Morgunblaðið - 08.11.1994, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVBMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
4
FJARMAL LISTAHATIÐAR HF.
Bæjarlögmaður og bæjarendurskoðandi um
Listahátíð Hafnarfjarðar hf.
Fj árhagsáætlunin
óraunhæf
SKÝRSLA bæjarlögmanns og bæjarendurskoðanda vegna listahátíðar
í Hafnarfirði árið 1993, var lögð fram á aukafundi í bæjarráði Hafnar-
fjarðar í gær. Skýrslan er unnin vegna samþykktar bæjarstjórnar frá
25. október 1994 og í niðurstöðu hennar kemur meðal annars fram
að fjárhagsáætlun hátíðarinnar hafi verið óraunhæf. Þá sé sá fram-
gangsmáti óeðlilegur að sjálfstætt félag hafí getað gert samninga sem
hafi óbeint þær afleiðingar að greiðslur komi úr bæjarsjóði.
Iupphafi er vitnað til sam-
þykktar bæjarstjórnar þar sem
segir að: „Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar telur að fram-
lögð skýrsla Endurskoðunar og
reikningsskila hf. um Listahátíð í
Hafnarfirði 1993 sýni svo ekki
verði um villst að íjármálaleg
stjórnun, framkvæmd og eftirlit
með fjárreiðum hátíðarinnar hafa
gjörsamlega farið úr böndunum og
mistekist. Skýrslan er samfelldur
áfellisdómur yfír allri fjármála-
stjórn' hátíðarinnar. Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar ítrekar samþykkt
bæjarráðs frá 8. sept. sl. þar sem
segir m.a.: „Bæjarráð telur að á
þessu stigi máls gæti enginn sem
tók þátt í rekstri Listahátíðar í
Hafnarfirðt 1993 fírrt sig ábyrgð.“
Bæjarstjórn telur að samningar
við bæjarfélagið hafí verið brotnir.
Má þar nefna samning við stjórn
Listahátíðar í Hafnarfirði hf. frá
því í mars 1993 og samning við
Arnór Benónýsson frá 19. febr.
1993. Ljóst er að umræddir aðilar
hafa ekki staðið við gerða samn-
inga. Fjölmargt í skýrslunni hlýtur
að vekja undrun og reiði bæjar-
stjórnar og raunar bæjarbúa allra.
Enda er ekki annað sýnna en að
hér sé um lögreglumál að ræða.
í skýrslu Endurskoðunar og
reikningsskila hf. um Listahátíð í
Hafnarfirði 1993 kemur fram m.a.
í lokaorðum: „Við viljum þó enn á
ný undirstrika að vegna allra þeirra
ágalla sem taldir hafa verið fram
þá getum við ekki gefið neitt álit
á réttmæti þessara gjalda. Þess
vegna viljum við ítreka að stjórn
Listahátíðar og aðrir þeir sem að
listahátiðinni stóðu verði fengnir
til að yfirfara þessa niðurstöðu."
Bæjarstjórn Hafnarijarðar sam-
þykkir að fela bæjarlögmanni og
bæjarendurskoðanda að afla þeirra
gagna og upplýsinga sem skýrslu-
höfundar telja að á skorti. Jafn-
framt er bæjarlögm^nni falið að
undirbúa málið í hendur rannsókn-
arlögreglu. Vinnu þessári verði lok-
ið fyrir bæjarráðsfund 3. nóv. nk.
og í framhaldi af því munu bæjaryf-
irvöld taka afstöðu um framhald
málsins.“
Við yfirferð og athugun máls
þessa hafa undirritaðir stuðst við:
a) Skýrslu Endurskoðunar og
reikningsskila hf. um Listahátíð í
Hafnarfirði 1993.
b) Öll tiltæk bókhaldsgögn Lista-
hátíðar í Hafnarfirði hf.
c) Samning Hafnarfjarðarbæjar
og Listahátíðar í Hafnarfirði hf.
um listahátíð í Hafnarfírði 1993.
Samningurinn er dagsettur í mars
1993.
d) Verktakasamning Hafnarfjarð-
arbæjar og Arnórs Benónýssonar
dags. 19.2.’93.
e) Samþykktir fyrir Listahátíð í
Hafnarfirði hf.
f) Fundargerðarbók Listahátíðar í
Hafnarfirði.
Þá hafa undirritaðir rætt ítarlega
við endurskoðendurna Guðmund
Friðrik Sigurðsson og Guðrúnu
Torfhildi Gísladóttur, höfunda end-
urskoðunarskýrslunnar, Gunnar
Gunnarsson stjórnarformann og
Örn Óskarsson meðstjórnanda
Listahátíðar í Hafnarfírði hf. og
Arnór Benónýsson starfsmann fé-
lagsins. Framkvæmdastjóri félags-
ins og meðstjórnandi, Sverrir Ólafs-
son, er í útlöndum.
I.
Þar sem samþykkt bæjarstjórnar
byggir á greindri endurskoðunar-
skýrslu komumst við ekki hjá því
að gera athugasemdir við villur í
skýrslunni. Fyrst er að.nefna að
skýrsluhöfundar, sem jafnframt
eru endurskoðendur Listahátíðar í
Hafnarfirði hf., lögðu til í bréfi
dags. 6. sept. sl. að stjórn félagsins
afhenti öll gögn tengd umræddri
listahátíð bæjaryfirvöldum í Hafn-'
arfirði til frekari ákvörðunar um
framhaldið, þar sem Listahátíð í
Hafnarfirði hf. var ekki að þeirra
áliti, falin ábyrgð á peningalegri
meðferð hátíðarinnar, skráningu
gagna né bókhaldi. Þetta álit þeirra
er rangt. Bendum við einfaldlega
á heiti félagsins svo og 3ju gr.
samþykkta þess, þar sem segir að
tilgangur félagsins sé að sjá um
og reka listahátíð i Hafnarfirði.
Jafnframt segir í 2. tölulið 14. gr.
sömu samþykkta að efnahags- og
rekstrarreikningur félagsins fyrir
liðið starfsár skuli lagðir fram á
stjórnarfundi ásamt athugasemd-
um endurskoðenda félagsins til
samþykktar. Endurskoðunar-
skýrslan bíður því afgreiðslu á
Listahátíð í Hafnarfírði hf., þ.e.a.s.
ef stjórnarmenn ætla að fara að
lögum.
Þá vísum við til þess að stjórnar-
menn félagsins uncjirrituðu lang-
flesta samninga sem gerðir voru,
þ.m.t. fjárskuldbindingar, og komu
að öðru l^yti fram sem fram-
kvæmdaaðilar hátíðarinnar.
Þá eru ummæli skýrsluhöfunda
um úttektir af hlaupareikningi
bæjarsjóðs nr. 1660 í Sparisjóði
Hafnarfjarðar röng. Þeir segja þær
hafa farið fram' með tvennum
hætti. „Annars vegar tók fram-
kvæmdastjóri (innsk. undirritaðra:
þeir eiga við starfsmann félagsins
Arnór Benónýsson, sem þeir kalla
fyrir mistök framkvæmdastjóra hér
og annars staðar í skýrslunni)
greiðslur beint út af reikningi 1660
til kaupa á gjaldeyri og hins vegar
sótti hann peningá beint til gjald-
kera bæjarsjóðs. í báðum tilvikum
virðist sem hann hafi ekki þurft
að gera grein fyrir úttektunum.
Heldur hafí hann hindrunarlaust
getað gengið að þessum úttektum
án nokkurra skýringa eða gagna."
Hið rétta er að í engum tilvikum
gefur gjaldkeri bæjarsjóðs út ávís-
anir nema til komi greiðsluheimild
yfírmanna. í öllum tilvikum kvíttar
móttakandi fyrir greiðslum. Varð-
andi gjaldeyrisúttektir þá gengu
þær þannig fyrir sig að gjaldkeri
óskar símleiðis eftir því við Spari-
sjóð Hafnarfjarðar að greidd sé út
af tékkareikningi 1660 tiltekin er-
lend fjárhæð vegna listahátíðar í
Hafnarfirði. í öllum tilvikum er
haft samráð við yfirmenn. Starfs-
maður Listahátíðar í Hafnarfirði
hf. kvittar fyrir öllum þessum
greiðslum.
Eðlileg vinnubrögð endurskoð-
endanna hefðu okkur því þótt að
ræða við gjaldkera og yfírmenn
bæjarsjóðs og jafnframt starfs-
menn Sparisjóðsins og fá staðfest-
ingar þeirra á því hvernig að slíkum
greiðslum er staðið áður en svona
fullyrðingar eru settar fram.
Stjórn Listahátíðar í Hafnarfirði
hf. gerði fjárhagsáætlun fyrir þessa
listahátíð og var á henni byggt.
Áætlanir reyndust verulega van-
áætlaðar. Þar er að fínna grunn-
ástæðuna fyrir viðbótarframlagi
bæjarsjóðs sem til kom. Sem dæmi
nefnum við að áætlaður kostnaður
af erlendum listamönnum nam um
kr. 7,8 millj. en varð í raun um kr.
16 millj. Annar kostnaður var áætl-
aður um kr. 9,1 millj. en varð um
kr. 17,9 millj.
II.
Við höfum yfírfarið hluta bók-
haldsins og athugað sérstaklega
þá þætti sem skýrsluhöfundar
gerðu athugasemdir við og mæltu
með frekari athugun á. Einnig átt-
um við ítarleg viðtöl við þá aðila
þessa máls sem við greindum frá
í upphafi með það fyrir augum
hvort ætlaður fjárdráttur geti verið
á ferðinni í máli þessu éða að
misfarið hafi verið með fé með
öðrum hætti sem ætlað var listahá-
tíð í Hafnarfirði 1993.
Samningagerð:
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar gerði
verktakasamning við Arnór í febr-
úar 1993. Samkvæmt samningnum
tók Arnór að sér listræna ráðgjöf
og eftirlit með listahátíð í Hafnar-
firði fyrir bæjarsjóð. Honum bar
einnig að hafa umsjón með fjármál-
um og fylgja starfinu eftir þar til
tiltekt og uppgjör hefði farið fram.
Þá bar honum að starfa með stjórn
Listahátíðar að framkvæmd hátíð-
arinnar í nánu samstarfi við bæjar-
ritara og bæjarstjóra.
Með samningi bæjarins við ný-
stofnað félag Listahátið í Hafnar-
fírði hf. dags. í mars 1993 breytt-
ist staða Arnórs. Hann verður nú
starfsmaður félagsins og laun hans
greidd að hálfu úr rekstri hátíðar-
innar en að hálfu af bæjarsjóði.
Starfssvið hans var að hafa umsjón
með að fjárstreymi hátíðarinnar sé
í samræmi við fjárhagsáætlun.
Honum bar að útvega fjármagn frá
öðrum aðilum en um getur í samn-
ingnum og sinna öðrum störfum
við framkvæmd hátíðarinnar sam-
kvæmt nánara samkomulagi hans
og stjórnar listahátíðarinnar.
Fjármálastjórnin fór úrskeiðis og
öllu skipulagi um meðferð gagna
var verulega ábótavant. Arnór stóð
því ekki við samningsbundnar
skyldur sínar. Sama verður að
segja um Listahátíð Hafnarfjarðar
hf. og vísum við þá sérstaklega til
2. greinar samningsins.
Þá brást eftirlit bæjarins með
færslu bókhalds, sem bærinn ætl-
aði að viðhafa sbr. 5. grein samn-
ings milli bæjarins og Listahátíðar
í Hafnarfirði hf.
a) Samandregin frásögn end-
urskoðendanna:
Aðspurðir kváðust skýrsluhöf-
undar álíta að ekki væri fyrir hendi
grunur um að framkvæmdaaðilar
j listahátíðarinnar hafí dregið sér fé
eða að ætla megi að þeir hafí fram-
ið annað auðgunarbrot. Þeir telja
það þó valda óvissu hversu bók-
haldsóreiðan sé mikil, en líklega
verði þó að telja að þeirra sögn að
óútskýrður munur á skýrslunni að
fjárhæð kr. 867.672 eigi frekar
rætur að rekja til bókhaldsóreið-
unnar en fjárdráttar. Þeir álíta vís-
bendingar leiða til þeirrar niður-
stöðu eins og t.d. afslættir sem
veittir hafa verið og fram koma á
nokkrum reikningum, því ætla
verður að sá er skjóti undan reyni
frekar að hafa kostnaðarliði sem
hæsta. Þá kváðust skýrsluhöfund-
arnir sérstaklega aðspurðir um til-
mæli þeirra um frekari upplýsingar
á tilteknum þáttum þessa máls
ekki vera tilkomin vegna gruns um
ætlað refsivert athæfi fram-
kvæmdaaðila Iistahátíðarinnar.
b) Samandregin
frásögn stjórnarmanna:
Stjórnarmennirnir Gunnar
Gunnarsson og Örn Óskarsson sjá
enga ástæðu að ætla að misfarið
hafi verið með fé það sem rann til
listahátíðarinnar. Aðspurðir kváðu
þeir starf Arnórs hafa verið mikið
og enga ástæðu hafa að ætla að
hann hafi misfarið með fé í hans
fjármálastjórnun. Vísa þeir slíkum
grunsemdum á bug sem tilefnis-
lausum.
c) Samandregin
frásögn Arnórs:
Arnór kvað vikulega fundi hafa
verið haldna í stjórn hlutafélagsins
og oftar þegar nær dró listavið-
burðunum. Allar meiri háttar
ákvarðanir kvað hann hafa verið
færðar í fundargerðarbók félags-
ins, svo sem kjör stjórnarmanna,
ráðningu listamanna og allt það
annað sem miklu varðaði.
Á stjórnarfundum hafí þær
ákvarðanir vérið teknar um greiðsl-
ur umfram samninga sem endur-
skoðendurnir geri sig tortryggileg-
an fyrir. Eigi það t.d. við um um-
framgreiðslurnar til Ara leikhúss-
ins. Þetta hafi ekki verið gert vegna
léttlyndis í peningamálum heldur
vegna ágreinings af ýmsu tagi og
stundum orðið þrautalending vegna
erfíðrar stöðu mála og tímaskorts.
Um það hvort honum fínnist reikn-
ingar fyrir fiugfargjöld óeðlilega
háir svarar Arnór því til að
stjórnarákvörðun liggi fyrir um að
TKO hafí verið falið að semja við
ferðaskrifstofu í Bretlandi um þau
mál og hafi allir 3 reikningar frá
ferðaskrifstofunni verið greiddir.
Hann hafi ekki ástæðu að ætla að
þeir séu óeðlilega háir. Arnór fór
í gegnum bókhald með okkur í leit
að þeim mismun sem í endurskoð-
unarskýrslunni greinir. Kvaðst
hann gera athugasemdir við eftir-
farandi: - Fylgiskjal nr. 72 en þar
móttekur Sverrir Ólafsson greiðsl-
ur kr. 132.659 sem talin er greiðsla
á kostnaðarnótum sem Sverrir
lagði út fyrir. Arnór telur að í slík-
um tilvikum nægi sjálfar kostnað-
arnóturnar og þurfí ekki að koma
ti! sérstök greiðslukvittun. Jafn-
framt mótmælir hann því að þetta
atriði hafi verið borið undir sig, sem
endurskoðendurnir haldi fram.
- Sömu athugasemdir gerir
hann við fylgiskjal nr. 150 en þar
móttekur Örn Óskarsson kr.
87.275.
- Þá vanti reikning frá Gisti-
heimilinu Berg, sem hann telur að
hafi numið um kr. 120.000. (Við
höfum fengið þetta staðfest frá
forstöðumanni Gistiheimilisins.)
- Loks bendir Arnór á að í
rekstrarreikningi skýrsluhöfunda
nemi launagreiðslur til fram-
kvæmdastjórans kr. 536.449. Arn-
ór fullyrðir að það vanti launanótur
fyrir um kr. 550.000 enda hafi
framkvæmdastjórinn haft síðustu
mánuðina fram að listviðburðunum
um kr. 175.000 á mánuði.
Með ofntöldu telur Arnór að
hann hafi fyllilega skýrt umræddan
mismun í skýrslunni og vilji af
þessu tilefni lýsa yfir furðu sinni á
því að hafa verið meinaður aðgang-
ur að bókhaldi til þess að skýra sín
sjónarmið. Hann segir að stjórn
félagsins hafí meinað sér að hafa
ávísanahefti í Ijármálaumsvifum
sínum fyrir listahátíðina og það
hafí eðlilega gert sér erfiðara fyrir
í allri vinnu. (Þetta staðfesta stjórn-
armenn í viðtölum við okkur.)
Loks vill Arnór að það komi fram
að greiðslur til tveggja listamanna
um kr. 590.000 hafi hann ekki innt
af hendi.
Þann 5. nóv. sl. hafði Sverrir
Ólafsson símasamband við okkur
og tjáði okkur að hann hefði greitt
úr eigin vasa til kúbverskra lista-
manna kr. 550.000, og af þeim
sökum lækkað framtaldar tekjur
til skatts sem þessari fjárhæð nem-
ur.
Lokaorð:
Okkur finnst vanta ársreikning
fyrir félagið Listahátíð Hafn-
arfjarðar hf. fyrir liðið starfsár og
hefðu því athugasemdir endur-
skoðendanna átt að beinast til
Listahátíðar í Hafnarfirði hf.
Launaframtölum Listahátíðar
Hafnaríjarðar hf. er áfátt.
Arnór Benónýsson hefur gefið
sínar skýringar á þessum óútskýrða
mismun sem fram kemur í endur-
skoðunarskýrslunni.
Hvað Sverri Ólafsson varðar þá
eru launakjör hans ákveðin af
stjórn LH hf. Að sögn Sverris
greiddi hann kúbverskum lista-
mönnum úr eigin vasa kr. 550.000,
en ekki verður séð að hann geri
neina endurkröfu um þéssa fjár-
hæð.
Ljóst er að ekki var staðið við
gerða samningar.
Fjárhagsáætlun Listahátíðar
Hafnaríjarðar hf. var óraunhæf.
Sá framgangsmáti sem var á
málum, þ.e.a.s. að sjálfstætt félag
(LH hf.) geti gert samninga sem
óbeint hafí þær afleiðingar að
bæjarsjóður þurfi að greiða er afar
óeðlilegur. Skýrari skil verða að
vera milli bæjarsjóðs annars vegar
og samningsaðila hins vegar.
Loks viljum við koma því á
framfæri, að gefnu þessu tilefni,
að þeim sem fá umtalsverð framlög
úr bæjarsjóði verði gert að skila inn
ársreikningi, þar sem fram komi
með sem nákvæmustum hætti
hvernig framlögunum hafi verið
varið.
Hafnarfirði, 6. nóv. 1994.
Guðmundur Benediktsson,
bæjarlögmaður.
Helgi Númason,
bæjarendurskoðandi.
Magnús Guðmundsson,
starfsmaður
bæjarendurskoðanda.
• Á fundi bæjarráðs var einn-
ig lögð fram skýrsla bæjarrit-
ara, fjármálastjóra, yfirmanns
kostnaðareftirlits og deildar-
stjóra innheimtu- og greiðslu-
deildar og verður sú skýrsla
birt í blaðinu á morgun.