Morgunblaðið - 21.09.1994, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
ÍDAG
BRANDUR
TÓMASSON
BRANDUR Tómas-
son, fyrrverandi yfir-
flugvirki hjá Flugvé-
lagi íslands og síðar
Flugleiðum, er áttatíu
ára í dag, 21. septem-
ber.
Brandur er einn af
frumherjum í fslenskri
flugsögu og fylgdi úr
hlaði þeim þætti sög-
unnar er að viðhaldi
og viðgerðum laut. Á
frumbýlisárum flugs-
ins var aðstaða til
þeirra hluta mjög fá-
brotin. Brandi tókst
með elju sinni og snilli að færa það
til betri vegar. Hann hóf störf hjá
Flugfélagi íslands 25. desember
árið 1938 og starfaði nærfellt hálfa
öld í sínu fagi.
Jóhannes Snorrason flugstjóri
segir um Brand í bók sinni Skrifað
í skýin:
„Hann var hald okkar og traust
færi eitthvað úrskeiðis enda hefur
hann lengi verið þekktur fyrir að
hafa ráð undir hverju rifí.“
Þetta eru orð að sönnu. Þegar
flugvélakostur flugfélagsins fór
stækkandi svo sem
Skymaster DC 4 og
Cloudmaster DC 6 B
og þurfti að koma þeim
inn í skýli til eftirlits
og viðgerðar voru þau
of lítil til að aka þeim
beint inn. Brandur
fann upp aðferð og
tækni til þess að ská-
skjóta þeim inn í skýli
sem var mikið vanda-
verk. Leysti hann það
vel af hendi.
Já, það er gæfa
þessarar þjóðar að
slíkir menn sem
Brandur skyldu veljast til þess að
starfa að íslenskum flugmálum.
Búa margir að leiðsögn hans, enda
eru íslenskir flugvirkjar vel metnir
fagmenn á heimsmælikvarða og
viðurkenndir í hágæðaflokki.
Brandur hefur átt við vanheilsu
að stríða nú síðustu ár. Eg sendi
honum og fjölskyldu hans bestu
kveðjur á þessum tímamótum og
bið honum blessunar. Ijafi hann
þakkir fyrir framlag sitt til ís-
lenskra flugmála.
Aðalsteinn Dalmann Októsson.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Kagnarsson
Vetrarstarf Munins í
Sandgerði hafið
Vetrarstarf Bridsfélagsins Munins
í Sandgerði hófst miðvikudaginn
14. sept. með því að haldinn var
aðalfundur félagsins. Karl G.
Karlsson var kosinn formaður,
Bylgja Jónsdóttir gjaldkeri og
Garðar Garðarsson ritari. Með-
stjórnendur eru Reynir Óskarsson
og Bjöm Dúason.
Að loknum aðalfundi var spilað-
ur 10 para tvímenningur og sigr-
uðu Einar Júlíusson og Reynir
Óskarsson, fengu 87 stig. Ingimar
Sumarliðason og Kristján Kristj-
ánsson urðu í öðru sæti með 86
og Ari Gylfason og Karl G. Karls-
son þriðju með 82 stig.
Miðvikudaginn 21. sept verður
spilaður eins kvölds tvímenningur.
Spilamennskan hefst kl. 20. Spilað
er í Björgunarsaveitarhúsinu.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Tólf pör mættu til leiks á fyrsta
spilakvöldi B. Breiðfirðinga í vet-
ur. Spilaður var Howell-tvímenn-
ingur og hæsta skorinu á spila-
kvöldinu náðu eftirtalin pör:
Halldór Þorvaldsson - Jón
Egilsson 194
Hjördís Sigurjónsd. - Ragnheiður
Nielsen 186
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi
Axelsson 177
Magnús Oddsson - Magnús
Halldórsson 175
Firmakeppni Bridssambands
Islands 1994
Firmakeppni Bridssambands ís-
lands verður haldin í Sigtúni 9
helgina 1.-2. okt. nk. Spiluð er
sveitakeppni u.þ.b. 100 spil.
Keppnin er opin öllum fyrirtækjum
af öllu landinu sem sannanlega
hafa keppendur á launaskra. Þetta
er létt og skemmtileg keppni og
vonandi taka sem flest fyrirtæki
þátt. Keppnisgjald er 15.000 kr. á
sveit og spilað er um gullstig í
hveijum leik. Verðlaunabikarar
verða veittir fyrir þijú efstu sætin
og auk þess fá sigurvegararnir
farandbikar til varðveislu næsta
árið.
Byijað verður að spila kl. 11
báða dagana. Skráning er þegar
hafin á skrifstofu Bridssambands
íslands í síma. 91-619360.
íslandsmótið í einmenningi
1994
íslandsmótið í einmenningi verð-
ur haldið helgina 8.-9. okt. Mótið
verður spilað eins og undanfarin
ár. Húsfyllir hefur verið í þetta
mót þannig að það er betra að
láta skrá sig tímanlega. Kerfið
verður sent til keppenda til þess
að þeir hafi tíma til að lesa það
yfir. Keppnisgjald er 2.500 kr. á
mann og skráning er á skrifstofu
Bridssambands Islands í síma 91-
619360.
Vetrarmitchell
Föstudaginn 16. sept. 1994 var
spilaður Mitchell með þátttöku 22
para.
Úrslit urðu eftirfarandi:
NS-riðill:
Þórður Sigfússon/Dan Hansson 361
Vignir Hauksson/Haukur Harðarsson 306
MapúsTorfason/GuðmundurPétursson 298
Meðalskor 270
AV-riðill:
DagurHalldórsson/BjömStefánsson 312
Hjalti Bergmann/Stefán Ólafsson 301
Apar Kristinsson/Cecil Haraldsson 286
Meðalskor 270
Spilað er öll föstudagskvöld í
Sigtúni 9 og hefst spilamennska
kl. 19. Sérstaklega verður auglýst
þegar starfsemin flyst í nýja hús-
næðið í Þönglabakka.
BRIDS
Umsjön Guöm. Páll
Arnarson
„HVAR er spaðinn?" Með
11 spaða á milli handanna,
sáu AV enga ástæðu til að
blanda sér í sagnir. Þessi
staðreynd fór ekki framhjá
sagnhafa og hann dró þá
ályktun að liturinn hlyti að
skipast 6-5.
Vestur gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ 5
▼ DG976
♦ K863
♦ K52
Vestur Austur
♦ D108632 ♦ KG974
♦ 104 ♦ DG963
Suður
♦ Á
♦ ÁK853
♦ ÁG52
♦ Á87
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass Pass 1 hjarta
Pass 4 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: hjartatvistur.
Þar eð vestur á tígul-
drottninguna vel valdaða
virðist slemman dæmd til að
tapast, enda eðlileg spila-
mennska að svína tígulgosa.
Á opnu borði má þó vinna
spilið í þessari legu með því
að taka ÁK í laufi og spila
tígli þrisvar. Vestur lendir
inni á drottninguna og neyð-
ist til að spila spaða út í tvö-
falda eyðu. Þar með hverfur
tapslagurinn á lauf.
En þetta er á opnu borði
og það er ekki að sjá að
sagnhafi hafi nokkurt tilefni
til að fara svo langsótta leið.
Og þó. í sæti suðurs var
Bandaríkjamaður að nafni
Chuck Lamprey. Þegar hann
spilaði hjarta í öðrum slag
kom austur á óvart með því
að henda laufi. „Mátti hann
ekki missa spaða?“ hugsaði
Lamprey og reyndi að finna
skýringu á þessu undarlega
afkasti. Venjuiega henda
menn fyrst frá lengsta lit,
svo það var rökrétt að reikna
með að austur ætti a.m.k.
jafnmörg lauf og spaða.
Lamprey hafði þegar slegið
því fóstu að spaðinn skiptist
6-5, svo að öllum líkindum
átti austur 5-5 skiptingu í
svörtu litunum. Lamprey
hafnaði því tígulsvíningunni
og spilaði upp á innkastið.
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Hjól fannst
GRÁTT kvenhjól var skil-
ið eftir í garði á Hjarðar-
haga 29 fyrir þremur vik-
um. Upplýsingar í síma
620253.
Hjól týndist
SVART og grænt fjalla-
hjól af gerðinni HMTB
Diamond Back „Sorrento
S“ hvarf frá Kaplaskjóls-
vegi 61 sl. mánudag. Hafi
einhver orðið var við hjól-
ið er hann vinsamlega
beðinn um að hringja í
síma 28052 eða 24603.
Hálsmen fannst
FUNDIST hefur vandað
hálsmen í Vesturbænum.
Upplýsingar í síma
18510.
Gæludýr
Týndur köttur
MJÖG falleg lítil læða,
hvít með svörtum og gui-
brúnum flekkjum, er í
óskilum í Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma
654546.
COSPER
Hve lengi hefur þú eiginlega unnið í þessu fyrirtæki.
SKÁK
U m s J ó n M a r g e i r
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á
SKA-stórmeistaramótinu í
Horgen í Sviss sem lauk fyr-
ir helgina. Spánski alþjóðlegi
meistarinn Jorge Magem
(2.520) hafði hvítt og átti
leik, en þýski stórmeistarinn
Jörg Hickl (2.535) hafði
svart.
37. Rhf5! - gxf5, 38.
Rxf5 (Svartur er nú glataður
því 38. - Hg8 er svarað með
39. Dh5 mat) 38. - Kg8,
39. Hxg7+ - Kf8, 40. Dh5
- Rf7, 41. Hh7 - Dc4 og
Hickl gafst upp án þess að
bíða eftir svari andstæðings-
ins, enda er staðan alveg
vonlaus. Mótið var haldið
samhliða Credit Suisse stór-
mótinu sem Kasparov vann.
Úrslit urðu þessi: 1. Hodg-
son, Englandi, 9 v. af 11
mögulegum, 2.-4. Margeir
Pétursson, Magem og Hickl
7 v. 5.-6. Hug og Ziiger,
Sviss, 6 'h v. 7. Brunner,
Sviss, 5 v., 8.-10. Schlosser,
Þýskalandi, Masserey, Sviss,
og Landenbergue, Sviss, 4
v., 11.-12. Godena, Ítalíu,
og Fioramonti, Sviss, 3 v.
LEIÐRETT
Magnús B.Jónsson
Röng mynd
Með frétt um setningu
Bændaskólans á Hvann-
eyri í 105. sinn birtist
mynd af Sveinbirni Dag-
finnssyni, ráðuneytis-
stjóra, en í texta sagði,
að myndin væri af Magn-
úsi B. Jónssyni skóla-
stjóra.
Morgunblaðið biðst af-
sökunar á þessum mistök-
um.
Átti við allt árið
I töflu sem fylgdi um-
flöllun um stöðu bæjar-
sjóðs Hafnarfjarðar í gær,
kom fram að 83% fari til
reksturs málaflokka árið
1994 en í fréttinni er haft
eftir Magnúsi Gunnars-
syni formanni bæjarráðs,
að hlutfallið sé 88%. Rétt
er að taka fram að 83%
eiga við tímabilið frá 1.
janúar til 15. júní 1994
en 88% eiga við allt árið.
Rangft skírnarnafn
í frétt á forsíðu Morgun-
blaðsins í gær sagði að
Vladímír Rútskoj yrði for-
setaframbjóðandi harð-
línuafla í Rússlandi.
Rútskoj heitir réttu nafni
Alexander Vladímírovítsj
Rútskoj, er sem sagt son-
ur Vladímírs. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Hjörtur Þ. Daðason
í frétt af fjöltefli Davíðs
Bronsteins stórmeistara
við íslenzk börn og ungl-
inga misritaðist föður-
nafn Hjartar Þórs Daða-
sonar, sem einn bar sigur-
orð af stórmeistaranum.
Morgunblaðið biðst af-
sökunar á þessum mistök-
um
Víkveiji skrifar.
••
Víkverji er þeirrar skoðunar að
ekki sé allt með felldu, að því
er varðar þjónustu þeirra sem ann-
ast sjónvarpsviðgerðir og flutninga
tækja til og frá viðgerðarverk-
stæði. Fyrir skömmu kom Víkveiji
erlendis frá og uppgötvaði við heim-
komu að það var ekkert nema snjór
á boðstólum á sjónvarpsskjá hans.
Hann hafði samband við viðgerðar-
verkstæðið sem gerir við sjónvarps-
tegund hans og var boðið upp á að
maður yrði sendur heim, til þess
að stilla tækið, hvað Víkveiji þáði.
Maðurinn kom, stillti tækið og hvarf
síðan á braut með 2.500 krónur frá
Víkveija sem þóknun fyrir stilling-
una. Næsta kvöld reyndist snjórinn
aftur hafa tekið völdin af auglýstum
dagskrárliðum sjónvarpsstöðvanna,
þannig að Víkveiji snéri sér á nýjan
leik til verkstæðisins.
XXX
Niðurstaða þess samtals varð
sú, að það væri eitthvað að
tækinu. Var sendur bíll með láns-
tæki á staðinn og tæki heimilisins
fært til verkstæðis. Fyrir þessa
þjónustu greiddi Víkveiji 2.000
krónur. Nokkru síðar var tækið
ásamt stillingarmanni sent á nýjan
leik til heimilis Víkveija, og allar
stöðvar stilltar inn. Fyrir viðgerðina
á verkstæðinu greiddi Víkverji svo
5.800 krónur og 2.000 krónur auk-
reitis fyrir flutninginn til heimilisins
og flutninginn á Iánstækinu aftur
til verkstæðisins. Víkverji mátti sem
sagt bíta í það súra epli að greiða
4.000 krónur fyrir flutningana til
og frá heimilinu, 2.500 krónur fyrir
stillingu, sem ekki entist í einn sól-
arhring, og loks 5.800 krónur fyrir
viðgerð, sem vonandi endist og end-
ist. Það er hreint ótrúlegt hversu
fljót pyngjan er að léttast um
12.300 krónur, þegar kaupa þarf
þjónustu sem þessa. Víkveiji er síð-
ur en svo sáttur við svona við-
skipti, en samkvæmt upplýsingum
verkstæðisins er hér um viðtekna
viðskiptahætti að ræða - viðskipta-
hætti, sem verkstæðismaðurinn
sagðist í fljótu bragði ekki sjá neina
ástæðu til að breyta. Frómt frá
sagt, telur Víkveiji að hann hafi
sjaldan eða aldrei fengið jafnlítið
fyrir jafnháa upphæð sem hann
hefur þurft að reiða fram.
Utsölur eru margar í gangi
núna. Einatt er hægt að gera
kjarakaup á slíkum útsölum, eins
og Víkveiji reyndi si. laugardag,
þegar hann ásamt börnum sínum
fór í verslunarleiðangur niður
Laugaveginn. íþróttavöruverslun
að nafni Sparta er við miðjan
Laugaveginn og þar fékk Víkverji
íþróttagalla á börn sín tvö, íþrótta-
sokka og stuttbuxur, fyrir verð sem
líklega nálgast verð eins íþrótta-
galla, þegar ekki er um útsölur að
ræða. Það var Víkveija því huggun
harmi gegn að fara í útsöluinnkaup
og telja sig gera kjarakaup, eftir
að hafa lent I óvæntum og óvel-
komnum stórútgjöldum vegna
heimilissjónvarpsins. Það er nú einu
sinni þannig, að í upphafi skólaárs,
verða útgjöld heimilanna ærið mik-
il, þar sem kaupa þarf skólafatnað,
skólaútbúnað og hverskyns fylgi-
búnað fyrir veturinn og því getur
það skipt miklu máli fyrir heimil-
isbudduna, að hafa vakandi auga
með haustútsölunum, og því sem
þar er á boðstólunum, því þannig
er hægt að spara heimilinum um-
talsverðar fjárhæðir.