Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 3 FRÉTTIR Stöð 2 420 milljóna króna lán til lyklaskipta ÍSLENSKA útvarpsfélagið hefur tekið 420 milljóna króna lán til þess að f'jármagna myndlyklaskipti hjá Stöð 2, að sögn Jafets Ólafssonar, útvarpsstjóra félagsins. Skrifað var undir lántökuna í gær. Þeir aðilar sem lána eru Spari- sjóðabankinn hf., sem er sameign sparisjóðanna, Sjóvá-Almennar, Vá- tryggingafélag íslands og Lýsing hf. Jafet segir að þessi fyrirtæki fjar- magni kaupin á 50.000 myndlyklun- um til landsins. Fyrirtækið er langt komið með að skipta út gömlu myndlyklunum og segir Jafet að alls sé búið að skipta út 30.000 myndlyklum. Einungis eigi eftir að ljúka myndlyklaskiptum í hluta Reykjavíkur og í Kópavogi og verði það gert eftir áramót. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar lögð fram Rekstrarkostnaður lækkaður um 187 millj. í FJÁRHAGSÁÆTLUN meirihluta Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir því að skuldasöfnun bæjarins verði stöðvuð án þess að dregið verði úr þjónustu við bæjarbúa. Að sögn Magnúsar Jóns Árnasonar bæjar- stjóra verður það gert með því að minnka rekstrarkostnað um 187 milljónir, auka tekjur og draga úr nýframkvæmdum. Aðgerðirnar eiga að leiða til þess að liðlega 71% af tekjum bæjarfélagsins verði eftir til framkvæmda í stað um 90% tvö síðustu ár. Fjárhagsáætlunin var lögð fram á bæjarstjórnarfundi í vikunni og lagði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags til að hún yrði afgreidd á fundi 3. janúar en minni- hluti Alþýðuflokks óskaði eftir frestun til 10. janúar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvor dag- urinn verður fyrir valinu. Fitublettir skornir af í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir því að 285 milljónum verði varið til þess að greiða afborganir langtímalána en tekin verði ný lang- tímalán að fjárhæð 200 milljónir og skuldir þannig greiddar niður um 85 milljónir kr. V axtakostnaður áætlaður 270 millj. á næsta ári Ákveðið hefur verið að hækka útsvar og lóðarleigu og mun það auka tekjur bæjarins um 66 milljón- ir. Þá er ætlunin að lækka rekstrar- útgjöld um 187 milljónir kr. án þess að draga úr þjónustu við bæj- arbúa. Kostnaðurinn verður minnk- aður með því að skera af ýmsa fitu- bletti, að sögn Magnúsar. Búið sé að fara vel yfir reksturinn og klípa af allt sem talið var mögulegt. Hann nefnir lækkun risnukostnaðar og auglýsingakostnaðar. Þá sé ráð- gert að draga úr úthlutun styrkja og breyta fyrirkomulagi þeirra. Ákveðið verður í fjárhagsáætlun hvað mikið fari í þennan lið í heild og síðan verður bæjarráði falið að , úthluta þeim tvisvar til þrisvar á ári. Þá segir Magnús Jón að áform- að sé að draga úr yfirvinnu bæjar- starfsmanna. Á síðasta ári fóru 91,5% af tekj- um bæjarins í rekstur og í ár er áætlað að þetta hlutfall verði 88,7%. Magnús segir að talið sé æskilegt að 70-75% af tekjum bæjarfélaga séu eftir til framkvæmda og aðgerð- ir núverandi meirihluta eigi að leiða til þess að 71,4% verði eftir. Munar þar mest um lækkun kostnaðar en skattahækkunin bætir hlutfallið auk þess um 3%, að sögn bæjar- stjórans. Vaxtakostnaður samsvarar kostnaði við 3 leikskóla „Við verðum að draga mikið úr nýframkvæmdum enda skuldum við allar þær miklu framkvæmdir sem ráðist var í á síðasta kjörtímabili,“ segir Magnús. Bendir hann á að vaxtakostnaður í fjárhagsáætlun næsta árs sé áætlaður 270 milljón- ir kr. sem samsvari kostnaði við þijá leikskóla. Auk venjubundinna framlaga í nýbyggingu gatna og fegrunarframkvæmdir verður lokið við byggingu Hvaleyrarskóla sem áætlað er að kosti 52 milljónir, 40 milljónir verða lagðar í aðalræsi og 20 milljónir í tónlistarskóla sem er einn fimmti hluti áætlaðs kostnaðar við að ljúka við skólann. „Við vildum gjarnan klára þá framkvæmd en höfum því miður ekki efni á því núna,“ segir bæjarstjóri. Jólatungl í vestrinu yfir Eyjum NÚ ÞEGAR dagur er hvað stystur sést tunglið á himni nær allan sólarhringinn. Þrátt fyrir rysjótt veður undanfarið hafa inn á milli komið dagar þar sem tungl og stjörnur hafa náð að skina og auka jóla- stemmninguna með birtu sinni. Mikið af jólaljósum eru í gluggum húsa og á fyrirtækj- um í Eyjum og þegar stjörnu- bjartur himinn og skinandi tungl bætast við ljósadýrðina verður jólastemmningin mikil. Sigurgeir brá á leik með myndavélina einn morgun í vikunni þegar tunglið sýndi sig í vestrinu yfir Vestmanna- eyjabæ og tók þessa skemmti- legu mynd af jólatunglinu í Eyjum. Spáð snjókomu eða éyangangi Hætt er að Vestmannaeyingar sjái ekki svona fallegt jóla- tungl í dag eða á morgun. Veðurstofan spáir allhvössu veðri sunnan- og vestanlands og snjókomu eða éljagangi í sömu landshlutum. Þór Magnússon þjóðminjavörður Ekki hægt að ganga að beinum Egils vísum ÞÓR Magnússon þjóðminjavörður segir búið að grafa í kirkjugarðin- um á Mosfelli í nærri þúsund ár og þótt gera megi ráð fyrir að hann hafí alla tíð verið á sama stað sé ógerningur að segja fyrir um hvar bein Egils Skalla-Grímssonar séu. í Morgunblaðinu í gær sagði frá áhuga norrænufræðingsins Jesse Byocks á því að grafa upp bein hans til að leggja mat á hvort hann hafi þjáðst af sjúkdómi, sem nefndur er eftir „Paget“ og lýsir sér þannig að ofvöxtur hleypur i bein. „Þótt einhvern langaði til yrði ógemingur að ganga að beinunum vísum,“ segir Þór Magnússon. „Það eru engar aðferðir til sem finna svonalagað, auk þess veit maður ekki hvort beinin eru til í dag. Þau fúna auðvitað og varðveisluskilyrði eru mjög misjöfn,“ segir hann. Þjóðminjavörður segir jafnframt aðspurður að jarðsjá, sem gerðar hafa verið tilraunir með hérlendis á undanfömum árum, dugi ekki til að fínna einstaka beinagrindur. „Hún finnur aðállega rústir í jörðu, veggi og veggjahleðslur. En ekki þannig að hægt sé að teikna eftir því, þetta gefur meira óljósar bend- ingar." Leyfi hjá fornleifanefnd og kirkjuyfirvöldum Leyfi þarf hjá fornleifanefnd til þess að grafa eftir beinunum og segir Þór óraunhæft að ætla að grafa upp heilan kirkjugarð. „Enda þyrfti leyfi margra til þess, til dæm- is kirkjuyfirvalda og aðstandenda þeirra sem í gröfunum hvíla, ef hrófla ætti við nýjum gröfum." Ný kirkja er á Mosfelli sem Þór segir hafa verið byggða fyrir um 30 árum. „Ég held að garðurinn hafi verið notaður alla tíð,“ segir hann loks en fyrri kirkja á staðnum var lögð niður á síðustu öld að Þórs sögn. Iðunn og Holts Apótek flytja á næsta ári TVÖ apótek hyggjast flytja sig um set á næsta ári: Iðunnarapótek flyt- ur frá Laugavegi 40a í Domus Medica og Holts Apótek flytur frá Langholtsvegi 84 í Glæsibæ. Kjartan Gunnarsson, apótekari hjá Iðunni, Sagði að stefnt væri að því að flytja apótekið ekki seinna en 1. mars. Ástæðan fyrir flutning- unum væri að húsnæðið í Domus Medica væri miklu betra, 240 fer- metrar á einni hæð, en nú er apó- tekið til húsa á tveimur hæðum og í kjallara. „Við getum rekið þarna fyrsta flokks apótek í nútímastíl og innréttingarnar verða allar þær fullkomnustu sem til eru á Norður- löndum," sagði Kjartan. Innrétt- ingar eru á leiðinni, en þær eru keyptar á íslandi, Danmörku og Ítalíu. Kjartan hefur verið apótekari í 19 ár í Iðunni og lærði áður í hinu apótekinu við götuna, Lauga- vegapóteki. „Ég er búinn að eyða mestu af ævinni við Laugaveginn og hef alltaf hlýjar taugar til hans, en þetta nýja húsnæði verður til mikilla bóta.“ Flutt á næsta ári Ingólfur Lilliendahl apótekari sagði að hann hefði fengið staðfest- ingu á flutningsheimild frá heil- brigðisráðuneytinu í gær og Holts Apótek myndi væntanlega flytja undir haust 1995. Hann sagði tvær ástæður einkum liggja að baki flutningnum. í fyrsta lagi hefði þróunin verið að hagræði væri talið að því að hafa apótek nálægt heilsugæslustöðvum og læknamið- stöðvum, hins vegar hefði fram- leiðsla á lyfjum að stærstum hluta flust úr apótekum í verksmiðjur. Apótekin þyrftu því minna rúm en áður, en Holts Apótek flytur úr 584 fermetrum í minna húsnæði í Glæsibæ. Holts Apótek var reist árið 1950 og Ingólfur hefur verið verið apó- tekari þar í 14 ár. RUY hætt- ir að bjóða afslátt RÍKISÚTVARPIÐ hefur hætt við að tengja afslátt af auglýs- ingum í textavarpi við auglýs- ingar í öðrum miðlum Ríkisút- varpsins. Stofnunin tók þessa ákvörðun í kjölfar tilmæla frá Samkeppnisstofnun. Baldvin Jónsson, eigandi Aðalstöðvarinnar, kærði afslátt RÚV tii Samkeppnisstofnunar. Guðmundur Sigurðsson, hjá Samkeppnisstofnun, sagði að stofnunin hefði ekki lokið um- fjöllun sinni um málefni Ríkis- útvarpsins. Áfram yrðu til skoðunar önnur atriði erindis Baldvins Jónssonar. Þá væri stofnunin að skoða kæru frá Framleiðendafélaginu og frá hópi sem berst gegn því að all- ir séu skyldaðir til að borga afnotagjöld RÚV. Guðmundur sagðist vænta þess að niður- staða í þessi mál fengist snemma á næsta ári. Ríkisspítalar Fjórir yfir- læknar láta af störfum FJÓRIR yfirlæknar láta af störfum á Ríkisspítölunum um áramót, í samræmi við þá reglu að starfsmenn hætti næstu ára- mót eftir að þeir fylla 70 árin. Yfirlæknarnir fjórir eru þeir Jón Þorsteinsson, yfirlæknir gigtarskorar lyflækningadeild- ar Landspítalans, Ólafur Jens- son, yfirlæknir Blóðbankans, Páll Gíslason, yfirlæknir og sviðsstjóri handlækningasviðs Landspítalans, og Víkingur Arnórsson, yfirlæknir á Barna- spítala Hringsins. Samkvæmt upplýsingum skrifstofu Ríkisspítalanna hef- ur ekki verið tekin ákvörðun um eftirmann Jóns Þorsteins- sonar, en Sveinn Guðmundsson tekur við af Ólafi í Blóðbankan- um, Halldór Jóhannsson af Páli Gíslasyni á handlækninga- sviði Landspítala og Ásgeir Haraldsson af Víkingi Arnórs- syni á Barnaspítala Hringsins. Styrkir til úreldingar lækka um 5% STYRKUR Þróunarsjóðs sjáv- arútvegsins vegna úreldingar fiskiskipa lækkar um áramót um 5%, úr 45% af húftrygging- arverðmæti skips í 40%, sam- kvæmt reglugerð sjávarútvegs- ráðherra. Hámarksstyrkur á næsta ári skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en liðlega 93 milljónum kr. Jafnframt er þróunarsjóðs- gjald það sem eigendum fiski- skipa er skylt að greiða til sjóðsins hækkað í samræmi við vísitölubreytingar úr 750 kr. á brúttótonn í 775 kr. og há- marksgjald vegna hvers skips fer úr 285 í 294 þúsund kr. í frétt frá utanríkisráðuneyt- inu kemur fram að umsóknir um úreldingarstyrk sem berast sjóðnum á þessu ári verða af- greiddir samkvæmt núgildandi reglum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.