Morgunblaðið - 23.12.1994, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
imm
Vinningstölur miövikudaginn: 21.12.1994
VINNINQAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n6afe 2 20.955.000
CT| 5 a f 6 taD+bónus 0 1.585.932
R1 5 af 6 1 238.500
EJ 4af6 191 1.980
n| 3 af 6 Efl+bónus 668 240
Aöaltölur:
BÓNUSTÖLUR
10 . ® 20
Heildarupphæð þessa viku
44.272.932
aísi, 2.362.932
UPPUVSINQAR, SIMSVARI 91-68 15 11
LUKKULiNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT «EO FYRIRVARA UU PREHTVILLUR
f Vinningur:
fór til Noregs og Finnlands
Vélsleöafatnaöur frá ARCTIC CAT
er hlýlegur, vandaðun,
þægilegur og glæsilegun.
Allt það nýjasta.
-: T . .
íMSMíÉk
GALLAR
BOMSUR
HANSKAR
HJÁLMAR o
Ármúla 13, H)8 Reyltfavík
S: 681200 - bein lína 31236
I DAG
HÖGNIHREKKVÍSI
,, HL m<S/L£GT! -. - H&rrcie/HH HÖGN/ eh.
dOÚAEHJfi. í KJ/ÐPOM f
SKÁK
Umsjón Margcir
Fctursson
ÞESSI staða kom upp á
Ólympíumótinu í mikil-
vægri viðureign Englands
og Hollands í tólftu umferð.
.Julian Hodgson (2.580)
hafði hvítt og átti leik en
Loek Van Wely (2.560) var
með svart. Hollendingurinn
lék síðast 24. - KG8-f7.
25. Bc7! - Dxc7, 26.
Dxe6+ — Ke8, 27. Dg6+!
- Hf7, 28. Re6 (Svaitur
er nú lentur í svikamyllu)
28. - Db6, 29. Rxg7+ -
Kf8, 30. Re6+ - Ke8, 31.
Dg8+ — Hf8 og Van Wely
gafst upp án þess að bíða
eftir svari Hodgsons sem
yrði auðvitað 32. Hd8+.
Þessari viðureign lauk með
sigri Englands 3 ‘/2—‘/2.
Skák Timmans og Shorts á
fyrsta borði var sú eina sem
varð jafntefli. Þar með urðu
verðlaunadraumar Hollend-
inga að engu.
LEIÐRÉTT
íslenski hlutabréfa-
sjóðurinn jók söluna
um 145%
í frétt viðskiptablaðs í gær
um aukna sölu hlutabréfa
kom fram að söluaukning á
hlutabréfum í íslenska
hlutabréfasjóðnum hefði
orðið 60% í desember. Hið
rétta er að aukningin er
145% milli ára.
Rangfeðruð
í grein um þörf fólks fyrir
aðstoð um jólin, sem birtist
í Morgunblaðinu í gær, urðu
þau leiðu mistök að Lára
Björnsdóttir, félagsmála-
stjóri Reykjavíkur, var
rangfeðruð. Hlutaðeigend-
ur eru beðnir velvirðingar á
þessari misritun.
Rangt nafn undir
mynd
Nafn Svanhildar Konráðs-
dóttur misritaðist undir
mynd af henni sem birtist
með grein hennar í blaðinu
í gær. Er hún beðin velvirð-
ingar á mistökunum.
Rangt nafn
I viðtali við Hallbjörgu
Bjamadóttur var rangt far-
ið með nafn Emils Thor-
oddsens, sem var undirleik-
ari hennar í útvarpsþætti.
Eru hlutaðeigendur beðnir
velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Tapað/fundið
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Dýraland í Mjódd
LÍTIL stúlka hringdi og vildi segja frá því hvað
gæludýraverslunin Dýraland í Mjóddinni væri góð
búð. Hún segist oft hafa keypt fugla þar og þeir
séu aldrei veikir eða horaðir.
Brún dúkka
tapaðist í sumar
LÍTIL brún dúkka tapað-
ist á leið frá Reykjavík
tii Blönduóss í júlí sl.
Hún er með viðgerðan
taubúk, plasthendur og
-fætur. Dúkkunnar er
sárt saknað og er
finnandi vinsamlega beð-
inn um að hringja í síma
38662 eða 623636, Auð-
ur og Sveinn, fundar-
laun.
Úlpa tapaðist
MOSAGRÆN köflótt
karlmannsullarúlpa var
tekin í misgripum á Fóg-
etanum 16. desember sl.
Sá sem er með úlpuna
er vinsamlega beðinn um
að hafa samband í síma
74835.
Farsi
01ð94 Fwcut Ctdoont/DMflxjM by Unhwsal Prau SynScata UJ/US&uASS/ccút-TMO-T
//JÝeyr&Uf'attu t/L sóLcxrkresn ?"
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI brá sér í vikunni á
Pizzahúsið við Grensásveg. Á
næsta borði sátu 8 drengir á að giska
11-13 ára. Þarna var greinilega
verið að halda upp á afmæli ein-
hvers þeirra. Drengirnir voru vel
klæddir og prúðir.
Þegar drengirnir voru búnir að
borða pizzurnar drógu þeir allir sem
einn upp sígarettur og byrjuðu að
reykja! Víkveiji varð sem steini lost-
inn að sjá þessa sjón, hélt að svona
nokkuð sæi hann bara í útlendum
kvikmyndum. Það er greinilegt að
hefja þarf stórsókn gegn reykingum
barna og unglinga.
XXX
A
ILOKAUMRÆÐu um fjárlög á
Alþingi má heyra vel ígrundaðar
skoðanir þungavigtarmanna þjóðar-
innar um ríkisbúskapinn og íjár-
málastefnuna. Eða svo skyldi maður
halda. Þegar Víkverji kveikti á sjón-
varpinu sínu rétt fyrir miðnætti þeg-
ar fjárlagaumræðunni var að ijúka
bjóst hann við að heyra þungan nið
þjóðarsögunnar í beinni útsendingu.
En þingmenn voru þá að tala í löng-
um bunum um framlag upp á eina
milljón króna vegna rannsókna á
örverum í Hveragerði og gátu vart
vatni haldið vegna hlátraskalla yfir
málinu.
Víkveiji er áhugamaður um vís-
indi og veit að rannsóknir á íslensk-
um hveraörverum hafa stutt bylting-
arkenndar tilgátur um að líf þrífist
miklu dýpra í iðrum jarðar en áður
var talið, þar sem örverur þrífist á
jarðhita en ekki súrefni og sólar-
ljósi. Honum fannst því amöbu-
brandarar andstæðinga milljónkalls-
ins óþarfir, en ekki fórst stuðnings-
mönnum fjárveitingarinnar málið
betur úr hendi. Einn þeirra fór í
ræðustól og fuilyrti með grafalvar-
legum svip að upphaf málsins mætti
rekja til Suðurlandsskjálftanna
1896, en þá hefðu örverur þessar
fyrst komið upp á yfirborðið með
hveravatninu!
xxx
GRÍNLAUST, er ekki viðfangs-
efni Alþingis íslendinga að setja
rannsóknum fjárveitingaramma, í
stað þess að karpa um smáatriði sem
þingmenn hafa kannski ekki amöbu-
vit á? Vonandi skrifast þessi umræða
á svefngalsa þingmanna eftir langa
og stranga fjárlagalotu, að minnsta
kosti vonar Víkveiji að hún sé ekki
einkennandi fyrir Alþingi íslendinga.
xxx
INKONA Víkveija kom að máli
við skrifara og kvartaði yfir
því að allt of margir þeirra sem bera
út alls kyns blöð og bréf í þessum
jólamánuði vönduðu sig ekki nóg við
starf sitt. Sagði hún algengt að þetta
fólk setti póstinn aðeins í bréfalúg-
una, en ýtti honum ekki alveg í gegn.
Fyrir vikið gustaði inn í íbúðina og
nokkra morgna hefði hún vaknað í
gegnkaldri íbúðinni. Vildi hún koma
þeim óskum til blaðburðarfólks og
bréfbera að það kæmi póstinum alla
leið.
xxx
VÍKVERJI hafði hug á að bæta
við sig svo sem einu tungumáli,
til dæmis frönsku, og fór á stúfana
að kanna hvað væri í boði af mála-
námskeiðum. Víkveija til hrellingar
reyndust það mest vera kvöldnám-
skeið, sem í boði eru, og þau á hann
erfitt með að nýta sér vegna óreglu-
legs vinnutíma, sem oft teygist fram
á kvöldið. Ætli hvergi sé boðið upp
á morgunnámskeið, til dæmis frá
klukkan hálfátta til níu, sem henta
fólki með langan vinnudag?