Morgunblaðið - 23.12.1994, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Simi
16500
STANSLAUSAR SÝNINGAR í STJÖRNUBÍÓI!
TVÆR MYNDIR Á VERÐI EINNAR!
Stjörnubió býður upp á þægilega nýjung i
jólainnkaupunum. Foreldrar, sem gera innkaup á
Laugaveginum, geta keypt einn biómiða fyrir barn sitt
og sá miði gildir á tvær sýningar frá kl. 16.35. til 19.30.
Fólk getur komið og farið að vild. t boði eru myndirnar:
Fleiri pottormar og Þrír ninjar snúa aftur. Tvær myndir á
verði einnar! Kr. 350. Góð jólagjöf!
Sýnd kl. 7.30.
Kr. 800 fyrir
fullorðna.
Kr. 500 fyrir börn
yngri en 12 ára.
Kfl
TAUtlNG
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun. Verðlaun: Boðsmiðar á
________ myndir í Stjörnubíói. Vefð kr. 39,90 min._________
Sýnd í A- sal kl. 9 og 11. B. i 12 ára.
EINN
TVEIR
ÞRIR
Ein stelpa, tveir strákar, þrír möguleikar
* JOLAMYND STJORNUBIOS „ONLY YOU" FRUMSYND 26. DESEMBER *
Glæstar stundir o g
Oskarsverðlaun
Kvikmyndagagnrýnendur víða
um heim eru nú að gera upp
árið 1994, sem flestir eru sam-
mála um að hafi býsna gott ár
í kvikmyndaheiminum. A topp
tíu lista margra gagnrýnend-
anna má sjá spænsku myndina
Belle Epoque — þá sem í vor
hlaut Óskarsverðlaunin sem
besta erlenda kvikmyndin. Hún
er nú loksins að koma hingað til
lands og verður aðaljólamynd
Háskólabíós. Árið 1994 hefur
m.a. verið ágætt gamanmynda-
ár. Ein sönnun þess qr Belle
Epoque, sem er uppfull af kald-
hæðni og gáska.
Leikstjóri myndarinnar er
Fernando Trueba, sem er óum-
deildur meðal fremstu leikstjóra
Spánar og að auki einn afkasta-
mesti kvikmyndafrámleiðandi
þar í landi síðustu ár. Belle
Epoque hefur rakað saman v_erð-
launum víða um heim; auk Ósk-
arsverðlaunanna bandarísku
hlaut hún níu Goya-verðlaun en
svo nefnast helstu kvikmynda-
verðlaun Spánar og auk þess
ýmist tilnefningar eða verðlaun
á mörgum helstu kvikmyndahá-
tíðum á árinu sem er að líða.
Ástig og upplausn
Myndin gerist á Spáni árið
1931. Konungssinnar eru í þann
veginn að játa sig sigraða í bar-
áttu við lýðveldissinna. Fram-
undan er stutt frelsisskeið í
' spænsku þjóðlífi en borgarastyij-
öldin og Franco-tíminn í kjölfar
hennar eru enn handan sjón-
deildarhringsins. Það er upp-
lausnarástand í landinu. í sam-
ræmi við það hefur hinn ungi
Fernando gerst liðhlaupi í hern-
um en hann kemst ekki langt
heldur verður á vegi tveggja lög-
reglumanna sem taka hann
fastan. í upplausnarástandi ger-
ast einkennilegir hlutir. Annar
lögreglumannanna vill sleppa
stráknum enda stríðið tapað og
rifrildi félaganna um þetta
magnast uns annar drepur hinn
og svo sjálfan sig af skömm.
Hafandi endurheimt frelsið á
þennan grátbroslega hátt leitar
Fernando skjóls í nálægu þorpi
hjá málaranum og húmoristan-
um Manolo (frábærlega leikinn
af Fernando Fernán Gómez),
sem tekur ástfóstri við unga lið-
hlaupann. En vinátta þeirra á
sér takmörk og þegar von er á
Qórum dætrum Manolos í heim-
sókn frá Madrid biður hann gest
sinn að fara, því dæturnar fjór-
ar, Luz, Violeta, Clara og Rocío,
eru hver annarri fegurri og Man-
olo veit á hveiju er von dvelji
dætur hans undir sama þaki 0g
Fernando. Þetta eru vandræði
sem Fernando getur ekki hlaup-
ist undan þegar á hólminn er
komið og næstu daga kynnist
hann dætrunum og ýmist tál-
ftfúfcv - ,W- \
dregur eða lætur dragast á tál-
ar. Þetta eru glæstustu stundir
Fernandos — hans eigin Belle
Epoque.
Afrakstur hádegisverðar
I nýlegu viðtali greindi Fern-
ando Trueba frá því hver varð
kveikjan að Belle Epoque. Sér-
hvern þriðjudag undanfarin
fimm ár hefur leikstjórinn hitt
félaga sína og kollega, handrits-
höfundinn Rafael Azcona og
leikstjórann Losé Luis Garcia
Sánchez, á veitingahúsi í Madrid
og snætt með þeim hádegisverð.
„Meðan við borðuðum fórum við
óafvitandi að búa til sögu og
þegar á þessu hafði gengið í
mánuð fórum við að skrifa niður
punkta og síðan að ræða þetta
eins og handrit senu fyrir senu.
Áður en við vissum af vorum við
komnir með fullbúið handrit, sem
enginn hafði búist við og enginn
var að bíða eftir. Við bjuggum
til Belle Epique til að njóta vin-
áttu okkar og samvista hver við
annan, njóta þess að tala saman,
skemmta okkur, segja brandara
og koma hver öðrum á óvart,"
segir Trueba en það var einn
þremenninganna, Rafael Azc-
ona, sem bjó tii úr afrakstri há-
degisverðanna fullbúið kvik-
myndahandrit.
Fernando Trueba játar því að
ýmislegt í myndinni sé sótt í líf
höfundanna. Þar á meðal er þessi
saga af því hvers vegna aðalper-
sóna myndarinnar, sem Jorge
Sanz leikur, heitir Fernando eins
og leikstjórinn sjálfur, og hvers
vegna málarinn, vinur Femand-
os, heitir Manolo: „Einu sinni
þegar ég var 18 eða 19 ára hitti
ég á bar mann sem heitir Man-
olo. Við urðum vinir og í nokkra
mánqði hittumst við á hveiju
kvöldi, drukkum okkur fulla og
ræddum tímunum saman um
bækur, kvikmyndir, myndlist og
stjórnmál. Hann var þá 51 eða
52 ára. Vinátta hins unga Fern-
andos og hins gamla Manolos í
myndinni er í heiðursskyni við
vin minn Manolo. Hann er Man-
olo í myndinni en ég er samt
ekki Femando. Ég var aldrei
svona sakiaus og einfaldur eins
og hann. Ég átti aldrei í ást-
arsambandi við allar dætur
Manolos — ég giftist bara einni
þeirra. En til þess eru kvikmynd-
irnar að betrumbæta sannar sög-
ur,“ segir Fernando Trueba.
Engin
veimiltíta
►ÁÐUR fyrr var Paul Newman
afbragðs kappakstursmaður eða
þar til í fyrra. Þá tók hann þátt
í sex keppnum og fimm sinnum
ók hann bU sínum útaf. I ár hef-
ur hann aðeins tekið þátt í einni
keppni. „Mannleg mistök," segir
Newman. „Með aldrinum skynja
augun og eyrun hættuna ekki
eins snemma og áður. Maður
kemst ekki jafn hratt, svo maður
reynir að aka hraðar.“ Newman
er ekki ungur maður lengur.
Hann verður sjötugur á næsta
ári. „Bette Davis lýsir því best:
Að eldast er ekki fyrir
veimiltítur,“ segir hann.
Newman er engin veimiltíta
og hefur öðlast meiri lífsfyllingu
með aldrinum. Hann hefur ró-
legra yfirbragð og tekur nú
ákvarðanir fyrir sig sjálfur.
Hann hefur rutt sér leið á við-
skiptabrautinni með mjög góðum
árangri. Þá skrifar hann handrit
að næstu mynd sinni, leikstýrir
henni og fer sjálfur með aðal-
hlutverkið. Ekki nóg með það
heldur hefur honum tekist svo
vel upp að flestir gagnrýnendur
spá honum Óskarsverðlaunatil-
nefningu.
PAUL
man tekur
ákvarðanir
sjálfur.
Fimm
viðurkenn-
ingar
í ÁRLEGRI gluggaskreytinga-
keppni Laugavegs og Bankastrætis
dagana 1.-17. desember fengu
fimm verslanir viðurkenningu. Það
voru verslunin Cosmo, Laugavegi
44, Fiex, Bankastræti 11, 4-You,
Laugavegi'' 51, Gull og silfur,
Laugavegi 35, og Jósefína, Lauga-
vegi 17. Fulltrúar þessara verslana
tóku á móti viðurkenningarskjali
frá Gunnari Guðjónssyni, formanni
Laugavegssamtakanna, á veitinga-
húsinu Pasta Basta mánudaginn
19. desember.