylgi. Raunar er mjög athyglisvert að flokkur Carls Bildts forsætisráðherra bætir við sig fylgi. Þetta er í fyrsta skipti í marga áratugi sem flokkur forsætisráðherrans bætir við sig fylgi í kosningum og náði hann þó bestu kosningu sinni í 60 ár 1991. Kosningaúrslitin í Svíþjóð endurspegla öðru fremur tvennt. í fyrsta lagi hið erfiða efnahagsástand í landinu undanfarin ár sem bitnar á vinsældum stjórnarflokkanna. í öðru lagi þrá kjós- enda eftir að endurheimta það efnahagslega öryggi sem einu sinni var einkennandi fyrir Svíþjóð en Jafnaðarmannaflokkurinn er í augum margra Svía ímynd þess. í ljósi þess hvernig mál hafa þróast í Svíþjóð undanfarinn áratug er þó harla ólíklegt að þeim verði að þeirri ósk sinni. Menn verðá ekki síst að hafa í huga ástæður hins mikla kosn- ingaósigurs jafnaðarmanna árið 1991. Þjóðarframleiðsla Svíþjóð- ar hafði dregist verulega saman og atvinnuleysi stóraukist. Ljóst var að velferðarkerfið var orðið sænsku efnahagslífi ofviða. Þessi kerfisvandi var þegar farinn að gera vart við sig árið 1981 þegar hagvöxtur var enginn í Svíþjóð. í stað þess að grípa til nauðsynlegra aðgerða skaut hins vegar ríkisstjórn jafnaðar- manna, sem tók við árið 1982, vandanum á frest. Tvær stórar gengisfellingar 1982 og almennt góðæri á Vesturlöndum gerði það að verkum að þeir komust upp með það. Þegar hinu alþjóð- lega góðæri lauk kom vandinn upp á yfirborðið á ný og hagvöxt- ur var neikvæður 1990. Minnihlutastjórn jafnaðarmanna réð ekki við þann vanda. Bæði vegna þess að hún varð að reiða sig á stuðning Græningja og fyrrverandi kommúnista á þinginu og vegna hugmyndafræðilegs ágreinings innan flokksins sjálfs. Undir forystu hins virta fjármálaráðherra Kjells Olofs Feldts voru þó (með stuðningi Þjóðarflokksins) tekin fyrstu skrefin í átt til kerfisbreytingar er tekjuskattar voru lækkaðir en neyslu- skattar hækkaðir til að hvetja til aukinnar vinnu. Þegar Feldt lagði fram neyðaráætlun í þinginu veturinn 1990 náðist hins vegar ekki um hana samkomulag meðal stjórnarþing- manna og hann sagði af sér embætti. Þannig var umhorfs í sænsku efnahagslífi við síðustu stjórnar- skipti. Sumarið 1992 fór aftur að hrikta í efnahagskerfinu og um haustið neyddist stjórnin til að leita eftir samstarfi við stjórn- arandstöðuna um víðtækar neyðaraðgerðir. Þær reyndust hins vegar ekki duga til og í nóvembermánuði sama ár neyddist sænski seðlabankinn til að rjúfa tengingu krónunnar við evrópsku myn- teininguna ECU og láta hana fljóta á mörkuðum. I kjölfarið lækkaði gengi krónunnar verulega sem létt hefur sænskum út- flutningsfyrirtækjum róðurinn og fjölgað störfum. Svíar berjast aftur á móti enn við gífurlegar opinberar skuld- ir, hlutfallslega einhverjar þær mestu á Vesturlöndum. Á næsta fjárlagaári er ráðgert að sænska ríkið taki um 200 milljarða sænskra króna að láni! Svíar eru við að missa öll tök á opinber- um útgjöldum þrátt fyrir hvern sparnaðarpakkann á fætur öðr- um. Ekki vegna fjárfestinga heldur félagslegrar neyslu. í þessu ljósi er erfitt að sjá hvaða svigrúm jafnaðarmenn hafa til að „endurreisa“ sænska velferðarkerfið. Ef jafnaðarmenn ætla að tryggja framtíðarvelmegun í Svíþjóð verða þeir, rétt eins og stjórn Bildts, að skera niður velferðarkerfið. Það er ekk- ert svigrúm til að auka ríkisútgjöld í Svíþjóð og skattahækkanir myndu einungis leiða til fjármagnsflótta og aukins atvinnuleysis. Ef Svíar gerast aðilar að Evrópusambandinu um næstu ára- mót, líkt og flest bendir til, verða þeir einnig að aðlaga ríkisQár- mál sín þeim þrönga ramma, sem Maastricht-sáttmálinn mark- ar. Að auki verður minnihlutastjórn Carlssons, rétt eins og 1988, að reiða sig á stuðning Græningja og Vinstriflokksins, mestu afturhaldsaflanna í sænskum stjórnmálum. Það er ekki öfunds- vert hlutskipti líkt og hann kynntist siðar þegar hann var í stjórn. Að aúki hefur sá hugmyndafræðilegi ágreiningur, sem gerði flokkinn allt að því óstarfhæfan þá, magnast, ef eitthvað er. Svíar töldu sig kjósa öryggið um helgina en liklega steyptu þeir sér út í óvissuna. VEITINGAHÚS í REYKJAVÍK Reykjavíkur- höfn \ ' Vib Laugaveg eru 20 vín- veitingahús QQ QQ QQ Q/Q QQ QQ QQ Q Q Q QQ Q Q'Q QQ QQQQ Q}Q: Q■ Q| r,, -Q Q Q Q Q Q QQ-QQQQQQQ Vín- veitingahús í miðborg Reykjavíkur Yínveitingastöðum fjölgar stöðugt Vínveitingastöðum í Reykjavík hefur fjölgað gífur- lega undanfarin ár og eru þeir nú orðnir hátt í 140 talsins. Leyfilegurgestafjöldi ávínveitingastöðum í Reykjavík er nú tæplega 25 þúsund manns. For- maður Sambands veitinga- og gistihúsa segir í sam- tali við Hall Þorsteinsson að hann telji þörf á að endurskoða hvernig staðið er að úthlutun vínveit- ingaleyfa til þessara staða. AF INNLENDUM VETTVANGI Vínveitingastöðum í Reykjavík hefur fjölgað gífuríega frá því bjór- banninu var aflétt árið 1989, en fram að þeim tíma voru vínveitingahús í borginni nánast teljandi á fingrum annarrar hand- ar. Samkvæmt upplýsingum lög- reglustjóraembættisins í Reykjavík voru veitingahús með vínveitinga- leyfi hins vegar orðin 133 talsins um síðustu mánaðamót og hjá emb- ættinu voru þá fyrirliggjandi um- sóknir um vínveitingaleyfi á sex nýjum stöðum til viðbótar. Það sem af er árinu hafa verið veitt 9 ný vínveitingaleyfi og í fyrra voru veitt 13 leyfi. Leyfilegur gestafjöldi á vínveitingastöðum í Reykjavík er er nú tæplega 25 þúsund manns, þannig að vel ríflega þriðjunginn af borgarbúum á aldrinum 18-65 ára þarf til að fýlla alla staðina. Margir vínveitingastaðanna skipta oft um eigendur og gjaldþrot þeirra eru ekki óalgeng og telur Wilhelm Wessman, formaður Sambands veitinga- og gistihúsa, að m.a. af þessum sökum sé kominn tími til þess að endurskoða hvernig staðið er að úthlutun vínveitingaleyfa hér- lendis. Hvað gestafjöldann varðar skipt- ast vínveitingastaðimir í borginni þannig að á matsölustöðum, sem leyfilegt er að hafa opna til kl. 23.30 á virkum dögum og til kl. 1 eða 2 eftir miðnætti um helgar, er leyfílegur gestafjöldi samtals tæp- lega 6.600 manns. Á skemmtistöð- um, sem mega hafa opið til kl. 1 eftir miðnætti virka daga og til kl. 3 um helgar, er leyfilegur gesta- fjöldi um 12.300 manns, og á gisti- og veitingahúsum er leyfilegur fjöldi gesta tæplega 5.800 manns. Langflestir vínveitingastaðirnir eru í miðborg Reykjavíkur, eða tæplega 70 staðir, og á Laugaveginum ein- um eru 20 vínveitingastaðir. Gert út á skatta og skyldur Wilhelm Wessman segir að það hafi frá upphafi verið stefna Sam- bands veitinga- og gistihúsa að beijast fyrir fijálsræði í veitinga- rekstri, en honum fyndist hins veg- ar vera kominn tími til þess að endurskoða hvernig staðið er að úthlutun vínveitingaleyfa. Wilhelm hefur í áratug setið í stjórn Norræna hótel- og veitinga- sambandsins og hefur því kynnst vel þróun þessara mála annarsstað- ar á Norðurlöndum. Þannig hefðu Danir verið að endurskipuleggja áfengislöggjöf sína verulega og þar væri nú erfiðara að fá leyfi til rekst- urs vínveitingastaða, en hins vegar auðveldara fyrir viðkomandi að halda leyfínu. Hann sagði Dani hafa staðið frammi fyrir því að ákveðnir veitingamenn hefðu gert út á skatta og skyldur með því að standa í skilum við birgja, en láta svo staðina fara í þrot án þess að greiða tilskiiin gjöld til hins opin- bera og opna svo nýjan stað og endurtaka leikinn. Sagði Wilhelm að hér á landi stæðu menn nú frammi fyrir svipuðu. Ekki hægt að nota leppalengur „Með nýju áfengislöggjöfinni sem samþykkt var í Danmörku í vor sem leið er þessum mönnum gert erfíðara fyrir og til dæmis ganga leppar og því um líkt í sam- bandi við vínveitingaleyfí raunveru- lega ekki upp hjá þeim í dag. Þótt það sé ekki yfírlýst stefna Sam- bands veitinga- og gistihúsa þá lít ég persónulega svo á að við eigum að fara einhveija svipaða leið og Danir hafa farið í þessu. Það er þá ekki raunverulega verið að klippa á fijálsræðið, en hins vegar verða menn að hafa verið í löglegum rekstri til að geta fengið leyfi áfram. Nú er ég ekki að kveða upp þann dóm að þetta sé allt í þessa veru hér, en hins vegar hefur ekki verið gerð nein úttekt á því. Þessi tíðu gjaldþrot segja þó sína sögu í þessu og maður veit stundum ekk- ert hver á suma þessa staði. í stétt- inni er svo auðvitað alltaf mjög fastur kjarni sem hefur staðið í góðum rekstri alla tíð. Þau vínveit- ingahús eru innan okkar raða og taka þátt í hagsmunagæslu hótel- og veitingamanna. Pappírsfyrir- tækin vilja hins vegar ekkert vera inni hjá okkur og þau virða í mörg- um tilfellum hvorki rétt starfsfólks né nokkuð annað. Ég tel því ekkert óeðlilegt að þetta verði skoðað út frá svipuðum forsendum og Danir hafa gert með því að gera þeim aðilum sem vilja fara inn á þessum nótum erfíðara fyrir, en ég er þó alls ekki hlynntur því að það eigi að fara að setja á okkur höft og bönn aftur,“ sagði Wilhelm. Hörð samkeppni Hann sagði að sagan sýndi að rekstur alls þess fjölda vínveitinga- staða sem í borginni er gæti ekki borgað sig og vegna harðrar sam- keppni gengju sumir staðirnir enda- laust kaupum og sölum. Þá réðu tískusveiflur miklu og staðir sem notið hefðu vinsælda mánuðum og jafnvel árum saman stæðu allt í einu tómir. Þá sagði hann sam- keppnina einnig hafa leitt til þess að veitingamenn væru að bjóða mat á verði sem oft á tíðum væri langt undir því sem hægt væri að selja matinn á miðað við hráefnihráefnis- verð og skatta sem þyrfti að greiða. Aðspurður um hvort veitingamenn hefðu unnið þetta upp með því að hafa áfengisverðið óeðlilega hátt sagði hann svo kannski vera að einhveiju leyti, en samkeppnin hefði líka leitt til þess að t.d. verð á bjór væri farið að lækka verulega. „Ég er alveg sammála því að bjórverðið var allt of hátt. Á sumum þessum stöðum hefur hins vegar orðið veruleg lækkun á bjórverði og hálfur lítri sem var kannski kom- inn í 550 krónur er jafnvel seldur undir 300 krónum núna. Bjórinn fer því eins og allt annað inn í þessa hörðu samkeppni þegar framboðið er svona mikið,“ sagði hann. Matsala skylda samkvæmt lögum Þegar sótt er um vínveitingaleyfi er umsóknin send til viðkomandi lögreglustjóra, en hann sendir síðan umsóknina til umsagnar hjá við- komandi sveitarstjórn og einnig til matsnefndar áfengisveitingahúsa. Sveitarstjórninni er síðan lögum samkvæmt skylt að fá umsögn áfengisvarnarnefndar, en sveitar- stjórnin er hins vegar ekki skyldug til að fara eftir þeirri umsögn. Það er svo lögreglustjórinn sem gefur út vínveitingaleyfíð, en það getur hann ekki gert nema bæði sveitar- stjórnin og matsnefndin hafi gefið umsókninni jákvæða umsögn. Samkvæmt gildandi lögum verð- ur matur að vera á boðstólum á öllum veitingastöðum með vínveit- ingaleyfi, en að sögn Þórhalls Hall- dórssonar, formanns matsnefndar áfengisveitingahúsa, hafa nýlega verið samdar leiðbeiningar um hvernig flokka beri staðina eftir eðli þeirra. Þar er í fyrsta lagi um að ræða staði sem hljóta fullt vín- veitingaleyfi, þ.e. heimild til sölu á léttum og sterkum vínum og bjór, en mestar kröfur eru gerðar til þeirra staða hvað varðar allan að- búnað í sambandi við veitingasölu. Til þeirra staða sem selja einungis létt vín og bjór eru gerðar aðeins minni kröfur og þá sérstaklfiga í eldhúsi og að síðustu er um að ræða þá staði sem opna ekki fyrr en eftir venjulegan matmálstíma, en þar er einungis farið fram á að aðstaða til uppþvottar sé til staðar og hægt sé að afgreiða skyndimat í sal og nægir þá örbylguofn og ísskápur. Óalgengt að staðir séu sviptir leyfi Að sögn Þórhalls leggur mats- nefndin mjög ríka áherslu á að góð umgengni sé á þeim stöðum sem hafa vínveitingaleyfi hvað varðar dagleg þrif og almenna snyrti- mennsku, en ef staðir uppfylla ekki slík ákvæði hefur nefndin heimild til þess að gefínni aðvörun að óska eftir því við viðkomandi lögreglu- stjóra að staðurinn verði sviptur leyfí. Hann sagði að slíkt kæmi fyrir öðru hvoru, en það væri hins vegar ekki algengt. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994 25 Danir ganga í dag til kosninga og verða efnahagsmálin efst á baugi Reikulir kjósendur og hugsjónalausir flokkar FYLGISMENN danska íhaldsflokksins á kosningafundi. Uffe Ellemann- Jensen, leiðtogi Venstre og fyrr- um utanríkisráð- herra. Poul Nyrup Ras- musssen, forsæt- isráðherra og leið- togi danskra jafn- aðarmanna. Hans Engell leið- togi íhaldsmanna þykir traustur og duglegur. Vera kann að Danir átti sig ekki á mikilvægi kosninganna í dag. Sig- rún Davíðsdóttir rekur aðdraganda kosning- anna og þær hreyfmgar, sem þar hefur helst verið að merkja. Danir ganga til nokkuð ein- stakra kosninga í dag, þó kjósendur virðist kannski ekki taka eftir því, þar sem kosningabaráttan hefur verið einstak- lega daufleg, svo ekki sé meira sagt. Hið einstaka liggur í því að eftir rúm- lega t.íu ára borgaralega stjórn komst stjóm undir forsæti jafnaðarmanna til valda í ársbyrjun 1993, í kjölfar afsagnar Pouls Schluters þáverandi leiðtoga íhaldsmanna. Nú ræðst hvort Danir voru í raun sáttir við valdatöku jafnaðarmanna. Efnahagsmálin hafa verið helstu mál kosningabaráttunnar. En þar sem stjómmálaflokkamir eru að mestu sammála, er fremur deilt um einstök áhersluatriði en stóru lín- urnar. Og lítill skoðanamunur veldur því einnig að kjósendur eru helst spurðir hvort þeir vilji halda í Poul Nyrup Rasmussen núverandi forsætis- ráðherra, eða fá annaðhvort íhalds- manninn Hans Engell eða Uffe Elle- mann-Jensen, léiðtoga vinstriflokks- ins (Venstre) i forsæti. Borgarafiokk- arnir hafa á sér nokkur traustleika- merki, af því þeim tókst að ná nokkr- um tökum á efnahagsmálunum á valdatíma sínum. Til þessa vísa þeir eðlilega óspart. Jafnaðarmenn og samstjórnarflokkar þeirra vísa hins vegar til þess að jafnframt hafí at- rvinnuleysið vaxið. Því vilja þeir ráða bót á, án þess að varpa stöðugleikan- um fyrir róða. Þungamiðjan fyrir miðju Borgaralega stjórnin tók við völd- um 1982, eftir að jafnaðarmenn höfðu gefist upp á að eiga við efna- hagsmálin. Hún var allan tímann leidd af íhaldsmönnum með Schlúter í forsæti og Vinstriflokkurinn var með. Leiðtogi hans, Uffe Ellemann- Jensen, var utanríkisráðherra öll ár- in. í upphafí sátu Kristilegi þjóðar- flokkurinn og mið-demókratar með þeim í stjórn, en síðan kom Róttæki vinstriflokkurinn í stað þeirra. Þessir flokkar féllu frá í tímans rás, því stjórnarsetan aflaði þeim ekki vin- sælda kjósenda og á endanum sátu kjarnaflokkarnir tveir einir eftir. Í flokksbúðum þessara þriggja litlu miðjuflokka bullaði óánægjan, því þó Schlúter sýndi sig vera algjöran snilling í að halda stjórninni saman og stuðningsflokkunum með, þá var hann lika ósmeykur að hróka til mönnum og flokkum. Ekki er gott að segja hvað Schlúter hugsaði með sér, þegar hann sagði af sér í janúar 1993 í kjölfar Tamílamálsins, en hann lét nægja afsögn, án þess að ijúfa þing ög boða til kosninga. En nú voru jafnaðarmenn tilbúnir. Eftir ára- langa ólgu í flokknum höfðu þeir kosið sér nýjan formann, Poul Nyrup Rasmussen. Nyrup lét hugsjónirnar ekki flækjast fyrir sér, heldur hafði efnahagsmálin að leiðarljósi, því hann er ekki hagfræðingur fyrir ekki neitt. Og líkt og Schlúter er hann snjall í að tala fólk saman. I einni svipan tókst Nyrup að sann- færa miðjuflokkana um að þeim væri betur borgið við völdin í slag- togi við jafnaðarmenn. Menn en ekki málefni Miðað við hvað Vinstriflokkurinn (Venstre) kom vel út úr skoðana- könnunum fyrir ári, þegar hann náði hátt i þijátíu prósenta fylgi og var á tímabili stærri en Jafnaðarmanna- flokkurinn, hlýtur sú spurning að vakna hvað hann hafi gert til að missa hylli kjósenda. I raun er erfitt að benda á nokkurt eitt atriði. Skýr- ingin virðist fremur vera sú að kjós- endum dámar ekki sú tilhugsun að Uffe Ellemann-Jensen verði forsæt- isráðherra. Hann er harður Evrópu- sinni, sem ekki mælist alltof vel fyr- ir meðal þjóðar, sem aðeins féllst á að vera með í Evrópusambandinu, ef hún fengi ýmsar undanþágur. Elle- mann hefur ekki dregið fjöður yfir að hann vildi helst sjá undanþágurn- ar hverfa. Samfara vinsældatapi Vinstri- flokksins hefur íhaldsflokkurinn unn- ið á. Hans Engell þykir traustur og duglegur leiðtogi. Hann er hægur og rólegur, hefur danskan kímnis- glampa í augum og þó hann sé að flestu leyti sammála Ellemann, eru þeir firna ólíkar persónur. Danir kunna ekki að meta jafn sjálfsörugg- an mann og Ellemann og heldur ekki heimsborgarabrag hans. Ellemann er maðurinn, sem kjósendur ýmist heillast af, eða þola ekki. Það er engum sama um hann. Þessu gerir hann sér grein fyrir og segir að hann muni benda á Engell af heilum hug, ef það megi verða til þess að hægt verði að mynda borgaralega stjórn. Kosningabaráttan hefur mótast af því að jafnaðarmenn hafa haldið samstöðu með Róttæka vinstri- flokknum, meðan hinir stjórnarflokk- arnir tveir eru hikandi. Mið-demó- kratar segja að þeir muni gera allt til að lialda Sósíalíska þjóðarflokkn- um frá stjórnarþáttöku og ef sam- starf við borgaraflokkana sé eina leiðin til þess, þá leiti þeir hiksta- laust þangað. Sósíalíski þjóðarflokk- urinn hefur einbeitt sér að því að komast í stjórn, svo áralangri ein- angrun þeirra ljúki. Þeir styðja því Nyrup í viðleitni hans til stjórnar- myndunar. Allt bendir til þess að flokkurinn vinstra megin við sósíal- istana, Einingarlistinn, komist á þing og einnig þeir benda á Nyrup. Þó ætla mætti að Nyrup þæði þess- ar stuðningsyfirlýsingar með þökk- um er það þó öldungis ekki svo. Hann hefur margsinnis sagt að ekki komi til greina að hleypa sósíalistum að. Það sárnar þeim, því þeir hafa gert allt til að nálgast jafnaðarmenn, ekki síst með því að eiga þátt í og styðja eindregið undantekningarnar sem Danir fengu frá Maastricht-sam- komulaginu. En þrátt fyrir þetta neita jafnaðarmenn að hleypa þeim inn í samfélag sitt. Líkt og sænskir jafnaðarmenn vilja þeir dönsku ekki hafa neitt saman við „rauða liðið“ að sælda. Þeir vitna til erlendra markaða og spurningin er hvort tillit til þeirra gerir það ekki einfaldlega að verkum að vinstriflokkum verði ekki hleypt í stjórn í bráð. Hægriflokkamir hafa óspart notað útlitið um sósíalista í stjórn til að hræða kjósendur frá jafnaðarmönn- um. Þeir muni ekki eiga annars úr- kosti en að nota sér stuðning vinstri vængsins, svo stuðningur við jafnað- armenn jafngildi stuðningi við hann. Á móti hafa jafnaðarmenn haldið því fram að borgaraflokkarnir ætli sér að taka saman við Framfaraflokkinn, sem er yst á hægri vængnum. Kosningabaráttan hefur snúist um persónur, ekki pólitík og er það vís- ast engin tilviljun. Skipuleggjendur hennar eru sér örugglega meðvitaðir um að tími hugmyndafræðinnar er liðinn. Skoðanakannanir benda til að kjósendur geti kosið íhaldsmenn í dag og jafnaðarmenn eða sósíalista á morgun ... og hinn daginn muna þeir ekki hvað þeir hafa kosið. ESB — viðkvæma málið Það mætti halda að úr því Dan- mörk er meðlimur í ESB þá sé um- ræðan um það ekki sérlega viðkvæmt mál. Svo er þó öldungis ekki. Vegna undanþáganna vilja ýmsir stjórn- málamenn eins og Ellemann og Ritt Bjerregaard, þingmaður jafnaðar- manna, gjaman ræða hverning Dan- ir ætli að halda á málum á ríkjaráð- stefnunni 1996. Þar fá þeir engan hljómgrunn, þvi jafnaðarmenn eru klofnir um afstöðuna og Róttæki vinstriflokkurinn, með flokksmann sinn Niels Helveg Petersen sem utan- ríkisráðherra, treystir sér heldur ekki í þá umræðu. Auk hræðsluboðskapar á báða bóga um áhrif ystu flokkanna til hægri og vinstri snerist sjálf umræð- an um efnahagsmálin og atvinnu- leysið, eins og við var að búast. Borgaraleg eða rósrauð jafnaðarframtíð? Jafnaðarstjórnin er tæpast búin að sitja nógu lengi í þetta skiptið til að í ljós sé komið hvort þeir ætli að halda áfram á sömu braut og borg- aralega stjórnin hvað varðar stjórn efnahagsmála. Ef rétt er að verð- bólga sé vaxandi og þensla í efna- ( hagslífínu almennt, þá er spurning hvort stjórn þeirra þyrði að beita jafn róttækum efnahagsgerðum og stjórn Schlúters gerði við svipaðar aðstæður upp úr 1985, þegar þeir settu þjóðina á það sem þá kallaðist „kartöflukúrinn." Danir eiga nú kost á að velja hvort þeir kjósi borgaralega stjórn eða vilji gefa jafnaðarstjóminni kost á að halda áfram. Én vegna þess hve ESB-málin eru viðkvæm hafa stjórn- málamenn ekki gert mikið af því að minna á að sitji komandi stjóm út kjörtímabilið komi það í þeirra hlut að móta ESB-stefnuna í kringum ríkjaráðstefnuna 1996. Danir gera sér því kannski ekki sérlega góða grein fyrir hve mikilvæg komandi stjórn verður þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.