Morgunblaðið - 08.01.1995, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Heilagl stríð
stæðingar þeirra sífellt gripið til
róttækari ráða.
Andstæðingar fóstureyðinga í
Bandaríkjunum skipta milljónum
og flestir vísa því á bug að ofbeldi
og morðjeyfist í baráttunni. Hlut-
föllin breytast hins vegar hjá þeim
hópi, sem stendur að mótmælum
um allt land. Þar er um helmingur
fylgjandi því að gripið verði til her-
skárri aðgerða.
Forsvarsmenn þeirra, sem vilja
ganga hvað lengst, hittust á fundi
í Chicago í maí. „Það kom ekki
aðeins fram stuðningur við „rétt-
lætanleg mannsmorð, heldur of-
beldi, íkveikjur og sprengjur," sagði
Joe Scheidler, forystumaður einna
af hinum fjölmörgu samtökum, sem
berjast gegn fóstureyðingum, í
samtali við vikublaðið Time eftir
fundinn.
Stærri samtökin á fundinum
krefjast þess reyndar að félagar
skrifi undir skuldbindingu um að
beita ekki ofbeldi, en Fred Hobbs,
lögreglumaður á Flórída, sagði eftir
að hafa rannsakað ofbeldisverk
andstæðinga fóstureyðinga í rúmt
ár að stundum hefði hann á tilfínn-
ingunni að „þessar skuldbindingar
séu gerðar til þess eins að komast
hjá lögsókn".
Þeir, sem telja morð réttlætanleg,
beita eftirfarandi rökum: Ef fóstur-
eyðingar eru morð, þá eru öll með-
ul til að koma í veg fyrir þær sið-
ferðislega réttlætanleg, þar á meðal
morð.
„Ef maður með haglabyssu kæmi
þar að, sem verið væri að fremja
fjöldamorð á sakiausum bömum,
og brygðist ekki við með tafar-
lausri valdbeitingu væri hann að
fremja alvarlegt brot gegn Guði,“
er haft eftir David Trosch, kaþólsk-
um presti, sem sviptur hefur verið
kalli sínu vegna háværra yfírlýsinga
og egningar til ofbeldis.
Oft eiga þeir, sem í orði eru and-
stæðingar ofbeldis, erfitt með að
fordæma voðaverkin. Don Treshm-
an er forseti samtakanna Rescue
America: „Við hörmuðum dauða
[Brittons læknis] álíka mikið og
gyðingur í Póllandi árið 1943 hefði
gert við að heyra að Dr. Josef
Mengele og lífvörður hans hefðu
verið skotnir í Auschwitz þá um
morguninn."
Sókn til hægri
Því hefur verið haldið fram að
harðasti kjarni hreyfingar andstæð-
inga fóstureyðinga sé jafnt og þétt
að færast út á hægri vænginn og
baráttumálunum jafnframt að
fjölga. Randall Terry, leiðtogi sam-
takanna Operation Rescue, er einn
þeirra, sem eru að hasla sér völl á
hinum kristilega hægrivæng.
Samkvæmt vikuritinu The Nat-
ion er Terry að reisa æfingabúðir
í New York ríki fyrir væntanlega
framherja í baráttunni. Meðal kenn-
ara verður séra George Grant, sem
hefur skorað á fylgismenn sína að
íhuga „vopnaða uppreisn í anda
landsfeðranna".
Tímaritið Frontline Kesearch,
sem gefið er út af Planned Parent-
hood, sömu samtökum og reka aðra
læknastofuna, sem Salvi réðst á,
vitnaði nýverið í ræðu Terrys um
tilgang æfingabúðanna: Þar verður
þjálfaður kjarni fólks, sem er her-
skár, sem er grimmur, sem er mis-
kunnarlaus."
Terry vill hrifsa völdin frá „hin-
um frjálslyndu, nautnaseggjunum,
barnamorðingjunum og hommun-
um“. Hann bauð sig fram til þings
árið 1992, en tapaði. Hann hyggur
á framboð árið 1996 og er ómyrkur
í máli um framtíðina: „Orrustan um
sál Bandaríkjanna mun sá sundr-
ungu og ringulreið, sem mun láta
borgarastyijöldina virðast barna-
leik í samanburði."
Þeir, sem vilja að fóstureyðingar
verði áfram Iöglegar í Bandaríkjun-
um, segja að hin ýmsu samtök, sem
berjast gegn þeim, beri með orðum
sínum ábyrgð á ofbeldinu.
„Á meðan við syrgjum hina látnu
og biðjum fyrir hinum særðu, fyll-
umst við reiði yfír því að þessu
ástandi haturs, ótta og hryðjuverka
skuli óhindrað leyft að grassera -
kvöldMóli
KOPAVOGS
NÁMSKEIÐ Á VORÖNN
TUNGUMÁL
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
ÞÝSKA
KATALÓNSKA
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA —
fyrir útlendinga
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA —
stafsetning
5 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA — ritun
5 vikna námskeið
20 kennslustundir
BÓKBAND
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
GRAFÍK
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
VATNSLITAMÁLUN
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
LEIRMÓTUN
6 vikna námskeið
25 kennslustundir
LETURGERÐ OG
SKRAUTRITUN I
7 vikna námskeið
21 kennslustund
LETURGERÐ OG
SKRAUTRITUN II
4 vikna námskeið
12 kennslustundir
LJÓSMYNDUN I
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
LJÓSMYNDUN II
7 vikna námskeið
24 kennslustundir
SILKIMÁLUN
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
TRÉSMÍÐI ;
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
ÚTSKURÐUR
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
VIDEOTAKA
á eigin vélar I
1 viku námskeið
14 kennslustundir
1
VIDEOTAKA
á eigin vélar II
2 vikna námskeið
20 kennslustundir
FATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÚTASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÓKHALD
smærri fyrirtækja
4 vikna námskeið
24 kennslustundir
VÉLRITUN
5 vikna námskeið
20 kennslustundir
Tölvunámskeið:
WINDOWS OG
WORD PERFECT
FYRIR WINDOWS
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
GARÐYRKJA
4 vikna námskeið
14 kennslustundir
FJÖLGUN OG UPP-
ELDITRÁPLANTNA
1 viku námskeið
6 kennslustundir
TRJÁKLIPPINGAR
1 viku námskeið
6 kennslustundir
BRIDS
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
INNANHÚSS-
SKIPULAG
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
LITUR OG LÝSING
1 viku námskeið
6 kennslustundir
GERBAKSTUR
2 vikná námskeið
10 kennslustundir
GÓMSÆTIR
bauna-, pasta- og
grænmetisréttir
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
PASTARÉTTIR
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
EIGINN ATVINNU-
REKSTUR
Námskeiðið er
haldið f samstarfi
við Iðnþróunarfélag
Kópavogs
2 vikna námskeið
20 kennslustundir
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkja félagsmenn sína til náms.i Kvöldskóla
Kópavogs, t.d. BSRB, BHMR, Sókn, VR og Starfsmannaf. Kópavogs.
Kennsla hefst 25. janúar.
Innritun og upplýsingar um námskeiðin 9.-19, janúar kl. 17-21 í símum:
641507 og 44391 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla.
og jafnvel kynnt undir - af þeim,
sem segjast fordæma ofbeldi,"
sagði Kim Gandy, varaforseti
kvennasamtakanna NOW, í samtali
við Boston Globe. Gandy sagði að
þau samtök, sem berðust gegn fóst-
ureyðingum, hvettu til ofbeldis með
því að kalla lækna, sem fram-
kvæmdu fóstureyðingar, „drápara“
og „barnamorðingja".
Breytt hlutf öll á þingi
Öfgafyllsti hópurinn í þessari
hatrömmu baráttu um fóstureyð-
ingar liggur í útjaðri stjórnmálaum-
ræðunnar, þótt hann sé hávær.
Fóstureyðingar eru hins vegar mik-
ið hitamál og oft láta kjósendur
afstöðu sína til frambjóðenda ráðast
af stöðu hans í fóstureyðingamálum
einni saman. Ekkert bendir til þess
að fóstureyðingar verði bannaðar á
næstunni, en í kosningunum í nóv-
ember unnu andstæðingar þeirra
sigur, sem ekki hefur farið hátt.
Svo dæmi sé tekið hafa þeir nú
nægilegt bolmagn á þingi ’til að
tryggja að fóstureyðingar verði
undanþegnar ef frumvarp um
sjúkratryggingar öllum til handa
verður samþykkt. Fóstureyðingar
voru ekki sama hitamálið nú og oft
áður, en þegar upp var staðið höfðu
hvatamenn þess að þær verði bann-
aðar unnið stórsigur.
34 af 36 demókrötum, sem töp-
uðu þingsæti sínu í fulltrúadeildinni
í nóvember, eru fylgjandi því að
boðið sé upp á fóstureyðingar. Af
þeim lutu 29 í lægra haldi fyrir
andstæðingum fóstureyðinga. Eng-
inn sitjandi þingmaður, sem er and-
vígur fóstureyðingum, tapaði sæti
sínu.
Því hefur verið haldið fram að
repúblikanar styggi kjósendur með
afdráttarlausri afstöðu sinni gegn
fóstureyðingum. William Weld, rík-
isstjóri Massachusetts, fékk til
dæmis aðeins að halda ræðu á síð-
asta flokksþingi repúblikana þegar
vitað var að enginn væri að fylgj-
ast með vegna þess að víst þótti
að hann myndi mæla fóstureyðing-
um bót. Er George Bush tapaði síð-
ustu forsetakosningum urðu þær
raddir háværar, sem sögðu að repú-
blikanar yrðu að vera opnari fyrir
öndverðum skoðunum um fóstur-
eyðingar.
Úrslit kosninganna í nóvember
gætu snúið þeirri þróun við og það
gæti til dæmis haft áhrif á það
hver verður næsti forsetaframbjóð-
andi repúblikana, að sögn Bills
Mclnturffs, sem vinnur skoðana-
kannanir fyrir repúblikana. Mclnt-
urff segir að repúblikanar gætu
misst fjögurra til sjö hundraðshluta
fylgi til sérframboða verði næsti
frambjóðandi flokksins fylgjandi
fóstureyðingum. Það gæti fært
Clinton, sem styður fóstureyðing-
ar, sigurinn á silfurfati.
John Salvi var líkast til ekki að
hugsa á þessum nótum þegar hann
tók í gikkinn. Hann er utangarðs-
maður, sem vantaði athygli. Þegar
hann var handtekinn varðist hann
svara um skotárásirnar, en bað því
næst um að fá dagblöð í fangaklef-
ann til sín. Þegar hann skoðaði blöð
frá Boston og New York færðist
bros yfir andlit hans. í yfirlýsingu
sinni á fimmtudag kvaðst Salvi vilja
komast í viðtal hjá sjónvarpsstjörn-
unni Barböru Walters eftir að rétt-
arhöldunum lýkur. Salvi mun senni-
lega ekki þurfa að kvarta undan
því að komast ekki í sviðsljósið á
næstunni.
Ákæruvaldið íhugar nú hvort
krefjast eigi dauðarefsingar, þótt
þær séu bannaðar í Massachusetts.
Það væri Salvi að skapi. „Ef ég
verð dæmdur fyrir það, sem ég er
sakaður um, vil ég sæta dauðarefs-
ingu,“ sagði í yfirlýsingunni. „Ef
sekt mín verður ekki sönnuð, ætla
ég að verða kaþólskur prestur þeg-
ar ég verð látinn laus. Þetta er
ekki játning um sekt, heldur yfirlýs-
ing um ofsóknir á hendur kaþólsk-
um mönnurn."
En hvernig, sem fer fyrir Salvi,
hafa menn nú meiri áhyggjur af
því hvert framhaldið verður. „Þessi
maður er ekkert annað en hryðju-
verkamaður,“ sagði Weld, ríkis-
stjóri Massachusetts, eftir árás
Salvis. „í þessu ríki mun fólki ekki
líðast að útkljá siðferðilegar deilur
með ofbeldi." Þegar „heilagt stríð“
andstæðinga fóstureyðinga er ann-
ars vegar er allsendis óvíst að þeir
láti sér segjast. Þetta óhæfuverk
hefur hins vegar grynnkað á holl-
ustu almennings við málstað
þeirra.
KRAFTGANGA í ÖSKJUHLÍÐ
P E R L A N
• Langar þig að auka þol og styrk?
• Langar þig að koma þér í góða þjólfun til að geta gengið á fjöll?
Við þjálfum úti í fersku lofti í Öskjuhlíðinni og endum hvern kraftgöngutima
inni í Perlunni. Þor gerum við æfingar og teygjur sem við gefum góðan tima.
Boðið er upp á rólega tíma fyrir þá sem ekki hafa verið með okkur áður.
Leiðbeinandi er Árný Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í s. 989-28688 eða s. 43499.
Mannauðsáætlun
Evrópusambandsins
Almennur kynningarfundur á vegum
Rannsóknarráös íslands og Háskólans á Akureyri
10. Janúar, kl. 16.00 í stofu 16 í Háskólanum
á Akureyrl viö Þlngvallastræti.
Mannauösáætlunin fjallar um þjálfun vísindamanna og er hluti af
fjórðu rammaáætlun ESB á sviöi rannsóknar- og þróunarverkefna.
Sérstakur gestur fundarins veröur dr. J. Rosenbaum,
starfsmaöur framkvæmdastjórnar ESB.
Dagskrá fundar:
• Setning fundar og inngangsorð; Dr. Þorsteinn Gunnarsson, rektor
og fulltrúi íslendinga í stjórnarnefnd mannauðsáætlunar ESB.
• Mannauösáætlunin; Dr. J. Rosenbaum, starfsmaöur
framkvæmdastjórnar ESB.
® Umræöur og fyrirspurnir.
Fundi stjórnar dr. Þorsteinn Gunnarsson.