Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 31

Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 31 MINNINGAR SVERRIR SIGFÚSSON + Sverrir Sigfús- son fæddist á Hólum í Hjaltadal 1. maí 1918. Hann lést á heimili sínu 31. desember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigfús Björnsson og Bergþóra Þórðardóttir sem áttu heima nokkur ár á Hólum í Hjaltadal, eitt ár á Stafshóli í Deild- ardal og á Sauðár- króki frá 1922. Systkini hans voru Friðþjófur, sem er látinn, og Áslaug, lengst af búsett á Sauðárkróki en nú í Reykjavík. 3. ág- úst 1954 kvæntist Sverrir eftirlifandi eiginkonu sinni, Siguijónu Gottli- ebsdóttur frá Ólafs- firði, sem er fædd 1. maí 1918. Þau eignuðust einn son, Sævar, sem er verslunarmaður. Sævar er kvæntur Bjarneyju Ric- hardsdóttur sjúki-- aliða. Þau eiga tvö börn sem heita Ric- hard Haukur og Thelma Sif. Útför Sverris fer fram frá Fossvogskapellu á morgun, mánudaginn 9. janúar. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls að brugðist getur lánið frá morgni til kvelds. (Matthías Jochumsson) SKYNDILEGA er vegferðinni lok- ið. Sverrir, vinur minn, hefur nú kvatt þetta jarðsvið og er þar geng- inn góður drengur og traustur maður. Það var fyrir hálfu áttunda ári sem kynni okkar Sverris hófust þegar hann og Sigurjóna, kona hans, fluttu hér inn í fjölbýlishúsið, Hraunbæ 14. Þau komu þá frá Olafsfirði en höfðu átt heima hér í Reykjavík í mörg ár áður. Sverrir var fæddur og uppalinn í Skaga- firði. Fyrstu spor hans lágu á hinu gamla, norðlenska menningarsetri Hólum, en æskuárin liðu á Sauðár- króki. Þetta voru staðir sem honum þótti vænt um og minntist hann þeirra oft. Hann talaði oft við mig um fegurð fjallanna fyrir norðan. Einu sinni eða tvisvar á hveiju sumri fóru þau hjónin í heimsókn til Ólafsfjarðar og fann ég greini- lega hvað Sverrir hlakkaði alltaf til þeirra ferða. Síðastliðið sumar þegar þau komu að norðan sagði hann við mig: „Það var fallegt að koma á Vatnsskarðið núna og sjá yfir fjörðinn okkar, Blönduhlíðar- fjöllin í allri sinni tign, eyjarnar fögru úti á firði, Málmey og Drang- ey og svo Þórðarhöfðinn." Svo bætti hann við: „Þau eru fögur, íslensku fjöllin." Sverrir var sérstaklega hjálp- samur maður og vildi hvers manns vandræði leysa. Verkmaður þótti hann ágætur og þekkti vel til margra starfa. Hann tók vélstjóra- próf á Siglufirði og gerði um tíma út bátinn Garðar frá Sauðárkróki ásamt Friðþjófi, bróður sínum. Á stríðsárum sigldi hann á skipinu Dagnýju frá Siglufirði milli íslands og Bretlands og starfaði svo árum saman hjá Olíufélaginu Skeljungi. Við Sverrir áttum margar og langar samræður um lífið, tilveruna og löngu liðna tíma þegar hann var lítill drengur norður á Sauðár- króki. Hann sagði mér til dæmis oft frá því þegar hann eignaðist í fyrsta sinn lítið lamb sem hann fékk hjá afa mínum, Hrólfi á Stekkjarflötum. Þetta var ákaflega góð kind sagði hann og bætti við: „Hún var líka frá svo ágætum manni, honum afa þínum.“ Eg naut þess að ræða við Sverri, hann var svo hreinskilinn, einlægur og vel- viljaður maður. Það var gott að koma til þeirra hjóna, traustu fólki að mæta. Þar var hlýja og alúð innan veggja. Allar ánægjulegu stundirnar á heimili þeirra þakka ég. Þar var notalegt því þar ríkti hugljúfur blær, ljúfmannlegt við- mót og nærgætni. En bilið milli birtu og éls er svo örstutt „að brugðist getur lánið frá morgni til kvelds". Sverrir varð bráðkvaddur um hádegisbil á gamlársdag, göngunni var lokið. Konu hans, einkasyninum, tengdadótturinni og barnabörnun- um tveimur bið ég blessunar. Vini mínum bið ég fararheilla. Blessuð sé minning hans. Hjörtur Guðmundsson. vár ■ v? % IMM3 FOSSVOGI ar andfát <er að nönaum Útfararstofa Kirkjugarðanna Fossvogi Simi 551 1266 ANDLEG OG LIKAMLEG UPPBYGGING OG ÞJÁLFUN r Þjálfari: Michael Jorgensen 4. DAN SJON ER SOGU RÍKARI! ÆFINGAR HEFJAST MÁNUDAGINN 9. JANÚAR í NÝJA ÍR-HÚSINU VIÐ SKÓGARSEL Byrjendanámskeið: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19:50 BarnanámskeiS: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:50 Unglinganámskeið: mánudaga og miðvikudaga kl. 19:00 Veri fyrir 3 mán. |Jðð,> kr. eg ð>iððr* kr. i. böm ALLAR NANARI UPPLYSINGAR I SÍMA: 5 8 8 9 845 og 588 3638 Ert þú með hjartað rétt stillt? Hvers vegna ekki að nota púlsmæla? P. OLAI SSOI\ H/F TRÖNUHRAUNI 6, 220 HAFNARFIRÐI, Sími 5651533, Candita sveppaóþolsnámskeið 4 &völct &l. 6.900,- Fyrsta námskeið hefst 16. janúar kl. 18.00. Fyrsta námskeið hefst kl. 17. janúar kl. 18.00. Sólveig Eiríksdóttir býður upp á námskeið í matreiðslu aðalrétta úr grænmeti og baunum, ásamt hollum og góðum eftirréttum. Allt hráefni er laust við sykur, hvítt hveiti, ger og óæskileg aukaefni. Leiðbeiningar frá ónæmissérfræðingi fylgja. Námskeiðin verða haldin að Hamragörðum, Hávaliagötu 24, Rvk. Upplýsingar og bókanir í síma 671812 og 16936^ Prófadeildir (Öldungadeild) Grunnnám: Samsvarar 8. og 9. bekk í grunnskóla. Ætlað þeim, sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja rifja upp frá grunni. Fornám: Samsvarar 10. bekk í grunnskóla. Ætlað þeim, sem ekki hafa náð tilskildum árangri í 10. bekk. Undirbúningur fyrir nám í framhalds- deild. Kennslugreinar í grunnnámi og fornámi eru: íslenska, danska, enska og stærðfræði. Kennt er fjögur kvöld í viku og hver grein er kennd tvisvar í viku. Nemendur velja eina grein eða fleiri eftir þörfum. Framhaldsdeild Æskilegur undirbúningur er grunnskólapróf eða fornám Menntakjarni: Fyrstu þrír áfangar kjarnagreina: íslenska, danska, enska og stærðfræði. Auk þess félagsfræði, saga, eðlisfræði, tjáning, þýska, hollenska, ítalska, stærðfræði 122 og stærðfræði 112. Heilsugæslubraut: Sjúkraliðanám ítvo vetur, kjarnagrein- ar auk sérgreina. Heilbrigðisfræði, sál- fræði, líffæra- og lífeðlisfræði, efnafræði, líffræði, næringarfræði, skyndihjálp, lík- amsbeiting, sjúkdómafræði, sýklafræði og siðfræði. Lokaáfanga til sjúkraliðaprófs sækja nemendur í fjölbraut í Ármúla eða Breiðholti. Viðskiptabraut: Tveggja vetra nám sem lýkur með versl- unarprófi. Kjarnagreinar auk sérgreina. Bókfærsla, vélritun, verslunarreikningur og fleira. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla. Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda og er haldið í lágmarki. Innritun fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, dagana 9. og 10. janúar kl. 17.00-20.00. Kennsla hefst 18. janúar. Ath. Innritun í almenna flokka (frístundanám) fer fram 18. og 19. janúar. Auglýst síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.