Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 1

Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 1
88 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 6. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Hugsanastýrð- ir hjólastólar? LAMAÐ fólk kann að geta stjórnað hjólastólum sínum með hugarorkunni þegar fram líða stundir, að sögn breska dagblaðsins The Daily Telegraph. Ný tækni gerir vísindamönnum kleift að „lesa hugsanir" með því að mæla breyt- ingar á segul- og rafvirkni í heiianum, eða á blóðstreymi. Þýska prófessornum Neils Birbaumer hefur tekist að þjálfa sjúklinga í því að stjórna rafvirkninni i heilanum sem er mjög veik. Birbaumer komst að þvi að sjúklingarnir, sem tóku þátt í tilraun hans, gátu örvað þá hluta heilans sem stjórna hreyfingum likams- hliðanna með því að ímynda sér að þeir væru að hreyfa annan fótinn eða aðra höndina. Hann telur að örtölvuverk geti lesið þessi boð frá heila lamaðra til að sljórna hjólastólum þeirra. ,,Ofurfyrirsætur“ hrella konurnar SVOKALLAÐAR „ofurfyrirsætur", svo sem Kate Moss og Ciaudia Schiffer, gera veiyulegar konur niðurdregnar og jafnvel veikar, samkvæmt könnun sem birt hefur verið í sálfræðitímaritinu Journal of Social and Clinical Psycho- logy. Hartnær sjö af hveijum tíu konum, sem tóku þátt í könnuninni, reyndust þjást af svokölluðum „Barbie-heilkenn- um“, urðu niðurdregnar, taugaspennt- ar, fylltust sektarkennd og skömmuðust sín þegar þær horfðu á myndir af full- komnum líkömum fyrirsætanna. Morgunblaðið/Haukur Snorrason I klakaborg NÁTTÚRAN bauð sannarlega upp á ósvikin listaverk grýlu- leið, á nýársdag. Þar voru á göngu ferðalangar á vegum kerta í Stakkholtsgjánni, austan Steinsholts á Þórsmerkur- Útivistar og Ferðafélagsins sem gistu í Þórsmörk um áramótin. Rússar gera linnulausar sprengjuárásir á Grosní RÚSSNESKAR stórskotaliðssveitir héldu í gær uppi hörðum árásum á miðborg Grosní, höfuðstaðar Tsjetsjníju, en hersveitirnar héldu kyrru fyrir tæpum tveimur kílómetr- um frá forsetahöllinni. Samtökin Læknar án landamæra skýrðu frá því að rússnesk- ar herþotur hefðu varpað sprengjum á fæðingar- og barnalækningadeild sjúkra- húss í bænum Chali í Tsjetsjníju fyrr í vik- unni. 30 manns hefðu látið lífið í árásinni og 150 særst. Sprengjuhríðin í miðborg Grosní var svo mikil í gærmorgun að 15 sprengjur lentu þar á mínútu. Eldur kom upp í efstu hæð- um forsetahallarinnar og þykkur reyk- mökkur var yfir byggingunni. Særðir rúss- neskir hermenn og stríðsfangar eru þar í haldi. Hermenn stjórnarinnar í Tsjetsjníju sögðu að ekki hefðu verið gerðar loftárásir í gær. Hermenn og óbreyttir borgarar reyndu að varast leyniskyttur á brú nálægt forsetahöllinni. Sprengjuárásunum virtist ætlað að btjóta Skýrt frá mannskæðri loftárás á sjúkrahús í Tsjetsjníju niður andstöðu Tsjetsjena í borginni og hægja á liðsflutningum til þeirra. Fregnir hermdu að mikill fjöldi rússneskra fallhlífa- hermanna væri á leiðinni til Grosní og tal- ið var að stórsókn væri í uppsiglingu. Borgurum verði þyrmt Læknar án landamæra hvöttu rússneska herinn til að gera ekki árásir á sjúkrahús og óbreytta borgara eftir að læknar á veg- um samtakanna höfðu skýrt frá loft- árásinni á sjúkrahúsið í Chali, sem er 20 km sunnan við Grosní. Rafmagnslaust er á sjúkrahúsinu eftir árásina, engin kynding og starfsmennirnir þurfa að sækja vatn í nálæga á. Rússneska stjórnin virðist hvergi ætla að hvika frá tilraunum sínum til að brjóta uppreisnarherinn í Tsjetsjníju á bak aftur þrátt fyrir mikla andstöðu innan hersins og vaxandi gagnrýni stjórnmálamanna heima fyrir og erlendis. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, hefur ákveðið að fresta hefðbundinni nýársræðu sinni á þinginu, sem ráðgerð var 11. jan- úar, til næstu mánaðamóta og er það talið til marks um vaxandi einangrun forsetans. Hann hætti einnig við að nota jóladag rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í gær til að leggja hornsteininn að nýrri kirkju í Moskvu. Jeltsín hafnaði á föstudag beiðni Sergejs Kovaljovs, mannréttindafulltrúa þingsins, um að lýsa yfir vopnahléi fyrir jólin, sem haldin eru í Rússlandi 7. janúar. „Það er of snemmt,“ hafði Kovaljov eftir Jeltsín á fundi þeirra í Kreml þar sem forsetinn neitaði að svara gagnrýni á stefnu sína í málefnum Tsjetsjníju. Jnterfax-fréttastofan sagði að a.m.k. 256 rússneskir hermenn hefðu fallið í bardögun- um í Tsjetsjníju. ÉG MUN BERJAST TIL ÞRAUTAR HUGVIT Á HEIMSVÍSU 18 VIÐSKIPTIÁ SUNNUDEGI 22 KORTINI KJALLARANUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.