Morgunblaðið - 23.12.1994, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Lyfjaverslun ríkisins
Bréf ríkisins
verða seld í janúar
SEINNI helmingur hlutabréfa rík-
issjóðs í Lyfjaverslun ríkisins hf.
verður seldur í almennri sölu í lok
janúar nk.
Helmingur hlutabréfa ríkisins í
Lyfjaverslunni var seldur í al-
mennri sölu 17. nóvember. í fjár-
lögum fyrir 1995 er fjármálaráð-
herra veitt heimild til að selja
seinni helming bréfanna.
Að tillögu Framkvæmdanefnd-
ar um einkavæðingu hefur verið
ákveðið að selja bréfin í almennri
sölu í lok janúar nk. Bréfin verða
seld með svipuðu fyrirkomulagi
og kjörum og í nóvember sl.
í frétt frá fjármálaráðuneytinu
kemur fram að ekki verður tekið
við pöntunum vegna kaupa á
hlutabréfunum, en allar nánari
upplýsingar um fyrirhugaða sölu
verða kynntar fyrir fyrsta söludag
um miðjan janúar nk.
VIÐSKIPTI
0
Höftum í viðskiptum með erlend verðbréf aflétt um áramót ^
Spákaupmennska gagn-
vart krónunni möguleg
FJARHÆÐARTAKMARKANIR
sem gilt hafa um skammtímahreyf-
ingar fjármagns milli íslands og
annarra landa falla niður nú um
áramótin. Þar með hefur síðustu
höftunum á gjaldeyrisviðskiptum ís-
lendinga verið aflétt og þeir geta
nú fjárfest eins og þá lystir erlendis
bæði í verðbréfum, fasteignum og
atvinnurekstri eða lagt peninga inn
á erlenda bankareikninga.
Hömlum af íjárfestingum í erlend-
um langtímaverðbréfum var að fullu
aflétt um síðustu áramót og fyrsta
skrefið þá stigið í að afnema tak-
markanir á skammtímahreyfingum.
íslendingar hafa nýtt sér þetta frelsi
í töluverðum mæli á árinu og keyptu
erlend verðbréf fyrir um 7,1 millj-
arða nettó fyrstu tíu mánuði ársins.
Þar af nema kaup á skuldabréfum
ríkissjóðs sem gefin hafa verið út
erlendis alls um 3,7 milljörðum.
Eftir áramótin opnast hins vegar
frekari möguleikar til ijárfestinga í
erlendum verðbréfum m.a. í ríkis-
víxlum annarra landa. Þá gefur
þetta frelsi í íjármagnsviðskiptum
möguleika á stunda spákaup-
mennsku í stórum stíl gegn gengi
íslensku krónunnar sem hefur ekki
verið hægt fram að þessu.
Mikilvægt að vaxtastigið
fylgi vöxtum erlendis
Yngvi Örn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Seðlabanka ís-
lands, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að fjárhæðartakmarkanir á
skammtímahreyfingum fjármagns
hefðu gilt um lífeyrissjóði, trygg-
ingafélög, banka, verðbréfasjóði,
fyrirtæki og einstaklinga. Hins veg-
ar hefðu bankar og sparisjóðir verið
undanþegnir takmörkunum á
skammtímahreyfmgum. Hann sagði
það mat Seðlabankans að ekki væri
von á stórkostlegum breytirigum eft-
ir áramótin. Erfitt væri þó að full-
yrða um hver áhrifin yrðu. „Fjárfest-
ar hafa ekki viljað binda fé sitt mik-
ið í erlendum verðbréfum með föst-
um vöxtum seinni hluta ársins m.a.
af því að þeir hafa átt von á vaxta-
hækkunum. Þessar væntingar hafa
gengið eftir því vextir hafa verið að
hækka og enn frekari hækkanir
liggja í loftinu t.d. í Bandaríkjunum.
Ef þessar væntingar breytast í þá
veru að ijárfestar telji að vextir
muni ekki hækka meira má búast
við að þeir nýti sér þessa möguleika
í auknum mæli. Varðandi skamm-
tímabréfin eru lífeyrissjóðir ekki lík-
legir til að fjárfesta mikið í þeim.
Þá hefur verið útstreymi úr verð-
bréfasjóðum og þeir fremur þurft
að selja bréf.“
Seðlabankinn hefur ekki sérstak-
ar áhyggjur að því að fé streymi úr
landi eftir áramótin, að sögn Yngva.
„Hins vegar er afar mikilvægt að
vaxtastigið á skammtímabréfum sé
í samræmi við vaxtastigið erlendis,"
segir Yngvi. „Ávöxtun á ríkisvíxlum
hefur verið að þokast upp frá því
haust bæði á eftirmarkaði og í útboð-
um. í síðasta útboði hækkaði ávöxt-
un ríkisvíxla um nítján punkta
[0,19%] og kaupávöxtunarkrafa
Seðlabankans í þriggja mánaða rík-
isvíxla er komin í 5,95% á Verðbréfa-
þingi. Þannig hefur bilið minnkað á
milli vaxta hérlendis og erlendra
vaxta. Það er ekkert ólíklegt að
framhald verði á því á næstu vikum
og ef breytingar verða erlendis á
vöxtum verðum við að fylgja þeim.“
i
i
«
«
l:
%
f
CBEEEISIS
Ný húsaleigulög
1. janúar 1995
taka gildi ný húsaleigulög.
Húsnæðisnefndir sveitarfélaga veita almennar
upplýsingar um efni og framkvæmd
hinna nýju húsaleigulaga.
Húsnæðisnefndir sveitarfélaga veita aðilum
leigusamnings leiðbeiningar varðandi ágreiningsefni,
sé þess óskað, og munu leitast við að sætta slíkan
ágreining.
Upplýsingabæklingur um nýju lögin liggur nú
frammi hjá húsnæðisnefndum og félagsmálastofnunum
sveitarfélaga, verkalýðsfélögum, Leigjendasamtökunum,
Húseigendafélaginu, Búsetafélögum og
Húsnæðisstofnun ríkisins.
CgG húsnæðisstofnun ríkisins
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVIK • SIMI: 569 6900 (kl. 8-16) • BREFASIMI: 568 9422
GRÆNT NÚMER (utan 91-svæðisins): 800 69 69
Securitas og Vari
gagnrýna ummæli
eiganda Þjófavarnar
UMMÆLI Magnúsar Steinþórsson-
ar, hóteleiganda í Bretlandi og eins
stofnanda Þjófavarnar hf., í við-
skiptablaði Morgunblaðsins í gær,
hafa vakið hörð viðbrögð forsvars-
manna annarra öryggisfyrirtækja.
Þjófavöm hf. sérhæfir sig í inn-
flutningi á öryggiskerfum og þjón-
ustu þar að lútandi. í samtali við
Morgunblaðið sagði Magnús að
Þjófavörn legði áherslu á sérstakan
símhringibúnað sem hægt væri að
tengja við flest öryggiskerfi og er
búnaðurinn kynntur sem nýstárlegur
Umræddur öryggisbúnaður hring-
ir sjálfkrafa í þtjú fyrirfram ákveðin
símanúmer ef öryggiskerfið færi í
gang og getur kerfið flutt þijú mis-
munandi boð til viðtakanda.
fyrirtækjanna en öðrum einkaaðilum
þar sem slíkt þætti öruggara.
Reynslan segir annað
Ekkert nýtt við búnaðinn
„Það er ekkert nýtt við þennan
búnað, þetta er 15-20 ára gömul
tækni o g hefur verið til sölu hjá flest-
um aðilum sem fást við innbrota-
varnir," sagði Hannes Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Securitas.
„Hjá Vara vorum við með sýningu
í haust í tilefni 25 ára afmælis fyrir-
tækisins og þar sýndum við m.a.
svona búnað sem við byijuðum að
selja hér á landi fyrir tuttugu árum,“
sagði Viðar Agústsson, fram-
kvæmdastjóri Vara.
Hannes sagði að mikill meirihluti
viðskiptavina öryggisfyrirtækjanna
veldi frekar kerfi með hririgibúnaði
sem tengdur væri stjórnstöðvum
Aðspurður um viðbrögð við þeirri
fullyrðingu Magnúsar að vaktþjón-
usta öryggisfyrirtækja sé haldlítil
þar sem þjófar séu nær undantekn-
ingalaust á bak og burt þegar vakt-
menn mæta á staðinn, sagði Hannes
að reynslan segði annað. „Það hefur
Ld. ekki verið brotist inn í Gull og
silfur frá því að þeir fengu sér kerfi
frá Securitas."
„Öryggiskerfi sem eru tengd
stjórnstöðvum öryggisfyrirtækja
fæla þjófa frá því þeir vita hvað slíkt
merkir. Á þann hátt ná kerfin til-
gangi sínum, þ.e. að koma í veg
fyrir innbrot. Það gerist þó oft að
vaktmenn koma að innbrotsþjófum
á innbrotsstað og góma þá,“ sagði
Hannes.
Viðar tók í sama streng og Hann-
es. „Það er ekki hlutverk öryggisfyr-
irtækja að handsama þjófa heldur
koma í veg fyrir skemmdir. Þegar
kerfið nemur að einhver óviðkom-
andi er kominn inn fer af stað bjalla
sem er einmitt gerð til þess að fæla
þjófinn. í flestum tilfellum bregður
mönnum það mikið að þeir hlaupa
upp án þess að valda frekari
skemmdum. Þeir forhertari fara inn
en þá eru miklar líkur á við náum
þeim og það gerist yfirleitt ef þeir
eru að athafna sig eftir að kerfíð
er farið í gang.“
Blóðbankinn óskar öllum blóðgjöfum og vel-
unnurum sínum gleðilegra jóla og góðs komandi
árs með þökk fyrir hjálpina á liðnum árum.
Blóðbankinn