Morgunblaðið - 23.12.1994, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LEIKFELAG
AKUREYRAR
<■* ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 11200
Stóra sviðið:
• FAVITINN eftir Fjordor Dostojevski
Leikgerð: Simon Gey/Seppo Parkkinen
Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir
Lýsing: Esa Kyllönen
Búningar: Þórunn S. Þorgrímsdóttir
Leikmynd: Eeva Ijás
Leikstjórn: Kaisa Korhonen
Leikarar: Hilmir Snaer Guðnason, Baltasar Kormákur, Tinna Gunnláugsdóttir,
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Gunnar
Eyjólfsson, Halldóra Björnsdóttir, Helga Bachmann, Helgi Skúlason, Hjálmar
Hjálmarsson, Kristján Franklín Magnús, Randver Þorláksson, Sigurður Skúlason,
Stefán Jónsson og Valdimar Örn Flygenring.
Frumsýning 26/12 kl. 20, uppselt, - 2. sýn. fim. 29/12, örfá sæti iaus, - 3.
sýn. fös. 30/12, örfá sæti laus, - 4. sýn. fim. 5. jan. - 5. sýn. lau. 7. jan. - 6.
sýn. fim. 12. jan.
•SNÆDROTTNINGIN eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen.
Mið. 28/12 kl. 17, uppselt, - sun. 8. jan. kl. 14, örfá sæti laus, - sun. 15. jan. kl. 14.
%GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fös. 6. janúar, örfá sæti laus, sun. 8. jan. - lau. 14. jan. Ath. sýningum fer
fækkandi.
• GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman
Fös. 13. janúar. Ath. sýningum fer fækkandi.
GJAFAKORT í LEIKHÚS, SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF
Afsláttur fyrir korthafa áskriftarkorta
Miðasala Þjóðleikhússins verður opin frá kl. 13.00 til 20.00
fram á Þorláksmessu. Lokað verður aðfangadag jóla. Annan dag jóla verður
opið frá kl. 13.00 til 20.00. Tekið á móti símapöntunum virkadagafrá kl. 10.00.
Græna linan 99 61 60 - greiðslukortaþjónusta.
Gleðileg jól!
ss
~ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:
• Söngleikurinn KABARETT — Frumsýning fös. 13. janúar.
2. sýn. mið. 18/1, grá kort gilda.
• LEYNIMELUR 13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage.
Sýn. fös. 30/12, lau. 7/1.
LITLA SVIÐIÐ kl. 20:
• ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson.
Sýn. fös. 30/12, lau. 7/1.
• ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson.
Sýn. fim. 29/12, sun. 8/1 kl. 16.
Gjafakortin okkar eru frábær jólagjöf!
DESEMBERTILBOÐ!
Miðapantanir í síma 68U680 frá kl. 10-12 alia virka daga.
[ dag, Þorláksmessu, er opið kl. 13-20, aðfangadag kl. 11-13, lokaö verður
jóladag, annan dag jóla, gamlársdag og nýársdag. - Greiðslukortaþjónusta.
Gleðileg jól!
FÓLK í FRÉTTUM
• ÓVÆNT HEIMSÓKN
eftir J.B. Priestley.
Frumsýning 27/12 kl. 20:30 örfá sæti
laus. 2. sýn. 28/12 kl. 20:30. 3. sýn.
29/12 kl. 20.30.
Miöasalan opin dagl. kl. 14-18, nema
mánud. Fram að sýningu sýningar-
daga. Sími 24073.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
Ósóttar pantanir eru seldar 3 dögum fyrir sýningu.
Mióapantanir í símum I 1475 og 11476. Miðasalan lokuó 23.-26. des.
Hár-gengið þakkar kærlega fyrir sig - gleðileg jól.
Óskum öllum
viðskiptavinum og
velunnurum
gleðilegra jóla og
farsæls nýs árs.
Þökkum viðskiptin.
HORNIÐ/DJÚPIÐ,
Hafnarstræti 15, sími 13340.
Meistaraverk
leyndist uppi
á háalofti
ÞRÁTT fyrir áletrunina „Vincent"
lá málverk í áratugi uppi á háalofti,
eftir að það hafði verið keypt á
frönskum flóamarkaði. Á endanum
drattaðist eigandinn með verkið til
svissnesks listfræðings og fyrir
skömmu var verkið sýnt í fyrsta
skipti í Listasafni Van Goghs í
Amsterdam.
Málverkið nefnist Kyrrt líf og er
talið vera frá árinu 1886 þegar Gogh
bjó í París. Þá skrifaði hann til ann-
ars listamanns: „Ég málaði röð verka
til að glöggva mig á litum, einfald-
lega af blómum.“ Ekki er vitað hvað
verður um verkið, en ef því verður
stillt upp til sölu má búast við himin-
háu kaupverði. Málverk eftir Van
Gogh var síðast selt árið 1990 og
þá fór það á rúman hálfan milljarð
króna.
Sýnt í ísiensku óperunni.
Vegna mikillar aðsóknar AUKASÝNING:
mió. 28/12 kl. 23, örfó sæti laus.
Þri. 27/12 kl. 20, UPPSELT.
Mið. 28/12 kl. 20, UPPSELT.
Lokosýning fös. 30/12 kl. 24, UPPSELT.
Melros
Place
liðsauka
► LEIKKONAN Jasmine Guy mun
byija í Melrose Place upp úr ára-
mótum, enn einu sinni í hlutverki
vondu stúlkunnar. Hún lék áður
ofdekraða Suðurríkjastúlku,
hitley Gilbert, í þáttunum
„A Different World“, en seg-
ir að í Melrose Place verði
persóna hennar af allt öðru
sauðahúsi.
„Caitlin, persónan sem ég
leik í Melrose Place, nær því
fram sem hún vill, en er
ó mjög ólík Whitley.
fugt við það sem flestir
alda á það sama við um
mig,“ segir Jasmine.
„Annars finnst mér
skemmtilegt að leika
klækjakvendi og ég
held að allir hafi
gaman af óþokka-
brögðunum í
Aftur í
sviðsljósið
LEIKKONAN Diane Lane leikur á.móti Sylv-
ester Stallone í væntanlegri kvikmynd sem
nefnist „Judge Dredd“. Það má segja að með
þessari mynd komi hún aftur fram í sviðsljós-
ið eftir nokkurt hlé, en áður hefur hún leikið
í myndum eins og „The Outsiders", „Rumble
Fish“ og „The Cotton Club“. Hún er gift leik-
aranum Christopher Lambert.
Lane var aðeins tólf ára þegar hún lék í
fyrstu kvikmynd sinni „A Little Romance“ á
móti engu minni leikara en Laurence Olivier.
Þá var hún þó enginn nýgræðingur vegna
þess að allt frá sex ára aldri hafði hún ferð-
ast vítt og breitt um heiminn með farandleik-
hópi. „Ég fór án foreldra minna til allskyns
framandi staða,“ segir Lane, „eins og Líba-
non, Júgóslavíu og Grikk-
lands og í því fólst
vitaskuld viss lær-
dómur."
hreiðrar um sig
LUKAS Haas lék litla
strákinn í myndinni
„Witness" með Harri-
son Ford og á móti
Lauru Dern í „Rambling
Rose“. Hann er að vinna
að mynd með Wynonu
Ryder um þessar mundir
sem nefnist „Boys“ og
virðist vera búinn að
koma sér vel fyrir í
Hollywood. Auk þess
verður hann fyrirsæta í
Calvin Klein auglýsingu fyrir ítölsku útgáfuna af Vogue. „Það
hljómar dálítið einkennilega,“ segir hann. „Ég hef aldrei unn-
ið við neitt þessu líkt áður, en það ætti að vera skemmtiiegt.“
Ritaði og gaf út bók
um föður sinn
„ÉG ákvað að skrifa þessa bók eftir
að ég rakst á mikla bók um Borgar-
nes, þar sem aðeins er minnst á
Eldborgina í 4-5 iínum. Ég varð
mjög vonsvikinn, því skipið lyfti
plássinu á sínum tíma,“ sagði Matt-
hías Ólafsson, eða
Hassi eins og hann er
kallaður, í samtali við
Morgunblaðið. Matt-
hías réðist sjáifur í að
rita sögu Eldborgarinn-
ar og föður síns, skip-
stjórans Ólafs Magnús-
sonar, og gaf bókina
út sjálfur.
Bókin heitir „Halló
Eldborg!" og undirtitill
hennar er „„Ert’að
hlusta Óli?“ Á bók-
arkápu segir, að ms.
Eldborg frá Borgarnesi
hafi verið frægt síldveiðiskip á fjórða
og fimmta áratugnum og stolt Borg-
firðinga, undir styrkri stjórn Vest-
firðingsins Ólafs heitins Magnússon-
ar. Öll stríðsárin, að undanskildum
sumarsíldveiðum og árvissum flutn-
ingum fyrir herinn vor og haust,
hafi Ólafur og áhöfn hans siglt Eld-
borginni krappan sjó á vetrum með
ísvarinn bátafisk til Englands.
Merkur kafli í atvinnusögunni
„Eftir að mér virtist sem þagga
ætti niður þennan merka kafla í
atvinnusögu Borgnesinga ræddi ég
við nokkra gamla skipverj'a á Eld-
borginni,_sem hvöttu mig til að skrá
söguna. Ég byrjaði að sanka að mér
efni fyrir 3-4 árum. í fyrstu ætlaði
ég að hafa þetta heimildasögu ein-
göngu, en heimildirnar voru glopp-
óttar og farið að fyrnast yfír þær
margar. Litlar upplýsingar var til
dæmis að fá um árás, sem gerð var
á skipið, enda mátti ekki ræða slíkt.
á stríðsárunum og
pabbi vildi sem minnst
ræða það. Þess vegna
tók ég mér skáldskaþ-
arleyfi á ýmsum stöð-
um.“
Matthías sagði að
sér hefði vaxið ásmegin
eftir að sjómannablaðið
Víkingur birti nokkrar
örsögur, sem hann
hafði ritað. „Ég hafði
aldrei birt neitt á prenti
áður, en fylltist sjálfs-
trausti og hófst handa
við að rita bókina. Ég
ákvað að gefa hana út sjálfur og
þegar hún kom úr prentun í haust
gekk ég sjálfur í hús og seldi hana,
aðallega sjómönnum. Það var ekki
fyrr en ég fékk einhveija slæmsku
í annað hnéð að ég setti bókina í
sölu í bókabúðum, en þá hafði ég
reynst svo góður sölumaður að mér
tókst meira að segja að selja blind-
um!“
Matthías, sem á bókarkápunni er
kynntur sem myndlistarmaður og
lífskúnstner, myndskreytti bókina að
hluta sjálfur og gerði kápumyndina.
„Þessi bók er minnisvarði um gamla
manninn, föður minn, og því vildi ég
gera þetta sjálfur. Þá er ég ánægður
með hversu vel Borgnesingar hafa
tekið þessu framtaki mínu.“
Matthías Ólafsson,
Hassi.