Morgunblaðið - 08.01.1995, Síða 29

Morgunblaðið - 08.01.1995, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 29 Ég talaði síðast við Þórhildi á jólunum og þá var hún hress og vorum við lengi að spjalla saman í gegnum síma. Nokkrum dögum seinna var hringt til mín og mér sagt að hún væri farin frá okkur. Þá kom mér í hug orð Hallgríms Péturssonar í Passíusálmunum. Ó, Jesús, séu orðin þín, andláts síðasta huggun min. Sál minni verði þá sælan vís, með sjálfum þér í Paradís. Gröfín fær ei haldið sál hennar í fjötrum sínum. Hún er ekki hér. Hún lifir og dvelur í þeim heim- kynnum, sem Jesús greindi frá með slíkri fullvissu er hann sagði: „I húsi föður míns eru mörg hí- býli, ég fer burt að búa yður stað.“ Endurminning hennar gleður ávallt hjörtu allra þeirra er þekktu hana. Far þú í friði, elskaða, fagra og friðkeypta sál. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hjá Guði veitist þér nú ávöxtur trúar þinnar og lífsins sem þú helgaðir Honum. Georg Hansson, Port Townsend, Washington. Ég hefi um mína ævidaga kynnst fjölmörgu kristnu gæða- fólki og er einkar þakklátur fyrir' það. En upp úr flóru alls þessa góða fólks stendur Þórhildur B. Jóhannesdóttir, sem við nú kveðj- um hinstu kveðju. Þessi afburða trúkona var fyrir margra hluta sakir einstæður persónuleiki. Hún hafði að mínu mati til að bera alla þá bestu mannkosti sem Skaparinn getur gefíð þeim sem ungir gefast Honum og veija öllu sínu lífshlaupi í þjiínustu fyrir Frelsarann. Þór- hildur var ákaflega vel greind kona og var hún manni sínum, hinum mikla Guðsmanni Ásmundi Eiríks- syni, mikil og ómetanleg stoð. Það var hún bæði sem húsmóðir á tíð- um afar stóru og erfiðu heimili og þá ekki síður við ljölþætt störf Ásmundar sem forstöðumanns Fíladelfíusafnaðarins hér í Reykja- vík. Þegar rætt er um þau hjón má síst af öllu gleymast að geta um hvílíkur stólpi hún reyndist Ásmundi við hin margvíslegu fræði- og ritstörf sem vonandi mun halda nöfnum þeirra hjóna í önd- vegi um ókomna tíma. Það er ekki ætlun mín að rita langt mál um þessa heiðurskonu, til þess munu forystumenn Hvítasunnumanna vafalaust betur hæfir. En það sem fær mig til að rita þessi fátæklegu minningarorð er einstök ástúð sem þau Ásmundur og Þórhildur sýndu mér um margra áratuga skeið. Ég varð þeirrar blessunar aðnjótandi að vera heimilismaður á höfðinglegu heim- ili þeirra á Hverfisgötu 44. Þar fann ég sannan „vin“ í mannlífs- hafinu og mun aldrei gleyma dæm- afáum kærleika þeirra hjóna. En það var ekki aðeins ég sem naut gestrisni og höfðingsskapar á Hverfisgötunni, þar var útigangs- mönnum veitt bæði húsaskjól og matur og veit ég með vissu að sú hjálp er enn í dag fastmótuð í vit- und margra þeirra sem þessara kærleiksverka nutu. Ég vil að endingu þakka Þór- hildi allan þann kærleika og ástúð sem hún jafnan sýndi mér og mín- um. Minningin um góða konu og göfuga mun lengi í minnum höfð. Elsku Þórhildur mín, hafðu hjartans þökk fyrir öll þín fórnar- og kærleiksstörf. Guð blessi minn- ingu þína. Þorvaldur Sigurðsson. Hún Þórhildur er farin heim ... Þegar ég ákvað að rita þessa minningargrein um hana Þórhildi mína eins og ég og margir aðrir kölluðum hana, þá rifjaðist upp í huga mínum rúmlega 40 ára vin- skapur, frá þeim degi sem mér lánaðist að kynnast Ásmundi Ei- ríkssyni forstöðumanni í Fíladelfíu og konu hans Þórhildi. Þá urðu tímamót í lífi mínu sem höfðu ómetanlega þýðingu til blessunar og vinskapar sem aldrei brást. Ég var ungur þegar ég tók þá persónulegu ákvörðun að ganga veg trúarinnar, þ.e. að fylgja Kristi í mínu daglega lífi, en það kostaði kunningja- og vinamissi, einnig átti móðir mín erfitt með að skilja þessa ákvörðun mína (á þeim tíma). Andlegt heimili mitt varð Hvítasunnusöfnuðurinn í Fíladelf- íu, fyrst á Akureyri og_ síðar í Reykjavík. Þá var það að Ásmund- ur og Þórhildur tóku mig að sér af miklum kærleika, og Anna syst- ir Ásmundar sem bjó á heimili þeirra hjóna varð mér sem móðir. Á þessum tíma var mikil vakn- ing í samfélaginu. Fjöldi fólks kom með í starfið, yngri og eldri, ein- staklingar og fjölskyldur sem öll kynntust fljótlega gestrisni og kærleika á heimili þeirra að Hverf- isgötu 44 f Reykjavík. Sérstaka ummönnun og vernd fengu þeir „lágu“ sem oft komu úr mikilli neyð, úr fangelsum, drykkjuskap og margskonar óreglu, jafnvel at- hvarfslausir. Heimili þeirra hjóna var alltaf opið þeim sem voru þurfandi. Það var ekki ósjaldan að þau gengu úr rúmi til að veita öðrum hvíld og hlýju. Ég tel að fyrstu skref Samhjálpar hvítasunnumanna hafi byijað í þessu heimili. Það sem sérstaklega einkenndi þennan griðastað var hve miklum tíma var varið í bænastundir og hugleiðing- ar Guðs orðs — Biblíunnar. Um tuttugu ár liðu í mínu lífí þar sem ég missti, því miður, þetta yndirlega samfélag og átti við mik- inn vansigur að stríða. Áfengis- neysla og önnur óregla setti mig í hlekki sem ég í eigin krafti náði ekki að sigrast á. En varanlegur kærleikur hjónanna Ásmundar og Þórhildar ásamt daglegri fyrirbæn þeirra og Önnu leiddi mig aftur inn á þennan frelsisveg sem ég átti sem ungur maður. Ásmundur og Þórhildur skrifuðu mér reglulega þar sem ég var erlendis, svo tengsl okkar urðu aldrei að fullu rofin. Ég gleymi ekki þeim fögnuði þegar ég kom „heim aftur“ og fékk að reyna að nýju ást þeirra og fyrir- gefningu. Móðir mín hafði á þess- um tíma kynnst þessum hjónum og Önnu Bjöms og mikill vinskap- ur hafði myndast milli þeirra sem varð m.a. til þess að hún á eldri árum gekk þennan sama veg trúar- innar. Það var líka stórt bænasvar. Á síðustu árum hef ég fengið tækifæri til að taka þátt í morgun- bænastundum samfélagsins og í mörg ár var Þórhildur þar hvem morgun. Þegar ytri hrörleiki haml- aði henni að vera með á þessum stundum, gladdist hún svo innilega þegar litli hópurinn kom í morgun- kaffi til hennar. Einnig þá morgna veitti hún okkur svo mikla gleði og von fyrir hvem dag og gaf okkur öryggi í þeirri trú sem hafði mótað allt hennar líf. Ég veit að þessi skrif mín segja aðeins brot af persónuleika og gestrisni Þór- hildar. Ég veit líka að fjöldi ein- staklinga kemur til með að sakna hennar, hún var sem móðir margra. Ég vil líka minnast á Garðar Loftsson sem var henni svo trúr °g tryggur alla daga síðustu árin í lífi hennar. Ég bið góðan Guð að gefa samfélagi okkar fleiri slík- ar mæður og feður sem taka að sér þá sem fáa eiga að. Þórhildur var stólpi samfélagsins, hú var öruggur fyrirbiðjandi. Daginn áður en hún yfirgaf okkur, fór heim, heimsótti ég hana. Hún sagði við mig: Ólafur, ég er svo glöð, mér líður svo vel, ég elska öll bæna- bö.rn mín, og ég hefi fyrirgefið öll- um. Svo klappaði hún lófum og sagði: Ég gæti dansað, mér líður svo vel. Blessuð sé minning Þórhildar, móður svo margra einmana, og styrkur þeim máttlitlu. Drottinn, gefðu fleiri slíka. Ólafur Jóhannsson. MINNINGAR í hinum gullfagra sálmi M. Joch., Hvað boðar nýárs blessuð sól?, stendur þetta erindi: „I hendi Guðs er hver ein tíð, í hendi Guðs er allt vort strið, hið minnsta happ, hið mesta fár, hið mikla djúp, hið litla tár.“ Á síðustu nótt hins liðna árs var burt kölluð úr heimi hér til fundar við Drottinn sinn hin aldurhnigna og kærleiksríka kona Þórhildur Björg Jóhannesdóttir. Að kveldi dags 30. desember 1994, er hún gekk til náða, fól hún sig í hendur frelsara sínum, Jesú Kristi, sem hún var vön, og hafði þjónað svo langa ævi og falið líf sitt. Örugg gekk hún til sængur þessa síðustu nótt ársins. En nú var runnið henn- ar endadægur. Á þeirri nóttu var engill Drottins sendur til að flytja hana heim til sælli heimkynna. Ævitíðin var úti. Hún hafði fullnað æviskeiðið, varð- veitt trúna og var nú geymdur sveigur réttlætisins. Þórhildur var vel gefín, gáfuð og mikilhæf, hafði fallega rithönd og var stílisti með afbrigðum enda prófarkalesari fyrir mann sinn, sem var rithöfundur margra bóka er Fíladelfíuforlag gaf út. Einnig ritstýrðu þau tímaritunum Aftur- eldingu og Bamablaðinu, sem komu út til fleiri ára og voru víðles- in og áttu góðan orðstír hjá fjölda áskrifenda vítt um land. Þannig var Þórhildur utan hús- móðurstarfa sinna virkur þáttur í öllu starfi mannsins síns, sem var fjölbreytt, vandasamt og áhri- faríkt. Hjónaband þeirra og sam- staða á öllum sviðum var aðdáun- arríkt, fyllt kærleika, tillitssemi og örlæti við gest og gangandi. Öllum stóð þar opið hús, risna, ástúð og hlýja í aðbúð og viðmóti. Aldrei var svo þröngt fyrir stafni, að ekki væri rúm, enda gestrisni ávallt í fyrirrúmi, þar hver fann sig velkominn í lengri eða skemmri tíma. Þessum hjónum og heimili þeirra kynntist ég sem þessar línur skrifa, stuttu eftir að þau tóku við forstöðu Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík á ámnum 1946-48. Seinna sem heimilisvinur og sam- starfsmaður um margra ára skeið. Minnist ég þess tíma með mik- illi virðingu og þökk, sem er mér ógleymanleg og lærdómsrík. Þórhildur var mæt kona, með stórt hjarta og ríka móðurhlýju, þó aldrei auðnaðist henni að eign- ast sitt eigið bam, þá voru þau samt mörg bömin sem hún bar umhyggju fyrir og unnið fyrir Jesú Krist. Alla tíð var hún hlý í við- móti, fjölhæf og listræn. Dáðist oft af fegurð fíallanna og litadýrð, þegar sólroðinn blikaði um haf og himin. Hún var klædd hagnýtum hæfileikum, sem nýttust vel við hlið síns ágæta eigmanns. Hún var búin að lifa sem ekkja í tæp 20 ár. I minningunni lifði hún alla tíð sem staðgengill í trú hans, lífsskoð- un og háttprýði. Lífsspor þeirra hjóna voru djúp og áhrifarík öllum er þeim kynntust. Kærleikur þeirra, alúð og trúarfullvissa vom svo dýrmætir eiginleikar, er marg- ir hlutu blessun af. Þó ein stæði hún eftir er maður hennar dó, bar hún allt til enda sömu virðinguna, örlætið og mál- snilldina, sem hún hafði alist upp við í æsku. Öllum var tekið fagn- andi er að garði bar og þeir boðn- ir velkomnir. Glöð í tali voru hafn- ar nýjar umræður og skoðana- skipti, því sjálfur var gestgjafinn víðlesinn og fræðandi. Það sem áður var er breytt. Svæðið autt. Nú er stóll hennar auður og sæti hennar tómt, ævitíðin runnin. Ég minnist mikilhæfrar konu, mik- ils vinar með djúpri þökk og virð- ingu. Hún hvíli í friði. Arinbjörn Árnason. + Elskuleg dóttir okkar og systir, ÁSDÍS BIRTA EINARSDÓTTIR fædd 30. desember 1994, sem lést á vökudeild Landspitalans á nýársdag, verður jarðsungin frá Garðakirkju mánudaginn 9. janúar kl. 10.30. Ása Kristfn Árnadóttir, Einar Bragi Bragason, Elmar Bragi Einarsson. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SVERRIR SIGFÚSSON, Hraunbæ 14, lést 31. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 9. janúar kl. 13.30. Sigurjóna Gottliebsdóttir, Sævar Sverrisson, Bjarney Richardsdóttir, og barnabörn. + Eiginmaður minn, HERMANN JÓNSSON, Amtmannsstíg 4, Reykjavík, verður jarðsuriginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 9. janúar kl. 15.00. Fyrir hönd annarra vandamanna, Guðný Th. Guðnadóttir. + Eiginmaður minn og fósturfaðir, ÁRNI HALLDÓRSSON, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést í St. Jósefsspítala að morgni nýársdags. Útförin verður gerð frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 10. janúar kl. 13.30. Guðrún Valdimarsdóttir, Sigurrós Ásta Siguröardóttir. + Innilegt þakklæti til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, LAUFEYJAR SIGURVINSDÓTTUR Sæborg, Skagaströnd. Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, Kristín Hrönn Árnadóttir, Ólafur Ingibjörnsson, Stefán Þór Árnason, Karitas Pálsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTLAUGAR (DÓTLU) GUNNLAUGSDÓTTUR, Bláhömrum 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir til heimahlynningar Krabbameinsfélagsins og allra þeirra sem studdu hana f veikindum hennar. Gunnlaugur Valtýsson, Elín Þóra Eiríksdóttir, Jón S. Valtýsson, Ásta Björnsdóttir, Guðmundur Valtýsson, Valtýr E. Valtýsson, Björk Einisdóttir, Róbert Valtýsson, Linda Karlsdóttir og barnabörn. Fleiri minningargreiimr um Þórhildi Björgu Jóhannes- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl(®centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.