Morgunblaðið - 08.11.1994, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
lelendingum
fjölgar um einn
... í viðbót.
A þeim tíma í morgun þegar
aðeins hinir árrisulustu
höfðu opnað augun, sást til
ferða nokkuð Jgfc
sérkennilegs / |
náunga. I lb£T
*—/ Ekki vildi hann
) - að svo stöddu - segja
frá sjálfum sér og hlutverki sínu
■n á Islandi í framtíðinni en ...
Á morgun
ætla ég
að kynna mig
, betur.
zp verð a b!e. 7
iMogganum.
Jm ■/ 4 'JF Æk
i1 ] ' ’• M 11 1 f. |l I
- I I ||f/||
/
A/U á -|> I/ ( Hittumst ’i
heil! / _ A
FRÉTTIR: EVRÓPA
Finnska þingið
frestar ESB-
atkvæðagreiðslu
Helsinki. Reuter.
RIITTA Uosukainen, forseti
finnska þingsins, lagði í gær til
að þriðju og síðustu umræðu um
aðild Finna að Evrópusambandinu
yrði frestað til 14. nóvember eða
framyfir þjóðaratkvæðagreiðsluna
um aðild í Svíþjóð.
Upphaflega stóð til að afgreiða
málið í dag eða á morgun en vegna
málþófs ESB-andstæðinga, með
Paavo Váyrynen fyrrum utanríkis-
ráðherra í broddi fylkingar, var
ákveðið að fresta síðustu umræð-
unni. Uosukainen sagði þá ákvörð-
un einungis vera „formsatriði".
Nægur stuðningur
Óformlegar skoðanakannanir
finnskra dagblaða benda til að 150
þingmenn af 200 hafi þegar gert
það upp við sig að samþykkja að-
ild og er það því vel rúmlega sá
aukni meirihluti sem til þarf.
Andstæðingar aðildar vonast
hins vegar til að Svíar hafni aðild
og að þá muni einhveijir finnskir
þingmenn skipta um skoðun.
Höfðu þeir á sunnudag, er sam-
komulag náðist um að fresta um-
ræðunni, talað nær sleitulaust all-
an sólarhringinn frá því á miðviku-
dag í síðustu viku er umræðan
hófst.
Einn harðasti ESB-andstæðing-
FINNSKIR ESB-andstæðing-
ar á mótmælafundi.
ur Finnlands, Vesa Laukkanen,
setti nýtt met sl. laugardag er
hann talaði í sex og hálfa klukku-
stund.
Þúsundir Finna lögðu um helg-
ina leið sína í þinghúsið til að verða
vitní að þessum atburði. Að jafn-
aði voru þó einungis á milli 20 og
30 þingmenn viðstaddir.
Finnar samþykktu ESB-aðild í
þjóðaratkvæðagreiðslu þann 16.
október. Sú niðurstaða er ekki
bindandi fyrir þingið.
Eystrasalts-
ríkin ekki
í VES?
• ÓSAMKOMULAG er í höfuð-
stöðvum ESB í Brussel um hvort
gera eigi svokallaða Evrópu-
samninga við Eystrasaltsríkin
þijú, en það eru fríverzlunar-
samningar, sem fela jafnframt í
sér markmið um viðkomandi rík-
is að ESB í framtíðinni. Slíkir
samningar hafa m.a. verið gerðir
við Pólland, Tékkland og Ung-
verjaland. Andstæðingar samn-
ingsgerðarinnar óttast einkum
viðbrögð Rússa, að sögn brezka
blaðsins The Daily Telegraph.
Blaðið segir að líklegt sé að ríkj-
unum verði sagt að þau geti
gengið í ESB í tímans rás, en
ráðlagt að sækja ekki um aðild
, að Vestur-Evrópusambandinu,
varnarmálaarmi ESB. Finnar,
sem einnig eiga landamæri að
Rússlandi, munu þó væntanlega
ganga í VES þegar af aðild
þeirra verður.
• JACQUES Chirac, borgarstjóri
í París og líklegur frambjóðandi
í forsetakosningunum á næsta
ári, telur að sameiginlegur
gjaldmiðill Evrópu muni ekki líta
dagsins ljós á þessari öld. Hann
segist líta svo á að Frakkar eigi
að fá að segja álit sitt í þjóðarat-
kvæðagreiðslu áður en þriðja og
síðasta stigið í átt til Efnahags-
og myntbandalags verður stigið,
samkvæmt Maastrícht-sáttmálan-
um.
• SUMIR Svíar hafa af því
áhyggjur að ESB-aðild hafi slæm
áhrif á trúarlíf í landinu. í blað-
inu Fiimncial T/mes kemur fram
að ákafir lútherstrúarmenn ótt-
ist kaþólikkana sunnar í álfunni.
• JANNIS Paleokrassas, sem fer
með sjávarútvegsmál í fram-
kvæmdastjórn ESB, sagði í svari
við spurningu á Evrópuþinginu
að við úreldingu fiskiskipa yrði
annað hvort að eyðileggja þau
eða tryggja að þau kæmu aldrei
aftur inn á evrópska skipaskrá
sem fiskiskip. Hann sagði að lög-
leg not fyrir gamalt fiskiskip
væru t.d. fljótandi safn, eða þá
að gefa það til fátæks lands-á
borð við Albaníu.
• INGVAR Carlsson, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, lýsti því yfir
í blaðaviðtali um helgina að hann
myndi ekki beita sér fyrir því
að EES-samningurínn yrði tek-
inn upp á ný felldu Svíar aðild.
„ESB mun hafa minni áhuga á
þeim hóp sem verður eftir [í
EES]. Þegar við sömdum um EES
var töluverður kaupkraftur á
bak við þjóðirnar en sú yrði ekki
raunin nú.“ Hann segir útilokað
að hægt verði að reyna að auka
áhrifin í ESB í gegnum EES með
nýjum samningum líkt og ESB-
andstæðingar i Svíþjóð hafa
haldið fram.
• •
Orðugt í upphafi
FYRSTU kynni sænskra ráðherra
af starfi innan ESB hafa einnkennst
af byijunarörðugleikum, segir
Svenska Dagbladet.
Það var Margareta Winberg land-
búnaðarráðherra sem reið á vaðið
og átti að funda með landbúnaðaráð-
herrum ESB. Hún fann ekki rétta
fundarstaðinn og mætti allt of seint.
Næst var það Lena Hjelm-Wallén
utanríkisráðherra. Hún náði varla
að klára inngangsorð sín þar sem
hún þakkaði fyrir að fá að funda
með utanríkisráðherrum sambands-
ins áður en henni var bent á af fund-
arstjóranum að hún væri á vitlausum
fundi. Þetta væri ekki ráðherraráðs-
fundur heldur fundur með fulltrúum
frá Austur-Evrópu. Ráðherraráðs-
fundurinn væri eftir hádegi.
Þá gerði Marita Ulvskog félags-
málráðherra mikið úr því í sjónvarps-
umræðum að hún ætti nú eiginlega
þessa stundina að sitja á fundi með
evrópskum félagsmálaráðherrum án
þess að geta komið einu einasta sjón-
armiði á framfæri. Hið rétta var aft-
ur á móti að hún átti að vera á fundi
með neytendaráðherrum en honum
hafði verið aflýst tíu dögum áður.