Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Safn frumútgáfa verka Laxness Boðið á 234 þúsund krónur SAFN frumútgáfa verka Halldórs Laxness sem nú er í sölu hjá forn- bókaverslun Herman H.J. Lynge & Son í Kaupmannahöfn, um 50 bæk- ur að frátöldum leikritum Skáldsins, verður selt í heilu lagi á 18.500 danskar krónur eða rúmar 206 þús- und íslenskar krónur,. samkvæmt upplýsingum frá versluninni. Fágætasta frumútgáfa Halldórs, Nokkrar sögur, sem er sérprent úr Morgunblaðinu frá árinu 1923, telst hins vegar ekki til útgáfubóka Hall- dórs og verður selt sér á 2.500 danskar krónur, eða tæpar 28 þús- und íslenskar krónur. Fornbókasali sem Morgunblaðið ræddi við segir að í sínum huga sé ekki ýkja frétt- næmt að heildarsafn frumútgáfa sé til, hann hafi séð að minnsta kosti 20 slík í gegnum tíðina. Nokkrar sögur séu vissulega fágæt- ara rit, einkum í góðu ásigkomu- lagi, en þó sé honum kunnugt um ein tíu slík. Verð það sem sett er á safnið, sé þó viðunandi. Þrjár fyrirspurnir Safnið er sagt vera vel með farið og lét fýrri eigandi binda þær bæk- ur sem komu út frá 1919 til 1934 í skinn, með upprunalegum kápu- spjöldum. Ein bók er árituð af höf- undi. Þijár fyrirspurnir frá íslandi um safnið höfðu borist bóksalanum í gær, og segir hann koma vel til greina að selja það áður en ritskrá sem hann ætlaði að kynna safnið í, kemur út. Ritskráin verður gefin út í byrjun janúar, og er aðallega fjallað um forn málfræðirit og rit sagnfræðilegs eðlis frá Norðurlönd- um, en í henni verður einnig kafli, helgaður íslenskum bókmenntum frá þessari öld og seinustu, þar á meðal bókum Laxness. Eitt stærsta forlag Þýskalands sýnir Jeppum á fjöllum áhuga Morgunblaðið/Ámi Sæberg GÍSLI Már Gíslason rafmagnsverkfræðingur lét æskudraum- inn rætast og fór að vinna við bækur. Hann á og rekur útgáf- una Ormstungu sem sendir frá sér þrjár bækur fyrir þessi jól. JEPPAR á fjöllum heitir nýút- komin bók þar sem dreginn er saman mikill fróðleikur íslenskra jeppamanna um nær allt sem við- kemur ferðalögum um óbyggðir, bílabreytingar, náttúruvemd, veðurfræði og ótal margt annað. Bókin hefur vakið mikla athygli og hefur eitt stærsta forlag Þýskalands þegar spurst fyrir um hana með þýðingu og útgáfu í huga. Gísli Már Gíslason, eigandi út- gáfunnar Ormstungu og ritstjóri bókarinnar, man greinilega hve- nær hugmyndin að jeppabókinni kviknaði. „Ég var norður í Svarfaðardal og nýbúinn að kaupa mér ósköp vepjulegan slyddujeppa. Það var mjög gott veður og mig langaði til að skoða Herðubreiðarlindir. Það hafði enginn áhuga á að koma með mér svo ég skellti mér bara einn. Þegar ég kom að Grafarlandaá mnnu á mig tvær grímur. Mér fannst áin vatnsmikil og var að hugleiða hvemig ég færi yfir. Ég sá þjólför hinum megin við ána og var að hugsa um að skella mér beint yfir þegar ég sá skilti á árbakkanum. Þar var sýnt þver- snið af ánni og strikalína sem markaði Ieiðina yfir vaðið. Ég fór eftir þessum leiðbeiningum og komst minnar leiðar. Það var á þessari stundu sem sú spurning vaknaði í huga mínum hvers vegna ekkert fræðsluefni væri til fyrir jeppaeigendur." Hann rekur annað dæmi um vanþekkingu sína sem nýs jeppa- eiganda. „Þegar við vomm nýbú- in að fá jeppann komum við þjón- in að skilti á veginum yfir Öxar- fjarðarheiði sem sagði að hann væri lokaður. Nú veit ég að það merkir að umferð um veginn er bönnuð. Ég sveigði framhjá skilt- inu og svaraði mótmælum frúar- innar með því að við værum á nýjum jeppa og þetta væri allt í lagi. Ég setti bara í fjórhjóladrif- ið! Hjólförin voru að mestu á kafl i krapaelg og ég öslaði áfram sæll í fjórhjóladrifinu, að ég hélt. Loks komumst við niður af heið- inni og það var ekki fyrr en þá sem mér varð ljóst að framdrifs- lokurnar vom ekki læstar, svo fjórhjóladrifið var aldrei virkt!“ 20 þúsundjeppar Það eru 20 þúsund jeppar á íslandi og fjöldi fólks í kringum þá. Gísla Má þótti líklcgt að fleir- um sem fengju sér jeppa væri líkt farið og honum og hugmynd- in að bókinni tók að mótast. A þessum árum starfaði Gísli Már við tölvur, en hann er raf- magnsverkfræðingur að mennt. Breytingar á vinnustað hans urðu til þess að hann hætti. Ásamt fleirum stofnaði hann út- gáfuna Ormstungu 16. septem- ber 1992. „Bækur hafa verið ástriða mín frá því ég var peyi í Vestmanna- eyjum. Þá var ég ákveðinn í að eignast bókabúð þegar ég yrði stór. Málin æxluðust nú þannig að ég fór í tækninám og bjó meðal annars og starfaði í Þýska- landi í tæp tíu ár. Það má því segja að nú sé ég að láta æsku- drauminn rætast." Sérfræðingar skrifa Gísli fékk hóp sérfræðinga til að skrifa bókina og var hún tæp tvö ár í vinnslu. Allir höfundarn- ir eru vanir jeppaferðamenn auk þess sem sumir eru hámenntaðir í tæknilegum efnum. Hér er safn- að saman þekkingu margra og hún sett fram á skipulegan hátt. Yfir 300 myndir, bæði ljósmyndir og teikningar, prýða bókina. Gísli segir myndirnar ekki til skrauts heldur skýringa. „Ég hef mikið lært á því að vinna þessa bók. Mér kom á óvart hvað verkefnið varð yfirgripsm- ikið. Eins hversu háþróaður bíla- breytingaiðnaðurinn er orðinn hér á landi. Menn skrifa af mik- illi speki um bílabreytingar, þetta eru hátæknileg atriði.“ Gísli varð bókstaflega að leggja nótt við dag til að Ijúka bókinni. „Ég held aldrei aftur einn utan um svona verkefni, þetta var yfirgengileg vinna. En ég vona að bókin verði mönnum hvatning til að ferðast með skyn- semi, bæði hvað varðar útbúnað og umgengni við landið. Þá er tilganginum náð.“ Horft til framtíðar Bókaútgáfa hefur reynst ýms- um áhættusöm, en Gísli Már er hvergi smeykur. Auk Jeppa á fjöllum sendir Ormstunga nú frá sér barnabókina Dordingul eftir Svein Einarsson og Játningar landnemadóttur eftir vestur- íslensku skáldkonuna Lauru Go- odman Salverson. Þá gaf forlagið nýlega út tímaritið Jón á Bægisá. „Þetta er vissulega áhætta, en jafnframt starf sem veitir manni mikið frelsi. Maður þarf að gera áætlanir langt fram í tímann, helst mörg ár.“ Kjaradeila sjúkraliða og ríkisins er enn í hörðum hnút Mistókst að ná sam- komulagi fyrir jól Sjúkraliðar vilja 20% hækkun, en ríkið býður 4% SAMNINGANEFNDIR Sjúkraliðafé- lagsins og ríkisins gerðu alvarlega tilraun til að ná samkomulagi í sjúkr- aliðadeilunni fyrir jól í gær. Samning- ar tókust ekki þrátt fyrir að samn- ingsaðilar hefðu nálgast sjónarmið hvors annars í nokkrum atriðum. Þorsteinn Geirsson, formaður samn- inganefndar ríkisins, sagði að bilið milli samningsaðila væri enn of breitt. Sjúkraliðafélagið hefur verið með lausa samninga í bráðum 22 mánuði. Upphafleg krafa sjúkraliða var um að laun þeirra hækkuðu um 6%, auk ýmissa sérákvæða um menntun, starfsþjálfun, röðun eftir starfsheitum og samræmingu á launum sjúkraliða sem starfa á landsbyggðinni. Eftir að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Meinatæknafélag íslands gengu frá kjarasamningum fyrr á þessu ári breyttu sjúkraliðar kröfum sínum og lögðu megináherslu á að fá sömu hækkanir og hjúkrunarfræðingar og meinatæknar. Sama dag og boðað verkfall sjúkr- aliða átti að koma til framkvæmda lagði ríkið fram drög að kjarasamn- ingi. í þeim var að finna viðbrögð við öllum kröfum sjúkraliða. Tillagan gerði ráð fyrir launaflokkahækkun fyrir sjúkraliða með fimm ára starfs- aldur og var í heild metin sem 3% launahækkun til sjúkraliða. Sjúkralið- ar höfnuðu tillögunni strax. Vegna fullyrðinga samninganefnd- ár ríkisins um að kröfur sjúkraliða væru óljósar lögðu sjúkraliðar fram ítarlegri kröfugerð 26. nóvember. Þar er gerð krafa um 5.500 króna hækk- un á alla launaflokka. Það þýðir 9,7% hækkun á lægsta taxta og hlutfalls- lega minni hækkun þegar ofar dregur í launastigann. Kröfur um hliðaratriði voru ítrekuð. Samtals þýða þessar kröfur 20% hækkun. í kjölfarið lagði samninganefnd rík- isins fram tilboð sem fól í sér 4% hækkun, en sjúkraliðar höfnuðu því. Ríkið býður 3% og gerðardóm Samninganefnd ríkisins lagði 9. desember fram tillögu um að.deilan yrði leyst með gerðardómi og að samningur yrði gerður til áramóta um 3% launahækkun. Tillagan um gerðardóm gerði ráð fyrir að dómur- inn yrði skipaður tveimur mönnum frá hvorum deiluaðila og oddamanni skipuðum af ríkissáttasemjara. Miðað var við að dómurinn skilaði niðurstöð- um 18. desember 1994. Hlutverk hans átti að vera að bera saman dag- vinnulaun heilbrigðisstétta við dag- vinnulaun sjúkraliða. Leiddi sam- anburðurinn í ljós mismun átti að bæta sjúkraliðum hann upp. Viðmið- unartímabilið átti að vera 1. janúar 1990 til 31. desember 1994. Þó að sjúkraliðar hafí aldrei hafnað þessari tillögu með formlegum hætti á fundi hjá sáttasemjara hafa þeir sagt með skýrum hætti að þeir geti ekki fallist á hana. Samninganefnd- imar hafa undanfarna daga einbeitt sér að því að ná samkomulagi um sérkröfur sjúkraliða og um ýmis tæknileg atriði. í minnisblaði sem samninganefndin lagði fram í fyrra- dag segir að nefndin líti svo á að samkomulag sé um öll tæknileg atriði og óskar eftir að sjúkraliðar geri skrif- lega grein fyrir því ef svo er ekki. Kristín Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélagsins, sagði að ekki væri búið að ganga frá öllum atriðum og nefndi í þvf sambandi ákvæði um sjúkraliða sem starfa á sjálfseigna- stofnunum. f gær ræddu samningsaðilar ítar- lega um ákvæði um námskeið og framkvæmd þeirra. Þorsteinn sagði að flestar stéttir væru með ákvæði um launaflokkahækkanir fyrir aukna starfsmenntun. Hann sagðist hafa trú á að samkomulag tækist um þetta atriði fljótlega. Þá hefur einnig verið rætt talsvert um innbyrgðis röðun einstakra starfsheita án þess að end- anleg niðurstað sé komin í það. Gerðardómstillögu breytt í fyrradag lagði samninganefnd ríkisins fram tillögu um að út úr tillög- unni um gerðardóm yrði teknar viðm- iðanir við starfstéttir í heilbrigðisgeir- anum sem ekki hafa fagmenntun. Kristín sagði að þessi hugmynd gerði tillöguna um gerðardóm engu að- gengilegri fyrir sjúkraliða en upphaf- leg tillaga. Hún sagði að eins og tillag- an um gerðardóm væri sett fram væri þess ekki að vænta að hún færði sjúkral'ðum launahækkanir umfram þessi 3% sem ríkið hefði boðið. Afturvirk hækkun? í samningaviðræðunum hefur þeirri hugmynd verið varpað fram að sjúkraliðar fengju afturvirka hækkun frá síðustu áramótum, en það mundi færa sjúkraliðum umtalsvert háa ein- greiðslu við upphaf samnings. Þor- steinn sagði að samninganefnd ríkis- ins hefði ekki fallist á þessa hug- mynd. Hins vegar gerði upphafleg tillaga ríkisins ráð fyrir að sjúkraliðar fengju eingreiðslu og uppbætur líkt og aðrar stéttir hafa fengið á síðustu misserum. Sjúkraliðar hafa ekki feng- ið þessar greiðslur vegna þess að þeir hafa verið samningslausar á þessu tímabili. Sjúkraliðar í verkfalli um jólin Fyrstajóla- verkfallið ALLT bendir til að sjúkraliðar verði í verkfalli um jólin og verða þeir, eftir því sem best er vitað, þar með fyrsta starfsstétt á íslandi til að halda jól í verkfalli. Samningaviðræður um gerð kjara- samnings hafa nokkrum sinnum staðið yfir allt fram að jólahátíð. Árið 1952 fóru Dagsbrún og fleiri félög í verkfall í desember, en samið var aðfaranótt 22. desember og voru laun borguð út á Þorláksmessu. í fyrra stóðu yfir samningaviðræður vegna kjaradeilu sjómanna og stjóm- ar Heijólfs í Vestmannaeyjum. Samningar tókust á gamlársdag, degi áður en verkfallið átti að hefjast. Fleiri í verkfalli í yfirliti yfir vinnudeilur i heil- brigðisgeiranum í blaðinu í gær vantaði í upptalninguna verkföll sem nokkur félög fóru í á árinu 1987. Það ár fóru sálfræðingar, sjúkra- þjálfarar, iðjuþjálfarar, matvæla- og næringarfræðingar og náttúrufræð- ingar í verkföll sem stóðu í 21-32 daga. Hluti náttúrufræðinga og matvælafræðinga starfar á heil- brigðisstofnunum. Sálfræðingar og sjúkraþjálfarar fóru einnig í verkfall með hjúkrunarfræðingum árið 1989. Verkföllin stóðu"í 43 daga. Rétt er einnig að taka fram að BSRB-verkfallið árið 1984 hafði ekki áhrif á heilbrigðisstofnunum þó að hluti heilbrigðisstétta væri formlega séð með verkfallsrétt. Þá má og geta þess að útganga sjúkra-, liða árið 1992 var ólögleg aðgerð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.