Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ^erfa frá Sómalíu ikvæmdastjóri friðargæslu SÞ nni af 14 flugvélum liðsins. INAR með Kofi Annan, aðstoðar- íkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- i og yfirmanni allrar friðargæslu samtakanna. búin að skilgreina hvað þessi nýja heimsmynd, „New Order of the World“, er, sem tekur við eftir kalda stríðið. Við erum að þreifa okkur áfram. Þegar við metum árangur friðargæslu SÞ verðum við að taka það með í reikninginn. Stjórnmála- menn eru að glíma við aðstæður, sem eru okkur öllum nýjar. Þær taka við af 40 ára ógnaijafnvægi, þegar stór- veldin héldu heiminum í skefjum. Það jafnvægi er ekki lengur fyrir hendi. Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið við. Sums staðar hefur vel til tekist. Nýafstaðnar eru kosningar í Suður- Afríku og í Mosambique og nú er loks verið að ganga frá friðarsam- komulagi í Miðausturlöndum eftir 40-50 ár. Angola gekk ekki, en er aftur í deiglunni. Öll þróun tekur langan tíma. Sameinuðu þjóðirnar stuðla að ákveðnu jafnvægi og stöð- ugleiki fylgir nærveru þeirra. Engin patentlausn er til. Við erum að þreifa okkur áfram og stuðla að ákveðinni þróun í lýðræðisátt," segir Steinar. Sem framkvæmdastjóri friðar- gæsluliðsins í Sómalíu er Steinar Berg Bjömsson að vinna með háar tölur og mannafla. Mánaðarlegur rekstrarkostnaður er kominn úr 80 milljónum niður í 50 milljónir doll- ara. Starfslið hans er 420 alþjóða- starfsmenn og 2.800 Sómalir. „Það er mikið að gera á barnmörgu heim- ili. Ég var orðinn býsna þvældur og það er gott að koma heim,“ segir hann. En hvað tekur við hjá honum eftir að friðargæsluliðið lokar á eftir sér í Sómalíu? Hann kveðst vonast til að fá að ljúka þeim kafla. „Svo tek ég bara við næsta verkefni sem mér verður fengið," segir hann. FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994 25 SILVIO Berlusconi, sem nú hefur orðið að víkja úr emb- ætti forsætisráðherra Ítalíu eftir rúmlega sjö mánaða valdaferil, segist vera maður alþýð- unnar, bendir á að hann hafi sjálfur og hjálparlaust barist til auðæfa og metorða. „Þegar fólkið kýs mann er það eins og vera smurður af Guði. Það er eitthvað háleitt og guðdóm- legt við borgarann sem velur sér leið- toga,“ sagði hann fyrir nokkrum vik- um. Ráðherrann var ekki í vafa um að þjóðin væri sér þrátt fyrir allt hliðholl. Hann hefur aldrei verið mik- ið fyrir að gefast upp eða viðurkenna mistök og sakar andstæðingana um samsæri gegn sér. Stundum bregður fyrir kveinstöfum, nýlega kvartaði Berlusconi undan því í blaðaviðtali hve líf sitt væri orðið hundleiðinlegt eftir að hann venti kvæði sínu í kross og gerðist stjórnmálamaður. Flokkur Berlusconis, Forza Italia, fékk ásamt umbótabræðrum sínum í tveim samstarfsflokkum, Norður- sambandinu og Þjóðarbandalaginu, meirihluta á Italíuþingi sl. vor en samsteypustjórn Berlusconis hefur átt við mikla og sívaxandi erfiðleika að stríða frá því að hún tók við völd- um 10. maí. Berlusconi hét því er hann stofn- aði Forza Italia að uppræta hrikalega spillingu og velferðarsukk í stjórn- málalífi landsins og kjósendur flykkt- ust um flokkinn í kosningunum. Það reyndist ekki auðvelt að efna lof- orðin. Stjómin reyndi að draga úr geigvænlegum fjárlagahalla með því að leggja til lækkun eftirlauna- greiðslna en stéttarfélögin börðust gegn öllum niðurskurði með oddi og egg. Almenningur er heldur ekki reiðubúinn að þiggja bragðvont með- alið ef marka má skoðanakannanir, flestir vilja halda í allar sporslur rík- isvaldsins og réttinn ti! að fara á eftirlaun á besta aldri. Berlusconi varð að sætta sig við að tillögur hans væru útvatnaðar og ríkisíjármálin eru því enn í ólestri. Það stoðar lítið þótt bent sé á að þjóðarframleiðsla hafi vaxið um sjö prósent á árinu og 100.000 ný störf bæst við; líran hefur fallið í verði og stundum hafa dýfurnar verið miklar í samræmi við óstöðugleikann í stjómmálunum. Erfitt frá upphafi Berlusconi, sem er 58 ára gamall og einn af auðugustu mönnum Ítalíu, hóf í reynd afskipti af stjómmálum í janúar. Stjórnmálaferillinn er því stuttur en tilþrifamikiil og margir stjómmálaskýrendur álíta að stjórn hans hafi reynst furðu lífseig miðað við allar aðstæður. Ráðherrann var frá upphafi harka- lega gagnrýndur fyrir að ganga í eina sæng með Þjóðarbandalagi Gianfr- ancos Finis en bandalagið var stofnað á grunni flokks nýfasista, arftaka fasistaflokks Benitos Mussolinis. Nýf- asistar vora ekki taldir húsum hæfir í ítölskum stjómmálum eftir strið og áttu aldrei aðild að stjóm, um það vora jafnt vinstri- sem hægrimenn sammála. Mörgum brá í brún í grannlöndum ítala þegar sigri hrósandi flokksmenn Finis heilsuðu með fasistakveðju Mussolinis í Róm eftir kosningasigur- inn. Vissulega segir Fini að fasisminn sé ekki lengur á dagskrá, bandalagið styðji lýðræðið en víða í Evrópusam- bandinu vora menn áhyggjufullir. Er leiðtogar sambandsins hittust á Korfu neitaði grískur ráðherra að taka í hönd Berlusconis vegna stjómaraðildar nýf- asista. Það fór vel á með þeim ___________ Bill Clinton Bandaríkjafor- seta og Berlusconi er fundur sjö helstu iðnvelda heims var haldinn í Napólí í júlí, hinn síðarnefndi virtist vera að treysta sig í sessi sem kraft- mikill og ferskur leiðtogi er boðaði nútímalega hægristefnu sem ítalir þyrftu á að halda. En þá reið nýtt áfall yfir. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og einn af auðugustu mönnum landsins, varð í gær að segja af sér eftir rúmlega sjö mánaða valdaferil. í grein Krísljáns Jónssonar kem- ur fram að stjómmálaskýrendur furða sig sumir á því hve lífseig samsteypustjómin varð þegar höfð eru í huga vandamálin sem Ber- lusconi þurfti að kljást við Reuter BERLUSCONI á leið á þingfund í gær þar sem hann skýrði frá því að hann myndi kalla saman ríkisstjórn og halda á fund Scalf- aro forseta ef niðurstaðan yrði afsögn stjórnarinnar. Umbótatillög- ur voru út- vatnaðar Umberto Bossi, leiðtogi Norður- sambandsins. Embættismenn saksóknara í Mílanó skýrðu frá því að Paolo Ber- lusconi, yngri bróðir forsætisráðherr- ans, hefði verið ákærður vegna gruns um spillingu í tengslum við rekstur helsta fyrirtækis Berlusconis, Fininvest. Forsætisráðherrann hét ________ því á sínum tíma að hætta persónulegum afskiptum af ijármálaveldi sínu strax og hann tæki við embætti sínu en rökstuddur grunur er um að hann hafi ekki stað- ið það heit og hættan á hagsmunaá- rekstrum er augljóslega mikil. Þessar ásakanir urðu stöðugt ákafari und- anfarna mánuði og Berlusconi gekk illa að sanna sakleysi sitt. Reyndar Gianfranco Fini, leiðtogi Þjóðar- bandalagsins. bentu margir á það í kosningabarátt- unni á að skuldir Fininvest væru himinháar og sjónvarpsjöfurinn sól- brenndi og brosmildi gæti lent í erfið- leikum með að greina full- ------------------- komlega á milli hagsmuna Eldraunin sinna og þjóðarinnar. gæti veríð að I kosningabaráttunni hefiast lýsti Berlusconi sér sem * 1 valkosti gagnvart hefð- bundnum ráðamönnum úr fiokkum kristilegra demókrata og sósíalista sem skipst höfðu á um að halda um stjórnvölinn í meira en 50 ríkisstjóm- um landsins frá stríðslokum. Spill- ingarrannsókn embættis saksóknara í Mílanó hafði flett ofan af framferði gömlu flokkanna og Berlusconi virt- ist því helsta von þeirra hægri- og miðjukjósenda sem yfirgefið höfðu spillingarfursta kristilegra demó- krata en sættu sig ekki við nýfasista eða Norðursamband Umbertos Boss- is. Flokkur Bossis, sem tókst að grafa undan samheija sínum á þingi í gær, átti uppruna í hreyfingu gegn skattpíningu á Norður-Ítalíu og barðist í fyrstu fyrir því að norður- héruðin segðu sig úr lögum við fá- tæktarhéruðin í suðri sem sögð vora lifa á framlögum norðanmanna. Aðstoð Craxis Fyrirtækjarekstur Berlusconis hófst fyrir alvöru á sjöunda áratugn- um er hann auðgaðist á bygginga- braski og þarf vart mikla skarp- skyggni til að ímynda sér að ein- hvern tíma hafi hann beitt hefð- bundnum aðferðum til að liðka fyrir viðskiptum sínum, þ.e. mútum til embættismanna. Sjálfur kennir hann undirmönnum um þau lögbrot sem sannast hafa á fyrirtæki hans. Andstæðingar Forza Italia krefj- ast þess m.a. að settar verði skorður við fjölmiðlaveldi Berlusconis, hinu næstmesta í álfunni, vilja jafnvel að það verði selt áður en næst verði boðað til kosninga. í þessu sambandi má nefna að Bettino Craxi, fyrrver- andi forsætisráðherra úr röðum sós- íalista, er góðvinur Berlusconis og guðfaðir eins af börnum hans. Craxi hundsaði í valdatíð sinni úrskurð dómstóla sem vildu takmarka um- svif sjónvarpsveldis Berlusconis er byggist að miklu leyti á einokun á útsendingarrásum. Fyrir skömmu hlaut Craxi fangelsisdóm fyrir mútu- þægni en hann býr í Túnis og segist vera of heilsulaus til að koma fyrir rétt. Undir smásjánni Liðsmenn saksóknara í Mílanó hafa beint mjög sjónum sínum að Fininvest síðustu vikurnar og nokkr- ir starfsmenn fyrirtækisins hafa ver- ið handteknir, þ. á m. Paolo Berlusc- oni, og sakaðir um að greiða skatt- eftirlitsmönnum mútur. Sjálfur segir ráðherrann að um ofsóknir sé að ræða vegna stjómmálaafskipta sinna. „Ekkert af þessu getur hróflað við mér“, sagði hann í viðtali við International Herald Tribune fyrir nokkru. Reyndin varð önnur, óveðursskýin hrönnuðust upp og er þjóðfrægur frumkvöðull herferðarinnar gegn spillingu, Antonio Di Pietro rann- sóknardómari í Mílanó, sagði af sér nýlega voru margir reiðubúnir að kenna Berlusconi um, hann hefði hrakið Di Pietro úr starfi. Stjórnvöld höfðu skömmu áður skert mjög starfssvið vinnuhóps dómarans og látið hefja rannsókn til að ganga úr skugga um að hópurinn hefði ekki sjálfur brotið lög í herferð sinni. Tortryggnir andstæðingar forsætis- ráðherrans sögðu að Berlusconi væri að reyna að bjarga eigin skinni með því_ að grafa undan rannsókninni. í nóvember skýrðu embættismenn honum frá því að verið væri að kanna hvort Berlusconi hefði sjálfur gerst sekur um refsivert athæfi og í síð- ustu viku var hann yfirheyrður í sjö klukkustundir í Mílanó; ekki hefur enn verið ákveðið hvort hann verður ákærður. Eldraun Berlusconis gæti því verið rétt að byija. Of snemmt er samt að fullyrða að pólitískur ferill hans sé á enda þótt kannanir sýni minnk- ---------- andi fylgi og flokkurinn hafi goldið afhroð í sveitar- stjómarkosningum nýver- ið. Sárafáir treysta gömlu stjórnmálaleiðtogunum og þeir nýju era margir hveij- trúverðugir. ítalir gætu í þingkosningum komist að ir ekki næstu þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir galla sína og vanefndir á kosningaloforð- um sé Berlusconi illskásti kosturinn - en allt veltur á því að ekki takist að sanna á hann svo alvarleg spilling- arbrot að hann hljóti dóm. 18RS, Bræður berjast í Róm i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.